Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 63
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 63 guðsþjónustu sunnudaginn 22. ágúst kl. 11:00. þar munu ferming- arbörnin taka þátt með lestri ritn- ingartexta og bæna. Hópurinn mun síðan hittast að meðaltali einu sinni í mánuði fram að fermingu. Í framhaldi af kvöldguðsþjónust- unni næstkomandi sunnudagskvöld verður stuttur kynningarfundur fyrir fermingarbörn og foreldra þeirra. Fundur þessi er opinn fyrir öll fermingarbörn næsta árs. Nánari kynningu á ferming- arstarfi næsta vetur er að finna á forsíðu heimasíðu kirkjunnar www.frikirkjan.is Ómar Ragnarsson í Fríkirkjunni í Hafnarfirði Á MORGUN, sunnudaginn 16. maí, verður kvöldvaka í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og hefst hún kl. 20. Eins og venjulega mun hljóm- sveit kirkjunnar og kórinn leiða fal- lega tónlist og söng sem að þessu sinni tengist að sjálfsögðu vorinu og hækkandi sól. Sérstakur gestur kvöldvöku að þessu sinni er Ómar Ragnarsson fréttamaður og gleðigjafi sem spjallar við kirkjugesti um ferð sína til Afríku. Það verður án efa áhuga- vert að heyra af upplifun Ómars og hvetjum við alla til þess að gefa sér stund og líta inn og eiga góða stund í kirkjunni. Að lokinni kvöldvöku verður svo heitt á könnunni í safnaðarheim- ilinu. Fjölskylduguðsþjón- usta í Selfosskirkju STOPPLEIKHÓPURINN sýnir barnaleikritið „Hans klaufi“ í fjöl- skylduguðsþjónustu sunnudaginn 16. maí kl.11:00. Leikritið byggist á hinu þekkta ævintýri H.C. And- ersen. Leikritið fjallar um Hans klaufa og bræður hans sem allir fara að biðla til konungsdótt- urinnar. Bjartsýni Hans klaufa er ráðandi í þessu ævintýri og það sýnir okkur einnig að ef hugarfarið er ekki rétt getur stórlæti og hroki leitt okkur á villigötur. Vonandi sjáum við sem flesta á sunnudaginn. Það er tilvalið til dæmis fyrir afa og ömmu eða pabba og mömmu að koma með börnin til guðsþjónustunnar og njóta einnig sýningarinnar. Vortónleikar í Grafarvogskirkju SUNNUDAGINN 16. maí kl. 17:00. Sannkölluð vorstemning verður í Grafarvogskirkju á morgun sunnu- dag 16. maí kl.17:00 þá munu allir kórar kirkjunnar ásamt einsöngv- urum flytja vor- og sumartónlist. Stjórnendur kóranna eru: Hörður Bragason og Oddný Jóna Þor- steinsdóttir. Aðgangur er ókeypis, tekið verð- ur á móti frjálsum framlögum í org- elsjóð. Allir hjartanlega velkomnir. Sumarlok í barna- starfi Bústaðakirkju SUNNUDAGINN 16. maí verður lokasamvera í barnastarfi Bústaða- kirkju og hefst hún kl. 11:00. Að lokinni helgistund verður samvera úti á kirkjuplaninu, þar sem farið verður í leiki og grillað. Hljóm- sveitin Aftur og nýbúnir mun leika fyrir viðstadda. Gott er að muna að klæða sig eftir veðri þar sem við verðum úti við söng, leik og gaman. Allir sem hafa tekið í þátt í starfinu í vetur eru velkomnir og mega taka með sér gesti. Guðsþjónusta verður svo klukk- an 14:00 með molasopa eftir messu. Organisti er Guðmundur Sigurðs- son og félagar úr Kór Bústaða- kirkju syngja. Kvöldmessa í Grensáskirkju SÍÐASTA kvöldmessan að sinni verður í Grensáskirkju annað kvöld, sunnudaginn 16. maí, kl. 20. Kvöldmessur hafa verið mán- aðarlega yfir vetrartímann und- anfarin ár. Form þeirra er einfalt og yfirbragðið hlýlegt og létt. Sungið er við píanóundirleik org- anistans, Árna Arinbjarnarsonar. Töluðu máli er stillt í hóf en gott svigrúm fyrir bæn. Altarisganga er í messunni. Að þessu sinni leikur Hlynur Sæ- mundsson einleik á píanó en Hlynur er einn af fermingardrengjum vorsins í Grensáskirkju og píanó- nemandi Björgvins Þ. Valdimars- sonar. Komum í kvöldmessuna og eig- um saman ljúfa og uppbyggilega stund í nærveru Drottins. Kvennakirkjan í Kópavogskirkju KVENNAKIRKJAN heldur guðs- þjónustu í Kópavogskirkju sunnu- daginn 16. maí kl. 20.30. Yfirskrift messunnar er: Volæðið og vissan um vænu skrefin. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar og leiðir helgistund um léttleika fyrirgefn- ingarinnar á ljósum dögum vorsins. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng- inn við undirleik Aðalheiðar Þor- steinsdóttur. Á eftir verður messu- kaffi. Messur Kvennakirkjunnar eru ölllum opnar. Í þeim er byggt á kvennaguðfræði og þær eru með öðru sniði en venjulegar messur. Nærvera þeirra sem koma er mik- ilvæg og áhersla lögð á þátttöku í söng. Einnig er konum boðið að setja bænir í bænakörfu sem eru lesnar í bænastund með tónlistar- ívafi. Vortónleikar Barna- og unglingakóra Dómkirkjunnar Á MORGUN sunnudaginn 16.maí verða haldnir í Dómkikjunni vor- tónleikar á vegum barnakóranna sem þar starfa. Kóranir sem eru tveir, með söngvara á aldrinum 7- 10 ára og 11-15 ára í hinum eldri, munu syngja nokkuð af sínum uppáhaldslögum. Þar má finna ís- lensk þjóðlög, lög eftir Atla Heimi Sveinsson ofl. Einnig mun eldri kórinn flytja Messe breve no.4 í C- dúr eftir Charles Gounod. Stjórn- andi kóranna er Kristín Valsdóttir og undirleikari er Marteinn H. Friðriksson. Tónleikarnir hefjast kl: 17 og all- ir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Ágóði af tónleikunum, 500 kr. fyrir fullorðna en frítt fyrir börn rennur óskiptur í ferðasjóð söngveranna. Seljakirkja Furugrund 68 - Kópavogi Opið hús frá kl. 13-16 Mjög falleg og vel skipulögð 83 fm 4ra herb. útsýnisíbúð á 6. hæð, efstu, (íbúð 0603), í góðu lyftuhúsi. Rúmgóð stofa, 3 her- bergi, eldhús með ljósum viðar- innréttingum og flísalagt bað- herbergi. Stórar flísalagðar suð- ursvalir. Sérstæði í bílageymslu og sérgeymsla á jarðhæð. Laus fljótlega. Verð 14,1 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 13-16. Verið velkomin! FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Krókamýri 80b - Garðabæ Opið hús frá kl. 13-15 Falleg 92 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi í nýlegu litlu fjölbýli. Góð stofa með útgangi á hellulagða verönd, 2 herbergi, bæði með skápum, eldhús með hvítum sprautulökkuðum innréttingum og baðher- bergi. Parket og flísar á gólfum. Þvottaaðstaða og geymsla í íbúð auk sameiginlegrar útigeymslu. Hús klætt að utan með Steni-klæðningu. Stutt í skóla og leikskóla. Áhv. húsbr. 7,0 millj. Verð 15,5 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 13-15. Verið velkomin! FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. NÝTAST VETRARFÖTIN BETURÍ AFGANISTAN? Sjálfboðaliðar Rauða krossins taka við fatnaði á Lækjartorgi í dag milli kl. 10 og 16. Einnig er tekið við fatnaði í fataflokkunarstöð Rauða krossins að Gjótuhrauni 7, Hafnarfirði í dag og á morgun milli 10 og 16. Okkur vantar: • á fullorðna: hlýjar yfirhafnir og flíspeysur. • á börn: hlýjar yfirhafnir, peysur, galla, húfur og vettlinga. Rauði krossinn safnar hlýjum fatnaði um helgina. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 0 5 /0 4 Íslandsmótið í paratvímenningi Þetta vinsæla mót verður spilað helgina 15.–16. maí í Síðumúla 37. Spilaður verður barómeter, fjöldi spila fer eftir þátttöku. Keppnisstjóri er Sigurbjörn Har- aldsson. Núverandi Íslandsmeistar- ar eru Anna Ívarsdóttir og Þorlákur Jónsson. Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að hefja spilamennsku laug- ardag kl. 10:00 svo áhugasamir geti fylgst með Eurovision um kvöldið. Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK spilaði tvímenn- ing á 9 borðum fimmtudaginn 13. maí. Miðlungur 168. Efst voru: NS Leifur Jóhanness. – Aðalbjörn Ben. 220 Heiður Gestsd. – Stefán Ólafss. 205 Sveinn Jensson – Jóna Kristinsd. 198 Guðmundur G. – Guðjón Ottoss. 196 AV Jón Stefánsson – Dóra Friðleifsd. 234 Ari Þórðarson – Díana Kristjánsd. 180 Helga Helgad. – Þórhildur Mag. 175 Guðlaugur Árnas. – Jón Páll 169 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ mánud. 10. maí 2004. Spilað var á 9 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Magnús Halldórss. – Sigurður Pálsson 270 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 264 Bjarni Þórarinss. – Helgi Hallgrímss. 240 Árangur A-V: Björn E. Pétursson – Gísli Hafliðason 255 Magnús Oddsson – Ragnar Björnsson 244 Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 241 Tvímenningskeppni spiluð fimm- tud. 13. maí. Spilað var á 9 borðum. Meðalskor 216 stig. Magnús Oddsson – Ragnar Björnss. 273 Alda Hansen – Jón Lárusson 263 Eysteinn Einarss. – Kári Sigurjónss. 232 Árangur A-V: Geir Guðmundss. – Ægir Ferdinandss. 284 Jóhann M. Guðm. – Hjálmar Gíslason 247 Júlíus Guðmundss. – Björn E. Péturss. 245 Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Á yfirstandandi spilaári voru hald- in 30 spilakvöld hjá félaginu og fjöldi þátttakenda var 1.190, sem er hálfu hundraði meiri þátttaka en á síðasta spilaári. Fjöldi þeirra sem unnu sér inn bronsstig var 171 og félagið skráði út alls 7.471 bronsstig. Hér fyrir neðan fylgir listi þeirra karl- manna sem fengu flest bronsstig á liðnum vetri: Unnar Atli Guðmundsson 402 Hjálmar S. Pálsson 283 Guðjón Sigurjónsson 279 Sveinn Ragnarsson 276 Eftirtaldar konur fengu flest bronsstig: Guðrún Jörgensen 203 Jóna Magnúsdóttir 190 Anna Guðlaug Nielsen 155 Þóranna Pálsdóttir 143 Stjórn félagsins vill koma á fram- færi þakklæti til spilara fyrir vetur- inn og hlakkar til að sjá þá alla á næsta spilaári. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.