Pressan - 25.03.1993, Blaðsíða 25
FRUMSYNINGARGESTIR A JOTUNNI
Fimmtudagurinn 25. mars 1993
PRESSAN 25
Styrkir til listastofnana renna ekki til listagyðjanna heldur til starfsmanna og áhorfenda
Leikhúsgestir bor
og fá 5.500 króna s
n
Efreiknað er með að styrkir til lista úr ríkissjóði renni tilþeirra sem njótá
listarinnarþáfá gestir Listasafns íslands, Þjóðleikhússins, íslenska dans-
flokksins ogsinfóníuhljómsveitarinnar miða sína niðurgreidda um
800 til 11.500 krónur.
600 krónur
frá ríkinu
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Aðeins 450 manns sáu sýningu
dansflokksins á síðasta ári.
Miðað við 34 milljóna króna
styrk þýðir það niðurgreiðslu
upp á 55 þúsund krónur á
miða. Á venjulegu ári má hins
vegar búast við um 9 þúsund
áhorfendum á sýningar dans-
flokksins. Niðurgreiðsla á
hvern miða yrði þá um
3.800 krónur.
Það er þekkt úr umræðunni
um landbúnaðarmál að menn
eru ekki á eitt sáttir um hverjir
njóta styrkjanna sem renna úr
ríkissjóði til landbúnaðar.
Bændur segja að þetta séu
styrkir til neytenda; það er að
þeir séu styrktir til að geta keypt
og neytt landbúnaðarvara. Þeir
sem gagnrýna kerfið hafa viljað
snúa dæminu við og segja að
bændurnir fái styrkina; að þeir
séu studdir til að geta haldið
áffam að mjólka kýr, reka fé og
heyja.
Ef styrkir úr rfkissjóði til Iista
eru settir inn í þessa umræðu þá
höfum við sömu tvo kosti. Ann-
aðhvort renna styrkirnir til
listamanna, svo þeir geti fengist
við það sem þeir kjósa, eða þeir
renna til almennings, svo hann
geti notið listar. Líkast til þykir
flestum seinni kosturinn skárri.
Við skulum líta á hvaða
styrkja tónleika-, leikhús- og
listsýningargestir njóta í fjórum
ríkisstyrktum listastofnunum.
MIÐAR Á SINFÓNÍUNA
NIÐURGREIDDIR UM
5.600 KRÓNUR
Á síðasta starfsári Sinfóníu-
hljómsveitar íslands heyrðu rétt
rúmlega 35 þúsund manns í
hljómsveitinni. Hún hélt tón-
leika á vinnustöðum, skólum og
víðar, auk sinna föstu tónleika í
Háskólabíói. Um 15 þúsund
manns heyrðu í hljómsveitinni
á sérstökum tónleikum en um
20 þúsund manns á tónleikum
sem heyrðu undir fasta efnis-
skrá hennar.
Sinfónían nýtur styrkja bæði
beint úr ríkissjóði og eins úr
Menningarsjóði útvarpsstöðv-
anna. Samanlagt fékk hún 170
milljónir í fyrra og 177 milljónir
í ár.
Miðaverð á tónleika hljóm-
sveitarinnar er mismunandi; ffá
900 krónum og upp í 1.600
krónur fyrir bestu sæti. Meðal-
verð í salnum öllum er um
1.450 krónur. Til samanburðar
má geta þess að það kostar 500
krónur í bíó. Það kostar því ffá
tæpum tveimur bíómiðum upp
í rúma þrjár að fara á tónleika
hjá sinfóníunni.
Ef þeirri upphæð er deilt nið-
ur á hvern áheyranda þá fékk
hver um sig 5.025 krónur í styrk
til að geta hlýtt á sinfóníuna. Ef
reiknað er með að styrkurinn sé
í réttu hlutfalli við miðaverðið
þá fengu þeir í verstu sætunum
um 3.150 krónur í styrk en þeir
í bestu sætunum um 5.600
krónur.
Ef skólatónleikum er sleppt
og reiknað með að styrkurinn
komi fyrst og fremst þeim til
góða sem sækja tónleika hljóm-
sveitarinnar af fusum og ffjáls-
um vilja er styrkur á hvern gest
frá 6.425 krónum og upp í
11.425 krónur eftir því hvar í
húsinu þeir sitja.
Það er sjálfsagt endalaust
deiluefni hvort tónleikagestir
eða skattgreiðendur allir eigi að
borga miðana inn á tónleika
hljómsveitarinnar. En ef miða-
verð á sinfóníutónleika væri
hækkað upp í 3.000 krónur,
sem er álíka upphæð og áskrift
að Stöð 2, mætti skera niður
styrki til hljómsveitarinnar um
31 milljón laóna.
55 ÞÚSUND KRÓNA
STYRKUR Á HVERN GEST
Á LISTDANSSÝNINGU
íslenski dansflokkurinn fékk
tæpar 25 milljónir í styrk í fýrra
og fær um 34 milljónir á þessu
ári. Flokkurinn hélt aðeins eina
sýningu í fyrra, Ertu svona
kona?, og sáu hana 450 manns.
Samkvæmt því hefur hver
þeirra verið styrktur um einar
55 þúsund krónur.
Það er hins vegar ósanngjamt
að miða við þessa einu sýningu.
Á tímabilinu 1985 til 1987, áður
en dansflokkurinn komst í þá
lægð sem hann er að reyna að
rífa sig upp úr nú, sáu um 9
þúsund manns til flokksins á
hverju ári. f venjulegu árferði
má því reikna með að styrkur til
hvers sýningargests sé um 3.790
krónur.
Hver miði á fyrirhugaða sýn-
ingu flokksins í Borgarleikhús-
inu kostar 2.400 krónur. Ónið-
urgreiddur mundi hann -því
kosta um 8.190 krónur.
ÓKEYPIS Á LISTASAFNIÐ
Á síðasta ári sóttu rúmlega 71
þúsund manns sýningar Lista-
safhs Islands. Þar af voru um 8
til 10 þúsund nemar á vegum
skóla sinna.
Styrkur til rekstrar safnsins
var í fyrra rúmar 56 milljónir og
í ár verður hann 55,3 milljónir.
Ef þeirri upphæð er deilt niður á
sýningargesti má segja að hver
Þjóðleikhúsið
Það er erfitt að meta niður-
greiðslur á hvern miða í
Þjóðleikhúsinu. Ef300 millj-
óna króna styrk er deilt nið-
ur á alla áhorfendur verður
niðurstaðan sú að skóla-
sýningin Næturgalinn hafi
kostað skattgreiðendur um
100 milljónir. Það gengur
ekki upp. Það erraunhæf-
ara að áætla að niður-
greiðslur á hvern miða séu
um 5.550 krónur.
þeirra hafi fengið um 776 krón-
ur í styrk til að skoða safnið.
Aðgangur að Listasafninu er
ókeypis. Ef hver gestur yrði
krafinn um 300 krónur væri
hins vegar hægt að lækka styrk-
inn um 21,4 milljónir.
LEIKHÚSMIÐINN
GREIDDUR NIÐUR UM
5.550 KRÓNUR
Það er dálítið flókið að meta
hverjir fá styrkina sem renna til
Þjóðleikhússins. f fyrra lagði
ríkissjóður 254 milljónir til
rekstrar þess og í ár fær leikhús-
ið 300 milljónir.
Ef allir sýningargestir síðasta
leikárs eru teknir með þá sáu
um 130 þúsund manns sýning-
ar leikhússins. Ef styrknum er
deilt jaffit niður á þá má reikna
með að hver hafi fengið um
2.300 krónur í sinn hlut.
Þetta er hins vegar ekki svona
einfalt. Þjóðleikhúsið setti upp
Næturgalann eftir H.C. Ander-
sen og sýndi í skólum um allt
land. Alls sáu þessa sýningu
hátt í 43 þúsund manns. Ef allir
áhorfendur Þjóðleikhússins
hafa fengið jafnháan styrk þá
hefur þessi uppfærsla kostað
skattgreiðendur um 100 millj-
ónir. Það gengur ekki upp. Til
viðbótar þessu sáu rúmlega 37
þúsund manns aðrar barnasýn-
ingar leikhússins; Búkollu og
Emil í Kattholti. Ef sömu rökum
er beitt á þær sýningar þá hefðu
þær kostað skattborgarana um
85 milljónir. Það gengur heldur
eldd upp, því líkast til voru þetta
þær sýningar leikhússins sem
örugglega stóðu undir sér.
Það er því eðlilegast að reikna
þessar tvær barnasýningar ekki
með og áætla um 20 milljónir á
sýningar á Næturgalanum. Eftir
standa þá 280 milljónir sem
rúmlega 50 þúsund gestir á aðr-
ar sýningar hafa fengið í sinn
hlut. Hver þeirra hefur því feng-
ið sinn miða greiddan niður um
5.550 krónur.
Aðgöngumiði á venjulega
sýningu í Þjóðleikhúsinu kostar
1.600 krónur. Raunvirði hans er
7.150. Gesturinn borgar 1.600
krónur en skattgreiðendur því
5.550 krónur.
Ef miðaverðið yrði 3.000
krónur mætti lækka styrk ríkis-
sjóðs til Þjóðleikhússins um 70
milljónir.
SKATTURINN SÓTTUR í
LEIKHÚSIÐ
Af ofansögðu má sjá að í
hvert sinn sem Islendingur fer í
leikhús eða á tónleika borgar
hann aðeins brot af því sem það
kostar í raun. Gesturinn borgar
um fimmtung en skattgreið-
endur sjá um restina.
Það má líka Iíta á þetta dæmi
þannig, að úr því hver skatt-
greiðandi er búinn að borga 80
prósent af leikhúsmiðanum sín-
um borgi það sig fyrir hann að
fara niður í leikhús, borga 20
prósentin og sjá sýninguna, sem
hann er hvort sem er búinn að
borga að mestu.
Gunnar Smárí Egilsson
LlSTASAFN ISLANDS Listasafnið fær rúmar 55 milljónir til
rekstrar. Um 71 þúsund manns heimsækja það á ári. Ef
sýningargestir ættu að standa undir rekstrinum þyrftu þeir
að borga 775 krónurinn.
SlNFÓNÍUHLJÓMSVEITIN Um 35 þúsund manns hlusta á sin-
fóníuna á ári; bæði á reglulegum tónleikum og á tónleik-
um fyrir skóla og fyrirtæki. Miðarþeirra sem sitja í bestu
sætunum eru niðurgreiddir um 5.600 krónur.
LEIKLIST
Skemmtilegasti söngleikurinn síðan MHflutti Rocky Horror
EVlTA
EFTIR ANDREW LLOYD WEBBER
SJALLANUM
AKUREYRI
★ ★★
Um þessar mundir sýnir
Sjallinn á Akureyri söngleikinn
Evítu eftir Andrew Lloyd Web-
ber og Tim Rice. Hvað sem
manni finnst um aðra söngleiki
þessa ffæga tvíeykis er Evíta sí-
gilt verk og sennilega það besta
sem Lloyd Webber og Rice hafa
samið. Sýningin í SjaUanum er í
styttra lagi (1 1/2 klst.) og aðal-
lega byggð á lögunum. Þó er
eitthvað af söguþræðinum haft
með fýrir þá sem ekki þekkja
hann. Sýningin tekst merkilega
vel, miðað við að sviðið er h'tið
og nánast engin leikmynd not-
uð. Ruth Reginalds leikur Ev-
ítu, Baldvin Baldvinsson eigin-
mann hennar, Peron, og Pálmi
Gunnarsson leikur Che Gue-
vara og standa öll þrjú sig frá-
bærlega vel. Það er sérstaklega
ánægjulegt að hlusta á toppat-
vinnumenn syngja þessi fallegu
lög; atvinnusöngvarar sem
kunna sitt fag í gegn. Það hefur
farið mjög lítið fýrir Pálma síð-
ustu tvö árin, á sama tíma og
ný kynslóð söngvara hefur
komið fram, en hann hefur
sjaldan verið í betra formi en
nú. Hann passar vel í hlutverk-
ið og syngur mun betur en
David Essex gerði á sínum tíma
og sýnir þann mikla kraft sem í
honum býr. Ruth Reginalds fer
einnig á kostum í hlutverki Ev-
ítu og ætti, að rhínu mati, að fá
hlutverk í söngleikjum aðal-
leikhúsanna. Þá var hlýlega tek-
ið á móti Baldvini Baldvinssyni
(sá eini sem söng án hljóð-
nema), enda féll hann aldrei í
skugga poppsöngvaranna
tveggja og gaf. meira af sér í
hlutverkinu en algengt er hjá
þeim sem leikur Peron. Aðrir
söngvarar og dansarar voru
líka skemmtilegir og mér
fannst hvergi veikur hlekkur í
keðjunni.
yPálmi passar vel
í hlutverkið
og syngur
mun betur
avid
Essex
gerðiá
sínum
tíma. “
Sjallinn býður upp á
sýningu, mat og dansleik
fyrir aðeins 3.900 kr og var
sýningin á undan matn-
um. Ég veit ekki hvort það
er hagstætt fyrir pör að
fara aDa leið til Akureyrar
frá Reykjavík, en þeir sem
búa nær staðnum ættu að
tryggja sér miða strax, og
hinir sem geta farið í hóp-
ferðum héðan (til að
minnka ferðakostnaðinn)
ættu að gera það sama.
Þeir verða aldeilis ekki
fýrir vonbrigðum. Þetta er
skemmtilegasti söngleikur
sem ég hef séð síðan MH
setti Rocky Horror Show
upp um árið — og senni-
lega fyrir stærri aldurs-
hóp.
Myndlist
• Kristmundur Þ. Gísla-
son opnar málverkasýningu
í Menningarstofnun Banda-
ríkjanna á laugardag.
• Grímur Marinósson
opnar sýningu í Perlunni á
laugardag.
• Bragi Hannesson sýnir
ný verk í Galleríí Borg. Opið
virka daga kl. 12-18 og um
helgar kl. 14-18.
• Guðrún Gunnarsdóttir
sýnir í Listasafni ASÍ. Opið
alla dagakl. 14-19.
• Jón Óskar sýnir
olíumálverk og Ijósmyndir á
Mokka Café.
• Bjarni Ragnar hefur
opnað myndlistarsýningu í
Listhúsinu í Laugardal. Opið
alla daga nema sunnudaga
kl. 14-18.
• Bryndís Jónsdóttir sýnir
leirverk í Galleríi Úmbru.
Opið þriðjudaga til laugar-
dagakl. 13-18 ogsunnudaga
kl. 14-18.
• Helgi Örn Helgason sýn-
ir smámyndir í Galleríi Sæv-
ars Karls. Opið á verslunar-
tíma.
• Margrét Reykdal sýnir
verk sín í Hafnarborg. Opið
alla daga nema þriðjudaga kl.
12-18.
• Jón Baldvinsson sýnir
málverk í Portinu. Opið alla
daga nema þriðjudaga kl.
14-18.
• Gunnlaugur Stefán
Gíslason sýnir vatnslita-
myndir í Galleríi Fold. Lýkur
á laugardag. Opið virka daga
kl. 11-18 og laugardaga kl.
11-16. “ ,
• Það sem okkur dettur í
hug! er samsýning tíu
barna sem stendur yfir í
setustofu Nýlistasafnsins.
Lýkur á sunnudag. Opið alla
daga kl. 14-18.
• Rut Rebekka Sigurjóns-
dóttir sýnir olíu- og pastel-
myndir (FlM-salnum. Lýkur
á sunnudag. Opið alla daga
kl. 14-18.
• (slenskt landslag
1900-1945 nefnist sýning á
Kjarvalsstöðum. Á sýning-
unni eru um 120 myndir
eftir 26 listamenn. Opið dag-
lega kl. 10-18.
• Magnús Pétur Þor-
grímsson sýnir leirlist í
Stöðlakoti.
• Helgi Þorgils Friðjóns-
son sýnir (húsakynnum
Húsgagnadeildar Pennans,
Hallarmúla. Opið á verslun-
artíma.
• Elías Hjörleifsson hefur
opnað myndlistarsýningu í
Galleríi 15. Opið virka daga
kl. 12-18 og laugardaga kl.
11-14.
• Medúsu-hópurinn sýnir
verk sín í Gerðubergi á sýn-
ingunni Líksneiðum og ald-
inmauki. Opið mánudaga til
fmnntudaga kl. 10-22, föstu-
daga kl. 10-16oglaugardaga
kl. 13-16.
• Fimm Færeyingar sýna
verk sín í Norræna húsinu.
Opið daglega kl. 14-19.
• Ásgrímssafn. Myndir eft-
ir Ásgrím Jónsson úr ís-
lenskum þjóðsögum. Opið
um helgarkl. 13.30-16.
• Ásmundarsafn. Bók-
menntirnar í list Ásmundar
Sveinssonar. Opið alla daga
kl. 10-16.
• Þorvaldur Þorsteinsson
sýnir samsettar lágmyndir í
Slunkaríki á Isafirði. Opið
miðvikudaga til sunnudaga
kl. 16-18.
Sýningar
• Lárus Karl Ingason &
Ólafur Gunnar Sverrisson
hafa opnað samsýningu á
Ijósmyndum og skartgrip-
um í Portinu. Opið alla daga
nema þriðjudaga kl. 14-18. *
• Níels Hafstein sýnir bók-
verk, lausblaðabækur og
fylgihluti í Nýlistasafninu.
Lýkurá sunnudag.