Pressan - 25.03.1993, Síða 21
STJORNSKIPUÐ FJOLDAMORÐ
Fimmtudagurinn 25. mars 1993
PRESSAN 21
Fórnarlömbin
Tvö hinna fjölmörgu
barna sem Chikatilo
myrti og misþyrmdi á
hrottalegan hátt.
argögn og því varð að sleppa
honum lausum. Þúsundir
manna voru handteknar grun-
aðar um voðaverkin, kynhverf-
ir, þroskaheftir og útigangsfólk,
en allt kom fyrir ekki. Eftir að
íyrsta morðið hafi verið framið
var gengið svo langt að pynta
saklausan mann til að játa á sig
verknaðinn og hann tekinn af
lífi í kjölfarið. En morðin héldu
áffam og urðu sífellt óhugnan-
legri. Loks beindust böndin í
þriðja sinn að kennaranum ein-
kennilega, Chikatilo, og ákveðið
var að leggja fyrir hann gildru.
Lögreglumönnum var komið
fyrir í öllum stærri verslunar- og
þjónustumiðstöðvum í Rostov.
Þannig var morðinginn neydd-
ur til að leita á fámennari svæði,
svo sem lestarstöðvarnar á leið-
inni á milli Rostov og litlu kola-
bæjannna í kring. Chikatilo var
ekki séðari en svo, að það sást til
hans-þar sem hann var að sni-
glast nálægt skógarsvæði þar
sem nokkur lík höfðu fundist.
Viku síðar fannst ung stúlka
myrt þar á hrottalegan hátt og
lögreglan var ekki lengi að
leggja saman tvo og tvo. Stúlkan
var 52. fórnarlambið í röðinni
og jafhff amt það síðasta.
Fórnarlamb hnign-
unar kommúnista-
veidisins
Chikatilo var álitinn nægilega
heill á geðsmunum til að vera
viðstaddur réttarhöldin, sem
tóku marga mánuði, enda
ákærulistinn langur og ljótur.
Hann var hafður lokaður inni í
rimlabúri til að vama því að að-
standendur fórnarlambanna
gætu látið reiði sína og hatur
bitna á honum. Margoft þurfti
að gera hlé á réttarhöldunum,
þegar mæðurnar misstu stjóm á
sér og féllu saman af angist og
sorg. Chikatilo sat fyrstu vik-
urnar þögull í búri sínu og
horfði geðveikislega yfir réttar-
salinn. Loks var sem honum
væri nóg boðið að sitja undir
ásökunum æstra aðstandenda,
sem grátbáðu dómarana um að
fá að limlesta morðingjann.
Chikatilo fór að hreyta dóna-
skap í viðstadda, einkum þó
dómarana, sem fengu það
óþvegið.
Það tók langan tíma að lesa
upp dóminn yfir Chikatilo, en
hverju morði var lýst í smáat-
riðum, með þeim afleiðingum
að mæður fómarlambanna féllu
í yfirlið og þurffi margsinnis að
kalla til lækni. Dauðarefsing
þótti hæfileg í máli Chikatilos,
fyrir morðin 52 sem sönnuð
vom á hann, og var hún kveðin
upp við geysilegan fögnuð við-
staddra. Þeir hinir sömu létu sig
engu varða, hvað morðinginn
sjálfur hafði til málanna að
leggja. Enda var skýring hans
hlægileg. Chikatilo hafði alla tíð
verið sannfærður kommúnisti
og barist hatrammlega gegn
uppgangi kapítalismans, eink-
um með blaðaskrifum. Niður-
staða hans í málinu var því sú,
að hann væri ekkert annað en
fórnarlamb hnignunar komm-
únistaveldisins í Sovétríkjun-
um.
Sannleiksnefhd Sameinuðu þjóðanna skilar af sér
Hver drap hvern
í El Salvador?
Nýjar niðurstöður
nefndar ávegum
Sameinuðu þjóðanna
staðfesta það sem
margir töldu sig vita
árum saman: herinn í
El Salvador strádrap
óbreytta borgara og
embættismenn í
Washington lugu þeg-
ar þeir sögðust ekkert
vitaummálið.
Það eru aðeins nokkrar vikur
síðan bandaríska varnarmála-
ráðuneytið neitaði því enn að
herinn í E1 Salvador hefði strá-
drepið að minnsta kosti tvö
hundruð manns í smáþorpinu
E1 Mozote árið 1981. Þessu
héldu bæði bandarískir og sal-
vadorskir herforingjar ffarn ár-
um saman þrátt fyrir vatnsheld-
ar sannanir og þótt í skýrslum
bandaríska sendiráðsins í San
Salvador segði að herinn bæri
ábyrgð á ódæðinu. Flestir hinna
látnu voru konur, börn og gam-
almenni.
Fréttir af þessum og öðrum
glæpum stjórnvalda í E1 Salva-
dor, sem nutu stuðnings
Bandaríkjastjórnar, voru iðu-
lega afgreiddar í Washington
sem áróður og uppspuni
vinstrisinnaðra blaðamanna.
Stríðið í E1 Salvador var enda
annar af homsteinum Reagan-
kenningarinnar um nauðsyn
þess að halda aftur af sovét-
kommúnismanum í Mið-Am-
eríku og mikið var lagt undir til
að sú kenning héldi velli.
f síðustu viku skilaði hins
vegar af sér Sannleiksnefndin,
sem svo er kölluð, og hennar
sannleikur hefur reynst allur
annar en opinberi sannleikur-
inn í Washington og San Salva-
dor. Sameinuðu þjóðimar settu
nefndina á laggirnar í kjölfar
friðarsamkomulags í E1 Salva-
dor í fyrra og verkefni hennar
var að komast til botns í hver
bæri ábyrgð á dauða tugþús-
unda óbreyttra borgara þau tólf
ár sem borgarastyrjöldin stóð
sem hæst.
Romero Erkibiskup
D'Aubuisson borgaði400 dali fyrir morðið á honum.
Alexander Haig
Nunnurnar reyndu að rjúfa
vegartálma.
Kaþólikkar og
kommúnistar
Nefndin rannsakaði um átján
þúsund mál þar sem fórnar-
lömbin vora alls um 75 þúsund.
Niðurstöður hennar voru að
herinn og dauðasveitirnar bæru
ábyrgð á níutíu prósentum
morða og mannréttindabrota,
þeirra á meðal umdeildustu og
illræmdustu ódæðunum.
Nefndin sagði að Roberto
d’Aubuisson, stofnandi AR-
ENA-flokksins og leiðtogi
hægrimanna um árabil, hefði
fyrirskipað morðið á Oscar
Amulfo Romero erkibiskupi í
mars 1980. Persónulegir lífverð-
ir d’Aubuissons óku tilræðis-
manninum að kirkju þar sem
erkibiskupinn var við messu, en
hann hafði gagnrýnt stefnu
stjórnvalda og fordæmt herinn
fyrir grimmdarverk hans.
D’Aubuisson borgaði tilræðis-
manninum tuttugu og fimm
þúsund krónur (400 dali) fýrir
tilræðið, sem vakti óhug um all-
an heim á sínum tíma og átti
stærri þátt en margt annað í að
vekja samúð með málstað
vinstrimanna í styrjöldinni.
D’Aubuisson verður ekki dreg-
inn til ábyrgðar fýrir verkið þar
sem hann dó úr krabbameini í
fyrra.
I nóvember 1989 voru sex
jesúítaprestar, vinnukona
þeirra og þrettán ára dóttir
hennar dregin fram úr rúmum
sínum um miðja nótt og skotin.
Markmiðið var að drepa séra
Ignacio Ellacuria, rektor jesú-
ítaháskólans í San Salvador,
sem hafði harðlega gagnrýnt
ódæðisverk hersins. Herforingj-
arnir, sem fýrirskipuðu morðin,
sögðu hermönnunum að skilja
engin vitni eftir á lífi og á end-
anum lágu átta í valnum. Á sín-
um tíma héldu bandarísk og
salvadorsk stjórnvöld því iðu-
lega fram að uppreisnarmenn
hefðu líklega drepið fólkið, en
kennt hernum um til að finna
málstað sínum fylgi. í skýrslu
Sannleiksnefndarinnar segir að
sama sérsveit hersins og drap
fólkið í E1 Mozote hafi drepið
jesúítana.
Meðal herforingjanna sem
fyrirskipuðu morðin var René
Emilio Ponce, hershöfðingi og
varnarmálaráðherra. Ponce
sagði af sér embætti fýrir tveim-
ur vikum þegar fféttist af niður-
stöðum nefndarinnar, en í yfir-
lýsingu sinni þrætti hann fýrir
að hafa gert neitt annað en það
sem nauðsynlegt var til að halda
kommúnismanum í skefjum.
Nefndinni tókst ekki að sýna
fram á hver drap fjórar banda-
rískar konur, þar af þrjár nunn-
ur, við trúboðsstörf árið 1980,
en sagði sýnt að skipanir hefðu
komið frá háttsettum herfor-
ingjum. Á sínum tíma sagði Al-
exander Haig, þá utanríkis-
ráðherra, að þær hefðu líklega
verið skotnar við að reyna að
ryðjast í gegnum vegartálma
hersins.
Og kaninn fer í mál
Það var ekki fyrr en á allra
síðustu vikum að bandarísk
stjórnvöld ákváðu að sýna
Sannleiksnefndinni samvinnu
og má þakka það stjórnarskipt-
um í Bandaríkjunum. Nefndin
gengur ekki svo langt að segja
að bandarísk stjórnvöld beri
ábyrgð á verkum skjólstæðinga
sinna í E1 Salvador. Hins vegar
sé sýnt að stjórnvöldum Wash-
ington hafi verið fullljóst um
það sem herinn aðhafðist og fátt
gert til að koma í veg fyrir það.
Heima fyrir neitaði Banda-
ríkjastjórn ávallt vitneskju um
mannréttindabrot og fjölda-
morð hersins. Snemma á ní-
unda áratugnum ákvað Banda-
ríkjaþing að tengja aðstoð við E1
Salvador bættu ástandi í mann-
réttindamálum, en skýrsla
nefndarinnar bendir til þess að
bandarískir embættismenn hafi
skrökvað að þinginu um vitn-
eskju sína um mannréttinda-
brot í E1 Salvador til að ekki féllu
niður fjárframlög til landsins.
„Það er eins gott að þeir hafi
ekki verið eiðsvarnir þegar þeir
sögðu þetta,“ sagði Bob Torr-
icelli, formaður vesturálfu-
nefndar utanríkismálanefndar
þingsins, þegar nefndin fjallaði
um skýrslu Sannleiksneíndar-
innar í síðustu viku. „Þessi
nefnd mun fara yfir hvert ein-
asta orð sem embættismenn
Reagan-stjómarinnar létu út úr
BobTorricelli
Rannsökum hverteinasta
orð.
Nicole
n
hreppir
sér,“ bætti hann við og
útilokaði ekki málaferli
vegna hugsanlegs
meinsæris gagnvart :
þingnefndum. Ef til
þeirra kemur fer fækk-
andi þeim embættis-
mönnum repúblikana
sem ekki hafa lent í
dómsmálum vegna
embættisverka sinna.
í Sannleiksnefnd-
inni sátu Belisario
Betancur Cuartas,
fyrrum forseti Kól-
umbíu, Reynaldo
Figueredo, fýrrum
utanríkisráðherra Ve-
nesúela, og Thomas
Buergenthal, lagapró-
fessor við George
Washington Univers-
ity. Þeir lögðu til að
fjörutíu yfirmenn sal-
vadorska hersins yrðu
reknir, þeirra á meðal
Ponce hershöfðingi, og
að sex leiðtogum
FMLN yrði bönnuð
stjórnmálaþátttaka í
tíu ár vegna hlutdeildar
í mannránum og
morðum á ellefu bæj-
arstjórum í landinu.
Viðbrögð Alfredo
Cristiani forseta voru
hins vegar að boða til
almennrar sakarupp-
gjafar í landinu í nafiti
„þjóðareiningar".
Hann er undir miklum
þrýstingi frá hernum,
sem vill eðlilega ekki
sjá á eftir öllum helstu
látúnshnöppum sínum
á einu bretti. Leiðtogar
FMLN lögðu til að til-
lögum nefndarinnar
yrði hrint í fram-
kvæmd og undir það
tóku bæði Boutros
Boutros Ghali og
Warren Christop-
her, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Varn-
armálaráðuneytið í E1
Salvador hefur það til
málanna að leggja að
enn séu kommúnistar
að reyna að gera salva-
dorska herinn óvirkan.
Karl Th. Birgisson
My life nefnist ný bandarísk kvik-
mynd eftir Bruce Joel Rubin, sem skrif-
aði handritið að myndunum Ghost og
Jacob's Ladder. Rubin leikstýrir nýj-
ustu mynd sinni, My life, og er það
frumraun hans á sviði leikstjórnar.
Myndin segir frá manni sem erdauð-
vona afkrabbameini og tekur sjálfan
sig upp á myndband fyrir ófætt barn
sitt. Hlutverkið er í höndum sjálfs Bat-
mans, Michaels Keaton. Það vafðist
lengi fyrir Rubin að finna réttu leik-
konuna íhlutverk eiginkonunnar
ófrísku og fékk hann fjölmargar af
þekktustu leikkonum Hollywood til
sín í hæfniprófun. Sú sem skaut þó
öllum hinum reffyrir rass var leikkon-
an rauðhærða Nicole Kidman. Að
sögn Rubins er þetta ekki í fyrsta sinn
sem hann lætur heillast afKidman.
Hún mun hafa verið mjög nálægt því
að hreppa aðalhlutverkið i Ghost á
sínum tíma, en þá varð Demi Moore
sem kunnugt er sú heppna. Ástæðuna
segir Rubin þá að Kidman hafi á þeim
tima verið ný í bransanum en Moore
hafi aftur á móti verið búin að skapa
sér nafn sem leikkona.
Oliver North
stefnir á þing
Hljótt hefur verið um
Oliver North ofursta
eftir að hann komst
með vafasömum
hætti á spjöld sög-
unnar vegna afskipta
sinna af Irans-Kontra-
málinu afdrifaríka.
North er þó aldeilis ekki dauður úr öll-
um æðum og hefur um nokkurt skeið
rekið eigið fyrirtæki, sem sérhæfirsig í
sölu á skotheldum undirfatnaði.
North hefursjálfur verið duglegur við
að auglýsa hinn öldungis óvenjulega
söluvarning og segist aldrei stíga út
fyrir dyr án þess að klæðast
„Spectra"-undirfatnaði sinum. En það
er annað og meira i bigerð hjá ofurst-
anum en sala á nærbrókum, því nú
hefur hann sett stefnuna á þing. I
þingkosningunum á næsta ári hyggst
North bjóða sig fram í Virginíufylki
sem fulltrúi repúblikana til öldunga-
deildar. North á að sögn talsverðu
fylgi að fagna í heimafylki sínu og er
þvi sjálfur nokkuð sigurviss. Afþeim
sökum hefur hann ekki sparað við sig
auglýsingarnar og erþegar búinn að
verja 33 milljónum króna til kynning-
armála.
Brjóstahöldurum
rignir yfir Grete
Henni brá heldur betur i brún, félags-
málaráðherra Noregs, Grete Knud-
sen, þegar hún mætti til vinnu á dög-
unum. Um S50 pakkar biðu ráðherr-
ans og sá hún sig tilneydda að fá
samstarfsfólk sitt til liðs við sig við að
opna póstinn sinn. I IJós kom að
pakkarnir, sem voru grunsam-
lega mjúkir, innihéldu allirþað
sama: brjóstahaldara í öllum
mögulegum stærðum og gerð-
um. Það var stéttarfélag starfs-
fólks hótela og veitingahúsa í
Noregi sem stóð fyrir póstsend-
ingunum I tilefni afalþjóðleg-
um kvennafridegi. Með uppá-
tæki sínu vildi félagið mótmæla
þeirri„óheillaþróun"sem orðið
hefur í rekstri veitingahúsa og
skemmtistaða í Noregi, þarsem
það verður ævinsælla að láta
brjóstaberar kynbombur ganga
um beina til að gleðja augu
karlmannanna. Stéttarfélagið
hafði með áberandi blaðaaug-
lýsingum hvatt félagskonur til
vekja athygli ráðherrans á mál-
inu með sameiginlegu átaki og
senda kynsystur sinni brjósta-
haldara sína. Ekki stóð á við-
brögðum, enda konurnar skilj-
anlega afar ósáttar við að geta
aðeins fengið vinnu við sitt hæfi
með þvíað fara úr brjóstahald-