Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 54
UMRÆÐAN 54 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ frumflutning á hinu tveggja klukkutíma langa tónverki Messías eftir Händel í London fyrir um 250 árum var lókalkóng- urinn kominn í svo mikinn hlandspreng þegar kom að Halle- lúja kaflanum fræga að hann varð að standa upp til að minnka þrýstinginn á blöðrunni. Við það stóðu allir tónleika- gestir samstundis upp og síðan þá hefur sá siður haldist að tón- leikagestir standi upp þegar kemur að þess- um kafla í tónverkinu og setjist aftur að honum loknum. Þessi athöfn, að standa upp á miðjum tónleikum þegar Messías eftir Händel er fluttur, er nú orðin nokkurs konar helgiathöfn sem fólk trúir að eigi sér rætur í texta verksins eða upphafinni stemm- ingu tónlistarinnar. Hinn nafnlausi kóngur hefur að öðru leyti ekki haft nein önnur áhrif á mannkyns- söguna. Mér datt þessi saga í hug þegar ég var beðinn um að skrifa nokkur orð til að minna á álfasölu SÁÁ núna í maí. Fyrst fannst mér það sniðugt og hélt að sagan myndi vekja kátínu lesenda og jákvætt viðmót gagnvart álfasölufólki en svo fór ég velta fyrir mér hvort þessi saga tengdist SÁÁ og álfa- sölufólki í dag eða hvort ég væri bara svona undarlega tengdur. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann eru landsam- tök sem vinna að áfengis og vímu- efnavörnum um allt land og veita öllum landsmönnum þjónustu. Samtökin eru fjölmenn almanna- samtök, grasrótarsamtök sem voru stofnuð af vímuefnafíklum sem höfðu fengið lækningu erlend- is og vildu færa nýjar hugmyndir um vandann og vímuefnameðferð heim. Flestir þeir sem eru við stjórnvöl samtakanna og margir starfsmenn hafa kynnst vandanum af eigin raun, annað hvort sem að- standendur eða fíklar og engin kemur að samtökunum nema sá sem hefur mikinn áhuga á vanda- málinu. Í bráðum 27 ár hefur SÁÁ unn- ið sitt verk hljóðlega og fagmann- lega en frá upphafi hefur SÁÁ litið svo á að áfengis- og vímu- efnafíkn sé sjúkdóm- ur. Hlutverk samtak- anna er að vinna að því að í landinu sé besta fáanlega með- ferð fyrir vímuefna- fíkla og aðstandendur þeirra. Samtökin sam- eina heilbrigðisþjón- ustu og félagslega endurhæfingu og að- stoð. Hugmynda- grundvöllurinn er fyrst og fremst vís- indalegar rannsóknir á sviði heilbrigðisþjón- ustu, sálarfræði og fé- lagsvísinda. Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun SÁÁ hafa ýmis op- inber forvarnapróg- römm, gæluverkefni og „sérhæfð- ar meðferðir“ og pólitískar auglýsinga- og markaðsherferðir fæðst og lognast út af með tilheyr- andi kostnaði og hverfandi ár- angri. Verk SÁÁ heldur áfram hvað sem líður öllu pólitísku uppi- standi og spenningi, enda er vand- inn síst minni núna en þegar sam- tökin voru stofnuð. Mikilvægt er að almenningur geri sér grein fyr- ir hlutverki sínu gagnvart þessari starfsemi og að mjög stór hluti af þjónustu SÁÁ er rekinn fyrir sjálfsaflafé samtakanna, án stuðn- ings frá hinu opinbera og án stuðnings frá sveitafélögum í land- inu. Álfasalan gegnir þar lykilhlut- verki og er í raun eins og heill kafli í stóru tónverki. Álfasala SÁÁ fer fram dagana 13. til 16. maí. Nú er um að gera að standa á fætur og sýna stuðning sinn í verki. Menn geta haft hver sína ástæðu til að gera það. Aðalatriðið er þó að standa með sínu fólki. Vinsamlegast takið vel á móti álfa- sölufólki SÁÁ. Er lífið tóm vitleysa? Arnþór Jónsson skrifar um áfengismál Arnþór Jónsson ’Í bráðum 27 árhefur SÁÁ unn- ið sitt verk hljóðlega og fagmannlega.‘ Höfundur er varaformaður SÁÁ. MORGUNBLAÐIÐ vill vera vandaður og ábyggilegur fjölmiðill. Morgunblaðið er óháð eigendum sínum. Morgunblaðið er á móti óheftu tjáningar- og atvinnufrelsi. Morgunblaðið styður fjölmiðla- frumvarp Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra. Morgunblaðið er að því leyti sammála einum af eigend- um sínum Birni Bjarnasyni dóms- málaráðherra sem styður frum- varpið. Morgunblaðið er í andstöðu við stjórn Árvakurs, sem styður bæði atvinnu- og tjáningarfrelsi og gefur út Morgunblaðið. Morgunblaðið hefur í umræðu um fjölmiðlafrumvarpið skipað sér í flokk með tveimur Magnúsum og Markúsi Erni Antonssyni útvarps- stjóra Ríkisútvarpsins. Emmin fjögur vilja ekki atvinnu- eða tján- ingarfrelsi, þótt öll eigi þau allt sitt undir fyrirtækjum sem byggja til- vist sína á óskertu atvinnu- og tján- ingarfrelsi. Annar Magnúsanna er Magnús Hreggviðsson, 88% eigandi útgáfu- félagsins Fróða hf. sem er mark- aðsráðandi fyrirtæki á tímarita- markaði. Fróði gefur út Séð og heyrt, Bleikt og blátt, Vikuna, Mannlíf, Hús og híbýli, Nýtt líf og Gestgjafann. Hinn Magnúsinn er Magnús Ragnarsson leikari og núverandi framkvæmdastjóri Skjás eins. Skjár einn er einkarekin sjónvarps- stöð sem byggir afkomu sína á tekjum af auglýsingum og kostun. Magnús Ragnarsson fer mikinn í fjölmiðlum þessa dagana og heldur því fram að fyrirtæki hans muni ekki lifa nema næstu átján mánuði, þar sem Norðurljós þjarmi að rekstri Skjás eins með öllum til- tækum ráðum sbr. frétt í Morgun- blaðinu á síðu 11, föstudaginn 14. maí. Frétt Morgunblaðsins hefur að geyma efnislega það sama og Magnús Ragnarsson sagði á Morg- unvakt Ríkisútvarpsins þann sama dag og fyrir menntamálanefnd Al- þingis þriðjudaginn 11. maí. Það vekur hins vegar athygli að Morgunblaðið hafði ekki samband við Norðurljós til að fá upplýsingar um hvort það væri rétt að Norður- ljós keyrðu upp innkaupsverð á dagskrárefni, svo notuð sé millifyr- irsögn blaðsins sjálfs. Þessi vinnu- brögð Morgunblaðsins eru á skjön við góða siði blaðamanna. Blaða- maður Morgunblaðsins spyr Magnús Ragnarsson ekki um kaup- verð Skjás eins á sýningarétti frá ensku úrvalsdeildinni. Skjár einn átti hæsta boð frá Íslandi í sýninga- réttinn 11. mars sl. Bauð Skjár einn í það minnsta liðlega 100 milljónir fyrir réttinn á ári næstu þrjú ár eða samtals um 300 milljónir. Þetta er nærri tvöföldun á því verði sem Ís- lenska útvarpsfélagið greiddi fyrir Ensku úrvalsdeildina þrjú síðustu tímabil og miklu hærra en Íslenska útvarpsfélagið taldi sér fært að bjóða fyrir næstu þrjú ár. Eftir að ljóst varð að Skjár einn hafði keypt sýningarétt að ensku úrvalsdeildinni til næstu þriggja ára hefur Íslenska útvarpsfélagið aukið fé til kaupa á öðru dagskrár- efni. Við þau kaup hefur félagið ítrekað lent í verðstríði við Skjá einn við kaup á erlendu dagskrár- efni. Íslenska útvarpsfélagið hefur í nokkrum tilvikum haft betur, eins og gerist og gengur. Þegar enski boltinn hverfur af Stöð 2 og Sýn frá og með 1. ágúst nk. þarf að kaupa inn nýtt efni fyrir þessar stöðvar til að fylla í þær eyð- ur sem enski boltinn skilur eftir sig. Það dagskrárefni sem keypt verður getur verið efni sem Skjár einn hef- ur áhuga á og til að ná því getur Skjár einn þurft að greiða hærra verð en nú er greitt eins og dæmið með enska boltann sannaði. Þetta kallast samkeppni. Eins og þetta dæmi sannar hafa Norðurljós því ekki keyrt upp verð á erlendu dagskrárefni. Hækkunin er afleiðing samkeppni sem er góð fyrir seljendur. Magnús Ragnars- son keyrði upp verð á dagskrárefni einn og óstuddur þegar hann tók við Skjá einum og hækkaði boð Skjás eins í enska boltann úr 60 milljónum króna á ári í að minnsta kosti 100 milljónir króna á ári. Boð Skjás eins var hrauslegt og gott og sýnir að Skjár einn hefur sterka bakhjarla og getur veitt Norður- ljósum verðuga samkeppni, eins og félagið hefur gert frá því er það fékk peningalega innspýtingu fyrir um fjórum árum. Samkeppni í atvinnulífinu er af hinu góða. Barátta fyrir atvinnu- og tjáningarfrelsi er ekki síður mik- ilvæg. Án frelsis til orða og athafna verður engin framþróun aðeins myrkur miðalda. Emmin fjögur styðja það mið- aldamyrkur sem ríksstjórn Davíðs Oddssonar vill nú innleiða á ís- lenskum ljósvakamarkaði. Fram- kvæmdastjóri Skjás eins vill ekki samkeppni heldur ríkisforsjá á ljós- vakanum. Sigurður G. Guðjónsson Mogginn, Magnúsarnir tveir og Markús eru á móti atvinnu- og tjáningarfrelsi Höfundur er útvarpsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins og fram- kvæmdastjóri Norðurljósa. Úrslitin í enska boltanum beint í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.