Pressan - 04.06.1992, Blaðsíða 26
26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚNÍ 1992
Var ívan Demjanjuk
arimmur eða bara
óheppinn auli?
John Demjanjuk var dæmdur til dauða í ísrael fyrir stríðsglæpi og
bíður þess nú að áfrýjun hans verði dómtekin. Dómstóllinn komst
*
að þeirri niðurstöðu að Demjanjuk og „Ivan grimmi“, fjöldamorð-
inginn í Treblinka, væru einn og sami maðurinn, en nú bendir ým-
islegt til þess að Israelar hafi komið lögum yfir rangan mann.
Þrátt fyrir að ísraelar hafi alla
tíð lagt mikla áherslu á að lögum
verði komið yfir stríðsglæpa-
menn em stríðsglæparéttarhöld í
ísrael mjög fátíð. Skömmu eftir
stoífmn Israelsríkis vom um 100
„kapóar" eða gyðingar, sem
gerst höfðu samstarfsmenn naz-
ista í fangabúðunum, dregnir
fyrir dóm í ísrael, en þeir höíðu
allir sýnt þá fádæma heimsku að
flytjast þangað. Á hinn bóginn
hefur það aðeins gerst einu sinni
áður að ísraelar lögsæktu mann
af öðm þjóðemi fyrir stríðs-
glæpi. Það var árið 1961 þegar
Mossad hafði hendur í hári Ad-
olfs Eichman í Argentínu og
dæmdi hann síðar til dauða. Við
þau réttaröld var reyndar aðal-
lega deilt um lögsögu ísraels í
málinu, ekki sekt Eichmans.
Enginn efast um sekt Ivans
grimma. Við réttarhöldin yfir
Demjanjuk sögðu vitni frá því
hvemig þessi djöfull í manns-
mynd hefði kvalið nakta fanga á
leið í gasklefana með því að
höggva af þeim eyru, nef, bijóst
kvenna og aðra líkamshluta með
sverði sínu. Vitni sögðu frá því
hvemig hann drap hvem fang-
ann á fætur öðmm með því að
brjóta höfuðkúpu þeirra með
jámröri. Þau lýstu því líka
hvemig hann rak trébor upp í
endaþarminn á fanga og hótaði
að skjóta hann ef hann kveinkaði
sér. Þau lýstu því hvemig hann
hefði þröngvað mönnum til
samræðis við lík. Þau lýstu því
hvemig hann skipaði fanga að
nauðga tólf ára gamalli telpu,
sem fyrir kraftaverk hafði skrið-
ið lifandi út úr einum gasklef-
anna, og skaut hana síðan. Og
þau lýstu því hvemig hann hefði
sjálfur sest við stjómtækin á gas-
dælunni við klefana þar sem
850.000 körlum, konum og
bömum var slátrað á einu ári.
Vitnin staðfestu einnig að
ívan Demjanjuk (hann tók upp
nafnið John í Bandaríkjunum)
og Ivan grimmi væm sami mað-
urinn. Þegar Demjanjuk fór
sjálfur í vitnastúkuna og hélt því
ffam að hann hefði verið stríðs-
fangi Þjóðverja í stríðinu gerðist
hann tvísaga, fór undan í flæm-
ingi í svömm og var gersamlega
ósannfærandi.
Skirteinið frá Trawniki, sem
sagt er sanna veru Demjan-
juks í Sobibor, en ekki Tre-
blinka.
Miðað við allt og allt var
kannski ekki undarlegt þótt
Demjanjuk væri sakfelldur.
Fyrri lögfræðingur hans var ger-
samlega reynslulaus í réttarhöld-
um og gerði hver mistökin á fæt-
ur öðrum. Sjálfur virtist hann
aldrei gera sér grein fyrír eðli
málsins, reyndi að vera kumpán-
legur við vitnin gegn sér í réttar-
salnum og veltist um af hlátri
þegar eitt þeirra gerði gys að
skallanum á honum. Fjölskylda
hans vill lítið tjá sig um persónu-
leika hans og meira að segja nú-
verandi lögffæðingur hans kallar
hann „fremur takmarkaðan
mann“.
TVÆR ÆVISÖGUR
ívan Demjanjuk fæddist í
þorpinu Dúb Matsjarenzíj í
Úkraínu árið 1920. Báðir for-
eldrar hans vom fatlaðir og hann
ólst upp við örbirgð. Árin 1932
og 1933 dundi eftiahagsstjóm-
viska Stalíns yfir Úkraínu af full-
um þunga og yfir „brauðkörfu
Rússlands" gekk hungursneyð
af mannavöldum og áður en yfir
lauk höfðu 7-10 milljónir Ukra-
ínubúa dáið úr hungri. „Fólk lá
dáið eins og hráviði út um allt og
enginn hirti um l£kin,“ segir
Demjanjuk. í örvæntingu seldi
faðirhans heimili ljölskyldunnar
fyrir jafhvhði átta brauðhleifa og
fjölskyldan settist að á sam-
yrkjubúi. Þar var fátæktin hins
vegar litlu minni, svo áður en
langt um leið snem þau aftur til
þorpsins. Árið 1940 barst ívan
herkvaðning, en í henni vartekið
ffam að hann skyldi hafa tvennar
nærbuxur, skeið og disk með-
ferðis. Ivan átti hins vegar aðeins
einar nærbuxur og kom á her-
kvaðningarstofuna í þeim en var
sendur aftur fyrir vikið. Eftir inn-
rás Þjóðveija árið 1941 settu her-
foringjamir hins vegar nær-
buxnaleysið ekki lengur fyrir sig
og hann var sendur til víglfnunn-
ar. Demjanjuk særðist af völdum
sprengjubrots, en náði bata og
var aftur sendur á vígvöllinn.
Snemma árs 1942 var hann svo
tekinn til fanga af Þjóðveijum á
Krímskaga.
Demjanjuk og ákæmvaldið í
Israel greinh vemlega á um hvað
gerðist eftir það og fram til
stríðsloka og hvomg útgáfan
þarf að vera sönn.
Demjanjuk segh að hann hafi
verið fluttur í fangabúðir í
Rovno, sem þá var í Póllandi.
Skömmu síðar hafi hann verið
fluttur í aðrar fangabúðir í
Chelm, þar sem hann látinn
grafa eftir mó, en tugþúsundir
Úkraínumanna létust þar af
hungri, sjúkdómum og harð-
ræði. Síðar hafi hann verið flutt-
ur til Graz í Austurríki þar sem
blóðflokkur hans hafi verið húð-
flúraður á hann, en eftir stríðið
hafi hann látið fjarlægja það. í
febrúar árið 1945 hafi honum
svo verið leyft að ganga í Rúss-
neska frelsisherinn, sem Þjóð-
verjar kostuðu og vígbjuggu.
Ákæruvaldið segir rétt að
Demjanjuk hafi verið sendur til
Rovno, en hann hafi innan
tveggja mánuða gengið Þjóð-
verjum á hönd líkt og fjöldi
úkraínskra stríðsfanga. Hann
hafi verið sendur til Trawniki
skammt frá Lúblín í Póllandi,
þar sem nazistar þjálfuðu sov-
éska liðhlaupa. Þar hafi hann
fengið einkennisbúning, vopn
og skírteini og verið þjálfaður til
að verða fangabúðavörður. Húð-
flúrið hafi verið einkennistala SS
og blóðflokkur. Frá september
1942 til ágúst 1943 hafi hann
verið fangavörður í Treblinka og
gengið undir nafninu Ivan
grimmi.
Þessu til sönnunar hafði
ákæmvaldið skírteinið frá
Trawniki undir höndum, en sov-
ésk yfirvöld höfðu látið það í té.
Á skírteininu er mynd af manni,
sem virðist vera Demjanjuk, þar
er greint frá nafni hans, nafni
föðurhans, fæðingardegi, háralit
og örinu eftir sprengjubrotið. Á
hinn bóginn er uppgefin hæð
Demjanjuks of lítil og á skírtein-
inu em göt eftir hefti, sem benda
til þess að það hafi verið áfest
öðm skjali. Lögfræðingar Demj-
anjuks halda því fram að skír-
teinið sé KGB-fölsun, til þess
gerð að kasta rýrð á útlæga
Ukraínumenn í Bandaríkjunum.
En jafnvel þótt skírteinið sé
ófalsað er Treblinka hvergi getið
á því. Aftur á móti er á það skráð
að Demjanjuk hafi verið sendur
til starfa við ánauðarbýli skammt
frá Chelm í september 1942 og
að í mars 1943 hafi hann verið
sendur til Sobibor, sem vom út-
rýmingarbúðir í Póllandi, svip-
aðar Treblinka. I hverju störf
hans fólust er ekki gefið upp.
Eftir stríð em menn sammála
um gang mála: Hann var tekinn
af bandamönnum, fluttur til
búða fyrir landleysingja í Lands-
hut í Þýskalandi þar sem hann
kynntist Vem, konu sinni.
Næstu ár vom þau höfð í ýmsum
búðum, þar til hann sótti um inn-
flytjendaleyfi til Bandaríkjanna
árið 1950 og kvaðst vera pólsk-
ur. Seinna kvaðst hann hafa sagt
ósatt af ótta við að verða ella
sendur aftur til Sovétríkjanna,
þar sem sér hefði verið dauðinn
vís vegna vem sinnar í Rúss-
neska frelsishemuni. Hann fékk
leyfið og flutti til Cleveland í
Ohio, þar sem hann starfaði í
bílaverksmiðju Ford fram að eft-
irlaunaaldri.
ÍVAN NOKKUÐ GRIMMI
Það er eftirtektarvert að í upp-
hafi snerist mál Demjanjuks ein-
ungis um það hvem starfa hann
hefði haft í Sobibor. Málið varð
hins vegar nokkru alvarlegra
þegar í upphafi rannsóknar ísra-
ela, að því er virðist fyrir mistök.
Til sakbendingar vitna vom út-
búin spjöld með myndum af 17
meintum stríðsglæpamönnum
búsettum í Bandaríkjunum.
Flestar myndimar vom litlar og
óskýrar, en tvær vom stórar og
skýrar: myndimar af Demjanjuk
og Fedor nokkmm Fedorenko.
Vitnin, sem öll vom aldurhnigin
og minni og sjón sumra farið að
hraka, tóku vitaskuld helst eftir
þessum tveimur. Önnur mistök
vom alvarlegri, en það var þegar
lýst var eftir vitnum í tengslum
við mál Demjanjuks og Fedor-
enkos og þeir báðir nafngreindir.
Vimi frá Treblinka kunna því að
hafa gefið sig fram og gefið sér
að þau ættu að bera kennsl á
mann að nafni Ivan.
Ekkert vimanna frá Sobibor
bar kennsl á Demjanjuk en vitni
frá Treblinka gáfu Demjanjuk
strax gaum, þar á meðal fjögur
helstu vitni ákæmvaldsins í
málaferlunum, sem fram fóm
áratug síðar. Það er hins vegar
athyglisvert að þau vitnanna,
sem mest kynni höfðu af ívani
grimma í Treblinka, vom óviss-
ust í sinni sök við fyrstu yfirferð
á myndunum.
Hmn Sovétríkjanna hefur
opnað skjalahirslur KGB, og allt
sem þaðan kemur bendir til þess
að ívan Demjanjuk sé ekki Ivan
grimmi. Á hinn bóginn renna
skjölin stoðum undir þá kenn-
ingu að Demjanjuk hafi verið í
Sobibor og að líkindum lítið haft
sig í frammi, því enginn eftirlif-
enda þaðan minnist hans.
Flest bendir til þess að ívan
grimmi hafi verið Ivan nokkur
Martsjenko. Allir þeir Rússar og
Ukraínumenn í Treblinka, sem
KGB yfirheyrði eftir stríð, bám
að Marchenko þessi hefði stjóm-
að gasmorðunum. Sonur Demj-
anjuks fór til Úkraínu og fann
tvær dætur Martsjenkos, en
móðir þeirra hafði látist skömmu
áður. Dætumar vom miður sín
vegna ásakananna í garð föður
þeirra, sem aldrei sneri heim úr
stríðinu, en þær létu Demjanjuk
yngra í té giftingarmyndina af
föður sínum og það leynir sér
ekki að honum svipar talsvert til
Demjanjuks.
Ekkert hefur spurst til Mart-
sjenkos frá stríðslokum, en sög-
ur gengu um að hann hefði verið
drepinn í uppreisnartilraun í Tre-
blinka árið 1943. Einn félaga
hans bar hins vegar í yfirheyrsl-
um KGB að þeir hefðu báðir
verið sendir til Trieste á Ítalíu
tveimur mánuðum áður og að
hann hefði síðast séð hann vorið
1944, en þá hefði hann gengið
andspymuhreyfingu króatískra
kommúnista á hönd. Sé Mart-
sjenko enn á lífi er hann 81 árs,
en enginn hefur grennslast fyrir
um afdrif hans.
En jafnvel þótt Hæstiréttur
komist að þeirri niðurstöðu að
Demjanjuk sé ekki ívan grimmi
nægir það ekki til að bjarga hon-
um. Israelska réttarkerfið, sem
byggist á breska nýlenduréttar-
kerfinu, leyfir neftiilega að menn
séu dæmdir fyrir aðra glæpi en
þá sem tilteknir em í ákæmnni
hafi aðrar sakargiftir komið í ljós
við réttarhaldið.
Demjanjuk verður varla
hengdur úr þessu, en hann kann
enn að eiga lífstíðardóm yfir
höfði sér. Ekki er að efa að ísra-
elsk yfirvöld sóttu málið jafnhart
og raun ber vitni í því skyni að
minna nýja kynslóð ísraela á
hrylling helfararinnar. Og út af
fyrir sig er helförin smánarblett-
ur á mannkyni, sem ekki má
gleymast. Aftur á móti var Ivan
, John“ Demjanjuk rangur mað-
ur til að nota sem kennslugagn
og ísraelsk stjómvöld vilja
sennilegast gleyma honum hið
fyrsta.________
Andrés Magnússon
Hryllingurinn íTreblinka.
ívan Demjanjuk skömmu eftir stríö og giftingarmyndin af ívan
Martsjenko.