Pressan - 25.03.1993, Síða 27
ÞEIR VINSÆLUSTU & TEKJUHÆSTU
Fimmtudagurínn 25. mars 1993
TODMOBILE Andrea Gylfadóttir og félagar hennar; lognið á undan storminum?
OMSVEITIRNHR
OHERRRLnUNINI
Því er spáð að hin nýstoíhaða
Pláhneta Stefáns Hilmarssonar
taki við af Sálinni hans Jóns
míns og verði heitasta band
sumarsins ásamt unghljóm-
sveitinni Jet Black Joe. Það er
bandið sem sló svo um munaði
í gegn á síðasta sumri og var
kjörin bjartasta vonin í vin-
sældakosningum PRESSUNN-
AR eftir sumarvertíðina.
Getgátur eru uppi um að fast
á hæla þessum hljómsveitum
— ef eldci ffamar þeim — komi
kvartettinn GCD. Þeir sem þeg-
ar hafa hlýtt óopinberlega á það
sem Rúnar Júlíusson, Bubbi
Morthens og aðrir meðlimir
GCD hafa nú ffam að færa segja
engan vafa á því að þeir hafi
aldrei verið betri; þeir séu enn
betri en sumarið 1991 þegar
þeir sprengdu utan af sér hvert
félagsheimilið af öðru. Sem
kunnugt er ollu þeir aðdáend-
um sínum vonbrigðum á síð-
asta ári. Svo vitnað sé aftur til
vinsældakosninga PRESS-
UNNAR urðu þeir félagar í ág-
úst 1992 í fimmta sæti yfir von-
brigði ársins.
PRESSAN hefur öruggar
heimildir fyrir því að mest
áhersla sé lögð á að gera GCD að
aðalnúmerinu á Þjóðhátíðinni í
Eyjum 1993.
Öll hin númerin
KK-band er talið allt að því
óhagganlegt á toppnum. Þótt
mikið sé til í kenningunni „það
sem einu sinni fer upp kemur
alltaf aftur niður“ ber að geta
þess að KK var rétt að komast á
toppinn um jólin. Þeir eiga því
væntanlega mikið eftir þar enn.
Nýdönsk hefur átt heldur
brolckgengu láni að fagna und-
BUBBI Morthens
Á Bubbi eftir að endurtaka
leikinn með Rúnari Júlíus-
syni frá 1991, eða gera
jafnvel enn betur?
JET BLACK JOE Búist er við að rætist úr björtustu voninni.
stöðumenn hótela, félagsheim-
ila og annarra dansstaða bæði á
Reykjavfkursvæðinu og á lands-
byggðinni kom í ljós að í lang-
flestum tilfellum gera vinsælar
hljómsveitir svokallaða pró-
sentusamninga við húsin sem
þeir spila í. Svo dæmi sé tekið
rúmar meðalsamkomuhús um
400 manns — en þess má geta
að slíka stærð af húsi er ekki erf-
itt að fylla. Miðinn inn á tón-
leikana kostar ekki undir 1.500
krónum. Af þeirri upphæð fær
hljómsveit í ágætum metum 60
til 70% í eigin vasa sem gera 900
til 1.000 krónur. Samkomustað-
urinn tekur að sér að borga
rúllugjaldið og virðisaukaskatt-
inn, það er að segja sé hann
með vínveitingasölu, sem eykur
hagnaðinn. Séu vínveitingar
ekki leyfðar er miðaverðið yfir-
leitt hærra. Þegar dæmið er gert
upp í lok kvölds fær hljómsveit-
in 360 til 400 þúsund krónur í
sinn hlut hafi húsfyllir verið. Af
þeirri upphæð má gera ráð fýrir
að 90 til 100 þúsund-kall sé fast-
ur kostnaður, sem fari í flutn-
inga, hljóð, ljós, rótara og fleira.
Eftir standa þá um það bil 260
til 310 þúsund krónur. Að með-
altali eru meðlimir hverrar
hljómsveitarinnar fimm. Það
þýðir að hver þeirra fær um 50
þúsund krónur í eigin vasa fyrir
kvöldið. Ef kvöldin ná því að
vera sex til átta í mánuði verða
tekjurnar frá 300 þúsundum
upp í 400 þúsund.
Þessar upphæðir geta þó orð-
ið bæði lægri og mun hærri hjá
hljómsveitum sem sjá sjálfar
um að leigja stóru félagsheimil-
in úti á landi. Slíkt er þó bæði
óalgengt og algert happdrætti.
Þá má gera ráð fyrir því að
poppstjörnur eins og Stefán
Hilmarsson, sem auk þess að
vera andlit hljómsveitarinnar
sér um að bóka hana og annast
ýmist stúss, fái nokkru meira í
sinn hlut en aðrir hljómsveitar-
meðlimir._____________________
Guðrún Krístjánsdóttir
Aðrir þykjast vita betur og
segja það góðan leik hjá Sálinni
hans Jóns míns að hætta á há-
tindinum í nokkra mánuði.
Flestir spá því þó að þeir komi
saman að nýju í haust. Plott Sál-
arinnar felist fyrst og ffemst í að
koma kvitti á kreik fyrir tón-
leika; að alltaf séu þetta síðustu
tónleikarnir. Af þessum ástæð-
um fylli þeir hvert húsið af öðru
og mali gull á meðan aðrar
hljómsveitir finni óneitanlega
fyrir lcreppunni.
Þess má geta að strax upp úr
áramótum hóf Stefán Hilmars-
son að bóka Pláhnetuna í sum-
ar. Hann fór jafnframt fram á
það við forstöðumenn hótel-
anna og félagsheimilanna að
þeir þegðu um sinn um ráða-
haginn.
Allur þessi leikur Stefáns
Hilmarssonar þykir dæmi um
gott viðskiptavit hans. Hann
varð fyrstur til að bóka sig á
sveitahöllin og gat því valið
bæði úr tíma og stöðum. Þess
ber að geta að það eru sjaldnast
félagsheimilin og hótelin sjálf
sem óska eftir hljómsveitum,
heldur verða hljómsveitirnar
sjálfar að boða komu sína út á
land.
SSSól er einnig langt komin
með bókun á sumarferðalaginu,
GCD hefur skráð sig hér og þar,
KK-band er komið á skrið, Jet
Black Joe, Nýdönsk, Todmobile
og nokkur smærri nöfn í tón-
listarheiminum.
Popparar með
ráðnerralaun
Fáir renna grun í hve vinsæl-
ustu poppUjómsveitirnar geta í
raun haft það gott fjárhagslega,
þótt vissulega eigi það alls ekki
við um þær allar. Hver meðlim-
ur vinsællar hjómsveitar, sem
tekst að fylla samkomuhús sex
til átta kvöld í mánuði, getur
haft rífleg ráðherralaun, sér-
staklega yfir sumartímann, því
þá er vertíð popphljómsveita
landsins.
f samtali við nokkra for-
Stefán Hilmarsson
Stefán Hilmarsson þykir
glúrinn í viðskiptum. Hon-
um og nýju hljómsveitinni
hans er spáð mestri vel-
gengni í sumar.
eina hljómsveitin sem haldið
hefur tónleika í Reykjavík í vet-
ur og ekld bara fyllt húsin, held-
ur hefur oft komið fýrir að allt
að því jafnmargir hafi þurft frá
að hverfa og hinir sem komust
inn til að hlýða á þá.
„Kreppan segir til sín í
skemmtanalífinu eins og öðru.
Fólk fer sjaldnar á tónleika með
stórhljómsveitunum því það
kostar inn á þá. Það er af sem
áður var. Nú virðist fólk spara
við sig og fara eingöngu á tón-
leika með uppáhaldshljómsveit
sinni. Það hefur sýnt sig í vetur
að Sálin hans Jóns míns er lang-
vinsælasta tónleikahljómsveitin.
Todmobile og Nýdönsk fýlgja
svo fast á hæla Jienni og hafa
fyllt húsin, þótt ekki hafi jafh-
margir þurft frá að hverfa og á
hljómleikum með Sálinni, og
SSSól á sér sterkan og tryggan
aðdáendahóp. Aðsókn að
hljómleikum með Stjórninni
hefur hins vegar dalað tölu-
vert,“ sagði skemmtihúsasér-
fræðingur á höfuðborgarsvæð-
inu.
anfarin ár. Hún hefur nú bætt
mjög samkeppnisstöðu sína,
sérstaklega á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og á Akranesi og ná-
'grannasveitarfélögunum eftir
Himnasendinguna. Það fór
mjög misjöfnum sögum af
gengi hljómsveitarinnar á
sveitaböllunum síðastliðið sum-
ar. Gengi hennar í Reykjavík
hefur þó verið ágætt í vetur.
Stjórnin er enn talin eiga von
á landsbyggðinni þrátt fyrir
slakan vetur í Reykjavík. Það
má að liluta til skrifa á kostnað
þess að hljómsveitin var ekki
með í síðasta jólaplötuflóði.
Hljómsveitin Todmobile er
enn óskrifað blað. Þeir sem til
þekkja kvíða þó engu um ffam-
haldið á þeim bæ. Þeir hafi
mjög margt nýtt og gott fram að
færa; nú sé aðeins lognið
á undan storminum.
Todmobile er ein fárra
stórhljómsveita sem ætla
að koma reglulega ffam í
Reykjavík, nánar tiltekið
á Tveimur vinum, yfir
sumarmánuðina.
Síðan skein sól hefur
staðið sig með ágætum í
vetur þótt sumir haldi því
fram að hún hafi dalað
tónlistarlega. Það er þó
ýmissa nýrra hluta að
vænta ffá þeim í nánustu
ffamtíð. Sólin er sem fýrr
eftirsótt af Vestfirðingum
og reyndar fleira lands-
byggðarfólki. Þó er talið
að þeir megi fara að vara
sig á heimaslóðunum, því
á ísafirði sé eftirspurnin
effir Jet Black Joe jafhvel
orðin ívið meiri en eftir
Sólinni.
Þá binda menn miklar vonir
við gömlu karlana úr Pelican
sem ætla að leggja áherslu á
sveitaböllin í sumar. Víst þykir
að Jenny Darling falli enn á ný í
kramið hjá ungviðinu ogjafnvel
einnig gamlingjunum sem upp-
lifðu anda grand old Pehcan.
Enn á að mestu eftir að reyna
á vinsældir Bogomils Font utan
höfuðborgarsvæðisins. Aust-
firðingar tóku þeim þó með
ágætum þegar þeir lögðu leið
sína í Valaskjálf fýrir nokkru.
Þá er víst að Geirmundur
Valtýsson fær til sín bændur og
búalið á sveitaböllin. í samtali
við PRESSUNA sagði stjórn-
andi hótels á landsbyggðinni að
allir þeir sem færu ekki á popp-
hljómsveita-sveitaböllin yrðu
fýrstir til að mæta á dansleiki
með Geirmundi Valtýssyni.
Hann hyggst leggjast í ferð með
sýninguna sína I syngjandi
sveiflu í sumar; það sem nú er
sýnt fýrir fullu húsi helgi eftir
helgi á Hótel íslandi.
Sálarplottið
Margir telja Sálina vera að
gera tóma vitleysu með því að
ætla að leggja upp laupana á
meðan hún trónir á aðsóknar-
toppnum. Hún er í senn vinsæl-
asta og tekjuhæsta tónleika-
hljómsveit landsins. Sálin er
PRESSAN 27
FOSTUDAGUR
26. MARS
• Haraldur Reynisson fær
að vera í friði á Feita dvergn-
um.
• Richard Scobie og Reynir
Tryggvason verða væntan-
lega væmnir á Barrokk í
kvöld.
• Undir tunglinu aftur á
Gauká Stöng.
• Guðmundur Rúnar hjól-
reiðakappi úr Hafnarfirði á
Fógetanum.
• Rokkvalsinn leikur Ijúfa
sjávartóna á Rauða Ijóninu.
LAUGARDAGU R
27. MAfcS
• Haraldur Reynisson
trúbador á Feita dvergnum.
• Todmobile kemur fram
opinberlega í fyrsta skipti í
þrjá mánuði á Tveimur vin-
um, þar sem annar er alltaf í
fríi. Eftir um það bil þrjár vik-
ur kemur út með sveitinni
safnplata sem hefurað
geyma ný lög. Sem fyrr verða
þau Þorvaldur, Andrea og Ey-
þór í framvarðarsveitinni en
baksviðs þeir Kjartan Valdi-
marsson, Matthías Hemstock
og Eiður Arnarsson.
• Richard Scobie og Reynir
Tryggvason lífga upp á Bar-
rokk í siðasta sinn um sinn.
• Hótel Akranes: Nýdönsk
með sveitaballastemmningu
á Skaganum.
• Sjallinn, ísafirði: nú er
loks komið að Jet Black Joe
með tónleika fyrir sextán ára
og eldri.
• Sjallinn, Akureyri: Vinir
Dóra verma kjallarann.
LAUGARDAGU R
27. MARS
• Bjarni Arason og Sverrir
Stormsker ætla víst að end-
urtaka gleðina sem ríkti síð-
asta fimmtudag í LA Café.
Diddi fiðla verður ekki með.
• Haraldur Reynisson syng-
ur á Famous Grouse-kvöldi á
Feita dvergnum.
• Richard Scobie söngvari
og Birgir Tryggvason pían-
isti troða upp á hinum yfir-
burðarómantíska stað Bar-
rokkfram á sunnudag.
• Sigtryggur dyravörður
var gerður ódauðlegur í einu
laga Hins íslenska þursa-
flokks. Nú hefur hann öðlast
enn eitt lífið, að minnsta kosti
nafn hans, í nýrri hljómsveit
sem spilar á Hressó í kvöld.
• Undir tunglinu er stór-
efnileg hljómsveit sem lætur
væntanlega mikið að sér
kveða í framtíðinni. Hún er
meira að segja komin á séns
með landsbyggðinni en
verður nú á Gauk á Stöng.
• Guðmundur Rúnar mún-
ará Fógetanum.
• Sjallinn, Akureyri: Bubbi
Morthens bregður sér nörður
yfir heiðar og heldur tónleika.
• Geirmundur Valtýsson
heldur áfram með stórsýn-
inguna sína „f syngjandi
sveiflu" á Hótel íslandi ásamt
Ara, Magga, Berglindi Björk
og Guðrúnu.
• Sjallinn, Akureyri: Rokk-
bandið leikur eftir leiksýning-
una Evítu.
• Hótel Selfoss: Inga Eydal,
Magnús og Jóhann (hinir
einu sönnu), Davíð og Jón
Bjarnason halda uppi heljar-
stuði í dagskrá sem nefnd er
„Leikur, spé og Ijúfir tónar".
• Sjallinn, ísafirði: Jet Black
Joe verður nú með tónleika
fýrir þá sem orðnir eru átján
ára. Vínveitingar. Á sunnu-
dagskvöld verða svo tónleik*^
ar á hótelinu. Það verða allir
framlágirá (safirði um helg-
ina.
FOSTUDAGUR
26. MARS
• Guðmundur Rúnar enn
og aftur og sjálfsagt til fram-
búðará Fógetanum.
SUNNUDAGUR
28. MARS
• Gala-djass verður á loka-
kvöldi Óperudjassins í minn-
ingu Guðmundar Ingólfsson*"
ar. Ýmsir sólistar troða upp
og flestir þeir hljóðfæraleik-
arar sem fram hafa komið á
hátíðinni.
• Kandís er ein fárra soul-
og blússveita landsins. Hún
minnir um margt á The
Commitments og verður á
Hressó.
• Ingibjörg Guðjónsdóttir
telst vart poppari en hún er
fín sópransöngkona og treð-
ur upp á klassísku kvöldi á
Barrokk.
• Gullfoss hleypir af stað
vökvanum á Gauk á Stöng í
kvöld. Geysir kemur ekki við^^^
sögu.
• Hermann Ingi frá Lyngi á
Fógetanum.
Sveitaböll
fimmtUdagur
25. MARS
Popp
FIMMTU DAGUR
25. MARS