Pressan - 28.05.1992, Side 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. MAÍ 1992
29
NORÐUR-
LANDAMÓT í
KVARTMÍLU
HÉR 1995
Kvartmíluáhugamenn eru Qölmargir
hér á landi og geta farið að hlakka til
ársins 1995. Það mun nefnilega vera
komin beiðni um að Norðurlandamótið
í kvartmílu verði haldið hér á landi það
ár. Þetta hraðasport nýtur vaxandi vin-
sælda í Evrópu, ekki síst á Norðurlönd-
um. Svíar og Norðmenn munu vera
búnir að spyma í nokkuð mörg ár en
ekki eru nema þrjú ár síðan íþróttin
nam land í Danmörku og baunamir
uppgötvuðu sportið. Hvar hinar þjóð-
imar í kringum okkur eru staddar höf-
um við ekki hugmynd um, en þekki
þær ekki kvartmílukeppni ætti að dn'fa í
að kenna þeim, svo keppnin 1995 verði
með mörgum þátttökuþjóðum og
heppnist sem allra best.
SAM-
FESTINGS-
TÝPURÁ
KAFI í VÉLUM
Bíladellukallar eyða megninu af tíma
sínum í bflskúmm vítt og breitt um bæ-
inn og liggja þá í vélum og spá í flækj-
ur og knastása og hvað þetta nú heitir
allt saman. Sumir vilja meina að það
séu ákveðnar týpur sem ánetjast bfla-
sporti, svokallaðar samfestingstýpur
(orðið skýrir sig sjálft). Svo em aðrir
sem segja hvem sem er geta lent í því
að fá bílamaníu, — stétt og staða skipti
þar engu máli. En allt um það. Þetta er
tíma- og fjárfrekt sport sem krefst
skilnings, velvilja og stuðnings eigin-
konu og bama Við segjum eiginkonu,
því fáar konur hafa enn sem komið er
orðið helteknar af sjálfrennireiðum. Ein
þeirra kvenna sem þó hafa fengið veir-
una heitir Kristín Binui Garðarsdóttir,
en hún smitaðist af manni sínum, Guð-
bergi Guðbergssyni, sem er bílaáhuga-
mönnum að góðu kunnur. Kristín Bima
keppir í rallycrossi og þykir feikngóður
bílstjóri — enda vinnur hún iðulega
þegar hún tekur þátt í keppni. Guðberg-
ur mun ekki ætla að keppa neitt í sumar
heldur aðstoða Kristínu Bimu, sem ætl-
ar að aka sem aldrei fyrr.
Orðið er dregið af drullupytti, því oftar
en ekki lenda menn í þeim ófáum á
leiðum sínum. En orðið er gott.
RÚMAR SIÖ
MÍNÚTUR YF-
IR LYNG-
DALSHEIDI
Á sérleiðunum í ralli er greitt keyrt
og allt staðið í botni. Rallkappamir eru
því oft á tíðum ekki lengi að skjótast
vegalengdir sem venjulega tekur
kannski háiftíma til klukkutíma að
keyra. Sjálfsagt hafa flestir einhvem
tíma ekið Lyngdalsheiðina — heiðin
milli Þingvalla og Laugarvatns — og
örugglega hugsað Vegagerðinni þegj-
andi þörfma fyrir að geta ekki aulast til
að halda heiðinni sæmilega ökuhæfri,
aksturinn hefur því tekið tímann sinn.
Rallmenn keyra aftur á móti hratt hvað
sem tautar og raular og hraðametið yfir
Lyngdalsheiðina mun vera sjö mínútur
og átján sekúndur, sem er ekki mjög
langur tími. Þess má einnig geta að
hraðametið á leiðinni Grindavík/Krisu-
vfk er átta mfnútur og sextán sekúndur.
Það er því ekki fyrir neina sunnudags-
bílstjóra að slá þessi met. Á hitt ber aft-
ur að líta að rallkappamir em búnir að
kortleggja leiðina nákvæmlega og vita
hvað bíður handan við næstu beygju.
Þeir þurfa auk þess ekki að óttast það
að mæta neinum á leiðinni.
OBOY!
Tíu efstu keppendum í krónuflokkn-
um í rallycrossi er gert skylt að selja
bíla sína ef þeim em boðnar 150 þús-
und krónur. Þetta er gert til að menn
leggi ekki of mikið í bfiana og aðstaða
keppenda verði sem jöfnust. Það gerist
ekki oft að tilboð komi í bfiana og því
var það að einn keppandinn f fyrra
ákvað að taka sénsinn og lagði tíma og
mikið fé í sinn bíl í trausti þess að ekk-
ert tilboð bærist. Hann vann keppnina
en það ótrúlega gerðist; tilboð kom í
bílinn og hann mátti horfa á eítir hon-
um fyrir skitinn 150 þúsund kall. Varla
þarf að taka fram að þetta er eini bílinn
fyrr og síðar sem selst hefur eftir
keppni.
KRANABILAÞJONUSTA
allan sólarhringinn.676700
VARAHLUTASALA676860
DEKKJAÞJÓNUSTA677850
-0PNUM LÆSTA BÍLA -
Upphækkanir fyrir flestar
gerðir bifreida
Útsölustaðin
Bilanausthf.
Flest bifreiðaumboð
Málmsteypan HELLAhf.
KAPLAHRAUNI 5 • 220 HAFNARFJORÐUR • SÍMI 65 1022
BRETTAKANTAR
VÖRUBÍLSBRETTI
Mitsubishi pickup L-200, M. Pajero,
Toyota Hilux, double cab, extra cab,
LandCruiser, Fox, Lada.
Skyggni á Pajero og Lödu.
Útvegum og framleiðum vörubíla-
bretti og skyggni á flestar tegundir.
Uppl. alla daga í síma
91-670043 - 677006
PRESSAN
PRESSAN HEFUR FENGIÐ NÝ SÍMANÚMER
PRESSANer flutt
Nýtt heimilisfang blaðsins er
Nýbýlavegur 14.
Og eftir helgi verður PRESSAN með nýtt símanúmer:
64 30 80
Eftir iokun skiptiborðs er hægt að ná í ýmsar deildir
blaðsins í eftirtöldum símanúmerum:
Ritstjórn:.................64 30 85
Dreifing:..................64 30 86
Tæknideild:................64 30 87
Auglýsingar:...............64 30 88
Nýtt faxnúmer verður 64 30 89
Og slúðurlína PRESSUNNAR verður með vakt
allan sólarhringinn í númerinu
64 30 90
RALLADUR
RÆIARSTJÚRI
Það mun vera siður í rallflokknum í
rallycrossinu að vera með einn gestabfi.
Einhveijum þckktum manni úr þjóðfé-
laginu er þá boðið að keppa og honum
útvegaður bfil. í fyrstu æfingakeppninni
í vor, sem haldin var á brautinni við
Hafnarfjörð, var gesturinn Guðmimdur
Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði. Guðmundur Ámi fór víst frekar
varlega af stað en eftir að hann hafði
lent í nokkrum ákeyrslum á vagninum
kom keppnisskapið upp í honum og
hann þótti keyra alveg fantavel undir
lokin. Einhver hafði á orði að hefði
bæjarstjórinn náð að velta eins og einu
sinni og orðið virkilega illur hefði hann
sennjlega bara unnið keppnina.
AFPYTTUM
Þorsteinn Marel eða Steini Tótu lifir
og hrærist í mótorhjólum, eins og kem-
ur reyndar fram á öðrum stað hér í
blaðinu. Eitt af því sem Steini gerir
mikið af er að aka á Enduro- hjólum
troðninga og vegleysur hálfgerðar.
Enduro-hjól eru torfæruhjól en eru á
skrá, þeim má sem sagt einnig aka í
umferðinni. Steina fannst Enduro allt of
mikil útlenska og kom þess í stað með
orðið Pyttari og nú er svo komið að
þetta orð er orðið ráðandi meðai áhuga-
manna í fþróttinni og talað er um að
fara að pyttast þegar ferðir eru famar.
Nú pyttast menn semsagt á Pytturum.
mrn
Hjá okkur sitja gæðin í fyrirrúmi.
FAG kúi u- og rúllulegur
TIMKEN Keilulegur
Ásþétti
oprtbelt (onlineníal Viftu- og tímareimar
precision Hjöruliðir
SACHS Höggdeyfar
og kúplingar
P’íggrfH Bón- og bílasnyrtivörur
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 814670