Morgunblaðið - 15.05.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁKVÖRÐUN FORSETANS
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta
Íslands, algjörlega vanhæfan ef hann
ætli að neita að staðfesta fjölmiðla-
frumvarpið. Forseti Íslands var í gær
gagnrýndur fyrir að vera ekki við-
staddur konunglega brúðkaupið í
Danmörku en í yfirlýsingu forseta-
skrifstofunnar segir að forseti geti
ekki yfirgefið landið vegna óvissu um
afgreiðslu mikilvægra mála á Alþingi.
Setning Listahátíðar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra setti Listahátíð
í Reykjavík í gær en opnunarhátíð
var haldin í Listasafni Íslands að við-
stöddu fjölmenni.
Ritstjórinn rekinn
Ritstjóra breska blaðsins The
Daily Mirror, Piers Morgan, var í
gær vikið úr starfi vegna birtingar
blaðsins á myndum 1. maí sl. sem
sagðar voru sýna breska hermenn í
Írak misþyrma föngum sínum. Eig-
endur og stjórn The Daily Mirror við-
urkenndu hins vegar í gær að mynd-
irnar hefðu verið falsaðar. Báðust
þeir afsökunar og sögðu jafnframt að
„óviðeigandi“ væri ef Morgan gegndi
ritstjórastarfinu áfram.
Útboð í Grímsá
Fyrirtækið Hreggnasi ehf. var
með hæsta tilboð í laxveiðina í
Grímsá er tilboð voru opnuð í gær-
dag. Alls hljóðaði tilboðið upp á 38,5
milljónir á ári auk tveggja milljóna
króna til fiskræktar. Alls bárust ell-
efu tilboð í ána.
Konunglegt brúðkaup
Friðrik, ríkisarfi Dana, kvæntist í
gær heitmey sinni, áströlsku stúlk-
unni Mary Donaldson við hátíðlega
athöfn í Kaupmannahöfn. Athöfnin
fór fram í Frúarkirkjunni í miðborg
Kaupmannahafnar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Úr vesturheimi 46
Úr verinu 12 Minningar 48/51
Viðskipti 14 Umræðan 52/55
Erlent 18/20 Evróvisjón 56
Minn staður 22 Messur 62
Höfuðborgin 24 Kirkjustarf 62/63
Akureyri 26 Bréf 64
Suðurnes 28 Dagbók 58/59
Árborg 29 Staksteinar 58
Landið 30 Íþróttir 68/71
Ferðalög 32/35 Leikhús 72
Daglegt líf 36/37 Fólk 72/77
Listir 28/46 Bíó 74/77
Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 78
Viðhorf 44 Veður 79
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið Ölfus innan
seilingar.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÉG ER þó að minnsta kosti bú-
inn að útvega mér föt til að spila
í,“ sagði kanadíski píanóleikarinn
Marc-André Hamelin hlæjandi,
þegar hann kom á æfingu í Há-
skólabíói í gær, klukkustund síðar
en áætlað var. Farangur hann
týndist á leið hans til landsins í
gærmorgun, og varð það fyrsta
verkefni starfsmanns Listahátíðar
að fylgja píanóleikaranum í fata-
verslun, þar sem hann var helst
til léttklæddur fyrir íslenskt vor-
regn og vantaði auk þess tón-
leikafatnað. „Ég hef engar
áhyggjur af þessu lengur. Til allr-
ar hamingju gjörþekki ég verkin
á efnisskránni og hef spilað þau
margoft, þannig að það er mun
auðveldara að takast á við svona
uppákomu auk flugþreytunnar en
hefði ég verið með verk sem ég
hef ekki spilað áður. Ég er alveg
rólegur yfir þessu.“
Þegar Hamelin var sagt frá því
að frést hefði af fólki sem ætlaði
á hvora tveggju tónleika hans
hér, sagðist hann brosandi ekki
myndu stoppa það í því. „Reynd-
ar, þegar maður hugsar um það,
gæti það verið mjög áhugavert,
jafnvel þótt ég spili sömu dagskrá
í bæði skiptin. Þá er hægt að upp-
lifa alla þá litlu „núansa“ sem
breytast frá einum flutningi til
annars, þótt um sömu verk sé að
ræða. Engir tvennir tónleikar eru
eins, alltaf eitthvað aðeins öðru
vísi.“
Marc-André Hamelin sagðist
aðspurður um hvort hann myndi
skoða Ísland eitthvað í ferðinni,
myndu fá sér göngutúra, jafnvel
þótt veðrið yrði ekki með besta
móti. „Ég sá svo líka ýmislegt á
búðarápinu áðan, er nú ekki
vanur að vera svo rosalega fínn í
tauinu, en á nú þessi fínu Armani-
sumarföt,“ segir píanóleikarinn
sposkur og snýr sér að því að
prófa Steinway-inn í Háskólabíói.
Farangur Marc-Andrés Hamelins skilaði sér ekki til landsins
Nú á ég þessi fínu Armani-föt
Morgunblaðið/Ásdís
Marc-André Hamelin ætlar að fá sér göngutúra um bæinn.
ELDUR kom upp í kertagerð á
bænum Stóruvöllum í Bárðardal í
S-Þingeyjarsýslu um kl. 8 í gær-
morgun, og brann kertagerðin til
grunna, en hún var í bráðabirgðaað-
stöðu í tveimur samföstum gámum.
Kertaverksmiðja brann á Stóruvöll-
un 24. janúar sl., og var starfsemin
komin í gang aftur eftir þann bruna.
Eldsupptök eru ekki ljós, en eru
talin tengjast rafmagni, að sögn
Lögreglunnar á Húsavík. Búið var
að gangsetja hitunarbúnað sem
bræðir tólg, og hafði búnaðurinn
verið skilinn eftir í gangi í nokkrar
mínútur. Ekki er ljóst á þessari
stundu hvort þessi búnaður olli
brunanum eða hvort eldurinn
kviknaði annars staðar vegna raf-
magns.
Eldurinn uppgötvaðist fljótt, og
var slökkviliðið kallað á vettvang,
en þegar slökkviliðið kom á staðinn
var ljóst að allt var brunnið sem
brunnið gat. Gámarnir voru ein-
angraðir frystigámar og fuðraði
einangrunin í þeim upp á stuttum
tíma.
Ljósmynd/Björgvin Kolbeinsson
Fulltrúi tryggingafélags skoðar verksmiðjuna eftir brunann í gær.
Kertagerð-
in fuðraði
upp öðru
sinni
fall tekna sem kemur til lækkunar
námsláns lækkað. Í stað 35% verða
33% af tekjum umfram frítekju-
marks sem geta komið til lækkunar
námsláni.
Möguleikar námsmanna til sum-
arlána eru rýmkaðir skv. nýju regl-
unum og ávinnur námsmaður sem
flýtir fyrir sér með því að ljúka yfir
100% námi skv. skipulagi skóla sér
nú rétt til sumarlána.
Bankaábyrgðir námslána komi
í stað sjálfskuldarábyrgðar
Þá verður sú breyting gerð að í
stað sjálfskuldarábyrgðar einstak-
linga er bönkum og öðrum fjármála-
stofnunum heimilað að ábyrgjast
námslán skv. reglunum. Tekið er
fram í fréttatilkynningu frá LÍN að
það sé þó væntanlega forsenda þess
STJÓRN Lánasjóðs íslenskra náms-
manna samþykkti í gær úthlutunar-
reglur fyrir skólaárið 2004–2005 sem
tryggja námsmönnum að meðaltali
um 3% hækkun ráðstöfunartekna
milli skólaára.
Framfærslugrunnur námsmanna
hækkar um 3,1% milli skólaára.
Samkvæmt nýja grunninum hækka
viðmiðunarútgjöld námsmanns á ári
úr 1.347.200 kr. í 1.389.200 kr. og
munu því samsvara um 116 þúsund
kr. á mánuði.
Skv. nýju úthlutunarreglunum
hækka kostnaðarliðir framfærslu-
grunnsins um 2,3% nema liðurinn
póstur og sími sem hækkar um
35,1%.
Reglurnar kveða á um að svo-
nefnd grunnframfærsla hækkar úr
77.500 kr. í 79.500 kr. Þá verður hlut-
að af þessu geti orðið, að samkomu-
lag náist milli stjórnar LÍN og banka
um fyrirkomulag ábyrgðarinnar.
Þá hefur verið ákveðið að sjóður-
inn mun leggja af svonefnd markaðs-
kjaralán frá og með 1. júní 2005 og
sjóðurinn þar með hætta að veita lán
vegna skólagjalda á markaðskjörum.
Bent er á að dregið hafi stórlega úr
þörfinni fyrir þennan lánaflokk, auk
þess sem hann hafi sætt gagnrýni
m.a. frá Samtökum banka og verð-
bréfafyrirtækja.
Loks er sett það skilyrði námsað-
stoðar að áður en sótt er um lán í
fyrsta sinn hafi umsækjandi átt lög-
heimili á Íslandi í 2 ár samfellt eða í 3
ár af síðustu tíu árum og er þetta
sagt vera í samræmi við nýsamþykkt
lög. Áður var einungis krafist árs bú-
setu af íslenskum ríkisborgurum.
Stjórn LÍN samþykkir úthlutunarreglur 2004–2005
Ráðstöfunartekjur hækka
að meðaltali um 3%
„ÉG átta mig ekki á hvernig
mönnum dettur í hug að segja
þetta,“ segir Sigurður G. Guð-
jónsson, forstjóri Íslenska út-
varpsfélagsins, um ummæli
tveggja dagskrárgerðarmanna
á FM 95,7 nýlega.
Í samtali þeirra var þeirri
hugmynd varpað fram – og
beint sérstaklega til þeirra sem
væru „kannski geðveik þarna
úti“ í samfélaginu – að hægt
væri að skjóta Davíð Oddsson
forsætisráðherra í gegnum
gluggann á stjórnarráðinu.
Sigurður sagði búið að taka á
þessu máli innan fyrirtækisins
og ræða við starfsmennina.
„Það eru ákveðnar leikreglur í
fjölmiðlum sem menn verða að
virða. Menn geta ekki sagt
hvað sem er, um hvern sem er,
hvenær sem er í fjölmiðlum.“
Hann sagðist líta þetta mál
alvarlegum augum. „Þetta eru
ekki ummæli sem við viljum
hafa í útvarpi.“
Forstjóri Íslenska
útvarpsfélagsins
Lítur um-
mælin al-
varlegum
augum
Arnarfell
bauð lægst
í Ufsarveitu
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Arnar-
fell átti lægsta tilboð í gerð Ufsar-
veitu við Kárahnjúkavirkjun, þegar
útboð fór fram hjá Landsvirkjun í
gær. Arnarfell bauð 1,9 milljarða
króna í verkið, sem er 74% af kostn-
aðaráætlun upp á 2,5 milljarða króna.
Verkið felst í gerð inntaksstíflu í
Jökulsá í Fljótsdal og gerð hluta af
aðrennslisgöngum frá inntakinu inn í
aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjun-
ar, ásamt því að leggja veg að Ufs-
arlóni og austur að Kelduá.
Fjögur tilboð bárust og auk Arn-
arfells kom sameiginlegt boð frá Ís-
taki, E.Pihl & Sön og ÍAV upp á tæpa
2,5 milljarða, Héraðsverk og Leon-
hard Nilsen & Sönner buðu rúma 2,4
milljarða og hæsta tilboð, 3,2 millj-
arðar, kom frá Bilfinger Berger,
Eykt og Suðurverki. Allir verktakar
komu með frávikstilboð og hið lægsta
hjá Arnarfelli var upp á tæpa 1,8
milljarða króna.
Yngt upp
hjá Háskóla
Íslands
HÁSKÓLI Íslands tekur á sig nýj-
an blæ þegar kennsla hefst í fyrsta
sinn í Háskóla unga fólksins sem
verður um miðjan júní í sumar.
Skólinn er ætlaður börnum á aldr-
inum 12–16 ára, og munu ýmsar
deildir HÍ bjóða upp á alls 22 nám-
skeið.
Gert er ráð fyrir rúmlega 200
nemendum, sem geta farið í fugla-
skoðun, rannsóknir á svefni, rætt
samfélagslegt hlutverk brandara
eða lært undirstöðuatriðin í jap-
önsku, svo fátt eitt sé nefnt.
Allir geta sótt um skólavist á
meðan pláss leyfir, og hefst skrán-
ing í dag, laugardag, á vef Háskóla
unga fólksins, www.ung.is. Þar má
einnig finna nánari upplýsingar um
skólann.