Pressan - 28.05.1992, Side 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992
23
í KÖNNUN Á LESTRI DAGBLAÐA, SEM GALLUP Á ÍSLANDI GERÐI
9. TIL 15. MARS, VAR MÆLDUR LESTUR SVARENDA Á
DV, MORGUNBLAÐINU OG PRESSUNNI OG
L* HVERSU ÍTARLEGUR HANN VAR. 39,0% LESENDA
PRESSUNNAR LÁSU „MEST ALLT“ EFNI BLAÐSINS,
EN' AÐEINS 22,2% LESENDA DV OG 18,6%
MORGUNBLAÐSINS
langmeU lesin.
' jálfsagt kom engum á óvart að samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup er Morgunblaðið útbreiddasta
blað landsins og að PRESSAN selst í færri eintökum en DV. Það kom hins vegar á óvarf hversu
lítið lesendur lásu í Mogganum og DV. Á meðan lesendur PRESSUNNAR lásu um helming
blac isins upp til agna á útgáfudeginum og stór hluti þeirra hélt síðan áfram að lesa í blaðinu næstu daga
má segja að lesendur Morgunblaðsins og DV hafi rétt kroppað í blöðin síru. Stór hluti blaðanna fór í
tunnuna ólesinn. Við viljurn. hins vegar gefa út blað fyrir lesendur. Og eini mælikvarðinn á hvort það
hefur tekist er hversu vel það gagnast þeim.
/ — ’rá því PRESSAN hóf göngu sína hefur hún markað sér sérstöðu. PRESSAN þorir að taka fyrir
/—/ mál, sem aðrir fjölmiðlar veigra sér við "að snerta á. Hún fjallar um málefni og persónur án
JL. tepruskapar og annarlegra hagsmunatengsla... Og PRESSAN gerir það með þeim hætti að
lesendur taka eftir umfjöllun blaðsins en fletta ekki framhjá henni.
A súluritinu hér til hliðar má sjá að allir
ejhisþœttir PRESSUNNAR voru betur lesnir en
sambœrilegt efni í hinum blöðunum og
lesendur hennar flettu síður flamhjá efni
blaðsins en lesendur hinna blaðanna.
Samkvœmt könnuninni geymdu 40 prósent
lesenda PRESS UNNAR sér hluta blaðsins til
nœsta dags. PRESSAN er því í raun betur lesin
en súluritið gefur til kynna.
C/3
I__J Mest allt
HU Ekkert
Blað fyrir fólk, sem vill lesa blöðin um leið og það flettir þeim. ^