Pressan - 02.09.1993, Page 52

Pressan - 02.09.1993, Page 52
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 643090 A -Z V morgun verður endan- lega ljóst hvort Steingrímur J. Sigfússon gefur kost á sér sem for- rnaður Al- þýðubanda- lagsins. Þá birtist viðtal við hann í Vikublaðinu eins og reyndar einnig við Ólaf Ragnar Grímsson. Víst er að þeir verða báðir ffambjóðendur, en margir halda þeim mögu- leika opnum að Steingrímur muni einungis bjóða sig ffam til varaformanns. Samkvæmt okkar heimildum hafa nánir samstarfsmenn ráðið honum ffá ffamboði og úr Neskaup- stað hafa heyrst letjandi radd- ir. Hitt er mörgum ráðgáta, af hverju hann hefur beðið svona lengi ef ætlunin er að segja nei, en vert er að minn- p. ast þess að þegar hann bauð sig ffam gegn Svanfríði Jón- asdóttur í varaformanns- stöðu hélt hann öllum spil- unum þétt að sér þar til á síð- ustu stundu... fit innan kvikmyndageirans ekki alls fyrir löngu þegar Bryndis Schram, framkvæmda- stjóri Kvik- myndasjóðs Islands, lagði tillögu að færa til úthlutunardag úr sjóðnum. Fram að þessu hefur verið venjan að úthluta úr sjóðnum 15. febrúar ár hvert en kvik- myndagerðarmenn hafa lengi barist fyrir því að færa daginn ffamar á almanaksárinu til að rýmka undirbúningstíma fýr- ►ir gerð kvikmynda og auka möguleika á að sækja fjár- magn í erlenda styrktarsjóði. Bryndís hafði hins vegar í hyggju að færa dagsetninguna aftar svo úthlutað yrði 15. apríl, sem hefði raskað áætl- unum við undirbúning og komið í veg fyrir að sækja mætti um fjárstyrk í nokkr- um erlendum sjóðum. Hags- munafélög kvikmyndagerðar- manna brugðust ókvæða við og mótmæltu þessari uppá- stungu og Bryndís dró tillögu sína umsvifalaust til baka... -L/f Steingrímur segir nei er líklega næsta verkefni and- stæðinga Ólafs Ragnars að halda aftur af Kristni H. Gunnarssyni. gæti komið Stein- grími og öðr- um málsmet- andi mönn- um í töluverðan bobba, enda þyrftu þeir að velja á milli. Ekki geta þeir stutt Ólaf Ragnar, en líka er erfitt að ímynda sér að nokkrir nema svörnustu andstæðingar Ól- afs myndu halda fram að Kristinn A -ZTi. morgun, föstudag, verður auglýst eftir ritstjóra fyrir dagblað- ið Tímann, en sem kunnugt er eiga að verða miklar breytingar á blaðinu í haust. Þrátt fyrir að aug- lýst sé eftir ritstjóra þá er óopin- bert kapphlaup hafið og þar eru einkum þrír menn nefirdir til sög- unnar. Þar má fyrstan nefna Jón Ásgeir Sigurðsson, fréttaritara út- varpsins í Bandaríkjunum, en hann hefur sýnt útgáfumálunum mikinn áhuga. Á tímabili mun Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, hafa viljað hann í stöðuna en sá áhugi mun hafa dofnað þegar Jón lýsti launahugmyndum sínum og þá munu útgáfuhugmyndir Jóns ekki vera í takt við það sem Mótvægis- menn telja mögulegt. Annar kand- ídat er Þór Jóns- son sem um skeið hefur verið fréttaritari í Sví- þjóð. Þór er son- ur Jóns Jakobs- sonar, sem er bróðursonur Ey- steins heitins Jónssonar. Það eitt mun hafa dregið úr áhuga Stein- gríms, sem enn hefur afstöðu til Eysteinsarmsins! Þriðji kandídat- inn er Ágúst Þór Ámason, fýrr- verandi fréttamaður útvarps, en hann hefur starfað mikið við að hleypa blaðinu af stokkunum og safna hlutafé. Það mun vera nýlega sem Ágúst Þór kom inn í myndina en hann á dygga stuðningsmenn í stjórn Mótvægis. — Og síðan er auðvitað mögulegt að einhver óumdeildur sæki um stöðuna... P JL-/ins og komið hefur fram í fféttum er Davíð Scheving Thor- steinsson að hefja mikla nauða- samninga vegna fýrirtækja sinna, Smjörlíkis og Sólar hf. Tilboð hans fela meðal annars í sér að kröfuhafar felli niður 70% af skuldum sínum sem séu ekki tryggar. Þetta þýðir meðal annars að Iðnlánasjóður þarf væntanlega að leggja sitt af mörkum ef samn- ingar eiga að takast. Sá sjóður er myndaður fýrir ffamlög ffá iðnað- inum og þá meðal annars sam- keppnisaðilum Sólar eins og Vífil- felli og Ölgerðinni. Þessi fyrirtæki þurfa því nánast að horfa upp á eigin sjóðframlög rýrna til að bjarga samkeppnisaðiianum... JT að hefur furðulítið heyrst af sjónvarpsstöðvaráformum þeirra hjá Frjálsri fjölmiðlun, en fyrir nokkru bárust staðfestar fféttir um að þeir ætluðu að hleypa nýrri stöð af stokkunum. Nú hefur frést að þeir Páll Baldvin Bald- vinsson og Goði Sveinsson séu komnir á fulll við að vinna fýrii þetta nýja fyrir- tæki, en þeir höfðu mikið unnið að Sýnarmál- um fýrir þessa sömu aðila áður er Stöð 2 keypti pakkann. Og enr munu Stöðvar 2-menn finna fýrir samkeppninni, því þessir nýji sjónvarpskóngar hafa einmitt leit- að inn á sömu mið og Stöð 2 rær é til að kaupa inn efni... P -1—/itt mælir gegn því að Stein grímur J. Sigfússon bjóði sig ffan til formanns, nefuilega að margi stuðningsmanna Ólafs Ragnar Grímssonar þrá ekkert heitar ei kosningaslag þar sem skerp mætti línur og gera út um óupp gerð mál. Yfirleitt eru Ólafsmenn því að þeirra maður muni sigr nokkuð afgerandi og koma út ú kosningu mun sterkari en áðui Steingrímsmenn gera sér grein fýr ir þessum nröguleika og eru sumi á því að síst ætti að gera Ólal Ragnari Grímssyni þennai greiða... Jeep Cherokee s Mest seldi jeppinn á Islandi 1993! Jeep Grand Cherokee : Fuilkominn farkos Flestir íslenskra jeppakaupenda á þessu ári velja Jeep Cherokee og Jeep Grand Cherokee *, einfaldlega vegna þess að þeir hera af öðruin jeppum. Cherokee hefur löngu sannað ágæti sitt við íslenskar aðstæður. Grand Cherokee, sem valinn var Jeppi ársins í Bandaríkjunum” hlýtur nú einróma lof og aðdáun fyrir snilldarhönnun og einstaka akstureiginleika. Jeep línan státar m.a. af aflmestu vélunum (190-220 hö.), og ríkulegum staðalbúnaði s.s. Selec-Trac eða Quadra- Trac drifkerfí, hemlalæsivörn og loftpuða (Grand Cherokee), svo fátt eitt sé talið. * Ónak úr 'kýnJiun Bifrcid.csLoðunar íshuirh Nýskriiúngar I. jamiar* Sl.júli 1993. Tegund Fjöldi nýskráninga Jeep Cherokec/Grand Cherokee 58 Jeep Wrangler 5 Nissan Patliflnder/Terrano/Pai rol 50 Mitsubishi Pajero 43 Toyota 4Runner/I.audcruiser 23 Isuzu Trooper 14 íord Explorer 2 Chevrolet Blazer 1 Range Rover 0 Samkeppnin á ekkert svar við hreint frábæru verði á Jeep. Þessir vönduðu amerísku jeppar hafa aldrei boðist á jafn hagstæðu verði. Gerðu samanburð; Þú gerir ekki betri jeppakaup! Jeep Cherokee Laredo kostar kr. 3.185.000.- Jeep Grand Cherokee Laredo kostar kr. 3.870.000.- ••Four Wlicclcr -lx-1 Spori/ l.'úlit> Tmck ol ihc Ycar 1993. Jeep AFUUMFEfíD! Nýbýlavegur 2, Kópavogur, sími 42600.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.