Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 2
FYRST OG FREMST
PRESSAN
Fimmtudagurinn 2. september 1993
BERA NORDAL Hætt við að auglýsa stöðuna hennar og hún ráðin áfram.
GUNNAR ÞORSTEINSSON Bar lím á varirnar ífátinu.
Auðgunarbrot lög-
mannsins
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur Skúla Sigurðs-
syni lögmanni vegna meintra
auðgunarbrota. Akæran er viða-
mikil og í sjö liðum, en málið
var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær og verður flutt'
af Sigríði Jósefsdóttur þann 17.
september. PRESSAN skýrði frá
þvi í október 1991 að ríkissak-
sóknari hefði gefið út ákæru á
hendur Sigfinni Sigurðssyni
hagffæðingi, bróður Skúla, fyrir
meintan fjárdrátt upp á rúmar
íjórar milljónir króna, en þeir
bræður ráku sameignarfélagið
Austurströnd. Sigfmnur var í
lok árs 1990 kærður til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins fyrir
meintan fjárdrátt og skjalafals af
Móhúsi hf, rekstraraðila veit-
ingastaðarins Lækjarbrekku, og
var í þeirri kæru einnig beðið
um opinbera rannsókn á hugs-
anlegri aðild Skúla að máiinu.
Niðurstaðan í því máli varð þó
sú, að aðeins var lögð ffarn kæra
á hendur Sigfinni. Sama ár,
1990, voru þrjár aðrar kærur á
hendur Skúla til rannsóknar hjá
RLR, þar sem honum var gefið
að sök að hafa ekki skilað pen-
ingum sem hann hafði inn-
heimt eða haff til ráðstöfunar
fýriraðra.
Hugsunarl
boói
laus trú-
Þegar PRESSAN hóaði í fyrra
saman nokkrum einstaklingum
til Hafnarfjarðar í svokallaða
árumyndatöku kom ýmislegt
forvimilegt í ljós. Meðal annars
kom fram að ára trúboðans
Gunnars Þorsteinssonar, for-
stöðumanns Krossins, reyndist
eldrauð, sem ku vera merki um
ógnarorku. Það kom engum á
óvart, því flestir eru sammála
um að af trúarleiðtoganum
geisli mikill kraftur. Ekki er þó
þar með sagt að kraftur þessi
falli öllum jafnvel í geð. Gunnar
á það nefnilega til að umtuma
innanstokksmunum þegar
hann er í heimsókn hjá vinum
og kunningjum. Með öðrum
orðum hefúr hann stöðuga þörf
fyrir að handfjatla hluti, og það
ffentur í hugsunarleysi en með-
vitað. Einn af mörgum kunn-
ingjum Gunnars var orðinn
langþreyttur á handapati hans. í
einni heimsókninni af mörgum
sá kunninginn hvar Gunnar
greip til varasalva og fór að bera
á varir sínar. Ekki það að kunn-
inginn hefði ekki getað stöðvað
Gunnar áður en í óefni væri
komið heldur var ákvörðun
hans sú að gera það einfaldlega
ekki. Varasalvinn reyndist
nefnilega ekki varasalvi heldur
UHU-lím í samskonar formi.
Engum sögum fer af afleiðing-
unum.
Brosbiar vonir og
bætur
Strákarnir úr Keflavíkur-
hljómsveitinni Deep Jimi and
the Zep Creams hyggja nú eina
ferðina enn á landvinninga.
Sem fyrr ætla drengirnir að
leggja upp í ferð upp til fyrir-
heitna landsins þar sem þeir
ætla að hafa búsetu næstu þijá
mánuðina, nánar tiltekið í lista-
mannahverfinu Greenwich Vill-
age í New York. Áætluð brottför
ffá íslandi er 19. september og
verða kveðjutónleikar á Hressó
haldnir þremur dögum áður.
Þrátt fyrir nokkra umfjöllun í
bandarískum tónlistartímarit-
um brugðust væntingar drengj-
anna í síðustu Bandaríkjaför
þeirra, enda stóðst fátt af því
sem þeim hafði verið lofað.
Samningarnir sem þeir höfðu
gert fyrir dótturfyrirtæki Wam-
er Bros voru brotnir í bak og
fyrir. Fyrir fáeinum dögum
fengu þeir svo skaðabætur
vegna þess máls og leggja þvl
upp með nokkra aura í fartesk-
inu. Nokkur smærri bandarísk
útgáfufyrirtæki ku hafa sýnt
þeim áhuga, en þeir ætla að fara
varlegar í sakimar en síðast
Draugagangur hiá
Leildelagi iðmr-
eyrar
Leikfélag Akureyrar hefúr lík-
lega aldrei sett upp jafnmörg
verk á einu leikári og ætlunin er
að gera í vetur. Verkefnafjöldinn
yfir árið hefúr verið þijú til fjög-
ur verk, en í vetur ætlar Leikfé-
lagið að ráðast í uppsetningu
fimtn verka, þar á meðal nýs ís-
lensks gamanleiks, Ekkert sem
sýnist — átakasaga, og söng-
leiksins Óperudraugsins
(Phantom of the Opera). Nafit
höfúndar íslenska verksins verð-
ur ekki látið uppi að svo stöddu
og ekki einu sinni vitað hvort
hann hefur áður látið að sér
kveða í íslensku leikhúsi. Þá er
heldur ekki búið að ákveða
Þættir úr sögu skattgreiðenda:
Listosafniðgaf hðlffl milli-
ðn fijrir njflgaðan rörböf
ega furðu.
ur hét maðr",
ið er í laginu
Marga hefur rekið í roaastans sem sótt hafa Listasafn Is-
lands í sumar, sökum ryðqaðs rörbúts sem gefur að líta í
einum sýningarsalnum. Einnver gæti haldið að viðgerðir ó
vatnslögnum stæðu yfir í safninu en svo mun þó ekki vera.
Um er að ræða allóvenjulegt listaverk eftir Kristjón Guð-
mundsson sem Listasafnio festi kaup ó í vor, að tilstuðlan
innkaupanefndar safnróðs, en í henni eiga sæti forstöðu-
maður safnsins, Bera Nordal, Hafsteinn Austmann og Níels
Hafstein. Nýja verkið lætur lítið yfir sér og því vekur sölu-
verð þess, sem var hólf milljón króna, óneitan
Hugmyndin að verkinu, sem nefnist „Eyjól
mun vera fengin úr Islendingasögunum. Ver
eins og bókstafurinn E og gekk höfundurinn út fró upphafs-
stafnum í nafni Eyjólfs þessa. Kristjón Guðmundsson er sjólf-
menntaður í faginu og nokkuð umdeildur sem listamaður,
enda þótt hann sé nú ó starfslaunum hjó Revkjavíkurborg.
Listasafn Islands hefur óður keypt nokkur verk eftir Kristjón
sem jafnan hafa vakið talsverða athygli. Þar ó meðal mó
nefna verk fró órinu 1969 sem byggoist upp ó jtrauborði
með dúfnadriti ofan ó ósamt óhreinum þvotti. I kringum
strauborðið var svo sjillt upp tómum appelsínflöskum. Þess
mó geta að Listasafn Islands hefur í ór 12 milljónir króna til
umróða til listaverkakaupa og mun sjóðurinn enn ekki vera
tómur. Því er aldrei að vifa nema fleiri óvenjuleg listaverk ó
borð við ryðgaða rörbútinn bætist í safnið óður en órið er ó
enda.
NÝJASTA SKRAUTFJÖÐUR LISTASAFNS ÍSLANDS. Hugmyndin að verkinu er fengin úr íslendingasögunum.
hverjir syngja í Óperudraugn-
um, en um síðustu helgi fór
fram áheyrn tuttugu ungra
óperusöngvara í Reykjavík.
Leikfélagið, með Viðar Eggerts-
son í fararbroddi, á því ekkert
annað efúr en að velja eina unga
sópransöngkonu, tvo unga bar-
ítóna og einn tenór á óræðum
aldri úr þeim föngulega hópi
sem mætti í áheymina. Hveijir
verða fyrir valinu kemur vænt-
anlega í ljós í næstu viku. Það er
hins vegar fyrir löngu búið að
ákveða hver á að leikstýra
Óperudraugnum. Það verður
engin örtnur en Þórliildur Þor-
leifsdóttir, margreyndur leik-
stjóri fslensku óperunnar. Þór-
hildur hóf reyndar leiklistarferil
sinn á Akureyri eins og eigin-
maður hennar Amar Jónsson.
Nú em hins vegar liðin tíu ár ífá
því Þórhildur starfaði síðast á
Akureyri. Þá setti hún upp
söngleikinn My fair lady við
geysilegar vinsældir. Það er því
ekki annað að gera en bíða vors-
ins og sjá hvort Þórhildur end-
urtekur ekki leikinn með
Ópemdraugnum.
Sækja leikkonur til
Sjónvarpsins
Tveir nýir leikarar hafa verið
fastráðnir til Leikfélags Akureyr-
ar, þau Dofri Hermannsson,
nýútskrifaður úr Leiklistarskól-
anum, og Rósa Guðný Þórs-
dóttir, sem hefúr sagt skilið við
þulustarfið hjá Sjónvarpinu.
Rósa er ekki eina leikkonan sem
Akureyringar sækja til Sjón-
varpsins, því Arna María
Gunnarsdóttir, sem nú stígur
sín fyrstu skref á íslenskum leik-
húsfjölum eftir leiklistarnám í
Englandi, vann sem skrifta hjá
Sjónvarpinu síðastliðinn vet-
Vilja Beru ófram
Spurst heíúr að Bera Nordal,
forstöðumaður Listasafns ís-
lands, hafi verið skipuð átfam til
næstu fjögurra ára. Safnráð
Listasafnsins hafði ffumkvæði
að því að mæla með Beru til
starfsins, áður en til þess kom að
staðan væri auglýst. Mennta-
málaráðuneytið sá ekki ástæðu
til annars en að verða við óskum
safnráðsins. í safnráði sitja
Garðar Gíslason hæstaréttar-
dómari, sem er formaður
nefndarinnar, fúlltrúar mynd-
listarmanna em Hafstein Aust-
mann og Níels Hafstein, en
fulltrúi starfsmanna er Karla
Kristjánsdóttir. Hámarksráðn-
ingartími í starfið er átta ár.
Dr. Guxuii vinsæl-
astur í Finnlandi
Tónlistargagnrýnandi
PRESSUNNAR, dr. Gunni, er
þessa dagana að leggja upp í
tónleikaferðalag um Skandinav-
íu og Ifyskaland ásamt meðspil-
ara sínum, Ara Eldon. Tilefnið
er útkoma lítállar vínýlplötu sem
ber nafnið „Vessar“ og er gefin
út í Finnlandi, en þar hefúr dr.
Gurrni af einhverjum ástæðum
notið vinsælda umfram önnur
lönd. Á sama tíma kemur út í
Bandaríkjunum íjögurra laga
plata á vegum útgáíúfyrirtækis í
Kaliforníu. Á henni er annað
efni og nafifið ekki síðra, „Fuzz
& Sway“.
Tryggur hlustandi
Enn einn úr gengi hinna
Kátu pilta úr Hafnarfirði er sest-
ur við hljóðnemann á Aðalstöð-
inni. Sá er Hjörtur Howser
hljómborðsleikari, sem að und-
anfömu hefúr leikið undir söng
Atla Geirs Grétarssonar, bróð-
ur Jakobs Bjamars, víða á öld-
urhúsum bæjarins. Þáttur
. Hjartar hóíst nú í vikunni og er
á milli klukkan fjögur og hálfsjö
síðdegis. Það sem mesta athygli
vekur við síðdegisþátt Káta pÚts-
ins er að hann hefúr hund sér til
fulltingis í hljóðstofunni.
Ástæða þess mun vera sú að
honum hundleiðist einum í
hljóðstofúnni að tala í „dauðan“
hljóðnemann. Betra sé að hafa
með sér tryggan hund sem
hlustar þó á og þegir, svona að
mestu.
SKÚLI SlGURÐSSON Kærður fyrir meint auðgungarbrot í fjórða sinn. HJÖRTUR HOWSER Hefur hund sér til hjálpar í útsendingu. RÓSA GUÐNÝ ÞÓRSDÓTTIR Loksins orðin fastráðinn leikari og hætt hjá
Sjónvarpinu. DR. GUNNI Plöturnar hans heita frumlegum nöfnum. ÞÓRHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR Ætlar að setja Óperudrauginn upp á Akureyri í vetur eftir tíu ára fjarveru frá norðlenskum leikhúsfjöl-
um. JÚLÍUS GUÐMUNDSSON ogfélagar hans í Deep Jimi and the Zep Creams fengu skaðabætur frá dótturfyrirtæki Warner Bros.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Égheflofað pabba og mömmu að efég
verð ekki orðin rík ogfrœg 25 ára komi
ég heim ogfari í lögfrœði. “
Anna Mjöll Ólafsdóttir, vitsmunabrekka og vinkona Jacksons.
„Ég hef séð geimverur nokkrum sinnum og mér hefúr verið boðið upp í geimskip. Þetta
eru mjög virðulegir, gráldæddir, frekar hávaxnir menn sem ég skynja eins og vísindamenn.“
Guörún Hjörleifsdóttir spákona.
Innflug á hráu kjöti
„Ef ég fæ ekki að flytja inn rjúpur frá Rússlandi
verður að setja flugbann á aflan þann fiðurfénað, sem
flýgur landa á milli, það gefur augaleið.“
Pétur Kjötbúr Pétursson, fuglafæla.
Góð sambönd!
„Geimverur ætla að birtast opinber-
lega í fyrsta skipti á Snæfellsjöldi þann
5. nóvember."
Guðrún Bergmann, eiginkona.
Kiddi sleggja er ekki rasssíður!
„Nýliðar eru oft betri þingmenn en þeir sem orðnir eru
rasssíðir og tilfinningalausir gagnvart umhverfi sínu eftir óra-
langa þingsetu.“
Svavar Gestsson, rasssíður og tilfinningalaus.
pUtuemb mUteM*
„Blóm við göturnar og tré meðíram akreinum eru eitt af
því fáa sem gefa vanstifltum eða misjafnlega spenntum öku-
mönnum mýkt og lífsgeislan og verka róandi og afslappandi,
þótt fáir taki eftir þvi nema þeir allra næmustu.”
______________Magnús Hvalur Skarphéðinsson, sá allra næmasti.