Pressan - 25.03.1993, Blaðsíða 4
PRESSAN
F R ETT I R
Fimmtudagurinn 25. mars 7 993
Forsetinn
velur út-
lenskt
„Mér brá óneitanlega þegar ég
heyrði ífréttum, aðforsetinn
væri að fara til Kaupmanna-
hafiwr með SAS hinn 10.
mars sl. Hvernig máþað vera
að þjóðhöfðingi [slands flýgur
ekki með íslenskuflugfélagi,
sem þennan tiltekna dagfór
klst.fyrren SAS? Hvað með
„veljum íslenskt“, oghverer
meiningin að baki þessum
orðum? Eins veitégað opin-
berir starfsmenn og ríkisstjórn
okkar hefurferðast allt of oft
með SAS til ogfrá Kaup-
mannahöfn. Þar sem þessir
aðilarferðast á kostnað okkar
skattgreiðenda, þá œtlumst
við til að þeir styðji við bak
Flugleiða, sem t.d.fljúga á
hverjum degi til Kaupmanna-
hafnar."
180440-4109 ÍDV.
Kvartað til ráðuneytis undan fulltrúa sýslumanns í Hafnarfirði
Sakaðurum
að njósna um
heimilislíf fólks
Sveinn Bjömsson forseta-
ritari:„Forseti Islands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, fór
umrædda ferð til Kaupmanna-
hafnar í einkaerindum og bar
því alfarið kostnaðinn af henni
sjálf. Hvað varðar ferðir henn-
ar erlendis á vegum embættis-
ins skal það tekið skýrt fram,
að forsetinn ferðast aldrei með
öðru flugfélagi en Flugleiðum,
þegar þess er kostur. Svo er
einnig um allflestar þeirra
ferða sem hún fer á eigin veg-
um. Forsetinn flýgur svo að
segja alltaf með Flugleiðum í
einkaerindum sínum. Um-
rædd ferð með SAS var því að-
eins undantekning, en það
vildi svo til í þetta sinn að það
hentaði betur að ferðast með
skandinavíska flugfélaginu.“
# # •
Óskiljanleg
íslenska
„Égbrá mér ákvikmyndina
The Crying Game um daginn
og þýðing hennar bar þess
merki aðþýðandinn kynni
hvorki ensku né islensku al-
mennilega oghefðialdrei til
Bretlandskomið. Églagðiekki
allar vitleysumar á minnið en
nokkrir augnbrjótar standa
þó eftir... Þýðingþessarar
myndar, þótt hún vœri afleit,
er því miður sist verri en
megnið afþeim þýðingum
sem íslenskir kvikmyndahúsa-
gestirverða að þola. Það er
ansi hart að sitja ifyrsta flokks
sœtum,fyrirframan splunku-
nýjar stórmyndir, umkringd-
ur besta hljóðkerfi heims og
horfa upp á óskiljanlegt bull á
handónýtri íslensku.“
Grétar Hjartarson, stjóm
Félags kvikmyndahúsaeig-
enda: „Þýðing erlendra kvik-
mynda í kvikmyndahúsum
borgarinnar er upp og ofan og
auðvitað gæti hún oít verið
betri, eins og bréfritari bendir
réttilega á. Það er því fúll
fyrir að heilla útlend-
ingana upp úr skón-
um með fantagóðum
leih i Inguló og krækja
sér i verðlaunin sem
besta leikkonan á
kvikmyndahátiðinni í
Rúðuborg.
ástæða til að gera auknar kröf-
ur til þýðenda. Stórt vandamál
í máli þessu er þó, að oft eru
þýðendur látnir þýða handrit
án þess að horfa á myndimar.
í slíkum tilvikum er þá auðvit-
að engin íúrða ef eitthvað í
textanum reynist illskiljanlegt
og er ekki í neinu samræmi við
það sem fram fer á tjaldinu.“
# # #
Húsaníð-
ingur borg-
arinnar
„Sigurður G. Tómasson dag-
skrárgerðarmaður minnti þar
á að hið neikvœða viðhorf til
gamalla húsa vœri enn ríkj-
andi hjá sumum Reykvíking-
um. Hann vék að því að sjálft
Alþingi vœri einn versti húsa-
níðingurinn í bœnum ogléti
húseigtnr sínar við Kirkju-
strætigrotna niður. Víkverji
tekur undirþessa skoðun Sig-
urðar og mœlist til þess að nú,
þegar ný stórbygging Alþingis
hefur vœntanlega verið af-
skrifuð vegna ástandsins í rík-
isfjármálunum, gangist lög-
gjafarsamkundanfyrir því að
láta hressa upp á húseignir
sínar í Miðbœnum, þannig að
til sóma verði fyrirþing og
þjóð.“
Víkverji Morgunblaðsins.
Garðar Halldórsson, húsa-
meistari ríkisins: „Ég held að
það geti allir verið sammála
um að húseignir Alþingis eru
ekki í nógu góðu ásigkomu-
lagi. Á meðan ekki hefúr form-
lega verið tekið af skarið um
nýtt húsnæði Alþingis hefúr
ekki verið lagt fram fjármagn
til viðhalds húseigna þingsins,
nema í algjöru lágmarki. Á
vegum Alþingis hefúr sérstök
nefnd um húsnæðismál unnið
að því í vetur að kanna fr amtíð
þessara húsa svo og önnur
húsnæðismál þingsins. Mér er
ókunnugt um hver endanleg
niðurstaða verður, en víst er
að tekin verður einhver
ákvörðun í málinu.“
Kvartanir hafa borist til heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisinsyfirSigurði Gunnari Emilssynii, fulltráa sýslumanns-
ins i Hafnarfirði, vegna framferðis í garð fólks sem talið er í
óskráðri sambúð þar í bæ.
„Okkur hafa borist nokkrar
kvartanir um gróf tilsvör og
staðhæfingar Sigurðar. Fólk
virðist bæði sárt og reitt yfir
málsmeðferð hans, þótt
kannski megi einnig finna flöt á
málunum,“ segir Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson, deild-
arstjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu og fyrr-
verandi alþingismaður.
„Sigurður felur sig á bak við
embættið til að þjóna lund
sinni,“ segir reiður barnsfaðir
konu einnar f Hafnarfirði, en
hann og barnsmóðir hans segja
farir sínar ekki sléttar í sam-
skiptum sínum við fulltrúann.
Málið er þannig vaxið að fýrir
ári eignuðust þau saman barn,
án þess þó að nokkuð yrði úr
frekara sambandi þeirra á milli.
Fyrir mánuði flutti faðirinn hins
vegar inn á gafl til móðurinnar í
kjölfar þess að hann missti
vinnuna og jafnframt íbúðina
sem hann bjó í.
„Stuttu síðar hringir fulltrú-
inn frá sýslumannsembættinu,
Sigurður Emilsson, og heldur
því fram að ég sé í sambúð með
barnsföður mínum. Ég segi
honum hvernig málin standi,
hins vegar séum við alls ekki í
sambúð, enda skilst mér að það
sé á okkar ábyrgð að skrá okkur
í sambúð ætlum við okkur að
efna til áffamhaldandi sambúð-
ar. Þá spyr hann mig af hverju
ég sé að hjálpa honum, hvort ég
sé bara svona góð og af hverju
hann geti ekki búið hjá foreldr-
um sínum! Ég sagðist ekkert
vita af hverju hann færi ekki til
þeirra. Þá gerðist hann grófari
og spurði mig hvar hann svæfi
og bætti við: „Þið hljótið að sofa
saman.“ Ég sagði að honum
kæmi ekkert við hvort við svæf-
um saman eða ekki. „Jú,“ sagði
hann þá. „Víst kemur mér það
við. Það hljóta að minnsta kosti
að vera kærleikar ykkar á milli
fyrstþið eigið barn saman.“
Burtséð frá því hvort hann
kann að hafa haft eitthvað til
síns mál varð ég sjokkeruð á
kjaftinum á honum og sagði að
hann varðaði ekkert um mína
hagi, — kærleikar þyrftu ekki
að fara saman við það að eiga
barn saman.“
í framhaldi af þessu hafði
barnsfaðirinn samband við Sig-
urð.
„f fyrstu neitaði Sigurður að
hafa verið með kjaff en sagði' að
fylgst hefði verið með ferðum
mínum og að „ég væri helvíti lé-
legur að láta grípa mig í rúminu
hjá konunni“. Þegar ég hugsaði
málin betur mundi ég eftir
ókunnugri konu sem stóð í
stigaganginum og var að spyij-
ast fyrir um alla sem eiga heima
í húsinu. Ég veit ekki hvort það
var njósnari á þeirra vegum.
Það hringdi einnig maður til
föður míns um daginn sem
hvorki kynnti sig né sagði hvað-
an hann hringdi og var að for-
vitnast um hagi mína. Hann
sagðist þurfa að koma til mín
pósti.“
„Það hefur verið kvartað
undan Sigurði Emilssyni, en ég
held að þær kvartanir eigi ekki
rétt á sér. Ég skal ekki taka fýrir
það að menn geti orðið óþolin-
móðir ef borðliggjandi mál eru
ekki viðurkennd,“ segir Guð-
mundur Sophusson, sýslu-
maður í Hafriarfirði.
Samþykkir embœttið svona
hótunaraðgerðir gegnfólki?
„Það gerir það auðvitað ekki.
Ég vona og vil ekki trúa því að
hann beiti svona hótunum."
Guðmundur sagði hins vegar
að aðgerðir gegn óskráðri sam-
búð hefðu verið hertar í kjölfar
átaksins sem heilbrigðisráð-
herra boðaði til um áramótin. „í
flestum tilfellum fáum við
ábendingar frá fólki, en að við
séum með njósnara á vegum
okkar er alveg af og frá.“
Jón Sæmundur Sigurjónsson
segist hafa komið kvörtunun-
um áfram til Tryggingastofnun-
ar. Hins vegar hafi þetta mál
ekki verið skoðað frekar.
Cuðrún Kristjánsdóttir
SlGURÐURGUNNAR Emilsson,
FULLTRÚISÝSLUMANNSINS í HAFNARFIRÐI
Sigurður þvertók ísamtali við PRESSUNA fyrir að hafa
njósnað um skjólstæðinga sína. „Það er hægt að Ijúga öllu
upp á mann. Eg hefsjálfur ekki heyrt um eina einustu
kvörtun."
Sigurður kannaðist þó við þetta tiltekna mál. „Mér fannst
hreinlegast að hringja í fólkið og láta vita að við vissum að
þau væru í óskráðri sambúð, í stað þess að láta málið í
hendur Rannsóknarlögreglu ríkisins, eins og við getum
gert. Þær missa hins vegar afmiklu, þessar stelpur, við
svona aðgerðir. Ég held að meira en helmingurinn afþess-
um „einstæðu" mæðrum sé I sambúð. Á því er ekki nokkur
vafi."
debet
KRISTINN H. GUNNARSSON kredít
„Helsti kostur hans sem þingmanns er að hann
setur sig vel inn í mörg þau mál sem fjallar um,“ seg-
ir Einar K. Guðfinnsson, sveitungi hans og
þingmaður á Bolungarvík." „Hann er mjög
vinnusamur, nákvæmur og vandvirkur. Hann lætur
ekki slá sig út af laginu og er fýlginn sér,“ segir Þór-
hallur Jósefsson, frændi hans og aðstoðarmað-
ur samgönguráðherra og situr með Kristni í
stjóm Húsnæðisstofhunar. „Hann er rökfastur og
fylgist vel með málum héma heima í héraði og hann
er mjög duglegur,“ segir Smári Haraldsson, bæj-
arstjóri á Isafirði, ffændi og flokksbróðir Krist-
ins. „Þetta er duglegur og greindur maður sem gott
er að starfa með. Hann á auðvelt með að setja sig inn
í mál og greina aðalatriði ffá aukaatriðum og er fús
að leggja góðum málum lið,“ segir Guðmundur
Einarsson, fyrrum forstjóri Ríkisskipa. „Kristinn
er mjög traustur og trúr sínum málstað og hann er
sérlega skapgóður maður,“ segir Bryndís Frið-
geirsdóttir, varaþingmaður hans.
Bagalega smásmugulegur —
eða nákvœmur ogvandvirkur?
Kristinn hefurmikið verið i fjölmiðlum að undanförnu vegna
baráttu sinnar við að fá banni gegn hnefaleikum hnekkt.
„Mér finnst hann oft bagalega smásmuguleg-
ur og það veldur því að hann greinir ekki aðal-
atriðin frá aulcaatriðunum,“ segir Einar K. Guð-
finnsson, þingmaður á Bolungarvík og sveitungi.
„Það sem ég þuldi upp í debetinu getur einnig
verið ókostur hans, — það fer eff ir því hvorum
megin menn sitja við borð hans,“ segir Þórhallur
Jósefsson, aðstoðarmaður samgönguráðherra og
frændi Kristins. „Kristinn er stundum svolítið
fljótur af stað, tekur mál upp án þess að hafa
hlustað á allar hliðar þeirra,“ segir Smári Har-
aldsson, bæjarstjóri á fsafirði og flokksbróðir. „Ég
get eldd komið auga á neina galla nema þá helst
þann að hann er eldci í réttum stjórnmála-
floklci,“ segir Guðmundur Einarsson, fyrrum for-
stjóri Ríkisskipa, þar sem Kristinn var í stjóm. „Það
sem er neikvætt við Kristin er að hann er ekki
ísfirðingur og hann á það til að lemja fullharka-
lega á andstæðingunum,“ segir Bryndís Friðgeirs-
dóttir, varaþingmaður hans.
i