Pressan - 04.06.1992, Blaðsíða 44
Bestu kaupin
í steikum
mmm
F
lautuleikarinn James Galway
hélt velheppnaða tónleika í Háskólabíói
á þriðjudagskvöld. Ekki gengu tónleik-
■ arnir þó þrautalaust
f'yrir sig því snilling-
urinn hætti leik sín-
um í miðjum klíðum
er hóstaköst gesta
gengu fram af hon-
um. Hann bað salar-
gesti að láta af iðju
sinni og beindi orð-
um sínum sérstaklega að fremsta bekk.
Hann sagði jafnframt að ef fólk sæi sér
ekki fært að kæfa hóstastunumar ætti
það að fá sér vatnsglas og í framhaldi af
því bauð hann vasaklútinn sinn...
Þ
að gengur erfiðlega hjá Jóhanni
Einvarðssyni, fyrrum þingmanni
Framsóknarflokks, að fá sér atvinnu við
hæfi, en hann datt út af þingi í kosning-
unum vorið 1991. Jóhann sótti um
stöðu forstjóra Hitaveitu Suðumesja en
fékk ekki. Þá sótti hann um stöðu fjár-
málastjóra hitaveitunnar án árangurs.
Nú heyrist að staða stöðvarstjóra Olíu-
félagsins (ESSO) á Keflavíkurflugvelli
sé laus, en Knútur Hárris er að hætta.
Knútur hefur mælt með Hermanni
Friðrikssyni í stöðuna, en nú ríkja
áhyggjur af því að Framsóknarflokkur-
inn noti áhrif sín innan olíufélagsins til
að koma Jóhanni í stöðuna...
s
paugstofan er þekkt fyrir að fara
víða með glens sitt og nú síðast vom
þeir félagar fengnir til að gera gaman-
samar innheimtuaug-
lýsingar fyrir Ríkis-
sjónvarpið. í einni
slíkri bmgðu þeir sér í
gervi skáta og spaug-
uðu eitthvað út í blá-
inn. Gunnar Eyjólfs-
son leikari á að hafa
komist í efhið og orð-
ið ókvæða við. Að sögn kunnugra fer
efnið ekki í loftið í bili vegna mótmæla
hans, en Spaugstofumenn bættu það
upp og fluttu „ljóðskrípið" Ging, gang,
gúllí, gúllí í Spaugstofuþætti sfnum,
öllum landsins skátum til heiðurs...
--------------------------------
i maí 1990 var kosið í Umferðarráð
og skipaði Óli Þ. Guðbjartsson, þá-
verandi dómsmálaráðherra, flokksbróð-
ur sinn, Guðmund Ágústsson, for-
mann ráðsins til þriggja ára. Á nýaf-
stöðnu þingi vom samþykkt ný lög um
umferðarmál og taldi Þorsteinn Páls-
son sig hafa frjálsar
hendur til að skipa
nýjá stjóm og tilneftia
formann í stað Guð-
mundar. I ljós kom að
Þorsteinn hafði ekki
til þessa heimild og
hefur Guðmundur
fullan rétt til að sitja sem formaður til 1.
júní 1993. Þorsteinn ætlaði hins vegar
Þórhalli Ólafssyni, kosningastjóra sín-
um á Suðurlandi, formennskuna. Við
heyrum að Þorsteinn hafi þá farið þess
náðarsamlegast á leit við Guðmund að
hann stæði upp og fór svo að Guð-
mundur gaf eftir og er Þórhallur nú bú-
inn að fá stólinn...
Í^Í^ær;
era Jelena, sem rækilega hefúr
slegið í gegn, er að fara í leikför um
landsbyggðina nú í júní. Sýningum í
Þjóðleikhúsinu verður hætt í bili, en
verkið tekið upp aftur í haust. Það verð-
ur áfram á litla sviðinu til að byrja með,
en ef ekkert lát ætlar að verða á aðsókn
stendur til að flytja það yfir á stóra
sviðið. Nú hefur verið sýnt 120 sinnum
fyrir fullu húsi og ekkert verk verið
sýnt eins oft á einu leikári hjá Þjóðleik-
húsinu. Leikritið Ríta gengur mennta-
veginn tekur að öllum líkindum við á
litla sviðinu og kvisast hefur út að My
Fair Lady verði sett upp um jólin...
u
ndanfarið hafa verið í umferð
skuldabréf þar sem Vatnsberinn hf. er
skráður greiðandi. Um er að ræða
. skuldabréf að verð-
P gildi 400.000 krónur
og vom þau gefin út í
janúarlok, nokkrum
vikum áður en kom í
ljós hvemig ástatt var
fyrir þeim sem stóðu
að fyrirtækinu. Er
Þórhallur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Vatns-
berans, til dæmis skráður ábyrgðarmað-
ur á bréfin, en Þórhallur er margdæmd-
ur fyrir skjalafals og ljársvik. Menn em
ekki á eitt sáttir um hve góðir pappírar
þetta em...
s
kömmu eftir að Ólafur G. Ein-
arsson settist í stól menntamálaráð-
herra endumýjaði hópur fólks sem vill
reka einkaskóla umsókn sína. Hug-
myndin var fyrst og fremst komin frá
Braga Jósepssyni, sem ætlar að verða
skólastjóri, en með honum í væntan-
legri skólanefnd em Ottó A. Michels-
en, Sigurður Sigur-
jónsson og Björn
Matthíasson. A sín-
um tíma var Svavar
Gestsson búinn að
hafna hugmyndinni,
en fyrstu viðbrögð
Ólafs voru að segja
já. Það er hins vegar komið á daginn að
ráðherra-já dugar ekki til. Hann mun
hafa rekist á vegg í ráðuneytinu...
MALTABITAR
GÓÐIR FERÐAFÉLAGAR
‘ r