Pressan - 28.05.1992, Side 35
FIMMTUDAGUR PKESSAN 28. MAÍ 1992
35
Þótt freistandi sé að draga þá
ályktun af þessari samferð þeirra
Davíðs og Eiðs að þeir séu svip-
aðir pólitíkusar þá virðist svo
ekki vera. Þannig fær Davíð
mun meira af núllum en Eiður
og líka oftar 10. Eiður fékk hins
vegar oftar meðalgóða einkunn
en Davíð.
ÞRÍR RÁÐHERRAR
FÉLLU
I janúar féllu sex ráðherrar á
prófinu; þ.e.a.s. fengu minna en
5 í meðaleinkunn. Nú eru það
aðeins þrír sem falla, því Davíð
Oddssyni, Eiði Guðnasyni og
Olafi G. Einarssyni tókst að hífa
sig upp fyrir 5 að þessu sinni.
Hins vegar fá þeir Jón Baldvin,
Sighvatur og Halldór Blöndal nú
falleinkunn í annað sinn.
Halldór fékk 4,8. Þrátt fyrir að
það hljómi illa skal á það bent að
Halldór fékk aðeins 3,9 í janúar.
Hann hefur því bætt stöðu sína
umtalsvert þótt það dugi ekki til
að hann nái prófinu. Hann verm-
ir ekki botnsætið lengur heldur
hefur komist upp í það áttunda.
Jón Baldvin Hannibalsson er
enn sem fyrr með 4,5 í meðalein-
kunn. Og í stað þess að hafa þá
Halldór, Sighvat og Ólaf G. fyrir
neðan sig fær nú aðeins Sighvat-
ur veni útreið.
Og eins og áður hefur verið
lýst er sú útreið Sighvats slæm.
Það er engum blöðum um það að
fletta að hann er óvinsælasti ráð-
herrann.
Jón Baldvin Hannibalsson
60 %
50
40
30
20
10 -
Á
Hlutfall svarenda,
sem gáfu einkunn á
neðangreindu bili
P2
0-4
5-7
8-10
Jón Sigurðsson
0-4 5-7 8-10
Jóhanna Sigurðardóttir
0-4 5-7 8-10
Sighvatur Björgvinsson
0-4 5-7 8-10
PRESSAN/AM
NÆSTFLESTUMILLA VIÐ
JÓN BALDVIN
Ef lægstu einkunnimar eru
skoðaðar sérstaklega kemur í
ljós að Sighvatur fær flest núliin
eða frá fjórðungi þátttakenda.
Næstur kemur Jón Baldvin en 18
prósent gáfu honum núll. Sá
þriðji er Davíð Oddsson, sem
fékk núll frá 12 prósentum þátt-
takenda.
Og ef við höldum áfram að
feta okkur eftir núllunum þá fékk
Jón Sigurðsson núll frá 9 pró-
sentum þátttakenda, þeir Halldór
Blöndal og Eiður Guðnason
fengu núll frá 8 prósentum og
Ólafur G. Einarsson frá 7 pró-
sentum.
Eins og áður sagði fékk Jó-
hanna fæst núllin eða aðeins frá
1 prósenti þátttakenda. Næstur
kom Þorsteinn Pálsson með núll
ffá 2 prósentum þátttakenda og
svo Friðrik Sophusson, sem fékk
núll frá 3 prósentum.
ENNUM
Samkvæmt þeim einkunnum
sem þátttakendur í skoðana-
könnun Skáís fyrir PRESSUNA
gáfu ráðherrunum fyrir
frammistöðu í starfi er Jó-
hanna Sigurðardóttirí algjör-
um sérflokki. Hún fékk 7,1 í
meðaleinkunn, oftast 10 og
sjaldnast núll. Enginn hinna
ráðherranna kemst með
tærnar þar sem Jóhanna hef-
ur hælana og í raun geta þeir
aðeins horft undir iljarnar á
henni þar sem hún siglir hrað-
byri upp til himna.
□g á sama hátt og Jóhanna
sker sig úr á toppnum er lök
útkoma Sighvats Björgvins-
sonará botninum einstæð.
Hann fær aðeins 3,7 í meða-
leinkunn. Það er lægsta ein-
kunn sem nokkur hefur fengið
í sambærilegum könnunum
PRESSUNNAR. Sighvatur fær
flest núllin og sjaldnast 10.
OVINSÆLDIR...
Ef við lítum á einkunnir á bil-
inu 0 til 3 er stiginn svipaður.
Sighvatur fékk svo lágar ein-
kunnir frá 46 prósentum þátttak-
enda, Jón Baldvin frá 43 pró-
sentum, Davíð frá 33 prósentum
og Jón Sigurðsson frá 32 pró-
sentum.
Síðan kom Halldór Blöndal
með 0 til 3 frá 28 prósentum
þátttakenda, Eiður Guðnason frá
27 prósentum og Friðrik Sop-
husson og Ólafur G. Einarsson
ífá 24 prósentum þátttakenda.
Þorsteinn Pálsson fékk svo
lága einkunn aðeins ffá 11 pró-
sentum þeirra sem tóku þátt í
könnuninni og Jóhanna Sigurð-
ardóttir aðeins frá 3 prósentum.
... OG MEIRA UM
VINSÆLDIR
Eins og áður sagði fékk Jó-
hanna Sigurðardóttir oftast 10
eða frá 13 prósentum þátttak-
enda. Næstur kom Davíð Odds-
son, sem fékk 10 ffá 9 prósent-
um og er hann því næstvinsæl-
astur jafnframt því sem hann er
einn af óvinsælli ráðherrunum.
Síðan var röðin þessi og eru
prósentutölur innan sviga: Ólaf-
ur G. Einarsson (6), Jón Baldvin,
Friðrik og Þorsteinn (4), Jón Sig-
urðsson (3), Halldór Blöndal og
Eiður Guðnason (2) og loks rek-
ur Sighvatur lestina, en 1 prósent
þátttakenda gaf honum 10 í ein-
kunn.
... OG NÁNARUM
VINSÆLDIR
Og ef við skoðum hæstu ein-
kunnimar, ffá 8 og upp í 10, er
röðin þessi:
Jóhanna fékk svo háa einkunn
frá 48 prósentum, Ólafur G. Ein-
arsson frá 30 prósentum, Þor-
steinn Pálsson ffá 29 prósentum
og Davíð Oddsson frá 28 pró-
sentum.
Síðan kom Jón Sigurðsson
með 8 til 10 frá 25 prósentum
þátttakenda, þá Eiður og Jón
Baldvin með slíkar einkunnir frá
24 prósentum, Friðrik Sophus-
son frá 20 prósentum, Halldór 19
prósentum og enn sem fyrr rak
Sighvatur lestina, en aðeins 15
prósent gáfu honum svo háa ein-
kunn.
SJÁLFSTÆÐISMENN AÐ
MEÐALTALIVINSÆLLI
Þrátt fyrir feiknarlegar vin-
sældir Jóhönnu Sigurðardóttur
eru ráðherrar Sjálfstæðisflokks
að meðaltali vinsælli en krata-
ráðherramir. Meðaleinkunn
sjálfstæðismannanna var 5,3.
Krataráðherramir náðu hins veg-
ar aðeins 5,1 í meðaleinkunn og
eiga þeir Sighvamr og Jón Bald-
vin stærsta sök á því að hafa
dregið háa einkunn Jóhönnu nið-
un________________________
Gunnar Smárí Egilsson
K Y N L
Alnœmisfor-
dómar í garð tœ-
lenskra kvenna
Ekki alls fyrir löngu var
sýndur í sjónvarpinu þáttur um
útbreiðslu alnæmis í Tælandi.
Brá mörgum í brún að heyra
um þá hlið á þessu fagra og
vinsæla ferðamannalandi. I
þættinum var meðal annars
sagt að margar vændiskonur
væm HlV-jákvæðar. Stuttu eft-
ir að umræddur þáttur var
sýndur hringdi í mig kona úr
heilbrigðisstétt til að forvitnast
um hvort tælenskum konum
sem flyttu hingað til lands væri
gert skylt að fara í mótefna-
mælingu. Öðm hverju heyrast
þær raddir hér á landi að það
eigi að mótefnamæla ákveðna
hópa, eins og til dæmis ís-
lenska ferðamenn sem ferðast
til ákveðinna landa, alla
homma eða innfluttar tælensk-
ar konur eins og í umræddu til-
viki. Því miður; það heftir ekki
útbreiðslu alnæmis að láta mót-
efnamæla vissa hópa, livorki
tælenskar konur sem setjast hér
að, hollenska ráðstefnugesti,
jórdanskar sendinefndir í
Reykjavík né íslenska ferða-
ianga sem ferðast til annarra
landa. Slíkar skyldumælingar
hafa einungis óhemju kostnað
og umstang í för með sér og
erfitt um vik ef hópurinn er
stór. Þá em mælingamar hæpn-
ar siðferðislega og veita þeim
sem standa fýrir utan hópinn
falskt öryggi um að nú sé búið
að hefta útbreiðslu sjúkdóms-
ins — „gera eitthvað".
Árið 1987 skylduðu yfirvöld
í Búlgaríu almenning til að
gangast undir mótefnamæl-
ingu. Rúmlega þrjár milljónir
manna vom mótefnamældar.
Ef fólk sýndi ekki samvinnu
átti það á hættu að verða sektað
eða stungið í steininn. Af öllum
þessum fjölda greindust áttatíu
og þrír með alnæmisveimna í
blóðinu. Mótefnamælingin í
Búlgaríu kom ekki í veg fyrir
útbreiðslu alnæmis heldur var
einungis stikkpmfa á það
hversu margir vom hugsanlega
smitaðir. Mælingin segir ekk-
ert til um það hvemig fólk
kemur til með að haga sér dag-
inn fyrir eða eftir mótefnamæl-
inguna. Það getur líka liðið allt
að sex mánuðum frá smiti þar
til hægt er að mæla mótefni
gegn alnæmisveirunni í blóð-
inu. Alnæmi breiðist nú hratt
um þjóðir Austur-Evrópu, þar
sem þær em ekki eins einangr-
aðar og þær vom, eins og fólk
virðist þó ennþá halda. Til
dæmis vilja þeir, sem kaupa sér
sex hjá vændisstrákum á jám-
brautarstöðum í Vestur-Evr-
ópu, frekar stráka ffá Austur-
Evrópu.
Það undrar kannski einhvem
að Bandaríkin skuli vera meðal
nokkurra þjóða heims sem
setja ferðahöft á HlV-jákvæða
ferðamenn til landsins. Sjö-
undu alþjóðaalnæmisráðstefn-
una átti að halda í Boston í
Bandaríkjunum í sumar, en
vegna ferðahafta þarlendis var
ákveðið að flytja ráðstefnuna
til annars lands og verður hún
haldin í Amsterdam í Hollandi
að þessu sinni. Þessi ferðahöft
Bandaríkjamanna á HlV-já-
kvæða inn í landið eru kald-
hæðnisleg, því hvað flest tilfelli
alnæmis hafa einmitt greinst
þar í landi.
Það að skylda ákveðinn hóp
manna, til að mynda tælenskar
konur sem flytja til Islands, til
að gangast undir mótefnamæl-
ingu stríðir gegn grundvallar-
mannréttindum. Öll höfum við
rétt til að ferðast, mennta okk-
ur, vinna, njóta bestu niögu-
legrar heilbrigðis- og félags-
legrar þjónustu sem völ er á,
ganga í hjónaband og stofha til
fjölskyldu svo eitthvað sé
nefnt. Gefum okkur að tælensk
kona greinist HlV-jákvæð. Það
Alnœmi breiðist
nú hratt um þjóð-
ir A ustur-Evrópu,
þar sem þœr eru
ekki eins ein-
angraðar og þœr
voru, eins og fólk
virðist þó ennþá
halda. Til dœmis
vilja þeir, sem
kaupa sér sex
hjá vœndisstrák-
um á járnbraut-
arstöðum í Vest-
ur-Evrópu, frekar
stráka frá Austur-
Evrópu.
myndi ekki firra okkur hin
ábyrgð í að hefta útbreiðslu al-
næmis. í sambandi við ein-
angrun ætti frekar að vemda
hina smituðu gegn þeim sem
eru ósmitaðir. Ónæmiskerfi
HlV-jákvæðra er afar við-
kvæmt þegar lengra líður á
sjúkdóminn og þá viðkomandi
í meiri hættu að fá ýmsar sýk-
ingar.
Nei, það á ekki að skylda tæ-
lenskar konur né neinn annan
til að fara í mótefnamælingu.
Fólki á að finnast hagur í að
lála mótefnamæla sig. Ein að-
alástæðan er sú að því fyrr sem
smit uppgötvast því meiri eru
lífslíkumar, og strax hægt að
koma við lyfjagjöf sem dregur
úr framgangí sjúkdómsins.
Spyrjió Jónu um kynlífió. Utanáskrift:
Kynlífc/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavik.