Pressan - 28.05.1992, Page 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992
Páll Helgason í Vestmanna-
eyjum hefur kært samkeppn-
isaðila sína fyrir róg.
Páll hærir
menn fyrir róg-
burð
Sérslæð málaferli eru nú farin
af stað úti í Vestmannaeyjum, ef
marka má TV, nýtt fréttablað
þar. Hefur Páll Helgason ferða-
málafrömuður kært þá Kristin
Kristinsson og Hörð Guðjóns-
son hjá Ferðamiðstöð Vest-
mannaeyja fyrir rógburð. Telur
Páll að frá þeim félögum sé
kominn söguburður sem um
hann hefúr gengið í eyjunni. Til
að komast fyrir uppruna hans
hefúr Páll nú lagt inn kæru.
Hann segir í samtali við TV að
hann hafí orðið fórnarlamb
meiðandi sögu sem særi vini,
kunningja og fjölskyldu sína.
Upphaf sögunnar rekur hann til
samkeppnisaðila úr ferðaheim-
inum í Vestmannaeyjum.
Mikil umshipti í
afkomu Eignar-
haldsfélags
Verslunarbank-
ans
Eignarhaldsfélag Verslunar-
bankans var á síðasta ári rekið
með aðeins 20 milljóna króna
hagnaði, miðað við 124 milljóna
króna hagnað árið áður. Hagnað-
ur ársins fór hins vegar upp í 181
milljón með hagnaði Verslunai-
lánasjóðs og sölu sama sjóðs til
Islandsbanka.
Minnkandi hagnað Eignar-
haldsfélagsins má fyrst og
fremst jekja til versnandi af-
komu Islandsbanka, þar sem
hagnaðurinn minnkaði milli ára
úr 448 milljónum niður í 62
milljónir króna. Reyndar var
sjálfúr íslandsbanki rekinn með
10 milljóna króna tapi og hagn-
aður ársins íyrst og fremst fólg-
inn í góðri útkomu dóttur- og
hlutdeildarfélaga, einkum Kred-
itkorta og Glitnis.
400 milijónir
töpuðust með
gjaldþroti Stál-
vikur
Skiptalok urðu nýverið í
þrotabúi skipasmíðastöðvarinn-
ar Stálvíkur í Garðabæ. 3,7 millj-
ónir greiddust upp í 33 milljóna
króna forgangskröfur, en ekkert
fékkst upp í almennar kröfur upp
á 370 milljónir króna.
Gjaldþrot Stálvíkur fól reynd-
ar í sér hærri kröfur. Iðnlánasjóði
vom slegnar ýmsar fasteignir og
tæki félagsins og dótturfyrir-
tækja á 35 milljónir í árslok
1990, en eignir þessar höfðu ver-
ið metnar á 190 milljónir og vom
veðsettar fyrir enn hærri upp-
hæð. Af almennum kröfunt vom
þær hæstu ffá Landsbankanum,
220 milljónir, Gjaldheimtu
Garðabæjar, 47 milljónir, og
Ríkisábyrgðarsjóði, 32 milljónir.
Stjómendur og stjómarmenn
Stálvíkur og dótturfélagsins
Ræktar gerðu sjálfir umtalsverð-
ar kröfur í þrotabúin en þær kröf-
ur náðu ekld fram að ganga. Ottó
Schopka stjómarformaðurkrafð-
ist tæplega 12 milljóna, en fékk
samþykkta 3,7 milljóna for-
gangskröfu. Jón Sveinsson for-
stjóri var með almennar kröfur
uppá lOmilljónir.
Hverjir eiga Egilsstaði?
Ríkið og Kaupfélag héraðs-
búa eiga allar lóðir sem lagðar
hafa verið undir byggð á Egils-
stöðum. Egilsstaðir em eina bæj-
arfélagið á landinu sem ekki á
einn hektara þess lands sent bær-
inn er reistur á og fær ekki krónu
fyrir lóðagjöld, sem alla jafna
renna til sveitarfélaga. Arlegar
tekjur ríkisins af lóðagjöldum ffá
íbúum bæjarins em um átján
hundmð þúsund krónur.
330LÓÐIR
Það er líkast því að lesa götu-
heitaskrá Egilsstaðabæjar þegar
litið er y fir eignir ríkisins á Egils-
stöðum í nýútkominni eignaskrá
ríkisins. Þar er listi yfir lóðir í
ríkiseigu upp á ellefu þéttskrif-
aðar blaðsíður og benda hús-
númerin til þess að ekki hafi ver-
ið byggt hús á Egilsstöðum
nema á ríkisjörð. Lauslega talið
eru lóðirnar alls um 330, að
verðmæti tæpar eitt hundrað og
áttatíu milljónir króna. Þetta em
þær lóðir sem em í umsjá Jarð-
eigna ríkisins, en til viðbótareiga
ýmsar ríkisstofnanir um sextíu
lóðir að verðmæti tæpar hundrað
milljónir.
Það sem ríkið á ekki af landi á
Egilsstöðum er í eign Kaupfé-
lags Héraðsbúa, um sjötíu lóðir
alls. Ef mat á þeim er svipað og á
lóðum ríkisins er þar um að ræða
fjömú'u milljóna króna eign.
EIN MÁNAÐARLAUN í
LÓÐAGJÖLD
Lóðagjöld, sem ríkið inn-
heimtir af lóðum í þéttbýli, nema
einu prósenti af fasteignamati
lóðarinnar. I þessu tilfelli er því
aðeins um að ræða um átján
hundruð þúsund sem koma í
Ríkið á allar lóðir á Egilsstöðum, utan nokkrar sunnan Fagradalsbrautar sem eru í eigu Kaupfélags Héraðsbúa.
ríkiskassann á ári. Það em
hundrað og fimmtíu þúsund á
mánuði eða þokkaleg mánaðar-
laun, sem landbúnaðarráðuneyt-
ið innheimtir beint frá Reykja-
vík, en ekki liggja á lausu upp-
lýsingar um hversu mikinn
kostnað í mannafla og pappírs-
vinnu ráðuneytið þarf að bera
vegna innheimtu á borð við
þessa.
Það mun vera einsdæmi á
landinu að bæjarfélag eigi ekki
eina einustu lóð sem það úthlutar
undir húsnæði til bæjarbúa.
Ástæðan er sú að þegar Egils-
staðabær var stofnsettur með
lögum árið 1946 keypti ríkið til
þess jarðeignir í Eiða- og Valla-
hreppi, meðal annars hluta jarðar
bæjarins Egilsstaða, sem enn
stendur fyrir sunnan bæinn. Þetta
gerðist reyndar víðar á landinu,
en munurinn er sá að önnur bæj-
arfélög keyptu jarðnæðið aftur af
ríkinu, fengu yfir því ráðstöfun-
arrétt og fá tekjur af lóðagjöld-
um.
Egilsstaðabær hefur úthlutað
þessum lóðum í untboði ríkisins,
en alla samninga þarf að senda til
Jarðeigna ríkisins í landbúnaðar-
ráðuneytinu til undirskriftar og
samþykktar. Lóðum Kaupfé-
lagsins hefúr einnig verð úthlut-
að í umboði þess. Allar fram-
kvæmdir sem hafa orðið til að
auka verðmæti lóðanna, svo sem
við skipulag og gatnagerð, hafa
farið fram á kostnað bæjarfélags-
ins og íbúanna, en tekjur af þeim
verðmætum renna til ríkisins og
Kaupfélagsins.
Gerðar hafa verið nokkrar til-
raunir til að kaupa lóðimar af rík-
inu, en af ýmsum ástæðum hafa
þær farið út um þúfur. Síðast
vom samningar í gangi skömmu
fyrir þingkosningar á síðasta ári,
en þeir gengu til baka á síðustu
stundu. Nú hefur verið skipuð
nefnd á vegum bæjarins til að
taka upp þráðinn, en eiginlegar
viðræður em ekki í gangi. Að
sögn forráðamanna Kaupfélags-
ins hefur bæjarfélaginu staðið
lengi til boða að kaupa lóðimar,
en af þeim viðskiptum hefur
ekki orðið.
Kan i n. birgisson
NKB OG KAUPRUGH
EIGA ALLAR LÓBIRNAR
Egilsstaðabær á ekki einn fermetra af þeim lóðum sem úthlutað hefur verið bæjarbúum síðustu
áratugi. Ríkið og Kaupfélag Héraðsbúa eiga allt land undir bænum.
Þráinn Bertelsson er nýkjðrinn formaður Rithöfundasambands (slands, en hefur ekki sfður sinnt kvikmyndagerð en ritstörfum
„Hann er húmoristi og sér ævinlega spaugilegu
hliðamar við tilvemna — eða reynir það. Hann hefur
lifandi hugmyndaflug og auðuga frásagnargáfu.
Stjómsamur er hann — góður stjómandi þegar hann
hefur verið í þeirri aðstöðu — og kann að vera hæfi-
lega afskiptalaus,“ segir Gunnar Gunnarsson,
blaðamaður, rithöfundur og vinur. „Mér finnst
hann skemmtilegur og úrræðagóður,“ segir Marín
Magnúsdóttir kvikmyndagerðarmaður. „Hann er
hugmyndaríkur og á mjög létt með að semja texta,“
segir Jón Hermannsson, kvikmyndaframleiðandi
og fyrrum samstarfsmaður. „Hann er með fyndnari
pennum á Islandi og er ótrúlega skemmtilegur mað-
ur,“ segir Guðný Halldórsdóttir kvikmyndastjóri.
„Það er mjög gaman að vinna með honum, hann er
einstakur húmoristi og ljúfur í samvinnu,“ segir
Ragnheiður Elfa Arnardóttir leikkona.
Þráinn Bertelsson
„Aðalgalli hans er að hann er latur við að fara á
bak hestum sínum, latur að moka skítinn undan
þeim og líka latur að fá sér í glas með manni. Svo
finnst mér alveg makalaust hvað hann talar alltaf
vel um annað fólk,“ segir Gunnar Gunnarsson.
„Hann reykir. Er þó að reyna að hætta en gengur
víst brösótt Hann talar líka of hægt, segir Marín
Magnúsdóttir. „Hann er skapmaður," segir Jón
Hermannsson. „Hann er ákaflega snakillur þegar
sá gáUinn er á honum," segir Guðný Halldórsdóttir.
„Hann mætti skrifa fleiri barnabækur, þær eru
svo ansi skemmtilegar hjá honum,“ segir Ragn-
heiður Elfa Amardóttir.