Pressan - 04.06.1992, Síða 28
28_____________________FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. JÚNI 1992
FÓTBOLTI
VESTAAANNEYINGAR
Vestmanneyingar eiga eitt harö-
skeyttasta lið stuðningsmanna sem
um getur. Heimavöllur eyjaskeggja
hefur enda verið talinn einn sá sterk-
asti á landinu — þrátt fyrir að Eyja-
menn hafi tapað þar tveimur fyrstu
leikjum sínum í ár. Neðantaldir láta
sig til dæmis aldrei vanta á völlinn,
geti þeir vettlingi valdið.
Páll Magnússon sjónvarpsstjóri.
Ragnar Sigurjónsson Ijósmyndari.
Stefán Runólfsson, forstjóri, Stokks-
eyri.
Adolf Óskarsson, pípulagningameist-
ari.
Ósvaldur Freyr Guðjónsson, í hljóm-
sveitinni Af lífi og sál.
Gísli Sigurgeirsson múrari.
Birgir Jóhannsson rafvirki.
Ragnar Óskarsson, kennari og bæjar-
fulltrúi.
Ragnar Baldvinsson, forstöðumaður
Áhaldahúss Vestmannaeyjabæjar.
Sverrir Tómassson, útibússtjóri
ÁTVR.
Birgir Sveinsson verslunareigandi.
Bjarni ólafur Guðmundsson verslun-
armaður.
Halldór Jónsson, starfsmaður íþrótta-
hússins.
Eyjólfur Marteinsson skrifstofumaður.
Páll Guðjónsson bifreiðastjóri.
Emil Magnússon bifreiðastjóri.
Páll Zóphaníasson tæknifræðingur.
Sigurgeir Ólafsson, fyrrverandi hafn-
arstjóri.
Árni Johnsen alþingismaður.
Hvað fœrðu út úrþví að fylgj-
ast meðfótbolta?
„Ég hef gaman af því, þótt ég
sé laus við spennuna frá því í
gamla daga. Þá var rnaður alveg
á nálum, enda unnum við Is-
landsmeistaratitilinn í 2., 3. og
4. flokki eitt árið og 5. flokkur
var í öðru sæti.“
Hvertúg líst þér á IBV-liðið í
sumar?
„Þeir hafa misst tvo góða
menn; Hlyn út og harðasta bak-
vörðinn í meiðsli. Þetta verður
erfitt. Svo var Amljótur Davíðs
keyptur af Valsmönnum og situr
þar á varamannabekknum. En
framlínan hjá þeim er góð.
Vömin er tæpust. Það getur þó
ræst úr þessu. Þeir standa sig oft
betur á útivelli en heima.“
Hyerjir koutast á toppinn ?
„Ég held það verði Valur og
Fram. Akranes kemur líka vel
til greina og jafnvel FH-ingar."
Hverjir heldurðu að falli?
„Það geta svo mörg lið fallið.
Byijunin hjá KA og Þór er góð,
en jjótt þeir byrji vel geta þeir
endað um miðjuna. Hver sem er
getur fallið, nema þeir sem ég
nefndi áðan. Akranes er reyndar
með ungt lið og það gæti endað
á hvom veginn sem er.“
Ferðu oft á völlinn?
„Ég fer á leiki þegar ég get.
Eg vel úr þá sem ég held að
verði góðir.“
KA-MAÐURINN
„GÆTUM
LENT í BAR-
ÁTTUNNI UM
TOPPINN"
Sigbjörn Gunnarsson þing-
maður er eitilharður stuðnings-
maður KA-liðsins. Hann spilaði
reyndar sjálfúr í fyrstu deildinni
í mörg ár. Fyrst með ÍBA, en
síðan með KA þegar liðinu var
skipt og komst með því í íyrstu
deildina. „Ég er búinn að vera
að halda upp á það í 36 ár.“
Hvers vegna gekkstu í KA en
ekkiÞór?
„Ég er fæddur í Brekkunni á
Akureyri og allir nágrannamir
voru í KA. Það lá beinast við að
ganga til liðs við þá.“
Spilarðu ennþá sjálfur?
„Já, ég geri það mér til
ánægju. Með old boys-liðinu."
Ferðu á völlinn til að liotfa á
KA-leikina?
„Ég fer á alla leiki sem ég
kemst á hjá báðum liðunum, því
ég sé líka alla leiki Þórs. Og alla
fótboltaleiki sem ég kemst í tæri
við.“
Eltirðu liðið?
„Ég haga ferðum mínum í
tengslum við leiki. Jú, ætli megi
ekki segja að ég elti þá.“
Hvað fœrðu út úr því að
hotfa áfótbolta?
„Margir fá út úr því spennu,
en ég verð nú aldrei neitt ógur-
lega spenntur eða æstur. Ég
horfi frekar á þetta sem list.“
Hvað með möguleika KA í
sumar?
„Mér líst vel á þá. Þeir spila
af mikilli skynsemi. Þá vantar
reyndar sterka leikmenn. En
þeir verða með fullt lið í næsta
leik, sem verður á móti „óvin-
unum“, Þór, um helgina. Það er
meiri spenna á þessum „derby“-
leikjum (bæði lið á heimavelli,
innsk. blm.) en öðmm leikjum.
Það er líka æskilegt að liðin séu
saman í deild. Það eykur spenn-
una. Það er mikilvægt að vera
KA-MENN
KA-liðið kom vemlega á óvart fyrir
tveimur árum þegar það nældi sér í
íslandsmeistaratitilinn í síöustu um-
ferðinni. Þá spilaði liðið mjög
skemmtilega knattspyrnu og átti sig-
urinn fyllilega skilinn — þótt ef til vill
geti þeir í aðra röndina þakkað FH-
ingum titilinn, en þeir köstuðu honum
frá sér í síðustu umferðinni. En það
var þá. Liöiö í dag er öflugt þegar þaö
nær sér á strik og ekki viröast þeir
ætla að verða í vandræðum með að
skora, í það minnsta ekki ef hin ný-
uppgötvaöa markamaskína Ormarr
Örlygsson heldur uppteknum hætti.
En, þessir halda með KA og engu
öðru liði:
Sæmundur Óskarsson, heildsali í
Esju.
Anna Lilja Kvaran hjá Flugleiöum.
Gunnar Níelsson, hallarvöröur í
íþróttahöllinni á Akureyri.
Ottó Leifsson viðskiptafræöingur.
Guðjón Guðbjörnsson, starfsmaður
Hitaveitu Akureyrar.
Gunnar Kárason framkvæmdastjóri.
Gunnar Jóhannesson verkfræðingur.
Örlygur ívarsson tæknifræðingur.
Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn á Akureyri.
Tómas Ingi Olrich alþingismaður.
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra.
Jóhannes Sigurgeirsson alþingismað-
ur.
Stefán Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóri Bautans.
Ingveldur Jónsdóttir, húsmóðir, Akur-
eyri.
Sigurður Jakobsson húsasmiður.
Sigmundur Ernir Rúnarsson aðstoð-
arfréttastjóri.
Karl Örvarsson söngvari.
ofar en hitt liðið. Ég held að
bæði liðin eigi eftir að spjara sig
í sumar.“
Hvað um baráttuna um ís-
landsmeistaratitilinn og síðan
botninn?
„Ég hef trú á að ÍBV gæti lent
í erfiðleikum, þótt mér þyki það
miður. Þeir eru búnir að tapa
tveimur fyrstu leikjunum á
heimavelli. Eg hef reyndar ekki
séð þá og það er ómögulegt að
segja. Breiðablik gæti líka átt
erfitt uppdráttar.
Ég er búinn að sjá leik með
Víkingum og held að þeir geri
ekki mikla hluti í sumar. Og
leikur Fram á móti Þór er sá
ómerkilegasti sem ég hef séð af
íslenskri knattspymu í mörg ár.
Byrjunin hjá Akranesi var góð,
en liðið er reynslulítið og ekki
víst að þeirra tími sé kominn.
Valur verður ofarlega og Akur-
eyrarliðin gætu allt eins lent í
baráttunni um toppsætin eins og
botninn," sagði Sigbjöm Gunn-
arsson.
SKAGAMAÐURINN
„EINS OG
FJÖLSKYLDU-
ÍÞRÓTT
Sigurður Sverrisson, ritstjóri
Skagablaðsins, fylgir IA að mál-
um, eðlilega, því Sigurður er
borinn og barnfæddur á Akra-
nesi. „Fyrir mig liggur það í
hlutarins eðli að fylgja mínu
gamla félagi. Ég bjó reyndar í
Reykjavík um tíu ára skeið og
lék meira að segja eitt ár með 2.
flokki í KR. Síðan þá hef ég haft
dálitlar taugar til þess félags,
þótt þær hafi reyndar dofnað
með ámnum.“
Ertu tíður gestur á vellinum?
„Ég komst reyndar ekki á
leikinn gegn KR um daginn,
það er náttúrlega hálfgerður
skandall. Annars fer ég á alla
leiki hér á Akranesi og oft á úú-
leiki, þótt ég hafi ekki lagt það á
mig að fara til Akureyrar."
Menn hafa lengi velt þvífyrir
sér hvers vegna Akranes, ekki
stœrri bœr, er slíkt stórveldi í
fótboltanum.
„Hér gerir fólk miklar kröfúr
til fótboltamannanna sinna og
þeir njóta góðs af því. Þetta var
líka fyrsta sportið sem sló í gegn
hér, fyrir einum fjömtíu ámm,
og síðan þá hafa allar aðrar
greinar fallið í skuggann. Svo er
samheldin líka mikil, enda er
þetta nánast eins og fjölskyldu-
íþrótt. Liðsmenn em oft synir og
frændur þeirra sem voru leik-
menn á árum áður og jafnvel
skyldir innbyrðis.“
Var þá ekki mikið áfall þegar
Skaginnféll í aðra deild í hitteð-
fyrra?
„Það var reiðarslag, en þó
held ég að liðið hafi haft gott af
þessu. Það náði að koma aftur
SKAGAMENN
Akranes hefur stundum verið nefnt
fótboltabærinn og það ekki að
ástæðulausu. Hreint ótrúlegt magn
góðra knattspyrnumanna hefur komið
fram á Skaganum og ekkert lát virðist
þar á, því hinu unga liði ÍA er spáð
einu af toppsætunum í deildinni í ár.
En á meöal hinna knáu stuðnings-
manna eru þessir:
Friðjón Þórðarson, sýslumaður og
fyrrverandi ráðherra.
Halldór E. Sigurðsson, fyrrverandi
ráðherra.
Guðjón Guðmundsson alþingismað-
ur.
Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi
formaður útvarpsráðs.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaöur.
Dagbjartur Einarsson hjá Fiskanesi í
Grindavík.
Lárus Ægir Guðmundsson á Skaga-
strönd.
Jón Ingi Ingvason á Reyðarfirði.
Alfred W. Gunnarsson, gullsmiður á
Akranesi.
Haraldur Bjarnason, fróttamaður RÚV
á Egilsstööum.
Jón Leósson í Garðabæ.
Guðni Eyjólfsson á Akranesi.
Friðjón Eðvarðsson, Reykjavík.
Jakob Sigurðsson hjá Flugleiöum.
Tómas Runólfsson á Akranesi.
Ingi Þór Eðvarðsson hjá Olís.
Helgi Daníelsson, yfirlögregluþjónn
hjá RLR.
Guðjón Bergþórsson, skipstjóri á
Akranesi.
Amór Pétursson hjá Tryggingastofn-
un ríkisins.
Jón Bjarni Þórðarson í Breiðholtskjöri.
undir sig fótunum í annarri
deild. Fólkið í bænum held ég
að hafi helst tekið eftir því að
Akranes var ekki lengur í fjöl-
miðlunum. það var ekki skrifað
um bæinn í blöðunum."
Hvemig líst þér á gengi liðs-
ins ísumar?
„Ég ntyndi ætla að það hefði
ekki verið meiri stemming fyrir
fótboltanum hér síðan liðið
vann tvöfalt tvö ár í röð, 1983-
84. Fólk hefur mætt í hundraða-
vís til að sjá æfingaleiki. Ég ótt-
ast mest að áhangendur og ijöl-
miðlar ætli liðinu of stóra hluti.
-Það er náttúrlega engin lógík í
því að ætlast til þess að við sé-
um betri en Fram, KR og Valur.
Ég verð hæstánægður ef við ná-
um 4.-5. sæti. Allt þar fyrir ofan
er frábært."
„ÖNNUR
LÖGMÁL
INNAN VALL-
AR EN UTAN"
Guðjón Marteinsson, saka-
dómari hjá Sakadómi Reykja-
víkur, segir að ekki sé hægt að
setja samasemmerki á milli
brota sem framin em inni á fót-
boltavellinum og þeirra sem
framin em utan hans. Þannig er
það ekki litið sömu augum þeg-
ar maður sparkar andstæðing
sinn niður í fótboltaleik og ef
samskonar atvik ætti sér stað í
Hljómskálagarðinum. I leiknum
fá menn bara rautt spjald, er vik-
ið út af og í versta falli settir í
leikbann. Sá, sem dytti í hug að
ráðast aftan að samborgara sín-
um og fella hann niðri í Hljóm-
skálagarði, gæú aftur á móú lent
fyrir dómstólum ef áverkar hlyt-
ust af athæfi hans. Þá héti það
líkamsárás og dómur gæti verið
allt ffá sekt upp í fangelsisdóm.
Allt eftir eðli brotsins. „Það er
eiginlega ekki hægt að bera
þetta tvennt saman. Menn gang-
ast undir vissar reglur þegar þeir
spila fótbolta, en vita um leið að
það fylgir leiknum viss áhætta."
En hvað finnst dómaranunt
um þessar stimpingar og brot á
vellinum, þar sem jafnvel geta
hloúst alvarleg meiðsl af?
, J>etta er allt í góðu lagi. Þeir
sem taka þátt í íþróttum vita
hvaða áhætta fylgir þeini. Þetta
er því allt með fullu samþykki
þeirra.
Auðvitað geta komið upp sér-
stök úlfelli þar sem rnenn verða
fyrir líkamsárás. Annars er yfir-
leitt ekki hægt að tala um lík-
amsmeiðingar í þessu samhengi.
Þetta eru ffekar slys og óhöpp."
Þú veist þá engin dæmi þess
að upp hafi komið mál vegna at-
vika á vellinum?
,Nei, ég veit engin dæmi um
refsivert háttemi hér á landi. Það
er þó ábyggilega hægt að finna
slík dæmi í erlendum dómum.
Til dæmis ef maður stendur upp
eftir að á honum hefur verið
brotið og kýlir þann sem felldi
hann.“
Sjálfur er Guðjón mikill
áhugamaður um fótbolta og
gallharður Frammari.
Ferðu á leikina?
,Já, ég fer á alla heimaleiki
liðsins og stundum á aðra leiki.“
Hvemig líst þér á fótboltann í
sumar?
„Hann verður fínn. Lofar
góðu. Þetta er auðvitað rétt að
byija, en ef Frammarar spila út
mótið eins og þeir léku á móti
KR um daginn þá komast þeir
áffam.“
BLIKINN
„GRÆNT ER
VÆNT"
„Ég er fæddur og uppalinn í
Kópavoginum og byrjaði að
spila fótbolta eiginlega áður en
ég man eftir mér. Eg fæddist
með hann á tánum og við spil-
uðum fótbolta frá því sjö á
morgnana til tíu og ellefu á
kvöldin. Þangað til við bara
sofnuðum yfir boltanum," segir
Kristján Hreinsson, skáld og
Breiðabliksaðdáandi.
„Þegar ég var hvað efnileg-
astur í markinu var Vignir
(Baldursson), núverandi þjálfari
Blikanna, í ffamlínunni. Vignir
skoraði mörkin en ég var hinurn
megin og varði markið."
Þú hefur náttúrlega verið góð-
ur í markinu?
„Já já, ég var góður mark-
maður, yfirleitt a-liðs-markmað-
ur. Ég hætti á toppnum, sextán
ára, en það voru nokkrir sem
héldu áffam. Vignir hélt áfram
upp í meistaraflokk til dæmis,
en flestir af mínum árgangi
hættu um þetta leyti,“ svarar
Kristján.
„Ég átti heima f Bergen í
mörg ár og þá var bara að kíkja í
Moggann yfir sumartímann til
að sjá hvemig Blikamir stæðu
sig. Það vantaði Blikana þang-
að, það var slæmt að geta ekki
haft þá með úl Bergen," heldur
BUKAR
í Kópavogi hefur Breiðablik aðsetur
— eins og sjálfsagt flestum er kunn-
ugt. Breiðablik hefur verið dálítið
rokkandi í fótboltanum á undanförn-
um árum en fyrir nokkrum misserum
þóttu Blikar eiga eitt efnilegasta fót-
boltalið landsins og spila einna
skemmtilegasta knattspyrnu. Svo
tóku þeir upp á því að falla. En nú eru
þeir komnir aftur og í fyrra lók liöið
feiknvel á köflum. Ymsir hafa þó orðið
til að efast um gengi liðsins í sumar
og því hefur jafnvel verið spáö fall-
sæti. En stuðningsmennirnir vilja að
sjálfsögðu ekki hlusta á svoleiðis
nokkuð og öskra með sínum mönnum
hvað sem á dynur. Meðal þeirra sem
styðja Blika eru:
Guðmundur Oddsson, skólastjóri og
bæjarfulltrúi.
Gunnar Reynir Magnússon endur-
skoðandi.
Kristján Guðmundsson, fyrrverandi
bæjarstjóri.
Hulda Pétursdóttir, kunn áhugamann-
eskja um íþróttir.
Bengt Bjamason, útibússtjóri Spari-
sjóðs vélstjóra.
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri.
Kari Steingrímsson í Pelsinum.
Magnús Steinþórsson, hótelhaldari á
Bretlandi (mætir alltaf þegar hann er
hér á landi).
Frosti Bergsson hjá Hewlett Packard.
Pétur Sveinson, sundlaugarvörður og
fyrrverandi lögga.
Haukur Hauksson aðstoðarflugmála-
stjóri.
Haukur Ingibergsson, fyrrverandi
skólastjóri á Bifröst, tónlistarmaður og
framsóknarmaður.
Guðni Stefánsson, jámsmiöur og
bæjarfulltrúi.
Jón Ingi Ragnarsson málarameistari.
Kristján Hreinsson skáld.
Sigurður Steinþórsson, gullsmiður í
Gulli og silfri.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræð-
ingur hjá LÍÚ.
Hjörleifur Jakobsson, deildarstjóri hjá
Eimskip.
Þórólfur Ámason, markaðsfulltrúi
Marel.
hann áfram og af orðum hans
má skilja að helsti ókostur Nor-
egs hafi verið Blikaleysið.
Kristján stendur á því fastar
en fótunum að Blikamir eigi eft-
ir að verða íslandsmeistarar, það
sé ekki spuming um hvort held-
ur hvenær. Hann reynir að kont-
ast á alla heimaleiki og fer iðu-
lega að sjá útileikina á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. „Grænt er
vænt,“ segir hann.
En hvað gerist á vellinum?
,Lg held að svona fótboltamúg-
sefjun gefi manni fyrst og
fremst einhvers konar sjálf-
traust. Ég held að fólk sæki í
þetta af því það vantar sjálfs-
traust, það sækir stuðning af
öðm fólki til að efla eigið sjálf-
traust," svarar Kristján.
Maður fær enda að láta öllum
illum látum á vellinum og öllum
finnst það sjálfsagt. Ef maður
hagaði sér einhverju þessu líkt
úti á götu er hætt við að það yrði
bara spennitreyjan sem biði
manns. „Já já,“ samþykkir
Kristján. „Maður yrði talinn
klepptækur ef maður léti svona
úti á götu, eða bara heima hjá
sér. Það er líka samkennd á vell-
inum. Maður sér fólk sem mað-
ur er búinn að þekkja frá því áð-
ur en maður fæddist, og ef mað-
ur hittir fólk á.vellinum sent
maður hefur ekki séð í Ijölda ára
þá er aldrei neitt vandamál um
hvað maður á að tala,“ heldur
hann áfrarn. Og við komumst að
því að völlurinn sé mun betri
staður til að hitta fólk sem mað-
ur þekkti einu sinni en á enga
samleið með í dag en úl dæmis
strætóskýli. Um hvað talarðu í
skýlinu? Ekkert, það verður
bara uml og japl. En á vellinum
er það fótboltinn og það vefst
ekki fyrir mönnum að tala um
hann.
„Blikamir eiga eftir að verða í
einu af toppsætunum. Það að ég
spái Blikunum einu af toppsæt-
unum gerir það að verkum að ég
vil ekki segja hveijir verða ís-
landsmeistarar," segir skáldið
og Blikinn Kristján Hreinsson.
ÞÓRSARINN
„VERÐUM í
TOPPBARÁTT-
UNNI"
„Ég er fæddur sem Þórsari og
elst upp sem Þórsari, eins og
maður segir, og eftir að ég flutt-
ist hingað suður hef ég að sjálf-
sögðu fylgst mjög vel með lið-
inu og reynt að mæta á alla leiki
sem ég hef komist á,“ segir Öm
Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeig-
enda og gallharður fylgismaður
Þórs frá Akureyri.
En þú missir þá af heima-
leikjunum eða hvað? ,JÉg hef nú
reynt að ná völdum heimaleikj-
um, það er nú svona helst við
erkifjenduma KA sko. Til dæm-
is ætla ég að gera mér ferð norð-
ur um helgina og sjá leikinn