Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 30
SKOLABLAÐ
Fimmtudagurinn 2. september 1993
30 PRESSAN
Kjartan Guðmundsson er 17 ára nemandi í Kvennaskólanum:
„Ég er ekki mikill námsmaöiir"
Merktu víð þennan lista svo þú gleymir engu
□ Skólatöskur
□ Skjalatöskur
□ Leikskólatöskur
□ Pennaveski
□ Skrifundirlegg
□ Stílabœkur
□ Reikningsbœkur
□ Glósubœkur
□ Hringbœkur
□ Laus blöö
□ Fönablöö
□ Skýrslublokkir
□ Millimetrablokkir
□ Vélritunarpappír
□ Skrifblokkir
□ Minnisblokkir
□ Klemmuspjöld
□ Plastmöppur
□ Plastumslög
□ Blekpennar
□ Kúlupennar
□ Kúlutússpennar
□ Filttússpennar
□ Glœrupennar
□ Áherslupennar
□ Reglustikur
□ Horn
□ Skœri
□ Bókaplast
□ Trélitir
□ Tússlitir
□ Vatnslitir
□ Vaxlitir
□ Blýantar
□ Teikniblýantar
□ Fallblýantar
□ Yddarar
□ Strokleöur
Síðumúla 35 - Sími
Fvrir me ' ""
35 - Sími 36811
; ii.v—----;---rT~
olk rrg hmm grg gldri
Komdu að dansa...
.. d Danssmiðjunni
Innritun og upplýsingar
alla daga milli kl. 12.00 og 19.00
í síma 689797 og á staðnum.
• Samkvæmisdansar
• Ballroom • Latin
• Barnadansar • Gömlu dansarnir
• Byrjendur og lengra komnir
• Hóptímar • Einkatímar
• Dansæfingar • Erlendir gestakennarar
Starfsfólk skólans.
Kynníð ykkur ýmis
afsláttartilboð
Suðurnesjamenn,
Danssmiðjan er líka í Keflavík
anó
SMIÐJAN
SKEIFAN 11 B
JOHANN ORN
ÓLAFSSON
DANSKENNARI
: 68 97 97
Kjartan Guðmundsson stund-
aði nám á fyrsta ári í Kvennaskól-
anum í Reykjavík síðastliðinn
vetur og mun setjast aftur í fyrsta
beklc í haust vegna slælegrar
frammistöðu í stærðffæði í vor.
Hann virðist ekki hafa neinar sér-
stakar áhyggjur af því þótt hann
þurfi að fara aftur í sama bekk-
inn, segist bara æda að standa sig
betur í vetur. Hann fær líka að
sleppa við að mæta í íslensku og
ensku vegna góðs árangurs í þeim
fögum í fyrra.
Fjórðungur nemenda í
Kvennaskólanum er karlkyns, svo
varla er hægt að tala um kvenna-
skóla lengur. Kjartan er þó ekki
þeirrar skoðunar að breyta eigi
nafni skólans. „Það kom til um-
ræðu í fyrra, en flestum fannst
ómögulegt að vera að breyta ald-
argamalh hefð.“
Kjartan segir að það hafi verið
átta strákar á móti 21 stelpu í
sínum bekk, en Kvennaskólinn
heldur í gamla bekkjarkerfið.
„Mér finnst bekkjarkerfið þægi-
legt, þótt ég hafi reyndar eflci
samanburð því ég hef aldrei
kynnst öðru. En maður kynnist
krökkunum í bekknum vel og er
fljótur að eignast vini.“
Hvers vegna valdir þú að fara í
Kvennaskólann?
„Það fóru flestir vinir mínir í
Kvennó,“ segir Kjartan sem er
uppalinn í Þinghoítunum og var
allan grunnskólann í Austurbæj-
arskólanum þótt hann búi núna í
Vesturbænum.
„Kvennaskólinn er lítill og
þægilegur skóli eins og Austur-
bæjarskólinn. Mér finnst það vera
mikill kostur. Kennararnir geta
þá sinnt manni betur, en þeir eru
mjög viljugir að hjálpa manni.“
Tónlistin hjálpar
við enskunámið
Eins og áður sagði þarf Kjart-
an að fara aftur í fyrsta bekk í
haust.
„Ég er ekki mikill námsmaður,
en stend mig vel í þeim fögum
sem ég hef gaman af.“ Sem eru
enska og íslenska.
Hvað er skemmtilegt við þessi
f°g?
„Mér finnst gaman að skrifa
ritgerðir."
Fœstu eitthvað við annars konar
skriftir en ritgerðarsmíðar?
„Ég sem texta fyrir hljómsveit
sem ég er í. Hún heitir Freaks of
nature, en ég stofnaði hana núna
í sumar með vinum mínum úr
grunnskólanum. Við spilum
ffumsamda tónhst, en líka Megas
og David Bowie í okkar eigin út-
setningum.“
Það kemur upp úr kafinu að
tónlistin er eitt aðaláhugamál
Kjartans og að hann eyðir flestum
aurunum sínum í geisladiska.
Hann þakkar reyndar góða
enskukunnáttu sína þessum
áhuga. Segist hafa lært málið af
því að hlusta á lagatexta. Sama
má reyndar segja um íslenskuna
því hann er mikih aðdáandi Meg-
asar. „Textarnir hans eru alveg
ffábærir.“
Tónlistin hefur leitt Kjartan í
útvarpið, en hann hefur verði
tengdur því frá því hann var
krakki. „Ég var í Bamaútvarpinu
þegar ég var lítill strákur og
seinna sá ég um unglingaþátt á
Aðalstöðinni. Ég var líka á Rót-
inni þegar hún var og hét.“ í vet-
ur fékk hann að sjá um tónlistar-
þátt í útvarpstíma Kvennaskólans
KJARTAN GUÐMUNDSSON Þarf að fara aftur í fyrsta bekk, en lætur það ekki á sig fá.
á Útrás og í vor var hann kosinn í
útvarpsráð skólans, sem hann
mun sitja í næsta vetur.
„Ég veit ekki alveg ennþá
hvernig ráðið starfar, en ég held
að það verðum við sem skipu-
leggjum hverjir fá að vinna þætti
fyrir Kvennaskólann.“
Hvað er skemmtilegt við að
vinna í útvarpi?
„Það er bara að fá að spila þá
tónhst sem maður hlustar á sjálf-
ur. Ég get ekki útskýrt það nánar,
en það er ffábært“
Hiá alvöruleik-
stjóra
Kjartan tók þátt í fleiru en út-
varpsþáttagerð á vegum skólans í
vetur, því hann lék í leikritinu
„Vorið kallar“ eftir Frank Weder-
kind í leikstjóm Viðars Eggerts-
sonar.
„Við vorum með leikhóp í
Austurbæjarskólanum, en það
vom mest grínleikir og við gerð-
um allt sjálf. Þess vegna var frá-
bærlega gaman að taka þátt í
þessu núna, fá að vinna með al-
vöm leikstjóra,“ segir Kjartan og
er ákveðinn í að vera með affur
næsta vetur.
Það er ekki rifist um hlutverkin?
„Nei, það er ekkert barist um
hlutverkin. Frekar að það vanti
fólk. Ég lék til dæmis tvö hlutverk
í „Vorinu" og vinur minn þrjú.
En það er ekkert verra að hópur-
inn sé lítill, það þjappar okkur
bara betur saman.“
Ferðu á sýningar hjá atvinnu-
leikhúsunum?
„Nei. Það er ekkert þar sem
höfðar til mín. Ég fór þó að sjá
„Hafið“ eftir Ólaf Hauk Símonar-
sonar með skólanum í vetur. Mér
finnst hann vera ffábær höfund-
ur, en ég filaði „Hafið“ ekki nema
rétt mátulega.“
Tekur félgslífið of mikinn tíma
frá náminu?
„Leikritið tók alveg rosalega
mikinn tíma, en ég held að það
þurfi ekkert að spiha fyrir nám-
inu. Áhugamálin hafa lítið að
gera með það að ég féU í stærð-
fræðinni. Ég gat bara ekki lært
hana og gafst upp, sem vom stór
mistök. En það er rándýrt að fara
í aukatíma til kennara úti í bæ,
kostar líklega eitt þúsund krónur
á tímann. Ég hef ekki efni á því.“
Er námið í Kvennaskólanum
erfitt?
„Það ætti ekki að vera það, ef
maður hefur hugann við það. En
það þýðir ekkert að ætla sér að
byrja að lesa viku fyrir próf. Það
er vonlaust.“
Þrýsta foreldrar þínir á að þú
standir þig í skólanum?
„Það er auðvitað alltaf smá-
pressa, en mér finnst að maður
eigi að sjá um þetta sjálfur. Mað-
ur er orðinn alveg nógu gamaU til
þess.“
Skiptir félagslífið og félagsskap-
urinn í skólanum jafnmiklu máli
eða meiru en námið sjáljt?
„Já, ég myndi segja að félags-
skapurinn skipti máli, enda var
hann ein af meginástæðunum
fyrir því að ég valdi þennan
skóla.“
Var tnikil breyting að koma úr
grunnskóla yfir í menntaskóla?
„Nei, ekki hjá mér. Skólinn er
lítill og vinir mínir eru flestir
þama með mér. Kennaramir em
líka góðir og skemmtilegir.“
Hvemiggóðir og skemmtilegir?,,
Þeir hafa aga á nemendum án
þess að vera leiðinlegir og styðja
við bakið á þeim sem gengur Ula.
Þeir taka líka þátt í félagslífinu
með nemendunum.“
Á hvem háttgera þeir það?
„Þeir studdu við bakið á leikrit-
inu og hjálpuðu líka til við að
skipuleggja ýmislegt fleira eins og
ræðukeppni Morfis.“
Þú hefur ekki tekið þátt í henni?
„Nei, ég hef ekki tekið þátt í
ræðukeppni. En Kvennó stóð sig
mjög vel í fyrra. Komst í undan-
úrslit og á áreiðanlega eftir að
komast lengra í ár.“
Kjartan hefur hins vegar gert
ráð fyrir að taka þátt í söngva-
keppni ffamhaldsskólanna næsta
vetur, þótt ekki vilji hann gera
mUdð úr sönghæfileikum sínum.
„Ég og vinur minn erum að
hugsa um að taka þátt næst,
svona mest upp á grínið,“ segir
hann. Eitt er víst að það verður
áreiðanlega nóg að gera hjá Kjart-
ani í Kvennó í vetur.