Pressan - 15.04.1992, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR PRBSSAN 15. APRIL 1992
37
í kvöld verður flutt páskafret á Hótel Borg og veröur mjög í
anda hátíöanna meö gulum sétteringum, flottu Ijósasjói og
tilheyrandi. Fretiö veröur eins og eitt stórt skemmtiatriöi, ekki
með neinu hangsi og enn minna af leiðindum. Þarna troða
upp ýmsir skemmtikarlar og gleðikonur, s.s. KK-bandið,
Valdi Flygenring, Silfurtónar og ástsælir Spaöar. Hláturfélag
Suöurlands flytur fjölslysaflugránsleikþátt, sem viðkvæmir
eru varaðir viö, og pínulitlu leikhúskrúttibollukrílin (Ásta,
Harpa og Bára) veröa þarna líka. Mikiö fjör. Mikiö gaman.
STEINCRÍMUR í TÓN-
VERKI ÁN TÓNA
“Við byrjum mjög grand á
miðvikudaginn með kakói og
lummum á torginu og meiningin
er að þar verði mikið glens og
gaman. Við reyndum að fá sem
flesta aðila til að vera með og
það hefur tekist þannig að þetta
verður mjög fjölbreytt," segir
Ásthildur C. Þórðardóttir, starfs-
maður skipulagsnefndar skíða-
vikunefndar, sem stendur fyrir
miklu fjöri á ísafirði um pásk-
ana. Von er á nokkrum þúsund-
um manna sem njóta munu
skíðavikunnar með heimamönn-
um.
Menn reka augun í auglýstan
dansleik upp úr miðnætti á föstu-
daginn langa og páskadag, þar
sem Síðan skein sól leiðir gleð-
ina.
„Það hefur alltaf tíðkast hér á
fsafirði að halda dansleik á föstu-
daginn langa og páskadag og
mér skilst að þetta sé einn af fá-
um stöðum á landinu þar sem
hefð er fyrir því. í gamla daga,
þegar skíðavikan var, vom alltaf
böll á þessum dögum. Það er
gott færi í brekkunum og í raun
eini skíðastaðurinn þar sem ver-
ið hefur nægur snjór. Vonandi á
veðrið eftir að leika við okkur.“
Dagskráin er ansi hreint ótrú-
leg og inniheldur garpamót þar
sem hraustir reyna með sér,
furðufataball, grillveislur, leik-
sýningar, sælgætisregn, fallhlíf-
arstökk, dansleiki og skemmtan-
ir, endalausar skíðaveislur...
son, — þekktur fyrir flest annað
en að segja sögur.
„Hann gegnir því merkilega
hlutverki í þættinum að lesa út-
drátt úr sögunni og ferst honum
það vel úr munni."
Flytjendur em bæði einsöngv-
arar og blandaður kór og er þátt-
urinn á dagskrá Ríkisútvarpsins
klukkan tuttugu mínútur yfir
fjögur á annan í páskum.
Freyskatla er hvorki tónverk
né leikverk en hvort tveggja
samt. Hún byggir á Hrafnkels
sögu Freysgoða og em eingöngu
notaðar mannsraddir í verkinu,
engin áhrifahljóð önnur. Þetta er
raddskúlptúr.
“Þetta er unnið eins og tón-
veik en hins vegar enginn tónn
eða músík í venjulegri merkingu.
Það er samt skipað í mllur eins
og í ópem; bassi, tenór og sópr-
an, til að fá ákveðinn blæ. Fyrir
vikið er þetta mjög sérkennilegt
stykki, eftir Magnús Pálsson,"
segir Ævar Kjartansson dag-
skrárgerðarmaður.
Til að hlustendur skilji og
haldi þræðinum er fengin mjög
þekkt rödd til að vera söguper-
sóna. Þar er enginn annar kom-
inn en Steingímur Hermanns-
BÍÓIN
CATCHFIRE REGNBOGINN
Fín mynd fyrir þá sem þykir vænt um gömlu fyllibyttuna Dennis Hopper. Nokkuö
sniöug en líka hálfkjánaleg; eins og fólk sem er nýbúiö aö láta renna af sér og ætlar
fljótt aö veröa miklu betri manneskjur. Áöur en Catchfire hefst fá áhorfendur trailer-
inn af Delicatessen í kaupbæti. Hann stendur einn undir báöum stjörnunum. ★★
BANVÆN BLEKKING Final Analysis BÍÓHÖLLINNI
Ef fólk sættir sig ekki viö sæta aðaleikara og fáein snyrtilega tekin skot í losaralegri
sögu sem veröur æ minna áhugaverö eftir því sem á líður, þá hefur þaö ekkert erindi
á þessa mynd. En poppiö var gott, sætin fín og hljóðkerfiö rosalegt. ★★
• Kristnihald undir Jökli. Kristni-
haldiö er langt í frá besta bók Halldórs
(ber þess reyndar hálfpartinn merki að
Bítlarnir hafi veriö famir aö hafa áhrif á
hann) og Kristnihaldið er langt í frá í
flokki betri íslenskra bíómynda. Lík-
lega er hún þar fyrir neöan meöallag,
því flest í henni virkar hálf stirðbusa-
legt, nema kannski jökullinn. Samt er
sjálfsagt aö horfa, þó ekki sé nema
upp á samhengið í kvikmyndasögu
þjóöarinnar. Sjónvarpiö fim. kl. 21.50.
BÓKIN
ÞORVALDUR GYLFA-
SON OG FÉLAGAR
UMSKIPTI — FRÁ
MIÐSTJÓRN TIL MARK-
AÐAR
Þessi bók verður gefin út í
helstu miðstýringarlöndum
heims - A-Evrópu og ís-
landi. Frábært framtak og
ágóðinn rennur til bama-
heimilis í Lettlandi. Má vera
að þetta verði biblía mark-
aðsmanna austursins og þá
verður Þorvaldur loksins al-
mennilegur spámaður. Það
eina sem vekur spumingar
er útgáfan í Svíþjóð en ætli
þeir þurfi ekki á ráðlegging-
um Þorvalds að halda. I hag-
sýna flokknum fær hún 8 af
10.
• f fótspor Muggs. Svo oft er maöur
búinn aö heyra aö Muggur hafi verið
„Ijúflingur aö eiginlega er maður orö-
inn hálfþreyttur á þeirri klisju, sem nátt-
úrlega þarf ekki að vera ósönn fyrir
því. Sannleikurinn er náttúriega sá að
þetta var hæfileikamaöur, góður
drengur, en allbreyskur. Sú hlið á
Muggi verður kannski ekki ofan á í
þessum þætti Bjöms Th. Bjömssonar,
en við getum lofaö því aö hann verður
háttstemmdur og fullur af mál-
skrúöi.Sjónvarpió sun. kl. 21.
• Fyrsti hringurinn. Kommúnisminn
varö úreltur meö hruni Sovétríkjanna
og aö vissu leyti Solzhenitsyn líka. En
náttúrlega hafði Solzhenitsyn á réttu
aö standa og náttúrlega er hann mikill
rithöfundur og einna merkastur skrá-
setjari lífs undir alræöisvaldi kommún-
ismans. Fyrsti hringurinn er ein af auð-
lesnari sögum Solzhenitsyns og hér er
hún orðin aö tveggja þátta sjónvarps-
mynd frá Bretlandi. Sjónvarpiö sun. kl.
22.05 Smán. kl.21.30.
• Suðurhafstónar. South Pacific
náttúrlega, yndislega hallærislegur
söngleikur eftir Rogers & Hammer-
stein. Sérstaklega er þó gamli Frans-
maðurinn halló, hlustið bara á hrei-
minn. Lögin eru skemmtileg og al-
þekkt, söngleikurinn er fullur af léttúö
sem er þó svo siöavönd aö hún hlýtur
aö sleppa á föstudaginn langa. Stöö 2
fös. kl. 16.05.
• Ustinov og austurlandalestin.
Ustinov var á einhvern hátt maður sjö-
unda áratugarins. Frægöarsól hans
hefur hnigið dálítiö, en samt hefur ver-
VINSÆLUSTU
MYNÞBÖNDIN
1 Terminator 2
2 Backdraft
3 Quigley Down Under
4 Homer and Eddie
5 Fjörkálfar
6 Lömbin þagna
7 Teen Agent
8 Arachnophobia
9 Hard Way
10 Hudson Hawk
iö sagt aö hann yröi sjálfkjörinn forseti
hins stóra Evrópurikis, af þeirri ástæöu
að hann kann flest Evrópumál og er
heimavanur meöal ólíkra Evrópu-
þjóða. Hér bregöur hann sér bæjarleiö
austur álfuna og til Asíu meö þeirri
sögufrægu Austuriandahraölest.Sfðð
2fös. kl. 20.25.
LÍKA í BÍÓ
• BfÓBORGIN: Vighöföi"" JFK"
Faöir brúöarinnar" BIÓHÖLLIN:
Bannvæn blekklng" Faöir brúöar-
innar" Sföasti skátinn" Thelma &
Louise"* Pétur Pan*" Svikráö**
HÁSKÓLABlÓ: Litli sniilingurinn*"
Harkan sex* Ævintýri á noröurslóö-
um** Frankie & Johnny** Lömbin
þagna"* Háir hælar** Dauöur aft-
ur** Tvöfalt Iff Verónlku*** LAUGAR-
ÁSBÍÓ: Reddarinn* Víghöföi*"*
Barton Fink*" REGNBOGINN:
Catchfire** Kolstakkur*"* Fööur-
hefnd* Kastali móöur minnar*"
Léttlynda Rósa*" Ekki segja
mömmu* Homo Faber**** SÖGU-
BIÓ: Kuffs" JFK" STJÖRNUBÍÓ:
Hook" Strákarnir í hverfinu" Stúlk-
an mfn'" Börn náttúrunnar***
... fær Ari Þór Jóhann-
esson radíóamatör. Hann
var eini maðurinn á jarð-
ríki sem lét sig örlög
Sergeis Krikalev, geim-
farans sovéska sem
hringsólaði um jörðu,
einhverju skipta og tal-
aði reglulega við hann.
VISSIRÞÚ
... að það kostar 1.000 doll-
ara (60 þúsund krónur) að
taka þátt í forvali fyrir banda-
rísku forsetakosningarnar í
New Hampshire? I vetur
skráðu 63 sig til þátttöku og er
það met. Það er hins vegar dýr-
ara að taka þátt í forvalinu f
Texas. Þar rukka demókratar
forsetakandídatana um 4.000
dollara (240.000 krónur) og
repúblikanar um 5.000 dollara
(300.000 krónur). Það er hins
vegar ókeypis að taka þátt f
forvalinu í Kalifomíu.
... að samkvæmt fjölmiðla-
könnun Gallup horfðu 58 pró-
sent þátttakenda á ’92 af stöð-
inni? Það eru um 110 þúsund
manns eða 100 sinnum hús-
fyllir í Háskólabíói. Það eru
líka tæplega 14 sinnum fleiri
en sáu Hvíta víkinginn, Ryð og
fleiri íslenskar myndir sem
hafa fengið hvað dræmasta að-
sókn að undanfömu.
... að samkvæmt upplýsing-
um frá Hagstofunni hefur einn
íslendingur gift sig sjö sinn-
um? Methafinn er kona. Til
samanburðar má geta þess að
Mongut konungur, sá sem Kon-
ungurinn og ég er um, átti 9.000
eiginkonur og allar samtímis.
FRÍAR HEIMSENDiNQAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR
PÖNTUNARSlMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Gransáavegl 10
- þjónar þér allan aólarhrlnglnn
TTl S\ T 1.J tlJ 4 m
Kántríbandið AMIGOS
sem eru þeir
PAT TENNIS, VIÐAR JÓNSSON
OG ÞÓRIR ÚLFARSSON
ned hattana
Aldurstakmark 23 ár
* muursiaiuuaiK ar
V
**••»»»»*»«»%»
BORGARVIRKIÐ « ÞINGHOLTSSTRÆTI2 * S: 13737