Pressan - 28.05.1992, Síða 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ1992
Kaup og sala í handboltaheiminum
Það kann að hljóma einkenni-
lega nú í miðri sumarblíðunni en
undanfarið hefur allt verið á ferð
og flugi í handboltaheiminum.
Reyndar er ekki tekist á inni á
leikvellinum sjálfum, heldur fer
baráttan fram við samningaborð-
ið. í stað bolta eru komnir pen-
ingar og það engar hversdags-
legar upphæðir. Tilboðin hafa
streymt fram og til baka undan-
farið og allt verið í háaloít á milli
félaga.
Þá hefur verið verðbólga und-
anfarið í handboltaheiminum
þannig að tölur þar eru jafnvel
að komast upp fyrir knattspym-
una. Markaðslögmálin eru einn-
ig að komast inn í körfuknatt-
leikinn en hann á þó enn nokkuð
í land með að ná hinum greinun-
um.
Atökin hafa verið svo
grimmileg undanfamar vikur að
inn á ársþing Handknattleiks-
sambands Islands um síðustu
helgi komu tvær tillögur sem
beinlínis áttu að taka á þessu.
Vegna þess hve verðlag á ís-
lenskum leiktnönnum er orðið
hátt komu Vestmanneyingar
með tillögu um að leyfa tvo er-
lenda leikmenn. Tillagan var
felld en er táknræn fyrir ástand-
ið; þetta er orðið eins og í knatt-
spymunni þar sem ódýmstu
leikmennimir fást erlendis.
Hin tillagan felur í sér að nú er
hægt að draga félagaskipti leng-
ur ef ágreiningur kemur upp á
milli liða vegna þeirra. Liðið
sem er að missa leikmann getur
nú „blokkerað" viðkomandi í 10
mánuði í stað 6 mánaða áður.
Með því er „söluliöinu" fært nýtt
vopn í hendur, nú getur það nán-
ast haft heilt tímabil af viðkom-
andi handboltamanni. Þetta fyr-
irbæri er meira að segja komið
með eigin slanguryrði, þetta er
kallað að „sperra“ leikmann. Og
það er kannski ekkert skrítið að
þessi tillaga skyldi koma frá
Frömmurum, sem einmitt eiga
helstu gulldrengina núna, með
Gunnar Andrésson fremstan í
flokki.
TITRINGUR í KRINGUM
ÁSÓKNINA í GUNNAR
Það geta flestir verið sammála
um að Gunnar sé helsti vonar-
peningur í íslenskum handknatt-
leik. Því er ekki að undra að
ásóknin sé mest í hann og upp-
hæðimar hæstar. Hefur verið
haldið fram að bæði Vfldngur og
Stjaman hafi borið víumar í
hann og jafnvel FH. Um slík til-
boð getur hins vegar enginn sagt
á opinberum vettvangi.
I kringum kapphlaupið um
Gunnar hafa verið nefhdar tölur
frá 1,5 milljónum króna upp í
2,5 milljónir. Tala þama mitt á
milli er þó ekki fjarri lagi eftir
því sem komist verður næst. „Ef
þeir ætla að borga honum slíka
upphæð, plús það sem þeir þurfa
að borga liðinu, er þetta komið
upp í fjórar milljónir — það er
auðvitað brjálæði," sagði stjóm-
armaður, en bætti við að hugsan-
leg sala til útlanda væri það eina
sem gæti réttlætt þetta fjárhags-
lega.
„Astandið var orðið þannig að
forráðamenn Fram höfðu á orði
að fara inn í Garðabæ og bjóða í
alla leikmenn Stjömunnar, bara
til að hefna sín,“ sagði maður
kunnugur í handknattleiksheim-
Gunnar Andrésson: Hæstu
upphæðirnar í kringum hann.
inum. Það er vel skiljanlegt að
Frammarar séu taugaveiklaðir
yfir ástandinu, því þeir eiga sér-
lega efhilegt lið og eftir miklu að
slægjast í herbúðum þeirra.
Meðal annars mun töluvert hafa
verið sótt í þá Karl Karlsson og
Jason Olafsson. En auðvitað em
þeir ekki bamanna bestir, sjálftr
búnir að krækja sér í Hallgrím
Jónasson, markvörð ÍR-inga.
BARÁTTAN UM PATREK
ENDURTEKIN
í fyrra vom KA-menn nærri
því búnir að nappa Patreki Jó-
hannessyni úr Stjömunni, en
Garðbæingar náðu að stöðva
það á síðustu stundu. í kringum
það spunnust reyndar sögur um
að Patrekur hefði verið beittur
þrýstingi vegna landsliðsins —
honum hefði verið gert ljóst að
hann skyldi gleyma landsliðinu
ef hann færi norður. Aftur sóttu
KA-menn í Patrek og dramatísk
saga þar um segir að stjómar-
menn Stjömunnar hafi gripið
hann þegar hann kom niður úr
flugvélinni ffá Akureyri og boð-
ið honum sömu upphæð og
norðanmenn og þar með fest
þennan efnilega leikmann. Ann-
ar leikmaður Stjömunnar, Skútli
Gunnsteinsson, fékk þrjú símat-
ilboð en ntun hins vegar hvergi
Jason Ólafsson: Var einnig
eftirsóttur.
fara.
KA-menn hafa reyndar sótt
stíft í leikmenn enda með metn-
aðarfullan þjálfara þar sem er Al-
freð Gíslason. Þar sem horfur
em á að þeir séu að missa Stefán
Kristjánsson hafa þeir leitað eftir
vinstrihandarskotmanni. Meðal
annars buðu þeir landsliðsmann-
inum Bjarka Sigurðsyni að
koma til sín og átti Bjarki að fá á
milli 150.000 til 200.000 á mán-
uði fyrir það. Þetta urðu Víking-
ar að jafna til að halda Bjarka.
Reyndar var Bjarki einnig
nefhdur í kringum Stjömuna, en
þar sem ljóst er að vinstrihandar-
skyttan Magnús Sigurðsson fer
ekki til Þýskalands varð ekkert
úr því.
Þetta er auðvitað stór biti fyrir
Víkinga, sem búa ekki við allt of
góða fjárhagsstöðu fyrir. Þar að
auki er þetui metnaðarfullt félag
sem alltaf stefhir á íslandsmeist-
aratitil. Maður úr þeirra herbúð-
urn sagði að liðið þyrfti að
minnsta kosti tvo eða þrjá leik-
menn fyrir næsta tímabil til að
eiga raunhæfa möguleika. Það er
bara spuming hvort þeir hafa
efhiáþví.
ÞJÁLFARARNIR Á RÁÐ-
HERRALAUNUM
„Þetta er orðið það mikið
Skúli Gunnsteinsson: Fékk
þrjú símatilboð.
stress og álag að ég myndi aldrei
taka þetta að mér fyrir minna en
150.000 til 200.000 krónur,“
sagði þjálfari í 1. deild þegar
hann var spurður um þær upp-
hæðir sem þar er um að ræða.
Það er vitað mál að þessar
greiðslur em inntar af hendi í
ýmsu formi — með því að út-
vega íbúð, bíl eða jafnvel hag-
stæð lán. Þá em flest lið komin
með aðstoðarþjálfara og „... þeir
bera ekki vatn fyrir ekki neitt“
eins og stjómarmaður orðaði
það. Meira að segja þjálfarar
yngri flokka fá gjaman 20.000 til
25.000 krónur á mánuði, en það
er oft hluti af leikmannasamn-
ingi þeirra.
Hæst launuðu þjálfaramir em
líklega þeir Kristján Arason hjá
FH og Einar Þonwðarson hjá
Selfossi. Hjá Selfossi er síðan
hæst launaði leikmaðurinn, Sig-
urður Sveinsson, en lfldega
kosta hann og Einar Selfossliðið
um 400.000 krónur á mánuði.
Ásóknin í Sigurð var svo mikil
að tilboðin vom farin að streyma
til hans í miðri úrslitakeppni.
Selfyssingar vom hins vegar for-
sjálir því þeir sömdu við sinn
mannskap strax daginn eftir að
úrslitakeppninni lauk og tókst
því að afstýra flótta úr liðinu. Er
ljóst að menn eins og Einar
Patrekur Jóhannesson: KA-
sjónarspilið endurtekið.
Gunnar Sigurðssoit hefðu feng-
ið freistandi tilboð að öðrum
kosti.
Þá gera metnaðarfullir þjálfar-
ar oft samning um að leikmenn
verði keyptir í liðið, eins og til
dæmis Eyjólfur Bragason, sem
verður með HK. Liðið hefur nú
þegar tryggt sér nokkra leik-
menn, þar á meðal GuðmundAl-
bertsson úr Gróttu og Frosta
Guðlaugsson úr IR. Einnig
munu HK-menn hafa sótt fast að
Hans Guðmundssyni, sem fýrir
vikið náði nýjum samningi við
FH!
FÉLÖGIN REISA SÉR
HURÐARÁS UM ÖXL
Niðurstaðan af þessu öllu er
að flest félögin em að reisa sér
hurðarás um öxl. Þau hafa ekki
fjárhagslegt bolmagn til að
standa í þessum viðskiptum.
Sem kunnugt er er fjárhagsstaða
HSI nú neikvæð um 35 milljónir
og það eftir langvarandi björg-
unaraðgerðir. Flestir viðmæl-
endur blaðsins segja að staða fé-
lagsliðanna sé ekki síður vafa-
söm — jafnvel íslandsmeistarar
FH séu ekkert of sælir af sínu
þrátt fyrir ríkulega innkomu eftir
úrslitakeppnina.
Því er haldið fram að flest lið-
in í 1. deild þurfi að greiða á
milli 5 og 10 milljónir króna
vegna leikmanna og þjálfara
meistaraflokks liðanna. Þetta er
afrakstur þróunar sem enginn sá
í raun fyrir. Að sögn stjómar-
manna sem við var rætt er
ástandið orðið óviðunandi. Fjár-
hagslegar skuldbindingar séu
orðnar svo viðamiklar að í raun
standi fá félög undir þeim miðað
við núverandi tekjuöflun. Og
metnaður liðanna er slíkur að
það þykir orðið sjálfsagt að
senda þá sem standa sig í sumar-
frí til Spánar að afloknu keppnis-
tímabili, eins og raunin varð
með leikmenn FH og Selfoss.
Auk þess er rætt um bónus til
þjálfara.
Þá segjast stjómarmenn sjálftr
vera þrotnir að kröftum við að
afla fjár fyrir deildimar, þar sem
þeir í sumum tilvikum em einu
áhugamennimir sem eftir em —
allir hinir orðnir launaðir starfs-
menn.
Þá er auðvitað óvíst hvaða
áhrif það hefur á félagsandann
þegar leikmenn búa svona aug-
ljóslega við mismunandi kjör:
Hreinir atvinnumenn við hliðina
á áhugamönnum og stundum er
þar um að ræða pilta sem hafa
gengið saman upp í gegnum alla
yngri flokkana.
Og svo er það skatturinn!
„Það hlýtur að fara að líða að því
að skattyfirvöld líti á þessi mál,“
sagði stjómannaður 1. deildar
liðs og bætti því við að hann
vonaði að hann yrði kominn úr
stjóm þegar sá dagur rynni upp.
Iþróttafélög em ekki framtals-
skyld þannig að það hefur verið
auðvelt að hafa greiðslur undir
borðið. Það ástand getur hins
vegar tæpast varað um alla ei-
lífð.
Siguröur Már Jónsson