Pressan - 28.05.1992, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ1992
ÞRÁINN
Bertelsson tók heldur betur
flugið fram á sjónarsviðið í
vikunni. Eftir allt saman
reyndist hann vera rithöfund-
ur og þegar sú staðreynd
blasti við var hann umsvifa-
laust valinn formaður eftir
velheppnaða byltingu. Þráinn
bað menn að gæta stillingar
og hætta að skrifa í blöð
(enda eiga rithöfundar helst
að skrifa bækur) en eftir að
Hrafn Gunnlaugsson hafði
elt Þráin með stflvopninu úr
kvikmyndaþrætunni yfir í rit-
höfundaþrætuna tók Þráinn
upp stflvopnið. Og þegar rit-
höfundar taka upp pennann
má almenningur vara sig. Sá
eini sem gleymdi að skrifa
var
SIGURÐUR
Pálsson, enda gleymdist
að kjósa hann. En því miður
fær þjóðin ekki tækifæri til að
kjósa Vigdísi Finnbogadóttur
aftur því að rækjusölukonan
hugrakka Sigrún Þorsteins-
dóttir ætlar ekki að vera með í
þetta sinn. Það er auðvitað
hundfúlt því þjóðin hefur gott
af því að kjósa öðm hvom og
þá að fá að hafna einhverju í
leiðinni. En um höfnun vik-
unnar keppa tveir. Annars
vegar
GUNNAR
Birgisson, sem vildi verða
nýr bjargvættur hjá VSÍ, og
hins vegar Ragnheiður Dav-
íðsdóttir, sem vildi bjarga
Menningarsjóði. Niðurstaðan
verður hins vegar sú að
Gunnar bjargar peningum
Lánasjóðs og Ragnheiður fer
í lögguna aftur. Það er hins
vegar svo skrítið að í raun
virðist flestum sama um nið-
urstöður þessara mála, nema
auðvitað fjölskyldum þeirra
sem var hafnað. Reiðilestur
vikunnar er hins vegar frá
Jóni Sigurðssyni í jámblend-
inu sem skammaði Jóhönnu
Sigurðardóttur fyrir að kunna
ekki að reikna. Enn annar
sem tók fram reiknistokkinn
er
STEINÞÓR
Skúlason, sem hefur skrif-
að bændum bréf þar sem
hann segist vera boðberi
slæmra tíðinda — það þurfl
nefnilega aðeins að breyta
skipulagi „sauðfjárfram-
leiðslunnar“ eins og Tíminn
sagði frá (kannski þeir hætti
að nota hrúta). En semsagt:
Steinþór hafði eitthvað verið
að fara yfir bókhaldið og tók
eftir að kindakjötsneyslan
hafði dottið niður! Þess vegna
vill Steinþór bara svín héðan í
frá.
Skoðanakönnun Skáls fyrir PRESfVNA /
FMMSONNA
UPPUWEN
AIIABAUAR
Ríkisstj órnarf lokkarnir
vinna báðir á og mundu
halda meirihlutanum ef
gengið væritil kosninga nú
KKONURH
MISSA FLKIB
Framsóknarflokkurinn er í
mikilli uppsveiflu samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar
sem Skáís gerði fyrir PRESS-
UNA um helgina. Af þeim sem
tóku afstöðu sögðust 25,4 pró-
sent mundu kjósa Framsókn ef
gengið væri til kosninga nú.
Flokkurinn hefur ekki fengið
viðlíka góða útkomu úr skoðana-
könnunum Skáís undanfarin
fjögur ár, en hann komst þó
nærri því í ágúst 1988.
En á sama tíma og Framsókn
eykst fylgi tapa bæði Alþýðu-
bandalagið og Kvennalistinn
fylgi. Nú mælist fylgi Alþýðu-
bandalagsins í 13,9 prósentum
og hefur flokkurinn því misst
nokkuð fýlgi það sem af er þessu
ári. I janúar var fylgi Alþýðu-
bandalagsins 16,0 prósent og
sömu sögu er að segja af
Kvennalistanum. Nú mælist
fylgi listans 9,6 prósent en var
12.5 prósent í mars.
Báðir stjómarflokkamir bæta
örlitlu við sig frá síðustu könnun.
Sjálfstæðisflokkur fær 35,7 pró-
sent en var með 34,9 prósent í
mars. Alþýðuflokkur fær 14,9
prósent en hafði 14,5 prósent í
mars. En þótt fylgisaukning
stjómarflokkanna sé lítil nægir
hún til þess að þeir rétt merja
meirihluta, samkvæmt þessari
könnun. Samanlagt hafa þeir því
50.5 prósenta fylgi þeirra sem
tóku afstöðu. Þetta er í fyrsta
sinn síðan í ágúst í fyrra sem
stjómarflokkamir ná meirihluta í
könnun.
UNNIR OG TAPAÐIR
ÞINGMENN
Ef þingmönnum væri skipt á
milli flokkanna samkvæmt nið-
urstöðum könnunarinnar yrði
niðurstaðan þessi: Sjálfstæðis-
flokkur fengi 23 þingmenn.
Hann hefur 26 þingmenn í dag
og tapaði því þremur þingmönn-
um ef gengið yrði til kosninga
nú. Framsóknarflokkurinn bætti
við sig þremur þingmönnum og
fengi 16 þingmenn. Alþýðu-
flokkurinn fengi 9 þingmenn,
tapaði einum. Kvennalistinn
bætti við sig einni þingkonu og
fengi 6. Alþýðubandalagið yrði
eftir sem áður með 9 þingmenn.
Stjómarmeirihluti sjálfstæðis-
manna og Alþýðuflokks mundi
því samanlagt tapa 4 þingmönn-
um en héldi eftir sem áður meiri-
hluta á þingi; fengi 32 þingmenn
en stjómarandstaðan 31.
UPPSVEIFLA FRAM-
SÓKNAR
Framsóknarflokkurinn hefur
tilefni til að fagna niðurstöðum
þessarar könnunar. Flokkurinn
hefur jafnt og þétt bætt við sig
fylgi það sem af er árinu. I janúar
var fylgi Framsóknar 21,2 pró-
sent, í mars 22,9 prósent og núna
mælist það í 25,4 prósentum.
1 nóvember í fyrra fór fylgi
Framsóknar upp fyrir 20 prósent
í könnun Skáls í fyrsta sinn síðan
í september 1988. Frá þeim tíma
og fram í nóvember í fyrra
sveiflaðist íylgi flokksins ffá 15
og upp í 19 prósent. Síðan þá
hefur hann haldist yfir 20 pró-
sentum og er nú kominn með
fylgi fjórðungs þeirra sem tóku
afstöðu.
I síðustu þingkosningum fékk
Framsókn 18,9 prósent atkvæða
og 13 menn kjöma. Flokkurinn
hefur því bætt við sig 6,5 pró-
sentustigum og þremur þing-
mönnum síðan.
FYLGISTAP SJÁLFSTÆÐ-
ISMANNA STAÐFEST
Allt þctta ár hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn mælst með minna
fylgi í könnunum en hann fékk í
síðustu kosningum. I janúar var
fylgi flokksins samkvæmt könn-
un Skáís 36,8 prósent, í mars
34,9 prósent og nú mælist það í
35,7 prósentum. I síðustu kosn-
ingum fékk flokkurinn 38,6 pró-
sent og 26 þingmenn kjöma. Þótt
litlu muni á fylgi flokksins sam-
kvæmt könnuninni nú og í síð-
ustu kosningum nægir sá munur
til þess að flokkurinn mundi tapa
3 þingmönnum ef niðurstaða
kömtunarinnar gengi eftir.
A tímabilinu frá miðju ári
1989 ffam að kosningum vorið
1991 mældist fylgi Sjálfstæðis-
flokks um og lengst af yfir 50
prósent í könnunum. Eftir kosn-
ingar hefur fylgið tínst jafnt og
þétt af flokknum. Þessi könnun
er sú fyrsta ffá kosningum þar
sem Sjálfstæðisflokkurinn bætir
við sig fylgi, en það er í raun svo
lítíð að niðurstaða könnunarinn-
ar staðfestir aðeins fylgishrunið.
Reynslan sýnir að fylgi Sjálf-
stæðisflokksins hefur iðulega
mælst mun meira í könnunum en
kosningum. Yfirleitt hefúr mun-
að um 5 prósentustigum og jafn-
vel meira. Ef þetta hefur ekki
breyst ættu niðurstöður þessarar
könnunar að gefa þá vísbend-