Pressan - 25.03.1993, Page 31
mJElflSm SS? CJt msisF
mif Sffwm /• - ' ( M í |( , «■ J9BIH Sttj HM PRESSAN fylgir
BSS iS? ^tt tttt^^tt H b$S wSStt <w
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJOMAR
Á myndinni má sjá þau Harald Noregskonung og Sonju, drottningu hans, gróðursetja norska tréð í Vinaskógi. Þetta tré
er nú rótin að milliríkjadeilum milli Noregs og Frakklands.
MUIiríkjadeila í Vinaskógi
NORSKA TRÉO
SKYGGIR Á ÞAfl
Franski sendiherrann á íslandi hefur form-
lega mótmælt yfirgangi norska trésins í
Vinaskógi. „Stöndum ráðþrota," segir
Sveinbjörn Dagfinnsson,
ræktarfélags íslands.
formaður Skóg-
Skilyrði ríkis-
stjórnarinnar fyr-
ir framlagi til
Landsbankans
BANKASTJÓR-
AIIIIIIR SETTIR
IDÁLBBSLU-
MEBFERfl
Dávaldurinn
Frisinette fenginn til að
venja bankastjórana af
því að lána vonlausum
fyrirtækjum.
Reykjavík, 25. mars.
bankastjór- SvantrHer-
arnir þrír, mannsson.
Sverrir Her- „Fyrr í dag
mannsson, reyndiégað
Björgvm Vil- lána marggjald-
mundarson og þrota fiskvinnslu
Halldór Guð- en fyinist
bjarnason, ógleði."
færu í dá-
leiðslumeðferð hjá danska dá-
leiðslusérfræðingnum Frisi-
nette í þeirri von að það yrði til
þess að þeir gætu vanið sig af að
lána vonlausum fyrirtækjum
stórfé.
„Við erum búnir að reyna allt,“
segir Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra. „Við höfum talað um fyrir
þeim, við höfúm reynt að berja inn
í hausinn á þeim undirstöðuatriðin
í bókfærslu og við höfum haft í
hótunum við þá. Ekkert hefur
gengið. Það er því kominn tími til
að reyna eitthvað nýtt.“
Meðferðin fer þannig fram að
bankastjórarnir eru dáleiddir og
meðan þeir eru í dái segir
Frisinette þeim að ef forsvarsmenn
vondra fyrirtækja biðji þá um lán
og þeir vilji láta undan muni þeir
fyllast ógleði.
„Þetta virkar," segir Sverrir Her-
mannsson. „Ég reyndi að lána
ágætum kunningja mínum að
vestan um daginn en gat það ekki.
Mér fannst það ógeðslegt.“
Vaka/Helgafell
Iþróttaunnendur og aðrir aðdá-
endur Samúels Arnar Erlingsson-
ar íþróttafréttamanns geta glaðst,
því Vaka/Helgafell hefur gert
samning við hann um útgáfu á lýs-
ingum hans frá Heimsmeistara-
mótinu í handbolta í Svíþjóð.
„Þegar ég hlustaði á Samúel í fýrsta
leiknum, Island-Svíþjóð, áttaði ég
mig strax á því að þarna var skáld á
ferð,“ segir Ólafur Ragnarsson, eig-
Reykjavík, 25. mars._______________
Franski sendiherrann á íslandi
hefur formlega lagt fram við utan-
ríkisráðuneytið íslenska mótmæli
frönsku þjóðarinnar við yfirgangi
norska trésins í Vinaskógi gagn-
vart því franska. f bréfi sendiherr-
ans segir að ef íslendingar geti
ekki tryggt franska trénu hæfilegt
rými og vemdað það fyrir ágangi
trjáa annarra þjóða verði frönsk
stjómvöld að grípa til sinna ráða.
„Við erum ráðþrota,“ segir Svein-
björn Dagfmnsson, formaður Skóg-
ræktarfélags íslands. „Við leituðum
eftir því við norsk stjómvöld hvort við
andi Vöku/Helgafells. „Ég tók því
fýrstu vél út og hreppti manninn áður
en aðrir útgefendur kveiktu á mál-
inu.“
„Það verður spennandi að sjá
hvernig þetta kemur út í rituðu máli,“
segir Samúel Öm. „En þótt þetta séu í
mættum skera tvær greinar af norska
trénu en þau lögðu blátt bann við
slíku. Við emm því fastir milli tveggja
elda.“
Samkvæmt upplýsingum Svein-
björns vildi svo óheppilega til að
norska tréð var gróðursett ívið of ná-
lægt því franska. „Ég veit ekki hvernig
það vildi til. Mig gmnar þó að norsku
konungshjónin hafi fært sig af þeim
stað sem upphaflega var áætlaður,“
segir Sveinbjörn.
í ofanálag var norðvestanátt ríkj-
andi næstu mánuði eftir gróðursetn-
inguna og því sveigðist tréð í átt að því
franska.
eðli sínu sjónvarpslýsingar og ég hefði
eflaust orðað sumt öðruvísi í rituðu
máli hef ég tekið þá ákvörðun að láta
lýsingamar standa eins og þær koma
fyrir. Ég er hræddur um að andi
augnabliksins kynni að glatast ef
maður færi að krukka í þetta.“
„Ég hef velt því fyrir mér hvort ekki
væri eðlilegast að fella öll trén í skóg-
inum til að fyrirbyggja ffekari vand-
ræði. Þá yrðu allar þjóðir jafnillar út í
okkur en hins vegar væri ekki hægt að
saka okkur um að gera upp á milli
þeirra,“ segir Sveinbjörn.
Herjólfsdeilan
Hniiturinn rakinn
til smíðagalla í
skipinn
Vestmannaeyjum, 25, mars.__
„Samkvæmt niðurstöðum
okkar er ekkert að forsvars-
mönnum verkalýðsfélaganna
eða útgerðarmönnunum.
Meinið liggur í hönnun skips-
ins sjálfs,“ segir Viðar Úlfars-
son, formaður nefndar á vegum
samgönguráðuneytisins sem
fengin var til að kanna Herjólfs-
deiluna
„Við gerðum tilraun með því að
biðja Þorstein Pálsson sjávarút-
vegsráðherra og Kristján Ragnars-
son, framkvæmdastjóra LIÚ, að
ræða saman um sjávarútvegsmál í
matsal skipsins. Það ótrúlega gerð-
ist. Þeir voru komnir í hár saman
efdr fimm mínútur,“ segir Viðar.
„Þetta er ekki einleikið. Það er
eitthvað við skipið sem gerir menn
ósammála. Ef ekki hefði komið
upp ósætti í nelhdinni hefðum við
án efa fundið hvað það er ná-
kvæmlega,“ segir Viðar.
Hyggst gefa út lýsingar
Samúels flrnar
Lýsingarnar koma út á bók fyrir næstujól.
Vinnutitill bókarinnar er „Hvílíkur leikur,
hvílík snilld — hvílík lýsing".
Revkiavík, 25. mars.
„Mestu skiptir
að andi augna-
bliksins komist
til skila í bók-
inni," segir
Samúel Örn, sem
eránægðurmeð
samninginn við
Vöku/Helgafell.
Change slær í gegn
í Bretlandi!!!
Hljómsveitin Change hefur nú uppskorið laun erfiðis síns á áttunda ára-
tugnum. Hún er nú eitt heitasta bandið í Birmingham.
„VONA AÐ
ÉG KOMIST í
GALLANN"
- segir Björgvin Halldórsson.
Birmingham, 25. mars._
Mikið Change-æði geisar nú í
öllum helstu næturklúbbum
Birmingham. Þessi íslenska
hljómsveit, sem starfaði á Bret-
landi á áttunda ártugnum, hefúr
skyndUega tryllt hugi unga fólks-
ins.
„Þeir eru æðislegir,“ segir Vera
Fulham, fjórtán ára skólastúlka.
„Þeir eru sætir, smart og rosalega
sexí,“ bætir vinkona hennar, Sara
Erwing, við.
f samtali við GULU PRBSSUNA
sagði Björgvin Halldórsson, einn
hljómsveitarmeðlima, að þegar væri
ráðgert að hljómsveitin færi utan til
að fylgja vinsældunum eftir.
„Þetta er sérkennilegt mál,“ sagði
Björgvin. „Loks þegar maður var
búinn að gefa alla frægðardrauma
upp á bátiim þá kemur þetta svona
bakdyramegín. Ég vona bara að
unglingsstúlkurnar verði ekki fyrir
vonbrigðum að sjá okkur orðna
miðaldra.“
Ótrúlegur dráttur á dómsmeðferð
við héraðsdóm Reykjaness
„Þetta eru ekki vondir
menn, þeir eru bara hægir“
- segir Sigurveig Leifsdóttir, ritari við dóminn, og tekur sem
dæmi að einn dómarinn hafi óskað sér til hamingju með fer-
tugsafmælið þremur vikum eftir að hún varð 54 ára.
Hafnarfirði, 25. mars.___________________
„Mér finnst umræðan um drátt á
málum hér í Hafnarfirði komin út í
öfgar. Þessir dómarar eru ekki vondir.
Þeir eru bara hægari og rólegri en fólk
er flest,“ segir Sigurveig Leifsdóttir,
ritari við héraðsdóm Reykjaness, en
það hefur vakið athygli undanfarin
misseri að mál hafa verið allt að ára-
tug til meðferðar hjá dómnum.
GULA PRESSAN skýrði þannig frá
því fyrir skömmu þegar einn dómar-
inn kvað upp dóm yfir sauðaþjófi sem
hafði ffamið brot sitt á öndverðri síð-
ustu öld.
„Þegar maður hefur vanist hæga-
ganginum fer manni að þykja hann
indæll,“ segir Sigurveig. Hún tekur
sem dæmi að hún hafi lent í því að
reiðast einum dómaranum en hann
hafi tekið því furðulega létt.
„Það liðu síðan ein fimm ár en þá
sprakk hann alveg og hellti sér yfir
mig. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð
veðrið fyrr en ég áttaði mig á því að
hann var að svara reiðikastinu mínu
„Mér hefur tekist að venjast því hvað
allt gerist hægt hér í dómnum og mér
finnst að þeir sem eru að fá fangelsis-
dóma vegna tíu ára gamalla brota
geti líka sýnt ákveðinn skilning," seg-
ir Sigurveig, ritari við héraðsdóm
Reykjaness.
fyrir nokkrum árum. Þá gat ég nú
ekki stillt mig um að hlæja,“ segir Sig^
urveig.
Hún segir að fólk verði bara að taka
dómarana eins og þeir eru. „Ekki vill
fólk að allir séu steyptir í sama mót-
ið,“ segir Sigurveig. „Sumir eru örir og
aðrir hægir. Þannig er lífið.“