Pressan - 21.10.1993, Qupperneq 20
E R L E N T
20 PRESSAN
Fimmtudagurinn 21. október 1993
Upp hefur komist um voldugan glæpahring fró Nígeríu sem
um árabil hefur stundað umrangsmikla fjársvikastarfsemi á
Bretlandi og tekist að hafa hunaruð milljóna punda út úr stofn-
.junum og fyrirtækjum.
Þýskir ferðalangar
stunda sorphirðu í
sumarfriinu
Flett ofan af
mafíunni
Á Bretlandi stendur nú yfir
umfangsmikil lögreglurann-
sókn á gífurlegum fjársvikum
nígerskra glæpamanna, sem
með klókindum hefur tekist
að svíkja hundruð milljóna
punda út úr opinberum
stofnunum og einkafyrir-
tækjum. Fyrir nokkru vaknaði
grunur um að ekki væri allt
með felldu í bresku viðskipta-
lífi. I framhaldi af því var hrint
af stað lögreglurannsókn sem
leiddi í ljós að voldugur níg-
erskur glæpahringur hefur
hreiðrað um sig á Bretlandi og
stundað þar óáreittur gífurleg
fjársvik í mörg ár.
Um er að ræða svik og
pretti af öllu mögulegu tagi; í
viðskiptum við banka, trygg-
ingafélög, menntastofnanir
svo og ýmis einkafyrirtæki. Á
Bretlandi kom það í raun eng-
um neitt sérlega á óvart að
það skyldu einmitt vera Níg-
eríumenn sem áttu hlut að
máli, enda öllum löngu orðið
ljóst að siðferði þeirra í við-
skiptum er afar bágborið.
Hins vegar áttu valdamenn í
bresku viðskiptalífi ákaflega
erfitt með að trúa að skúrkun-
um skyldi takast að svíkja svo
mikla fjármuni út úr þeim áð-
ur en grunur vaknaði.
„Nígerska mafian“, eins og
Bretar hafa kosið að kalla
læpahringinn, virðist vera
yggð upp með svipuðum
hætti og Irski lýðveldisherinn,
IRA. Ljóst er að Nígeríu-
mennirnir eru þrautþjálfaðir í
faginu og útsmognir í prett-
um sínum. Leikfléttan er
þessi: Mafíósarnir reka glæpa-
skóla, bæði í Lundúnum og í
Lagos í Nígeríu, þar sem
áhugasömum og efnilegum
nemendum eru kenndar réttu
aðferðirnar. Við námið er
stuðst við þartilgerða glæpa-
handbók, sem kennir nem-
endunum meðal annars að
bregða sér í ólík gervi og
korna sér upp fölsuðum per-
sónuskilríkjum.
Að „skólavistinni" Iokinni
eru vel menntaðir Nígeríu-
menn og sérþjálfaðir í glæp-
um sendir til Bretlands í því
skyni að ráða sig til starfa hjá
tryggingafélögum, bönkum,
einkafyrirtækjum, ráðuneyt-
um og skrifstofum hins opin-
bera. Hlutverk þeirra er að
njósna um kollegana og kom-
ast að því í smáatriðum
hvernig starfsemi fyrirtækj-
anna er háttað, í því augna-
miði að svíkja síðar út úr þeim
fé. Aðrir úr glæpahringnum
taka að sér önnur gagnleg
störf innan íyrirtækjanna, svo
sem við ræstingar og hús-
vörslu, og hafa það hlutverk
að fara í gegnum allt bréfarusl
og skjalaskápa, meðal annars
til að útvega aðgang að banka-
reikningum.
Samstarfsfélagar þeirra sjá
svo um að svíkja út fé með
hjálp falsaðra persónuskil-
ríkja, en þau eru til margs nýt.
Með þeim má til dæmis nota
stolin krítarkort, en þau hefur
Nígeríumönnunum tekist að
komast yfir eftir einföldum
leiðum. Þannig hafa þeir með
skipulögðum hætti ráðið sig
til starfa hjá pósthúsum Lund-
úna við að flokka póst. Þegar
krítarkort eru endurnýjuð eða
send til nýrra viðskiptavina sjá
skúrkarnir hjá póstinum um
að breyta heimilisföngum
þannig að umslögin hafni í
póstkössum í umsjá glæpa-
hringsins. Auk greiðslukorta-
svika hafa mafíósarnir verið
mjög iðnir við að herja út
styrki til háskólanáms, inn-
heimta heimilistryggingar og
útvega sér bankalán á fölskum
forsendum, svo eitthvað sé
neínt.
Nígeríumennirnir hafa ekki
verið í nokkrum vandræðum
með að eyða þeim gífurlegum
fjármunum sem þeir hafa
komist yfir á Bretlandi. Pen-
ingana hafa þeir notað til
kaupa á ýmiskonar varningi;
skartgripum, armbandsúrum,
tískufatnaði, myndbandstækj-
um, sjónvarpstækjum,
myndavélum og öðru slíku,
sem þeir hafa sent til Nígeriu
og selt dýrum dómum. Hluti
fjármunanna hefur augljós-
lega verið notaður til að fjár-
magna umsvifamikil eitur-
lyijaviðskipti, en í síðustu viku
komst upp um eitt stærsta
kókaínsmygl á Bretlandi eftir
að Nígeríumaður úr hópnum
var gripinn á Gatwick-flug-
velli með eiturlyf innanklæða.
Rannsókn á fjársvikum níg-
ersku mafíunnar á Bretlandi
er hvergi nærri lokið og því
eru ekki öll kurl komin til
grafar enn. Bandaríska leyni-
þjónustan vill þó greinilega
hafa vaðið fýrir neðan sig, því
hún hefur látið kollega sína á
Bretlandi senda sér 250 blað-
síðna skýrslu um starfshætti
mafíósanna, þar sem farið er
ofan í saumana á málinu.
Bandaríkjamenn eiga nefni-
lega í höggi við svipaða glæpa-
hringi þar vestra og ætla aug-
ljóslega að reyna að læra af
Bretunr og mistökum þeirra.
Byggt á Sunday Times.
líi —ÉL--------------Æ——£—I
NÍGERÍUMENN UNDIR SMASJANNI. Sannast enn á ný aö siðferöi
þeirra í viöskiptum er afar bágboriö.
Passaðu þig aö ofkeyra þig ekki Maggie mín. Fáöu þér heldur tesopa áöur en þú segir Þjóöverjum stríö á hendur. “
ÞJÓÐVERJAR ATORKUSAMIR í UMVHERFISMÁLUM. Feröamenn
nú skikkaöir til aö taka rusliö meö sér heim í flugvélinni.
Fáar þjóðir heims eru jafn-
atorkusamar á sviði umhverfis-
mála og Þjóðverjar, sem end-
urvinna stóran hluta alls sorps
og koma hinu vandlega fyrir
svo það valdi ekki spjöllum.
Þjóðveijar eru mjög meðvitað-
ir um umhverfi sitt og í raun
ótrúlega iðjusamir við að
flokka ruslið sitt svo unnt sé að
nýta það í endurvinnslu. Þann-
ig fer grænmetið í eina rusla-
tunnu, áldósirnar í aðra og
plastumbúðirnar í þá þriðju,
að ekki sé talað um pappír og
glerílát sem vitanlega fara hvort í sinn rusla-
gáminn. Svo strangt er tekið á málinu í sumum
sambandslöndum Þýskalands að ef menn
svíkjast undan því að flokka ruslið neita sorpyf-
irvöld hreinlega að fjarlægja tunnurnar. Þótt
málefnið sé vissulega verðugt þykir ýmsum
Þjóðverjarnir fullöfgasinnaðir í umhverfis-
stefnu sinni. Ekki bætti úr skák þegar fféttist að
nú væri farið að skikka þýska ferðamenn til að
hirða upp allt sorp eftir sig á ferðum sínum er-
lendis og taka það með sér heim í flugvélinni.
Það voru forráðamenn einnar af stærstu ferða-
skrifstofum Þýskalands, LTU, sem ákváðu að
kanna hvort slík slík sorphirða í útlöndum væri
ekki framkvæmanleg. Þannig eru allir sem
fljúga með LTU til Malediv-eyja nú sendir í ffí-
ið með 30 lítra ruslapoka í farteskinu. Pokinn
er ætlaður undir tómar gosdósir, jógúrtdollur
og annað sorp sem safhast sarnan á ströndinni,
til að koma í veg fýrir frekari mengun í kóral-
rifunum. Til að slá tvær flugur í einu höggi er
ruslið svo tekið með heim til Þýskalands, þar
sem því er komið í endurvinnslu. Ferðalang-
arnir hafa allflestir tekið tilrauninni vel, en eftir
er að sjá hvort sorphirða í sumarfríinu á ffam-
tíð fyrir sér.
Sannleikurinn um
Yves Saint Laurent
kemur i Ijós
Nýútkomin ævisaga franska tískukónqsins ímynd franskrar menningar." í ævisögu Laur-
Yves Saint Laurent hefur valdiS gífurlegu ents segir aS hann hafi rró upphafi ferils síns
fjaðrafokj, en í henni er dreginn fram í verið þjakaSur af vinnuólaai og mjkilli
)ur sannleikur spennu og kvíSa því samfc
aldið hefur
fiaðrafoki,
dagsljósið ymis opægil
um fatahönnuðinn sem
verið vandlega leyndum fvrir a
menningi í fjöldamörg ór. I bók-
inni, sem er eftir Laurence
Benaim blaðakonu ó hinu
virta franska dagblaði Le Mon-
de, er hulunni svipt af Laurent
svo ímynd hans gjörbreytist.
Samkvæmt ævisögunni hefur
Laurent verið ofurseldur vímu-
efnum síðustu tuttugu ór oq er
ekki aðeins þræll ófengis heldur
jafnframt kókaíns oa róandi
ja. Tíðindin komu flatt upp ó
esta og nær undrunin langt út
oq n
fyrir Frakkland. Þannig qat bíaða-
maður bandaríska storaaðsins Int-
ernational Herald Tribune ekki dulið
vonbrigði sín, en í nýlegri g
hann svo að orði: „Skyndi-
leg afhjúpun leyndardóms-
ins ó bak við Yves Saint
Laurent er ófall öllum þeim
sem litið hafa ó hann sem
grein kemst
a -
YVES SfllNT LAURENT. Sagður hafa verið
þræll áfengis og eiturlyfja síðustu tuttugu ár
spennu og kvíða því samfbra,”einkum
fyrir stórar tískusýninqar. Fyrst eftir
að hann nóði frægo hafi honum
tekist að róa sig niður með
kampavíni en þegar ó leið hafi
hann neyðst tií ao grípa til ann-
arra og sterkari vímuefna. Bók-
arhöfundur segir Laurent ó
stundum drekka allt að tveimur
viskíflöskum ó dag, eins og lík-
amlegt óstand hans gefi reynd-
ar lióslega til kynna. Þó kemur
og fram að hann hafi um tíma
þurft að dvelja ó geðsjúkrahúsi
vegna andlearar vanheilsu. Síð-
ustu misseri nefur enqum dulist
að Laurent gengur ekki heill til
skógar en þó grunaði víst fæsta
að hann væri svo djúpt sokkinn.
Sökum þess hve aðstooarfólk hans
var óvallt vel ó verði tókst
nefnilega að kæfa allan
orðróm um tískukónginn
strax í fæðingu.
Frönsk yfirvöld
íhuga mál á hendur
John Demjanjúk
I Frakklandi er nú hafin op-
inber rannsókn á því hvort
frönskum yfirvöldum beri að
fara fram á það við yfirvöld í
Bandaríkjunum að John
Demjanjúk, sem Hæstiréttur í
ísrael sýknaði nýverið af ákær-
um um að vera ívan grimmi,
fangabúðastjórinn illræmdi í
Treblinka, nú búsettur í
Bandaríkjunum, verði fram-
seldur til Frakklands. Ráðist var
í rannsóknina að áeggjan
frönsku gyðingasamtakanna en
forseti þeirra er nasistaveiðar-
inn kunni, lögfræðingurinn
Serge Klarsfeld. Hann, ásamt
syni sínum Amo Klarsfeld, tel-
ur margt benda til þess að
Demjanjúk hafi átt að aðild að
morðum á þúsundum franskra
gyðinga í útrýmingarbúðunum
í Sóbibór í Póllandi í síðari
heimsstyijöldinni. Sem dæmi
um hreinsanimar má nefha að
af þeim fjögur þúsund gyðing-
um sem voru fluttir frá Frakk-
landi til Sóbibór í mars 1943
liíðu eingöngu þretttán fanga-
búðavistina af. Bitur reynslan,
nú síðast mál Demjanjúks í
ísrael, heíúr kennt nasistaveið-
urum að vitnisburður sjónar-
votta einn dugir hvergi til svo
unnt sé að dæma meinta mis-
indismenn íýrir stríðsglæpi. Því
hafa Klarsfeld-feðgar farið fram
á opinbera rannsókn á hugsan-
legri aðild Demjanjúks að
morðum á frönskum gyðing-
JOHN DEMJANJÚK FRJÁLS MAÐUR.
Svo kann að fara að Frökkum takist
eftir allt að koma honum á bak við
lás og slá.
um, svo unnt sé að safria sam-
an öllum fáanlegum skriflegum
gögnum um málið. Aðeins
með sterk vopn á hendi geti
nýr mildlvægur kapítuli í leit
gyðinga að glæpamönnum síð-
ari heimsstyijaldarinnar hafist.