Pressan - 15.04.1992, Side 36
36
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 15. APRÍL 1992
Reynir Stefán Gylfason
heitir prýðisdrengur úr Hafn-
arfirði. Nú nú, hann er 19 ára
og því enn tiltölulega ungur og
ferskur og nemur hin æðri
fræði í Flensborg. Reynir er
meyja og hann er ekki áföstu.
Hvað borðarðu í morgun-
mat? „Ég borða seríós með
mjólk.“
Kanntu að elda? „Já, allt
sem er auðveldara að elda en
pylsur.“
Hvar vildirðu helst búa ef
þú ættir þess ekki kost að
búa á íslandi? „í Bandaríkj-
unum, ég bjó þar í ár og kynnt-
ist landinu vel. Þetta er stór-
kostlegt land.“
Hvernig stelpur eru mest
kynæsandi? „Dökkhærðar
með brún augu og ekki of há-
vaxnar.“
Ertu daðrari? ,J2g er ótta-
legur daðrari"
Hvað er þér verst við?
„Óheiðarleika."
Gætirðu hugsað þér að
reykja hass? „Nei, aldrei."
Hefurðu lesið biblíuna?
„Ég er á fyrstu blaðsíðunni."
Ertu trúaður? „Ég er frek-
ar trúaður.“
Hefurðu verið til vand-
ræða drukkinn? „Ég held ég
hafi aldrei verið öðrum til
vandræða drukkinn."
Hvaða rakspíra notarðu?
„Obsession frá Calvin Klein.“
Ferðu einn í bíó? „Ég hef
enn ekki farið einn í bíó.“
Við hvað ertu hræddast-
ur? „Kvenfólk."
Hvaða orð lýsir þér best?
„Hreinskilinn."
Áttu þér eitthvert mottó í
lífinu? „Að ná alltaf aðeins
lengra.“
Reynir Stefán Gylfason
dáðadrengur, ég þakka þér
fyrir. „Það var ekkert.“
Ég er strax kominn með
kvíðahnút í magann út afföstu-
deginum. Það hefur verið sér-
kennilegur maður sem fann
hann upp. Það er bannað að
vinna og það er bannað að
drekka. Ekki veit ég hvað er œtl-
ast til aðfólk geri. Fari á skíði?
Hoifi á vídeó allan daginn? Til
hvers er verið að gefa fólki frí í
vinnunni ef það má ekki fara á
barinn? Þetta er svipað og að
gefa sjómanni frídag á hafi úti
án þess að hleypa honum í land.
Aumur brandari.
Kaffibrúsakarlarnir. Það er mikið vatn runnið til sjávar síðan
þessi mynd var tekin, en brandararnir standa enn fyrir sínu.
HORNSTEINN KAFFI-
BRÚSAKARLANNA
Steinar hf. hafa hafið endurút-
gáfú á ýmsum gömlum plötum á
geisladiskum. Utgáfu þessa kalla
þeir hjá Steinum Homsteina ís-
lenskrar tónlistar. Það kann
kannski ýmsum að þykja það
kyndugt en ein þeirra platna sem
gefnar verða út á ný er platan
Kaffibrúsakarlamir sem fyrst
kom út 1973. Að sönnu er ekki
ýkja mikið um tónlist á þeirri
bráðfyndnu plötu en þeir kveðast
að minnsta kosti á karlamir.
Kaffibrúsakarlamir vom þeir
Júlíus Brjánsson og Gísli Rúnar
Jónsson og komu fyrst fram í
sjónvarpinu árið 1972 í þætti
sem hét Birtingur og slógu sam-
stundis í gegn. Vom í raun fyrstu
skemmtikraftamir sem slógu í
gegn í sjónvarpi. Brandaramir
þóttu góðir og húmorinn var
nokkuð frábmgðinn því sem fólk
átti að venjast, var á stundum fá-
ránleikahúmor. En brandaramir
vom yndislegir og lifa margir
hverjir góðu lífi enn þann dag í
dag. Að langsamlega stærstum
hluta vom þeir fmmsamdir af
Júlíusi og Gísla en einn og einn
var tekinn annars staðar frá. „Það
flaut náttúrlega með sem okkur
þótti nýtilegt en ég held að það
lífvænlegasta af þessu hafi allt
komið ffá okkur,“ sagði Júh'us í
örstuttu spjalli við PRESSUNA.
Og eitt er það í þessu sem er
svolítið merkilegt. Þegar Kaffi-
brúsakarlamir komu fyrst ffam
hétu þeir ekki neitt, persónumar
hétu (og heita) ekki neitt og þeir
kölluðu sig ekki Kaffibrúsakarl-
ana. Það var nafngift sem al-
menningur gaf þeim og festist
rækilega við þá.
ALLTSOTT
♦ ♦
„Þetta er voðalega hugljúf
mynd um bemskuna. Mér sýnist
það hafa heppnast
að skila þessum
tíma og bemsku-
andrúmsloftinu í
myndinni," segir
Theódór Kr.
Þórðarson, einn
leikenda í sjón-
varpsmyndinni
Allt gotteftirDav-
íð Oddsson for-
sætisráðherra sem
sýnd verður á
páskadag.
Theódór er ekki
atvinnuleikari
heldur er hann
lögregluþjónn í
Borgamesi og þar
þekkja hann allir
sem Tedda löggu.
Hann hefur starfað
mikið með leik-
deild Ungmenna-
félagsins Skalla-
gríms í gegnum
tíðina. Bæði leikið
og leikstýrt á veg-
um hennar.
Hrafn Gunn-
laugsson leik-
stýrir verkinu en
Theódór hefur
áður leikið í
kvikmyndum
hans. Lék meðal
annars í Óðali
feðranna og
einnig í Reykja-
Wrigley’s tyggigúmí, dönsk
epli og önnur merki innreið-
ar spillingarinnar í barns-
hjartaö spiiar stóra rullu í
Öllu góöu. Og Teddi lögga
fer líka meö sína rullu.
víkurmynd Hrafns. Fyrir
nokkrum árum leikstýrði The-
ódór einþáttungi
eftir Hrafn sem
heitir Flugumar í
glugganum. Þá
tókust með þeim
nokkur kynni og
í framhaldi af
því léku nokkuð
margir Borgnes-
ingar í Oðali
feðranna. Þar
steig til að
mynda Sveinn
M. Eiðsson fram
fyrir myndavél-
ina í fyrsta sinn.
Sveinn hefur
leikið í velflest-
um myndum
Hrafns og er öll-
um ógleyman-
legur er séð hafa.
„Ég fékk ung-
ur leiklistarbakt-
eríuna og hef
alltaf haft mjög
gaman af að
leika. Maður
slær ekki hend-
inni á móti því
sem áhugavert er
ef hægt er að
koma því við
vegna starfsins
að sinna því,“
segir Teddi
lögga og leikari
að lokum.
HROSS VERÐA LIST
„Þetta em minningabrot af
náttúmfyrirbæmm þar sem sam-
spil efnis og áferðar er mikil-
vægur þáttur. Ég vinn með ull,
hör og hrosshár, ullina og hörinn
lita ég til að ná ffam meiri breidd
í litavali. Hrosshárið spinn ég á
fijálslegan hátt og þannig næ ég
fram villtum þræði,“ segir Þor-
björg Þórðardóttir veflistar-
kona.
Á laugardaginn opnaði Þor-
björg sýningu á myndvefnaði í
Norræna húsinu. Sýningin verð-
ur opin alla páskadagana og
stendur til 26. apríl. Þetta er
fyrsta einkasýning Þorbjargar en
hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga bæði hérlendis og er-
lendis.
Hún lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla fslands 1972 og
var á ámnum 1972 til 1974 í
námi við Konstfack-skólann í
Stokkhólmi.
Hún var einn stofnenda Gall-
erís Sólons Islandus og Gallerís
Langbrókar og var einnig um
nokkurra ára skeið kennari við
Myndlistaskólann.
Nú í maí verður Þorbjörg einn
þátttakenda í farandsýningunni
Form Island II, sem hefúr göngu
sína í Bergen sem hluti íslenskr-
ar menningarviku.
DINNER
Inga Hildur
Haraldsdóttir
leikkona
PRESSAN bað Ingu að
velja gesti í draumakvöld-
verðinn þessa vikuna.
Eiríkur Guömundsson
sem veislustjóri
Laurie Anderson
honum til aðstoðar og
ögmnar
Jeanette Winterson
til að segja okkur af
dansandi prinsessum
Louiz Bonfa
°g
Stan Getz
til að fremja sömbu
Roberto Benigni
til að skemmta uppi á
borðum yfir ísnum
Lisa Hobongwana
því hlátur hennar opnar
öllum leiðina inn á annað
tilvistarstig
Sigga vinkona
því ég sakna hennar og
hún yrði svo skemmtilega
agndofa
Neil Kinnock
því hann þarf á uppörv-
un að halda
Sarah Vaughan
til að syngja alla í svefn
Stephane Grapelli
til að vekja alla og leiða
inn í bjarta nóttina
lendingar stundum veriö jákvæð þjóð
þegar menningin er annars vegar. Oft
er þetta einlæg hrifning, en á tíöum er
þetta eins og þegar menn halda ákaft
með fótboltaliði — það eitt að liðið skuli
vera til veitir ákveöinn sæluhroll. Á
þennan hátt hafa ýmsir hafið þessa
sýningu Óperusmiðjunnar upp til skýj-
anna, næstum eins og hún markaöi
timamót í óperunautninni. Svoleiðis lof
er náttúrlega harla innantómt. Stað-
reyndin er auðvitað sú að þetta er
prýöileg sýning, einlæg og kröftug,
eins og er að vænta af reynslulitlum
flytjendum sem eru á mörkum þess að
vera áhuga- og atvinnufólk. Borgar-
PLATAN
JESUS AND MARY
CHAIN
HONEY’S DEAD
JMC eru komnir aftur og
af meiri krafti en á síðustu
plötu, „Automatic", sem
þótti slöpp en það þarf ekki
að hlusta nema einu sinni á
fjögur fyrstu lögin á þessari
til að sannfærast um að JMC
em aftur orðnir ein besta ný-
bylgjuhljómsveitin í dag.
Þess má reyndar geta að þijú
af þessum fjómm em aðal-
lögin á þremur fyrstu smá-
skífunum. Fær 7 af 10.
leikhús mán. kl. 20.
KLASSÍKIN
• Matteusarpassían. Mótettukórinn
var að enda við að syngja Jóhannes-
arpassiu Bachs og nú bætir kór Lang-
holtskirkju um betur og syngur Matte-
usarpassíu Bachs, sem er álitin enn
stærra og viöameira verk. Þetta er
semsagt heilbrigð samkeppni og góð.
Það er Jón Stefánsson sem stjómar
kómum eins og endranær, en einnig
ern í hópi flytjenda bamakór, kammer-
sveit og einsöngvarar. Hátíðlega
páskalegt — og göfgandi. Gott fyrir
ungar og galopnar sálir. Langholts-
kirkja fim., fös. & lau. kl. 15.
MYNDLIST
• Kristján Guömundsson. Krístján
hugsar stórt en vinnur smátt. Hann
virðist fjarska ihugull og alvörugefinn
listamaöur, en yfirleitt er ekki djúpt á
gamansemi, sem raunar tekst oft að
villa á sér heimildir. Myndirnar hans
em oftast nær smágenrar og krefjast
talsverðrar skoðunar, og ættu að fara
vel á veggjunum á Galleríi 11, sem er
lítill salur og látlaus. Þar sýnir Kristján
teikningar, sem hann kallar svo.
• Kees Visser. Kees (sem þrátt fyrir
hollenskan uppruna er eiginlega orð-
inn (slendingur) ætlar að opna sýningu
í Nýló á skirdag. Þetta eru ekki mál-
verk og ekki skúlptúrar, kannski eitt-
hvað mitt á milli; kannski innstallasjón,
kannski konkretverk - - eöa allt þetta.
Verkin eru sérstaklega sköpuð meö
húsakynni Nýlistasafnsins í huga, sum
eru eintóna og önnur fjalla um liti, ell-
efu liti sem er meðal annars hægt aö
fá hjá málingarverksmiðjunni Hörpu.
ÓKEYPIS
• Messur eru alsendis ókeypis og
auövelt í að komast þegar allar kirkju-
dyr standa upp á gátt um páskana, en
flestar aðrar dyr eru harðlæstar. Þær
eru náttúrlega misjafnlega skemmti-
legar — sumir spyrja reyndar ekki að
því — það fer væntanlega dálítiö eftir
því hvort prestamir eru poka eða ekki.
Trúarhitinn er svo auðvitaö mismikill,
allt eftir smekk; Þeir sem vilja milda
þjóðkirkjukrístni geta bara labbað sig
út i næstu kirkju. Þeir sem vilja eld og
brennistein ættu að leggja leið sína í
Krossinn þar sem er lofað „páska-
lambi, steiktu í eldi heilags anda“. Þeir
sem vilja meiri hátíöleika og serimón-
íur geta svo farið í Kristskirkju á
Landakoti, miðnæturmessur þar eru
fjarska vinsælar, líka hjá þeim sem að-
hyllast ekki pápísku.
• Ráöhús Reykjavlkur. Ráðhúsiö
var víst ekki ókeypis, en það er kostar
ekkert að fara og skoöa. Allt stefnir
reyndar i umferðaöngþveiti við Tjöm-
ina um páskana. Að minnsta kosti tólf
þúsund Reykvíkingar ætla að fara
þangað niöureftir og kanna máliö,
hneykslast eða kætast, gægjast á
gluggana eða verður liöinu kannski
hleypt inn?
SJÓNVARP
• Söngkeppni framhaldsskól-
anna. Hér er spannað breitt sviö. Sem
fyrr eru söngvararnir ungu líklega allt
frá því að vera hroðalega falskir, óviö-
bjargandi, og út í það aö vera hinar
þroskavænlegustu söngpípur, glaðar
og fallegar. Hallærislegir kynnar hafa
sett leiðinlegan svip á keppnina und-
anfarin ár, kannski stendur þaö til
bóta.Sjónvarpið miö. kl. 22.35.
ÞUNGA GÁTAN
LÁRÉTT: lamlóði 2 vitrum 11 skot 12 þyngd 13 sníkjudýrið 15
forlað 17 nafar 18 íhugi 20 svik 21 stingur 23 hláka 24 rösk 25
hjarir 27 glampi 28 mát 29 hávær 32 tíma 36 hvita 37 ótti 39
kássa 40 kista 41 ástæða 43 birtu 44 leggi 46 ágóði 48 þrenging
49 minnki 50 hærri 51 undi
LÓÐRÉTT: 1 teygjudýrið 2 átök 3 egg 4 umstang 5 lýsislampi
6 stubbur 7 ýtni 8 klípa 9 gat 10 vit 14 hest öðlumst 19 skafrenn-
ings 22 grind 24 sáðlöndum 26 dans 27 yrki 29 ístöðulaus 30
okkar 31 kjörkrið 33 nöldrið 34 tusku 35 bjartir 37 grunaði 38
bitru 41 féfletting 42 léleg 45 samvistir 47 ofna