Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 39
SKOLABLAÐ
Fimmtudagurínn 2. september 1993
PRESSAN 39
„Ástæða þess að ég vel þetta nám er
sú að það er gamall draumur minn að
lesa guðfræði. hannig var að þegar ég
útskrifaðist úr öldungadeildinni árið 1978
stóð valið milli guðfræði og stjómmála-
fræði, sem ég stúderaði í eitt ár, en ég
valdi hjúkrunarfræðina og útskrifaðist úr
henni. Síðan hef ég stariað sem hjúkrun-
arfræðingur, núna síðast á vistheimili
aldraðra á Droplaugarstöðum í Reykjavík.
í vor barst mér til eyma að djáknanám
væri í bígerð og ég ákvað að skella mér
núna í haust.“
Efaðist alltaf
„Þegar ég stóð frammi fyrir því á sín-
um tíma að velja mér námsbraut efaðist
ég um að ég væri í stakk búin til að fara í
guðfræðinám því ég hef alltaf verið efa-
semdarmanneskja og þess vegna efast
um það hversu kristin og sanntrúuð ég
væri. Síðan hefur það grasserast í mér
þessi fimmtán ár og nú f vor ákvað ég að
fara í djáknanámið til þess að komast að
því hvort ég gæti hugsanlega orðið lið-
tækur þjónn kirkjunnar eður ei.“
Aðspurð á hvaða hátt hún héldi að
námið myndi nýtast sér í starfi svarar
Hrafnhildur: „Ég held að djáknanámið
muni nýtast mér í starfi mínu sem for-
stöðumaður Droplaugarstaða. Það er stór
hluti af mínu starfi að horfa upp á dauð-
ann og ég hef einnig mikil samskipti við
aðstandendur deyjandi vistmanna. Því
held ég að að námið gæti gert mig að
betri forstöðumanni.
Djákni er fýrst og fremst þjónn safnað-
ar síns, hann sinnir leiðbeiningum og
fræðslu. Það má í raun
segja að Droplaugar-
staðir séu eins og lítill
söfnuður, því hér eru
sextíu og átta íbúar auk
starfsfólks. Hér er enn
sem komið er lítið trúar-
líf og miklu minna en á
mörgum öðrum líkum
stofnunum en ég hef
hugsað mér að efla
|3að.“
Vinir mínir
hvöttu mig
„í raun þekki ég Iftið
störf djákna. Aftur á
móti hef ég kynnst
mörgum prestum í starfi
mínu og vinir mínir í
þeirri stétt hafa hvatt
mig til að prófa þetta
nám. Málið er að þama
skapast möguleiki fyrir
mig að vera í eitt ár í
Háskólanum og sjá
hvort þetta sé eitthvað
fyrir mig. Ef mér líkar
vel, þá gæti ég alveg
hugsað mér að læra
meira í guðfræðideild,"
segir þessi fjölhæfa kona
sem lærði leiklist bæði
hér heima og í London
og lék með Leikfélagi
Reykjavíkur f tæp tíu ár
áður en hún gerðist
hjúkrunarfræðingur.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir.
Hún er hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi
leikkona og ætlar í haust að skella sér í
djáknanám í Háskóla íslands.
MAL
Velkominn í Enskuskólann
Við metum kunnáttu þína og í framhaldi
af því ráðleggjum við þér hvaða námskeið
hentar þér og þínum óskum best.
Hámark 10 nemendur í bekk.
Boðið er upp á ókeypis æfingatíma.
Komdu í heimsókn eða hringdu -
því fylgja engar skuldbindingar..
INNRITUN STENDUR YFIR
HRIHGDU í SÍMA 25330 OG FAÐU FREKARIUPPLÝSINGAR
KENNSLA HEFST 8. SEPTEMBER
Almenn enska með áherslu á
talmál. 10 kunnáttustig.
Kennslutími: Á morgnana, eftir há-
degi, á kvöldin og á laugardögum.
Önnur námskeið:
Viðskiptaenska
Rituð enska
Umræðuhópar
Kráarhópar
Einkatímar
TOEFL-G MAT-GRE
undirbúningsnámskeið
íslenska fyrir útlendinga
Barnaskóli
Leikskóli fyrir 4-5 ára
Ensfcúnám fyrir 6-12 ára börn
Stuðningskennsla fyrir unglinga 13-15 ára
VR og flest önnur stéttarfélög
taka þátt í námskostnaði sinna
félagsmanna.
25% afsláttur til atvinnulausra.
ÞU FINNUR ÓRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJÁ OKKUR - VELKOMIN í HÓPINN...
skólinn
TUNGOTU 5 101 REYKJAVIK