Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 3

Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 3
SKILABOÐ Fimmtudagurinn 2. september 1993 PRESSAN 3 Óverð- skuldað hrós — lítil athuea- semd Ágæti ritstjóri. 1 síðustu PRESSU er und- irrituðum sýndur sá sómi að vera veitt sérstakt hrós blaðsins „íyrir að leyfa vösk- um drengjum að spreyta sig við stjórnun umræðuþátta Sjónvarps" (bls. 4). Þótt algengara sé að menn beri af sér ámæli hlýt ég í þessu tilfelli að bera af mér „hrósið“. Þeir þættir sem hér er greinilega vísað til hafa nefnilega ekki verið fram- leiddir af innlendri dag- skrárdeild, heldur af skrif- stofu framkvæmdastjóra Sjónvarpsins og ber honum því „hrósið“ með réttu. Þrjár deildir Sjónvarpsins hafa skipt með sér fram- leiðslu umæðuþátta þeirra sem sendir hafa verið út á þriðjudagskvöldum í sum- ar, þ.e. innlend dagskrár- deild, fréttadeild og skrif- s t o f a f r a m - kvæmdastjóra. Síðasti þátt- ur frá innlendri dagskrár- deild undir þessum hattí var á dagskrá 27. júlí sl. og fjall- aði um ferðaþjónustu. Umsjónarmenn þátta innlendrar dagskrárdeildar frá 1. júní hafa verið þau Arthúr Björgvin Bollason, Ólafur Þ. Harðarson og Steinunn Harðardóttir, vissulega allt röskt fólk á besta aldri og drengir góðir, eins og sagt er. Þess má geta að sam- kvæmt uppástungu minni er nú unnið að hönnun deildarmerkja fyrir þætti Sjónvarpsins og verða þeir þegar fram líða stundir merktir þeim deildum sem íramleiða þá. Bestu kveðjur. Sveinbjöm I. Baldvinsson, dagskrárstjóri innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarps- ins. Sigmundur Öm Amgríms- son, fyrrum aðstoðar- dagskrárstjóri Sjónvarps, hefur tekið við starfi Þjóðleikhús- ritara um stundarsakir í f j a r v e r u Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur, sem hefur tekið að sér að setja upp verkið Afturgöngur eftir Áma Ibsen. Enn er allt óráðið með það hvað Sig- mundur Örn tekur sér íyrir hendur þegar Sigríður snýr aftur til starfa í lok október, en þó mun vera víst að hann fer ekki aftur á Sjón- varpið... Veitir ítarlegri upplýsingar en nokkur sambærileg orðabók I

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.