Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 50
G B
50 PRESSAN
SJÓNVARPIÐ
• Nýju þulumar hans Hrafns á RÚV á hverju
kvöldi. Sé hljóðið skrúfað niður í viðtækinu er
bara allt í lagi að horfa á þær.
• Fyrirheitna landið ★★★ Promised Land á
Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Myndin er ekkert
meistarastykki en tekur ágæta spretti.
• Ógnaræði ★★★ Experiment in Terrorá Stöð
2 á föstudagskvöld. Raunsönn og með öllu laus
við væmni.
• Ástarraunir ★★★ CrossingDelancyáRÚV á
laugardagskvöld. Gamlar og nýjar hugmyndir gyðinga í New
York. Glettilega fýndin.
• Matarlist á RÚV á sunnudagseftirmiðdag. Þórhildur Þorleifs-
dóttir, leikstjóri og fyrmm þingmaður, sýnir hvernig ber að mat-
reiða ýsu hinnar hagsýnu húsmóður. Ekki veitir af að spara þegar
elda þarf ofan í marga.
• Sayonara ★★★★ á Stöð 2 á sunnudag. Einstaklega rómantísk
og vel leikin. Brando svíkur ekki.
>»-• Flagarinn The Perfect Husband á RÚV á sunnudagskvöld.
' Bresk/spænsk mynd veitir kærkomna hvíld frá ameríska draslinu.
Varist:
• Vitfirringur á verði ★ Hider iti the House á Stöð 2 á fimmtu-
dagskvöld. Vitfirringur kemur sér leynilega fýrir í húsi amerískrar
íjölskyldu og ofsækir hana. Ótrúlega hreint lítið spennandi.
• Hver myrti Thelmu? ★ White Hot — The Mysterious Murder
of Thelma Todd á RÚV á föstudagskvöld. Ósannfærandi og að
sama skapi lítt spennandi mynd um líf og störf Thelmu Todd og
dularfullan dauðdaga hennar, sem enn er óupplýstur.
• Rocky V ★ á Stöð 2 á laugardagskvöld. Stallone var einu sinni
góður sem Rocky Balboa, en í þessari mynd er sjarminn svo sann-
arlega horfinn.
KVIKMYNDIR
Algjört möst:
• Júragarðurinn ★★★ Jurassic Park Þetta er
spennandi ævintýramynd sem ætlað er ná-
kvæmlega sama hlutverk og hinum „raun-
verulega“ Jurassic Park, að græða peninga.
Hæstiréttur um gæði þessarar myndar eru
bömin. Þegar hasarinn fór að færast í aukana
í myndinni hættu strákar að stríða stelpum og
stelpur hættu að gjóa augum á stráka. Bíóhöll-
inni og Háskólabíói.
• Super Mario Bros ★★★ Frumleg saga sem gengur upp, góðu
kallarnir vinna og allt og allt. Myndin er skemmtileg, fyndin og
hentar flestum meðlimum fjölskyldunnar (þó ekki heimilisdýr-
unum). Regnboganum.
• Síðasta hasarmyndahetjan ★★★ LastAction Hero Þessi mynd
er ákaflega vönduð hvað snertir leik og afla gerð. Tæknileg afreks-
verk eru unnin í henni hvað eftir annað. Eiginlega er hún ofhlaðin
yfirgengilegum spennuatriðum og sprelli, og er það helsti galli
myndarinnar. Stjömubíói.
• Þríhymingurinn ★★★★ Ætla má að þar fari hálfklámmynd
um vændismenn og búksorgir þeirra, sem maður sér kl. 11, einn.
Fljótlega kemur í ljós að varlegt er að treysta auglýsingum (og
umsögnum kvikmyndagagnrýnenda), því hér getur að líta sér-
staklega skemmtilega og hjartahlýja mynd um ástina og vald til-
finninganna yfir okkur. Regnboganum.
>“• Á ystu nöf ★★★ Clifflwnger Frábærar tæknibrellur og bráð-
skemmtileg mynd. Það er bara galli að efnið sjálft er botnlaus
þvæla. Stjörnubíói og Háskólabíói.
• Mýs og menn ★★★ O/Mice and Men Mestmegnis laus við
væmni og John Malkovich fer á kostum. Háskólabíói.
1 leiðindum:
• Dauðasveitin ★ Extreme Justice Myndin er þokkalega unnin
og leikur sæmilegur. Aðaltema myndarinnar er vonska lögreglu-
manna og göfgi blaðamanna, sem minnir á blaðamannafund sem
rannsóknarlögreglustjóri hélt nú nýverið til að kvarta undan for-
dómum í garð löggæslunnar. Laugarásbíói.
• Allt í kássu ★★ Splitting Heirs Myndin missir marks vegna
þess að húmorinn er of staðbundinn. Breski aðallinn og hans
bjástur höfðar ekki tfl íslendinga; okkur er eiginlega alveg sama
hvað hendir svoleiðis fólk. Að auki er myndin einfaldlega ekki
nógu fyndin. Bíóborginni.
• Ósiðlegt tilboð ★★ Indecent Proposal Svo hæg að það er varla
að hún festist í minni. Demi Moore bjargar því sem bjargað verð-
ur. Bíóhöllinni og Háskólabíói.
• Lifandi ★★ Alive Átakanleg saga, en persónusköpun er engin
og mannátið eins huggulegt og kostur er. Háskólabíói.
Bömmer:
• Hvarfið ® The Vanishing Átakalítil fýrir hlé en mjög góður
leikur Jeffs Bridges bjargar tilþrifalitlum söguþræði. Bíóhöllinni.
• Skjaldbökumar 3 ® Three Ninjas Blessuð látið ekki krakkana
plata ykkur á þessa deflu því hún er ekki 350 króna virði. Þið finn-
ið ykkur örugglega eitthvað skemmtilegra að gera. Bíóhöllinni.
L V"
Fimmtudagurinn 2. september 1993
Á laugardaginn hefúr göngu sína í Sjónvarp-
inu nýr tónlistarþáttur sem ber nafnið Flauel.
Þátturinn tekur við af Spírunni, sem var í umsjá
Skúla Helgasonar, en breytingar í tónlistarvali
verða töluverðar auk þess sem mikið hefúr verið
unnið í útliti hins nýja þáttar. Ferskur maður
situr í sæti stjórnanda og heitir Steingrímur Dúi
Másson.
„Það verður meira gert úr útliti en hingað til
hefúr þekkst með tónlistarþætti sem þessa hér-
lendis og hafa tölvu- og leikmyndateiknarar
Sjónvarpsins unnið mikið að útfærslu hug-
mynda með mér. Meiningin er að sýna stuttar
kynningarmyndir á milli laga og þar sem hug-
detturnar hafa verið margar verður virkilega
gaman að sjá hver endanleg útkoma verður,“
segir Steingrímur Dúi. Hann segir jafnframt að
tónlistarsviðið verði mjög breitt og meiri áhersla
lögð á „off beat“-tónlist en oft áður.
Hinn rétt rúmlega þrítugi Steingrímur, eða
Dúi eins og hann er oftast kallaður, er kvik-
myndagerðarmaður að mennt og kom heim frá
Englandi fyrir um hálfú ári. Þá hafði hann ný-
lokið gerð kvikmyndarinnar Biskup í vígahug,
sem var lokaverkefni hans við London Interna-
tional School of Filming. Hann hefúr ekki ver-
ið nafh í fjölmiðlaheiminum ffam að þessu en
ef til verður nú breyting þar á, því auk þess að
sjá um Flauel er hann umsjónarmaður tónlist-
arþáttarins Engisprettunnar sem nýverið fór í
loftið á Rás 2 og verður ffamvegis á dagskrá á
laugardagskvöldum. „Það er ekki um auðugan
garð að gresja í kvikmyndagerðinni sem stend-
ur, þótt ástandið hafi heldur batnað ff á því sem
áður var. Ég horfi ekki mjög langt ffam í tím-
ann en geri ráð fyrir að vinna að þessari þátta-
gerð í einhvern tíma. Fjölmiðlavinnan á vel við
mig og ég hef mjög gaman af henni,“ segir
Steingrímur Dúi.
STEINGRÍMUR DÚIMÁSSON stjórnar tveimur nýjum tónlistarþáttum; Engisprettunni
á Rás 2 og Flaueli í Sjónvarpinu.
IV Jonni
Jónas Sigurgeirsson er
sagnfræðingur og ritstjóri
Hamars.
Benny, Baldur
og Hal & Pace
13:00 Enska knattspyrnan
Bein útsending meö
iýsingum Bjarna Fel.
15:00 Hal and Pace Tveggja
tíma syrpa meö hinum
uppbyggiiegu bresku
spéfugium.
17:00 Benny Hill og hinar
dansandi vinkonur
hans spauga fram að
fréttum.
19:19 Fréttir
20:30 Þjðð í hlekkjum hug-
arfarsins Nýr og enn
óforskammaöri þáttur
eftir ástmög þjóðarinn-
ar, Baidur Hermanns-
son. Dásamleg
skemmtun.
22:00 Bíómynd Góö spennu-
mynd, til dæmis eftir
Hitchcock eöa mynd
byggð á bók eftir John
Grisham (The Rrm og
fleiri).
24:00 íslenskt sjónvarps-
leikrft, með tilheyrandi
ofleik, ellegar um-
ræðuþáttur í sjón-
varpssal um þjóömál
í umsjá Gísla M. Bald-
urssonar—þá sofrr-
ar maöur strax eins og
ungbam.
KVIKMYNDIR
Sjonni slœr Allen við
„Myndin er snyrtileg og
vel gerðy til dœmis er
fjölda manns sálgað í
henni en þó sést varla
blóð.“
SKUGGAR OG ÞOKA
(Shadows and Fog)
HÁSKÓLABIÓI
★
Maður er nefúdur Woody
Allen, bandarískur gyðingur
sem alltaf er að búa til kvik-
myndir. Þessar myndir hans
eru afar misjafnar, sumar
þokkalegar, flestar svolítið
leiðinlegar og sumar drep-
leiðinlegar. Hann fer oftast
sjálfur með stórt hlutverk í
myndum sínum, sem er gallj,
því hann getur ekki mikið
leikið og túlkar yfirleitt sömu
persónuna. Þessi persóna sem
hann er alltaf að troða upp
með er taugaveiklaður klaufi
með gáfulegan undirtón,
einskonar skopmynd af hon-
um sjálfum að því er virðist.
Þessi persóna á nokkra sam-
úð kvikmyndahúsgesta og
þess vegna fyrirgefa þeir
henni að hún skuli vera kvik-
myndaleikstjóri sem fram-
leiðir leiðinlegar myndir.
Þannig er Woody Allen
miklu fremur umborinn en
dáður. Woody þessi Allen
hefur leikkonu á sínum snær-
um, Miu Farrow, sem hann
mun vera kvæntur, þótt eitt-
hvað hafi dregið úr því upp á
síðkastið. Þessi leikkona leik-
ur í flestum myndum meist-
arans, sem er einnig galli því
hún getur ekki mikið leikið
heldur, leikur líka alltaf sömu
persónuna. Að vísu hefur sú
ágæta leikkona Katrín Hep-
burn látið svo um mælt að í
kvikmyndaleik séu leikarar
alltaf að selja sama gamla
sjálfið aftur og aftur. Meinið
er að þau Allen-hjón hafa
trúlega ekki jafnmikið af
þessu gamla góða sjálfi og
Katrín Hepburn.
Kvikmyndin „Skuggar og
þoka“ gerist á miUistríðsárun-
um í Þýskalandi. Sirkusfólk er
í bæ þar sem kyrkjari gengur
laus. Hún fjallar að mestu um
Max Kleinmann (Woody Al-
len) og samskipti hans við
borgarbúa og sirkusfólk.
Undir dunar tónlist Kurts
Weil úr Túskildingsóperu
Brechts. Tilgangur myndar-
innar virðist helst að koma á
framfæri nokkrum lauflétt-
um bröndurum en það tekst
misjafnlega. Þau Allen-hjón
túlka sömu persónur í þessari
mynd og endranær. Aðrir
leikarar njóta sín engan veg-
inn, jafnvel ekki stórleikarar á
borð við John Malkovich,
Jodie Foster og Kathy Bates.
Myndin er svarthvít og stutt
og verður varla talin til merk-
ustu mynda Woody Allen, þó
ekki hafi verið úr háum söðli
að detta hvað það varðar.
Hugsanlega verður þessi
mynd talin merk vegna tilvís-
ana í einkalíf leikstjórans.
Sverðgleypirinn (Mia
Farrow) í sirkusnum lendir á
hóruhús og selur sig fyrir
700$, trúðurinn kvartar und-
an því að enginn hafi lengur
gaman af honum, að hann sé
orðin geldur. Það er að
minnsta kosti einkalíf leik-
stjórans sem heimurinn hefur
áhuga á sem stendur, svipað
og gerðist með Charles
Chaplin og Roman Polanski
á sínum tíma og er að gerast
hvað snertir Michael Jackson
og AJbert Einstein. Hvort sem
lesa má eitthvað slíkt út úr
þessari mynd eða ekki, þá er
hún ekki góð.
RED ROCKWEST
REGNBOGANUM
★ ★★
Framlag okkar íslendinga
til kvikmyndanna þessa dag-
ana er Red Rock West sem
framleidd af fyrirtækinu
Propaganda Film, en því stýr-
ir Sigurjón Sighvatsson. Þær
kvikmyndir sem hann fram-
leiðir eru yfirleitt heldur yfir
meðallagi að gæðum og svo
er um þessa mynd. Hún fjall-
ar um uppgjafahermann
(Nicolas Cage) sem fer um
langan veg að leita sér vinnu
við olíuborun, en er hafnað
því hann er með skaddaðan
fót. Dapur í bragði og félaus
heldur hann á næstu krá í
smábænum Red Rock.
Kráareigandinn telur
að hér fari leigumorð-
ingi sem hann hafði
pantað til að sjá fýrir
konu sinni og upp-
gjafahermaðurinn tek-
ur við fé og fyrirmæl-
um í því efni. Síðar
kemur hinn raunveru-
legi leigumorðingi til
sögunnar (Denis
Hopper) og úr verður
spennandi lygavefur
þar sem nánast allir
sitja á svikráðum við
alla.
Myndin uppfyllir
eina af þeim höfuð-
kröfum sem gera verð-
ur til spennumyndar,
hún er spennandi.
Leikur er prýðilegúr,
einkum og sérílagi hjá
Dennis Hopper, sem
lætur einkar vel að
leika raktar skepnur
(sbr. Blue Velvet) og
Nicolas Cage tekst bet-
ur upp en oft áður, er
sennilega vaxandi leik-
ari. Myndin er snyrti-
leg og vel gerð, til
dæmis er fjölda manns
sálgað í henni en þó sést varla
blóð. Áherslan er á flækjur
söguþráðarins en eldd tómat-
sósu og haft er fyrir því að
gefa persónunum forsendur,
þannig að gerðir þeirra eru
skiljanlegar innan þess
ramma sem myndin markar.
Tónlistin er sérkennileg og á
drjúgan þátt í að skapa and-
rúmsloft sem sver sig í ætt við
myndir eins og Blood Simple,
þótt nokkuð skorti á frum-
leikann miðað við þá mynd.
Red Rock West er vel gerð af-
þreying og þykist ekki hafa
neinn djúpan boðskap. Efni
myndarinnar er tóm vitleysa
eins og oft er um spennu-
myndir, en maður finnur að
leikaramir hafa gaman af því
að fást við það.