Pressan - 02.09.1993, Qupperneq 9
F R E TT I R
Fimmtudagurínn 2. september 1993
PRESSAN 9
Endalok íbúðarréttarsamninga Framtíðarferða
DANINN
FARINN AF
LANDIBROTT
Neytendasamtökin hafa
undanfarið unnið við að fara
yfir íbúðarréttarsamninga og
greiðslur vegna þeirra sem
fyrirtækið Framtíðarferðir
kom á meðan það starfaði
hér. Fyrirtækið, sem nú hefur
lagt upp laupana, seldi íbúð-
arrétt í hóteli á vegum portú-
galska fyrirtækisins DoSol
hoteis SA sem átti íbúðahótel-
ið Domino Do Sol suður í
Portúgal.
Viðskiptin voru mjög um-
deild enda ekki ljóst hvaða
réttindi kaupin færðu. Þá
þóttu starfsaðferðirnar ekki
síður umdeilanlegar, en
markhópurinn var aldrað
fólk, sem með mjög ágengum
söluaðferðum var fengið til að
kaupa íbúðarrétt til 99 ára.
Greiðslur bornar
saman
Hjá Neytendasamtökunum
hefur verið unnið að því að
bera saman greiðslur fólks hér
á landi og það sem barst út til
Domino Do Sol. Eins og áður
hefur komið fram hér í
PRESSUNNI voru þessir pen-
ingar lagðir inn á reikninga á
eyjunni Mön en þar hafði
Domino Do Sol viðskipti.
Ekki hefur komið í ljós mis-
ferli með þessar greiðslur en
þess má geta að starfsmenn
Neytendasamtakanna hafa
enn sem komið er borið sam-
an tiltölulega fáar greiðslur.
Það kemur til af því að ekki
hafa nærri því allir sem
keyptu íbúðarrétt haft sam-
band við samtökin þannig að
hægt sé að fara yfir greiðslur
þeirra.
Háir reikningar
skildir eftir
Forráðamenn Domino Do
Sol-hótelsins sviptu Framtíð-
arferðir umboði til að selja
íbúðarréttarsamninga fyrir sig
en skömmu áður hafði sam-
gönguráðuneytið úrskurðað
að starfsemi Framtíðarferða
félli undir ákvæði um ferða-
skrifstofur og því bæri þeim
að uppfylla skyldur sem slík.
Munu forráðamenn Domino
Do Sol hafa sýnt því áhuga að
eiga samstarf við íslenska að-
ila til að tryggja hagsmuni
þeirra sem keypt hafa sig inn í
hótelið.
Þá hefur PRESSAN heim-
ildir fyrir því að Erik Jensen,
sem var forráðamaður félags-
ins, hafi átt ólokið greiðslu
vegna margvíslegra persónu-
legra skulda sem hann stofn-
aði til hér á landi þegar hann
fór. Hafa þar meðal annars
verið nefndir til greiðslu-
kortareikningar sem námu
miEjónum. Eru þeir til inn-
heimtu hjá lögfræðideild
Landsbankans. Einnig mun
hann hafa skilið eftir skuldir
vegna ógreiddra launa til ým-
issa starfsmanna Framtíðar-
ferða. Auk þess munu vera
ógreiddir einhverjir auglýs-
ingareikningar hjá fjölmiðl-
um.
Ætlaði að stofna
nýtt félag
Þá mun Erik hafa sent við-
skiptavinum Framtíðarferða
bréf ffá eyjunni Mön þar sem
hann ráðlagði þeim að hætta
greiðslum til Domino Do Sol
og eiga heldur viðskipti við sig
beint. Bar hann þar fyrir sig
að hann væri kominn með
umboð fyrir nýtt fyrirtæki á
Spáni með umboð í Englandi.
Það fyrirtæki hét Club La
Costa. Mun Erik hafa átt fund
í samgönguráðuneytinu
ásamt enskum starfsnmanni
þess fýrirtækis. Þar var hon-
um komið í skilning um að af
þessu gæti ekki orðið.
Samkomulag hefur tekist
milli Neytendasamtakanna og
forráðamanna Domino Do
Sols-hótelsins að reyna að
tryggja hagsmuni þeirra sem
greitt hafa inn á íbúðarréttar-
samninga sína. Eftir stendur
sem áður að þeir sem ekki
halda áfram að greiða munu
tapa þeim peningum sem þeir
hafa lagt til. Þá er ekki vitað
hvernig eignarréttarstaða
fólks er vegna þess að fæstir
hafa fengið afsal í hendurnar,
en afsal miðast við að greitt
hafi verið að fullu.
Siguröur Már Jónsson
ERIK JENSEN. Reyndi að ná samningunum yfir til sín en er nú horfinn af landi brott.
Success story Nr.l
Nýlega fór Elín Stefánsdóttir
í fyrsta skipti í tískuljósmynda-
töku hjá fyrírsætustofunni
WILD, þar sem innifalin var
förðun. stílisering og stækkun
á nokkrum myndum.
WILD sendi svo myndirnar
hennar til l’Agence S Miami,
og til baka fengum við flug-
miða til Parísar, Hamborgar
og Miami og gistingu á fjög-
urra stjörnu hóteli, allt greitt
ásamt vasapeningum.
Einnig fór hún í boð með
Claudiu Schiffer!
Fimrn mánuðum síðar
starfar Elín sem alþjóðleg
fyrirsæta.
Hún er ekki sú fyrsta sem
fer til starfa erlendis á vegum
WILD, og áreiðanlega ekki sú
síðasta
TfSKULJÓSMYNDATAKA
WILD
sími 622 599