Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagar eru fjölskylduvænir hjá okkur í hesta-
miðstöðinni í sumar. Við bjóðum upp á klukkutíma
hestaferð kl. 15 um hraunið í Hafnarfirði á aðeins
1.500 kr. Hestar við allra hæfi, bæði fyrir vana og
óvana. Teymt er undir börnum kl. 16 og kostar það
ekki neitt! Pantið í þessa ferð í síma 555 7000.
Innritun í reiðskólann er hafin!
Sunnudagar
eru
STARFSMÖNNUM á sumum fjöl-
miðlum barst í gær tölvupóstur frá
Róbert Marshall, fréttamanni á Stöð
2 og formanni Blaðamannafélags Ís-
lands, þar sem hann hvetur til þátt-
töku í undirskriftasöfnun undir
áskorun á forseta Íslands að undirrita
ekki fjölmiðlafrumvarp forsætisráð-
herra. Tölvupósturinn, sem sendur er
af netfanginu marshall@press.is, er
svohljóðandi:
„Félagar. Stundum er nóg komið.
Nú er sú stund.
Aðför stjórnvalda að starfsöryggi
og starfsheiðri okkar sem vinnum hjá
Norðurljósum náði hámarki í laga-
frumvarpi forsætisráðherra á dögun-
um. Umræðan síðustu vikur hefur
verið á mörkum hins vitræna. Við höf-
um horft upp á þingmenn fara ham-
förum með blöð og greinar; grenjandi
í ræðustól um að hitt og þetta verði að
stöðva. Svo ofsafengin framganga,
svo einstrengingsleg afstaða, svo
blind heift hefur lamandi áhrif á þann
sem fyrir verður. Slík eru áhrif sál-
fræðihernaðar; hann heggur að vilja
andstæðingsins til að svara fyrir sig.
Gerir óvininn óvirkan áður en til orr-
ustu kemur. Nú reynir á okkur að rísa
til varnar. Að óbreyttu verður fanta-
frumvarpið að lögum eftir helgi. Af-
leiðingarnar fyrir störf okkar og af-
komu eru óljósar. Við höfum eitt
hálmstrá. Ólafur Ragnar Grímsson
sagði í kosningabaráttunni 1996 að
hefði hann verið forseti þegar rúm-
lega 30.000 manns skoruðu á Vigdísi
Finnbogadóttur til að undirrita ekki
EES-samninginn, þá hefði hann orðið
við því og neitað að staðfesta lögin.
Tökum nú á öll sem eitt og söfnum
35.000 undirskriftum yfir helgina á
askrift.is. Við höfum tíma á meðan
stjórnarandstaðan heldur uppi mál-
þófi. Sendið tölvupóst á ALLA sem
þið þekkið, hringið í fjarskylda ætt-
ingja úti á landi sem þið hafið ekki
heyrt í í sjö ár. Nú er tíminn til end-
urnýja kynnin. Fáið fólk til að skrifa
nafn og kennitölu á askorun.is Sé fólk
fylgjandi frumvarpinu, fáið það samt
til að skrifa undir sem persónulegan
greiða við ykkur. Mætið í vinnuna á
morgun og á sunnudag eða sitjið við
tölvuna heima við, hringið, djöflist,
látið öllum illum látum, söfnum þess-
um undirskriftum, fáum þessum ólög-
um hrundið, kaupum tíma til að fá þau
í það minnsta milduð í haust. Nú
reynir á. Gjör rétt – þol ei órétt.
Róbert Marshall.“
Formaður Blaðamannafélagsins
sendir áskorun til fjölmiðlafólks
„Látið öllum
illum látum“
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra áttar sig ekki á því af
hverju Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, sótti ekki brúðkaup
Friðriks, krónprins Dana, og Mary
Donaldsson í Kaupmannahöfn í
gær. Það hafi aðeins staðið yfir í
einn dag.
Hann telur að það hefði verið
mikilvægt að forsetinn mætti og ut-
anríkisráðuneytið hefði ekki vitað
betur en hann ætlaði að mæta. Sjálf-
ur hafi hann ekki vitað af þessu fyrr
en í gærmorgun, þegar eftir því var
gengið, að forsetinn ætlaði ekki að
mæta í brúðkaupið. Forsetinn hafi
ekki gefið neinar skýringar á þessu.
Spurður hvort þetta verði tekið
upp við forsetann síðar segir Hall-
dór að lagt hafi verið upp úr því að
eiga góð samskipti við forsetann og
embætti hans.
„Auðvitað getur forsetinn forfall-
ast eins og annað fólk en hann verð-
ur að sjálfsögðu að skýra þetta mál
sjálfur,“ segir utanríkisráðherra.
Mikilvægt að
forsetinn mæti
SIGURÐUR G. Guðjónsson, forstjóri
Íslenska útvarpsfélagsins, segir
frjálsa samkeppni fjölmiðla felast í því
að bjóða í sjón-
varpsefni er-
lendra framleið-
enda. Hann
bendir á að stjórn-
endur SkjásEins
hafi nýlega boðið
hærra verð í
enska fótboltann
og þannig hækkað
innkaupsverð á
þessu tiltekna
sjónvarpsefni til
landsins. Fyrirkomulag þessara inn-
kaupa sé oft þannig að framleiðendur
bjóði einum aðila á hverjum markaði
að kaupa efnið og spyrji síðan sam-
keppnisaðila hvort hann vilji jafna eða
hækka verðið. Sigurður segir það út í
hött að Íslenska sjónvarpsfélagið
keyri upp innkaupaverð á erlendu
sjónvarpsefni eins og Magnús Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri Skjás-
Eins, hélt fram í Morgunblaðinu í
gær. „Hann verður að átta sig á því að
hann er í samkeppni. Við verðum að
þola það að aðrir geta keypt efni, sem
við höfum áhuga á, á hærra verði en
við treystum okkur til að borga. Þetta
er búið að vera svona allan tímann,“
segir Sigurður, en vonast þó til að
verðið hækki ekki mikið meira á
næstunni. Hann bendir á það að
SkjárEinn hljóti að hafa minna svig-
rúm til að kaupa annað dagskrárefni
eftir að hafa tvöfaldað innkaupaverð á
enska boltanum. „Við þurfum ekki að
borga fyrir enska boltann 100 millj-
ónir á þessu ári, ekki 100 milljónir á
næsta ári, ekki hundrað milljónir á ár-
unum 2006–2007,“ segir Sigurður.
Það fé sem ætlað var til þeirra kaupa,
eftir að hafa gert ráð fyrir hækkun á
innkaupsverði frá fyrri samningi, sé
nú laust til annarra nota.
Talaði við einn starfsmann
Hann segist ekki hafa verið að
ásælast starfsmenn SkjásEins með
því bjóða þeim betri kjör. Hann hafi
talað við einn starfsmann samkeppn-
isaðilans vegna aukinna umsvifa Ís-
lenska útvarpsfélagsins í stafrænum
útsendingum. Sá hafi einfaldlega af-
þakkað boðið. Það sé nú líka þannig
að fyrirtæki bjóði oft í starfsfólk ann-
arra fyrirtækja og við það verði allir
að búa. Í því felist samkeppni um gott
fólk.
Segir ÍÚ ekki keyra upp innkaupa-
verð á erlendu dagskrárefni
Útboð á sjónvarps-
efni hækkar verðið
Sigurður G.
Guðjónsson
STOFNAÐAR hafa verið tvær
vefsíður þar sem safnað er und-
irskriftum til að skora á forseta
Íslands að staðfesta ekki fyr-
irhuguð lög frá Alþingi um
eignarhald á fjölmiðlum.
Á annarri vefsíðunni höfðu
ríflega tvö þúsund manns skráð
sig í gær en á hinni er fjöldi
þátttakenda ekki gefinn upp.
„Vér mótmælum“ stendur
efst á vefsíðunni undirskrift-
.arnists.com, sem Árni Stein-
grímur Sigurðsson setti af stað.
Þar segir í bréfhaus: „Það er
skoðun undirritaðra að gjá sé
milli þings og þjóðar hvað þetta
mál varðar og vísum við því til-
mælum okkar til forseta lýð-
veldisins Íslands að beita mál-
skotsrétti sínum skv. 26. grein
laga nr. 33 frá 1944 (Stjórnar-
skrá lýðveldisins Íslands) og
undirrita ekki lögin þegar þing
afgreiðir þau.“
„Fjölmiðlar eru mikil-
vægur hluti lýðræðis“
Á síðunni www.askorun.is,
sem Fjölmiðlasambandið,
Blaðamannafélag Íslands,
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur, Rafniðnaðarsambandið,
Félag bókagerðarmanna og
fleiri samtök standa að, segir:
„Við undirrituð, íslenskir ríkis-
borgarar, skorum á forseta Ís-
lands að staðfesta ekki lög um
eignarhald á fjölmiðlum.
Fjölmiðlar eru mikilvægur
hluti lýðræðis, menningar og
daglegs lífs.
Lagareglur um starfsum-
hverfi þeirra þurfa að vera
vandaðar og vel undirbúnar, og
almenn sátt þarf að ríkja um
þær í samfélaginu.
Við förum fram á að þjóðin
fái notið þess lýðræðislega rétt-
ar að greiða atkvæði um lögin,
eins og kveðið er á um í 26.
grein stjórnarskrár lýðveldis-
ins.“
Vefsíður
stofnaðar
með áskor-
unum á
forsetann
ÚTIBÚ Landsbankans á Ísafirði
fagnar aldarafmæli í dag og bauð af
því tilefni viðskiptavinum sínum í
gær að skoða breytingar sem gerðar
hafa verið innanhúss í útibúinu og
þiggja kaffiveitingar. Nýttu fjöl-
margir sér tækifærið og heimsóttu
bankann í tilefni dagsins.
Þá hefur verið sett upp sýning í
útibúinu á verkum Jóhannesar Kjar-
vals í eigu bankans og mun Björg-
ólfur Guðmundsson, bankaráðs-
formaður Landsbankans, opna
sýninguna formlega í dag, laugar-
dag.
Í gær var 1.900. fundur bankaráðs
Landsbankans haldinn á Ísafirði og
hefur bankinn ákveðið að styrkja
endurgerð sjómannsstyttunnar á lóð
gamla sjúkrahússins á Ísafirði eftir
Ragnar Kjartansson. Styttan var
gerð að frumkvæði Sjómannadags-
ráðs á Ísafirði og afhjúpuð árið 1974.
Hefur hún þegar verið flutt til
Kunstgiesserei Kollinger í Þýska-
landi og þar gerð afsteypa af henni
úr bronsi undir yfirumsjón Ingu Sig-
ríðar Ragnarsdóttur myndlistar-
konu, sem er dóttir listamannsins og
búsett í Þýskalandi.
Á 1.900. fundi bankaráðs Lands-
bankans sem haldinn var á Ísafirði
voru Brynjólfur Þór Brynjólfsson
útibússtjóri, Sigurjón Árnason,
Kjartan Gunnarsson, Björgólfur
Guðmundsson, Þorgeir Baldursson,
Halldór J. Kristjánsson og Brynjólf-
ur Helgason.
Fjölmargir sóttu
afmæliskaffi
Aldarafmæli Landsbankans á Ísafirði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
SAMNINGANEFNDIR Fé-
lags grunnskólakennara (FG)
og Launanefndar sveitarfélag-
anna (LN) komu saman til
fundar síðastliðinn fimmtudag
hjá ríkissáttasemjara og að
honum loknum var ekki boðað
til næsta fundar fyrr en
þriðjudaginn 25. maí næst-
komandi.
Ekki komið til móts við
kennara í gögnunum
Samninganefnd kennara
hefur sent frá sér stutta grein-
argerð þar sem það er harmað
að í framlögðum gögnum
samninganefndar Launa-
nefndar sveitarfélaganna sé
ekki komið til móts við kröfur
Félags grunnskólakennara í
veigamiklum atriðum.
Þessi atriði snúist um lag-
færingar á núgildandi samn-
ingi og taki m.a. til vinnutíma-
skilgreininga og röðunar til
launa. „Þrátt fyrir yfirlýsingar
um verulegar tilslakanir af
hálfu FG hefur samninga-
nefnd LN lítið sem ekkert
teygt sig í samkomulagsátt,“
segir í greinargerðinni.
Næsti
fundur með
kennurum
25. maí
DANSKI fáninn blakti víða við hún
á Ísafirði í gær vegna brúðkaups
Friðriks krónprins Dana og hinnar
áströlsku Mary Donaldson. Mikil
hátíðarstemmning var í Gamla
bakaríinu sem hin danskættaða
Rut Tryggvason stýrir af mikilli
röggsemi þrátt fyrir að vera kom-
in nokkuð yfir áttrætt. Hún er
fædd og uppalin í Danmörku en
fluttist til Ísafjarðar árið 1950 og
telst því fyrir löngu til rótgróinna
Ísfirðinga þótt danskan sé henni
enn töm.
Það var annríki í bakaríinu þeg-
ar heilsað var upp á Rut og sagði
hún mikla ös hafa verið allan dag-
inn en margir komu til að smakka
á brúðkaupstertunni sem bökuð
var sérstaklega í tilefni dagsins.
Danskir dag-
ar í Gamla
bakaríinu
Morgunblaðið/Guðfinna Hreiðarsdóttir
Ísafirði. Morgunblaðið.