Pressan - 02.09.1993, Blaðsíða 46
I ÞROTTI R
46 PRESSAN
Flmmtudagurinn 2. september 1993
Anderlecht og landslið Ghana berjast um átjón
árcHcnattspyrnumann
Útjaskaöur
undrapiltur
Við íslendingar höfum orðið varir við
streymi afburðahæfileikaríkra knatt-
spyrnumanna til Evrópu með þeim hætti
að okkar hæfileikapiltar eru ekki eins eft-
irsóttir og áður. Oft hefur verið rætt um
að Afríkubúarnir spili fyrir epli og banana
og hafi gengisfellt markaðinn.
En það eru margar hliðar á þessari Aff-
íkustefhu evrópsku knattspyrnunnar. Til
að mynda eru Affíkubúar ekki hrifnir af
því að vera sviptir öllum sínum hæfileika-
piltum og svo eiga piltarnir í erfiðleikum
með að aðlagast í nýjum löndum.
Saga Ghanabúans Nii Odartey Lampt-
ey er um margt dæmigerð. Hann er tal-
inn einhver hæfileikaríkasti piltur sem ffá
Affíku hefur komið. Menn eru svo stór-
yrtir að líkja honum við Pele. Hann kom
til belgíska stórliðsins Anderlecht þegar
hann var sextán ára og byrjaði á að skora
mark í sex fýrstu leikjum sínum með lið-
inu. Menn áttu ekki orð til að lýsa hrifh-
ingu sinni: „Lamptey hefur yfir að ráða
meiri getu en nokkur annar piltur á hans
aldri. Tækni hans er ekki þessa heims,“
sagði Marc Degryse, félagi hans hjá And-
erlecht og leikmaður ársins í Belgíu.
Fljótlega kom þó í ljós að álagið á
Lamptey var ómanneskjulegt. Ekki nóg
með að Anderlecht vildi nota hann sem
mest heldur voru Ghanabúar farnir að
byggja landslið sín upp í kringum hann.
Á síðustu tveimur árum hefur hann verið
látinn leika með átján ára landsliði Ghana
í heimsmeistarakeppni, með landsliði
Ghana í Affíkukeppninni og fór svo með
liðinu á Ólympíuleikana í fyrra. Auk þess
hefúr hann verið látinn leika með í und-
ankeppni HM og dvalið með landsliðinu
í æfingabúðum vegna þess. Hinir belg-
ísku húsbændur hans segja hann úttaug-
aðan eftir öll þessi landsliðsævintýri.
Sjálfúr er hann hins vegar ekki eins viss
um að hafa valið rétt þegar hann fór til
Anderlecht: „Stundum óska ég þess að ég
. hefði valið Ajax, því þeir virðast vita hvað
á að gera við hæfileikaríka pilta. Þeir
komast undantekningarlaust áfram til
Nll ODARTEY LAMPTEY. Hæfileikaríkastur allra sem sést hafa í Belgíu.
Italíu og Spánar,“ sagði Lamptey.
Margir hafa hins vegar orðið til að
benda á að þetta tilfelli með hinn átján
ára Ghanabúa sýni ljóslega hvemig farið
sé með afburðahæfileikaríka einstaklinga
í dag. Þeim er þrælað út þar til líkaminn
gefur sig, einfaldlega af því að bæði lands-
lið og félagslið gera kröfú til þeirra.
Silvio Berlusconi rær á ný mið
Óli Þór dýr-
mætasti
sóknar-
maðurinn
Markaskorun hefur verið
mikil í fýrstu deildinni í knatt-
spymu í sumar. Nú þegar hafa
verið skomð um 3,6 mörk að
meðaltali í leik í deildinni.
Einnig blasir við að aldrei hafa
fleiri leikmenn farið yfir tíu
mörk skoruð í deildinni, en
það hefur oft dugað til að fá
gullskóinn. Nú þegar hafa
fimm leikmenn skorað tíu
mörk eða fleiri. Það er hins
vegar misjafnt hve dýrmæt
mörkin em fyrir lið þeirra ef
reiknað er út frá hlutfalli af
heildarskorun liðs. Þar kemur
fram að Óli Þór Magnússon
Keflvíkingur er dýrmætasti
markaskorarinn nú.
ÓU ÞÓR MAGNÚSSON. Dýrmætasti
sóknarleikmaðurinn.
Ef litið er til markaskorunar
eftir fjórtán umferðir er listinn
yfir dýrmætustu markaskor-
arana eftirfarandi. Prósentu-
talan sýnir hve hátt hlutfall af
mörkum liðsins viðkomandi
hefur skorað. Rétt er að taka
fram að sóknarmenn Akur-
nesinga líða fyrir hve gríðar-
lega mikið liðið skorar:
Óli Þór Magnússon ÍBK 11
mörk...52%
Tryggvi Guðmundsson ÍBV 8
mörk....44%
Helgi Sigurðsson Fram 14
mörk...39%
Hörður Magnússon FH 10
mörk.....36%
Anthony Karl Gregory Val 8
mörk.. .36%
Þórður Guðjónsson ÍA 14
mörk....29%
Haraldur Ingólfsson lA 10
mörk.. ..20%
Mihajlo Bibercic ÍA 9
mörk.....18%
HARALDURINGÓLFSSON. Sóknarmenn
ÍA njóta góðs af vinstra fætinum.
Vinstri fót-
urinn á
Halla Ing-
ólfs skapar
flest mörk-
in
Því miður er tölffæðisaman-
tekt í íslensku knattspymunni
heldur bágborin. Það liggur
þó fyrir að ef teknar væru
saman upplýsingar um hvaða
leikmaður á flestar stoðsend-
ingar, þ.e.a.s. sendingar sem
gefa mörk, þá yrði Haraldur
Ingólfsson Skagamaður þar
ofarlega á blaði. Haraldur,
sem líklega er að verða búinn
að vinna sér fast sæti í lands-
liðinu, er einhver sparkvissasti
leikmaður sem hér hefur
komið ffam. Sendingar hans
fyrir markið eru yfirleitt sér-
lega eitraðar og nýtast ffam-
herjunum vel.
„Eins og
hver annar
nýliði"
TóNI KUKOC. Sýnir stoltur nýju
Chicago-treyjuna sína.
Nú er farið að styttast í að
NBA-tímabilið hefjist í
Bandaríkjunum. Það sem hef-
ur vakið mesta eftirtekt á ný-
liðnu sumri er undirritun
samnings á milli króatíska
undramannsins Toni Kukoc
og meistaranna ffá Chicago.
„Eg verð eins og hver annar
nýiiði í deildinni," sagði Toni
hógvær í nýlegu viðtali. Toni
fær sem svarar 1,3 milljörðum
króna fyrir næstu sjö árin og
er þá bara rætt um beinar
launagreiðslur. Reyndar er
þetta ekki svo mikill munur
frá því hann lék með ítalska
liðinu Benetton, en Kukoc
hefúr tekið það ffam að hann
fari ekki til Chicago vegna
peninganna. Hann veit sem er
að til að komast á spjöld sög-
unnar verður hann að reyna
sig þar.
Fær millj-
ónir fyrir
að spila
með hár-
kollu!
Einn þeirra fjölmörgu Brasil-
íumanna sem leika í Japan er
Alcindo Sartori. Honum hef-
ur gengið vel að skora með
liði sínu, Kashima Antlers,
sem leiðir deildina. Ört stækk-
ALCINDO SARTORI. Hárleysið færði
honum óvæntan kaupauka.
andi skalli hefúr löngum verið
vörumerki hans, Sartori til
sárrar skapraunar. Þetta átti
hms vegar eftir að verða hon-
um óvænt tekjulind, því
stærsti hárkolluframleiðandi
Japans bauð honum samning
sem færir Sartori 24 milljónir
króna á ári. Það eina sem
hann þarf að gera er að festa á
sig kolluna fýrir leik!
AC Nlílanó verði
íþróttastórveldi
Merki hins nýja
íþróttastórveldis Berlusconis.
Um nokkurra ára skeiö hafa knatt-
spyrnuunnendur fylgst meö geöveikis-
legri uppbyggingu fjölmiölakóngsins
Silvios Berlusconi á knattspyrnuliöi
AC Mílanó. Nú hefur hann upplýst aö
hann hafi enn stærri drauma um
þetta félag sitt. Hann ætlar að gera
þaö aö alþjóölegu íþróttaveldi sem
hafi, auk knattspyrnunnar, innan
sinna raöa íshokkí-, blak- , rúbbí- og
hornaboltaliö. Ekkert þessara liða
veröur tengt utanaökomandi kostunar-
aðilum heldur veröa þau merkt Míl-
anó- vörumerkinu. Knattspyrnuliöiö
fær þó aö halda sínu gamla merki.
Berlusconi segir ætlun sína aö gera
merki AC Mílanó aö alþjóðlegu tákni
fyrir árangur í íþróttum. Fyrir sér vaki
einnig aö vekja athygli á nýjum íþrótta-
greinum sem hægt sé aö selja á al-
þjóðlegum sjónvarpsmarkaöi. „Ég hef
ákveöiö að víkka út árangursríkt
skipulag AC Mílanó og ná til íþrótta-
greina sem eru ekki eins kunnar og
knattspyrnan í dag. Þetta verður allt
kynnt undir einu vörumerki og einu
nafni, nefnilega Mílanónafninu. Mílan-
óliöiö er án efa eitt frægasta félag í
heiminum nú. Þaö sem af er árinu
höfum viö fengið 64 boö um að leika
víðsvegar um heiminn. Við teljum aö
meö þvl aö fjölga íþróttagreinum inn-
an Mílanó fáum viö einstakt tækifæri
til aö markaössetja okkur,“ segir Berl-
usconi.
Og hann er þegar byrjaöur! Þýsk sjón-
varpsstöö er búin aö kaupa leiki blak-
liösins næsta vetur. Þá hefur hann
komiö upp greiöslusjónvarpi sem gerir
fólki kleift aö kaupa sig inn á leiki í
fýrstu og annarri deild á Ítalíu í vetur
og aöra stóra íþróttaviðburði. Þaö er
því ekki nema von að Berlusconi segi
að kreppan á Ítalíu komi sér ekki viö.
— Hann leikur I allt annarri deild!