Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þjónn, það er banani í súpunni minni og líka hjá maddömunni. Minnihlutahópar, kynferði og jafnrétti Má læra af mistökum Dana JafnréttisnefndReykjavíkurborgarstendur í dag fyrir málþinginu „Minnihluta- hópar, kynferði og jafn- rétti“. Tilefnið er vaxandi umræða um réttindi og stöðu minnihlutahópa í samfélaginu og þá spurn- ingu hvort stjórnsýslunni beri að gera sérstakar ráð- stafanir umfram það sem leiðir af jafnræðisreglu stjórnsýslulaga til að tryggja að fólki sé ekki mismunað á grundvelli minnihlutastöðu þeirra, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Lögum samkvæmt hafi stjórnsýslan komið á fót sérstökum embættum, stofnunum eða nefndum sem starfa að jafnrétti kvenna og karla, bæði á vettvangi sveitarfé- laga og ríkisins. Bendir jafnrétt- isnefndin á að baráttan fyrir jafn- rétti karla og kvenna megi ekki einskorðast við þá þjóðfélagshópa sem eru sýnilegastir í samfélag- inu, heldur verði hún að ná til allra hópa samfélagsins, enda sé staða karla og kvenna innan minnihlutahópa ólík. Á málþinginu munu fulltrúar minnihlutahópa fjalla um jafnrétt- ismál, m.a. frá Öryrkjabandalagi Íslands, Félagi kvenna af erlend- um uppruna, Alþjóðahúsi og Sam- tökunum ’78. Þá verður fjallað um jafnréttisstarf í Háskóla Íslands, jafnrétti kynjanna og jafnræðis- regluna, tilskipanir ESB gegn mismunun, rannsóknina Minni- hlutahópar, kynferði og jafnrétti og fleira. Sérstakur gestur málþingsins er Hanna Ziadeh, Dani af írönsk- um uppruna, sem gegnir stöðu jafnréttisráðgjafa innflytjenda hjá Kaupmannahafnarborg. Hann mun miðla af reynslu Kaup- mannahafnar hvað varðar málefni innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. „Við höfum unnið lengur að þessum málum en Reykjavíkur- borg. Kaupmannahöfn er mun blandaðri borg, 17% íbúanna til- heyra þjóðernislegum minnihluta- hópi. Við höfum unnið að mörgum verkefnum, t.d. hvernig eigi að tryggja jafnrétti milli ólíkra þjóð- ernishópa á vinnustaðnum og gert rannsóknir og skýrslur um hvað eigi að gera og hvað eigi ekki að gera. Ég mun reyna að koma okk- ar reynslu á framfæri og auðvitað læra af því hvernig Reykjavík tekur á þessum málum.“ Hvað gæti Ísland lært af ykkar reynslu? „Ég held Íslendingar geti fyrst og fremst lært af þeim mistökum sem við höfum gert. Þeir geta nýtt betur þá þekkingu sem við höfum aflað. Ég myndi halda að stærstu mistökin sem Danir gerðu hafi verið að vilja ekki viðurkenna að mismunun væri til staðar. Flestir Danir og danskir stjórnmálamenn telja að danskt samfélag sé einsleitt, lýðræðislegt og að jafnrétti sé þar við lýði. Sumir stjórnmálamenn hafa ekki viðurkennt að þetta sé ekki rétt. Það er ástæða þess að við viður- kenndum aldrei að ákveðin mis- munun hefði átt sér stað og það ætti að berjast gegn því. Þá fóru fylkingarnar í skotgrafirnar og háðu stríð sem enginn gat unnið. Ég myndi ráðleggja starfsbræðr- um og -systrum mínum í Reykja- vík að falla ekki í þá gryfju. Danskir stjórnmálamenn reyndu að draga úr umfjöllun um mis- munun og ýta umræðunni til hlið- ar, á meðan fulltrúar innflytjenda reyndu að ýkja mismuninn eins og þeir mest gátu. Ég tel best að fólk reyni að forðast umræðu á milli tveggja andstæðra póla, heldur viðurkenni að samfélag, sem er ekki tilbúið til að taka á móti svo mörgu ólíku fólki, muni bregðast við á vegu sem gæti mismunað fólki og skoða hvernig hægt sé að koma í veg fyrir það.“ Hvað er erfiðasta viðfangsefni ykkar um þessar mundir? „Við fórum á stuttum tíma úr því að vera fáfróð um ýmislegt sem tengdist þessum málum en samt áhugasöm, í það að vita mun meira um jafnréttismál og þjóð- ernishópa, en hafa ekki nægan pólitískan stuðning. Fyrir 12–14 árum var þörf á því að vinna í þessum málum og þá skorti okkur þekkinguna, nú höfum við hana en verðum að horfast í augu við að pólitískan vilja til að vinna að jafn- rétti skortir.“ Hafa innflytjendur í Danmörku jöfn tækifæri á við þá sem eru af dönskum uppruna? „Ef þú vilt stutt svar er svarið nei. En er fólki af erlendum upp- runa mismunað viljandi á kerfis- bundinn hátt? Nei. Er það fórnar- lömb óbeins misréttis og skorts á pólitískum vilja til að hjálpa því? Já. Erum við ábyrg fyrir að hafa ekki tekið nógu vel á þessum mál- um og taka t.d. upp nauðsynlega fræðslu til að yfirvinna þennan þröskuld? Já. Gerum við það af því að við er- um vond og á móti öðr- um menningarstraum- um? Auðvitað ekki. Ég er ekki einn af þeim sem telja að hægt sé að skella ábyrgðinni á einhvern einn, en ég tel að það sé skortur á pólitísku hugrekki til að gera hluti sem eru erfiðir, en engu að síður nauðsyn- legir.“ Málþingið fer fram á Hótel Borg og stendur frá 10–13.30 í dag. Aðgangseyrir er 1.000 krón- ur, en innifalið í því er morgun- verður og kaffiveitingar. Hanna Ziadeh  Hanna Ziadeh fæddist í Beirút í Líbanon árið 1965 og hefur ver- ið búsettur í Danmörku frá árinu 1986. Hann er cand. mag í arab- ísku og frönsku frá Kaupmanna- hafnarháskóla. Hann hefur verið ráðgjafi fjármálaráðherra Dan- merkur í málefnum innflytjenda og leitt jafnréttisátak innan danska ríkisins. Nú starfar hann sem jafnréttisráðgjafi innflytj- enda hjá Kaupmannahafnar- borg. Hann hefur tekið virkan þátt í þjóðfélagsumræðunni í Danmörku og skrifað talsvert um íslam, Miðausturlönd og mál- efni innflytjenda. Pólitískan vilja og hug- rekki skortir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.