Pressan - 28.05.1992, Page 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAI 1992
F Y R S T
F R E M S T
GUÐNÝ HÖSKULDSDÓTTIR. Ábyrgðasjóður lögmanna greiddi
hátt í 12 milljónirlil skjólstæðinga hennar.
SKÚLI SIGURÐSSON. Ábyrgðasjóðurinn tæmdist síðan þegar
kröfur frá skjólstæðingum hans tóku að berast.
GUÐNÝ OG SKÚLI
TÆMDU SJÓÐINN
Nú er ljóst að lögmenn ætla
ekki að greiða sérstaka aukaupp-
hæð í eigin ábyrgðarsjóð honum
til bjargar. Ekkert nema gjald-
þrot blasir því við sjóðnum
vegna hárra upphæða sem hann
hefur orðið að greiða út vegna
tveggja lögmanna, þeirra Guð-
nýjar Höskuldsdóttur og
Skúla Sigurðssonar. Eftir því
sem komist verður næst þurfti
sjóðurinn að greiða hátt í 17
milljónir króna til skjólstæðinga
þeirra vegna vörslufjár sem þau
höfðu undir höndum. Upphæðin
var töluvert hærri vegna Guð-
nýjar eða um 12 milljónir króna.
Þá er það hald manna að fleiri
gjaldþrot lögmanna eigi eftir að
kalla á greiðslur úr sjóðnum,
sem nú er tæmdur.
SIGMUNDUR GEFST
EICKI UPP
í Háskólanum eru ennþá til
menn sem láta sig dreyma um
háskólasjónvarp. Þar er í farar-
broddi Sigmundur Guð-
bjarnason, fyrrum rektor og
formaður sjónvarpsnefhdar Há-
skólans. Olafur G. Einarsson
menntamálaráðherra hefur hins
vegar verið mátulega hrifmn af
háskólasjónvarpi á sama tíma og
alls staðar er skorið niður.
I viðtali við nýútkomið Stúd-
entablað segist Sigmundur al-
deilis ekki ætla að gefast upp.
Fræðslusjónvarp á borð við þetta
sé framtíðin. Skilningsleysi virð-
ist hins vegar mikið og útbreitt.
Þannig mun Sjónvarpið ekki
hafa haft neinn áhuga á að end-
urvarpa þessu efni, og stærstu
fyrirtæki landsins hafa gefið af-
svar, vilja ekki styðja þetta fram-
tak. Sigmundur rekur það til
orða menntamálaráðherra, þau
hafi torveldað starfið mjög.
En Sigmundur heldur ótrauð-
ur áfram. Sjónvarpsnefndin hef-
ur sótt um leyfi til að reka sjón-
varpsstöð hjá útvarpsréttar-
nefnd. Nefndin hefur ekki veitt
leyfið og vill fá að vita hvort það
samrýmist lögum um Háskóla
Islands að reka sjónvarpsstöð.
Samt verður haldið áfram að
leita eftir fjármagni, í þeirri von
að hægt verði að hefja tilraunaút-
sendingar á kennslufyrirlestrum
í haust. Nefndin vinnur semsagt
kappsamlega og er stefnt að því
að skila áliti til Háskólaráðs 1.
júlí. Það ræðst svo af áliti ráðsins
hvemig málið æxlast.
SAMKOMULAG HJÁ
MAGNÚSI OG
ÞRESTI
Tvíhöfða nefndin um endur-
skoðun sjávarútvegsstefhu, sem
Þröstur Ólafsson og Magnús
Gunnarsson stýra, hefur fúndað
stíft síðustu vikiunar. Svo virðist
sem töluvert hafi þokast í sam-
komulagsátt og setti óvænt
flokksþing Alþýðuflokksins
strik í reikninginn. Nefndinni,
ekki síst sjálfstæðismönnum, er
sem sé í mun að koma saman
einhverjum drögum að sam-
komulagi áður en kratar koma
saman og samþykkja ályktanir
sem myndu skerpa enn á skilun-
um á milli flokkanna í þessu við-
kvæma máli. Nefndin á að skila
af sér í haust.
BORGUÐU NORSKIR
ÚTGERÐARMENN
MÁLSKOSTNAÐ
MAGNÚSAR?
Eins og alþjóð veit var Magn-
ús Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður að hluta til fundinn
sekur fyrir bæjarþingi Osló-
borgar í máli Greenpeace gegn
Sakadómur í Reykjavík hefur
gert Gísla Böðvarssyni, til
vinstri á myndinni, að greiða
fjársekt vegna meintra brota
um félagaskyldu, en starfsfé-
lagi hans, Grétar Kjartansson,
hlaut sýknu af sama ákæru-
atriöi.
Annar dæmdur,
hinn sýknaður
Sakadómur Reykjavíkur hefur dæmt sendibfl-
stjóra vegna meintra brota á félagaskyldu, en
hefur einnig komist að gagnstæðri niðurstöðu og
sýknað annan sem var kærður fyrir sömu sakir.
Er dæmda gert að greiða 30 þúsund króna sekt
en sá sem var sýknaður er að vonum laus allra
mála.
Málavextir eru þeir að sendibifreiðastjóramir
Gísli Böðvarsson og Grétar Kjartansson voru
kvaddir í yfirheyrslu til lögreglu vegna kæru sem
til hennar barst frá sendibílafélaginu Trausta um
ólöglega gjaldmæla, þar sem sendibflastöðin
3x67 hækkaði ekki gjald sitt um 2 prósent eins
og verðlagsstjóri hafði heimilað. Flest ákæmat-
riði duttu fljótlega upp fyrir en eftir stóð kæran
um að mennimir væm ekki félagar í Trausta.
,T>að ríkir samkeppni í þessu eins og öðm, það er
að segja ef hún fær að ríkja,“ segir Grétar. „Það
var fyrst kært út af allt öðm en það datt síðan upp
fyrir. Síðan snerist þetta einungis um það að vera
ekki í Trausta. Þeir hafa sjálfsagt verið að þreifa
fyrir sér í fyrstu.“
Dómarar komust að sitt hvorri niðurstöðunni
og dæmdu Gísla til fjársektar en Grétar var sýkn-
aður á þeim forsendum að „dómurinn telur
skylduaðild að ákveðnu stéttarfélagi, til að njóta
tiltekinna atvinnuréttinda, vera slíkar hömlur á
atvinnufrelsi manna að ekki sé hægt að leggja
þær á nema með lögum sbr. 69 grein stjómar-
skrárinnar". Vonandi er með þessum dómi búið
af létta af þeim hömlum sem gera mönnum skylt
að vera aðilar að stéttarfélagi.
honum. Magnús var dæmdur til
að greiða 300 þúsund króna
miskabætur fyrir óviðurkvæmi-
legt orðalag í myndinni, máls-
kosmað og málsvamarlaun verj-
anda síns, Eriks Johnsrud.
í blaðinu Lofotposten birtist
um daginn frásögn af málinu og
kemur þar meðal annars fram að
Landssamband norskra útgerð-
armanna, Norges Fiskarlaget,
hafi fyrir úrskurðinn ábyrgst
greiðslu á málsvamarlaununum
og málskostnaðinum. Þar er
ennfiremur rætt við Jon Lauritz-
en, upplýsingafulltrúa Norges
Fiskarlaget, og haft eftir honum
að á þeirri stundu gæti hann ekki
sagt til um hvort NF eða önnur
samtök norsks sjávarútvegs
kæmu til með að greiða miska-
bætumar, 300 þúsund. „Eftir því
sem ég man best náði ábyrgðin
til ákveðinnar upphæðar. Smáat-
riðin get ég ekki svarað til um,“
segir Jon.
Væntanlega hafa engir pen-
ingar enn komið til greiðslu,
enda ákváðu Magnús og lög-
maður hans að áfrýja dómnum.
Hitt liggur nú fyrir að norskir út-
gerðarmenn hafa ákveðið að
borga fyrir Magnús upp að vissu
marki.
STOKKSEYRINGAR
KYNGDU YFIRGANGI
ÞORLÁKSHAFNAR-
MANNA
f gær fóm fram þrír sögulegir
aðalfundir í veitingastofunni
Duggunni í Þorlákshöfn. Klukk-
an 17.30 komu saman hluthafar í
Hraðfrystihúsi Stokkseyrar og
var fundurinn ákvarðaður tveir
klukkutímar. Klukkan 19.30 tók
við aðalfundur Glettings og
skyldi standa í einn klukkutíma.
Á þessum fundum samþykktu
hluthafahópamir tveir að sam-
einast í hlutafélagið Ámes, hvers
aðalfundur hófst síðan kl. 20.30.
Vitað er að meðal Stokkseyr-
inga hefur ríkt óánægja með fyr-
an hlut HS í Ámesi, 36 prósent á
móti 64 prósentum Glettings-
manna. Ekki hefur bætt úr skák
að 77 prósent af þessum 36 pró-
sentum HS em í eigu Hlutafjár-
sjóðs Byggðastofnunar, en annar
fulltrúa sjóðsins í HS, Sigfús
Jónsson, er talinn arkitekt sam-
einingarinnar, þ.e. þeirrar að-
ferðar sem notuð var til að finna
út skiptinguna. Allt um það þóni
ömggt hvemig atkvæðum
Hlutafjársjóðs yrði varið á aðal-
fundi HS. Það segir sína sögu að
Stokkseyringum þótti ekki taka
því að fá ffam ffest á aðalfundin-
um ffam yfir það, að Ríkisendur-
skoðun skilaði skýrslu um for-
sendur sameiningarinnar, en
Árni Johnsen bað um slíka
skýrslu ánýafstöðnu þingi. Sam-
einingin er því orðin að vem-
leika og skiptir þá engu hvort
Ríkisendurskoðun kemst e.t.v.
að þeirri niðurstöðu að hags-
munir HS — og þar með Hluta-
fjársjóðs — hafi verið skertir á
einhvem hátt við eignarhalds-
skiptinguna.
MAGNÚS GUÐMUNDSSON. Borgaði Norges Fiskarlaget málskostnaðinn? SIGMUNDUR GUÐBJARNASON. Vill endilega háskóla-
sjónvarp. ÓLAFUR G. EINARSSON. Er mátulega hrifinn af hugmyndinni. ÞRÖSTUR ÓLAFSSON & MAGNÚS GUNNARSSON. Sam-
komulag í höfn í sjávarútvegsnefndinni. SIGFÚS JÓNSSON. Arkitekt að eignfærslu veiðiréttinda og kvótalausra báta.
Viljið þið kannski fá
jólasveininn sem for-
mann, Páll?
„Það erfjármálaráðherrans
að ákveða hvort hatm velur
Birgi eða jólasveininn sem
formann. “
Bandalag háskólamanna hjá ríkinu
hefur krafist þess aö nýr formaður
verði skipaður í samninganefnd
ríkisins. Birgir Guðjónsson skrif-
stofustjóri hefur gegnt því starfi.
L í T I L R Æ Ð I
afkomplex
Þegar ég var lítill grét ég oft
ofaní treyjuna hennar ömmu
minnar útaf því hvað ég væri lít-
ill, en þá sagði hún:
- Vegir guðs em órannsakan-
legir, og ég fór að hafa hom í
síðu guðs.
En amma vildi ómögulega að
upp kæmu sambúðarörðugleik-
ar hjá okkur guði og sagði:
- Hvemig vom ekki Napóle-
on, Hitler og Helgi Hjörvar?
Og þá grét ég svo mikið að
amma varð að skipta um treyju.
Nú er ég hættur að síffa ofaní
treyjuna hennar ömmu minnar
útaf því hvað ég sé lítill enda er
hún löngu dáin, blessunin, og ég
orðinn stór einsog það er stund-
um kallað í yfirfærðri merk-
tngu.
Eða svo ég vitni í það sem
næringarsálfræðingurinn minn
sagði um daginn þegar ég sagði
honum að ég hefði alltaf haft
komplexa útaf því hvað ég væri
lítiH.
Þá sagði sálffæðingurinn:
- Þú ert ekkert lítill. Að
minnsta kosti ekki miðað við
búskmenn.
Þá munaði litlu að ég beygði
af. Sáralitlu.
Maður er nefnilega alltof við-
kvæmur, alltof djöfull við-
kvæmur.
Svo var ég líka ekki bara
kominn til sálfræðingsins útaf
því hvað ég væri lítill, heldur út-
af því hvað ég er lítill og feitur.
- Þú ert ekkert lítill og feitur,
sagði næringarsálfræðingurinn,
þú ert bara þrekinn, hnellinn og
riðvaxinn og tiltölulega lítið af-
skræmdur af spiki miðað við
það að þú ert ofæta.
- Ofæta? át ég eftir sálffæð-
ingnum, af því ég hafði ekki
heyrt orðið fýnr.
- Já, ofæta, endurtók sálfræð-
ingurinn. Ofæta er maður sem
haldinn er sjúklegri matarfíkn
einsog ofdrykkjumaður.
Á sama hátt og ofdrykkju-
maðurinn leggst í ofdrykkju, þá
verður ofætan ofátinu að bráð.
Hún heldur bara áfram að éta og
éta þartil ekki verður aftur snú-
FLOSI ÓLAFSSON
ið. „Of ‘ er þama herðandi for-
skeyti, bætti hann við, svona
einsog til að láta menn vita að
hann hefði verið í máladeild.
- Á ég mér þá enga bjargar-
von úr þessu fituböli? stundi ég
í örvæntingu minni.
Hann svaraði engu en dá-
leiddi mig, einsog stundum er
gert við sinnisveikt fólk.
Þegar hann svo var búirin að
vekja mig úr dáinu sagði hann
mér að í kómanum hefði ég klif-
að á því að ég vildi vera í laginu
einsog Clint Eastwood eða
Friðrik Sophusson.
Eftir svolítið vandræðalega
þögn sagði hann svo:
- En það er borin von að þú
náir því héðanaf. Enda tekur
varla að reyna, þú átt ekki það
langt eftir.
- Þetta er vondur sálfræðing-
ur, hugsaði ég og gekk út.
Svo náði ég mér í PRESS-
UNA og fór að lesa um affek og
umsvif íslenskra athafhamanna
og það var einsog mér létti.
Eg hugsaði sem svo:
- Guð, ég þakka þér að ég er
ekki einsog aðrir menn.
Og í vorblíðunni mun ég
næstu daga hugga mig við það
að ég er nú bara nokkuð vel
lukkaður miðað við marga aðra.