Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 20
ERLENT 20 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ RANGAR staðhæfingar fyrir Íraks- stríðið um vopnaeign Íraka, vaxandi mannfall meðal bandarískra her- manna og nú myndirnar af nið- urlægjandi meðferð á íröskum föng- um gætu orðið til þess að Bandaríkjamenn snerust gegn stríð- inu – og „stríðsforsetanum“ eins og George W. Bush hefur kallað sig. Sérfræðingar í bandarískum stjórnmálum segja að Bush kunni að verða að fyrrverandi forseta EF ekkert lát verður á slæmu fréttunum og EF John Kerry, forsetaefni demókrata, tekst að sannfæra kjós- endur um að óhætt sé að treysta honum fyrir forsetaembættinu. Þeir leggja áherslu á að óvissa er um hvort tveggja. Stuðningurinn við Bush og stríðið í Írak hefur aldrei verið jafnlítill og nú, eftir að dagblöð og sjónvarps- stöðvar tóku að birta myndirnar af yfirgengilegu framferði bandarískra fangavarða í Írak. Framvindan í Írak hefur valdið flestum kjósend- anna vonbrigðum og þeir eru nú í fyrsta skipti klofnir í jafnstórar fylk- ingar í afstöðunni til þess hvort Bush eða Kerry myndi standa sig betur í málefnum Íraks. Allt er þetta ills viti fyrir forsetann. Gallup-könnun fyrir USA Today og CNN bendir hins vegar til þess að fylgi Bush og Kerrys sé nú hníf- jafnt og að mikilvægir kjós- endahópar hafi ekki ákveðið að hafna Bush þrátt fyrir efasemd- irnar. Forsetinn er enn með meira en 10 prósentustiga forskot þegar kjósendurnir eru spurðir hvort hann eða Kerry myndi standa sig betur í baráttunni gegn hryðjuverka- starfsemi. Hefur ekki fært sér vandræði Bush í nyt Sérfræðingar í bandarískum stjórnmálum telja einkum þrennt skýra hvers vegna Bush er ekki í meiri vandræðum:  Kerry er mistækur frambjóð- andi og honum hefur ekki tekist að færa sér í nyt þá ágjöf sem forsetinn hefur fengið. Það litla sem kjósend- urnir vita um forsetaefni demókrata er neikvætt vegna umfangsmikillar auglýsingaherferðar Bush.  Á hættulegum tímum eru kjós- endur varir um sig og tregir til breytinga. Kerry, sem var sæmdur heiðursmerki fyrir framgöngu sína í Víetnamstríðinu, er rétt að byrja að kynna sig fyrir kjósendunum og út- lista stefnu sína í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi.  Þjóðin er klofin, 45% styðja Bush og jafnmargir Kerry. Líklegt þykir að óákveðnir kjósendur geri ekki upp hug sinn fyrr en líða fer að kosningum, þegar þeir vita meira um Kerry, horfurnar í efnahags- málum og framvinduna í Írak. „Þeir þurfa að melta þetta með sér næstu mánuðina. Kjósendurnir segja: við höfum efasemdir um for- setann en við efumst líka um John Kerry,“ sagði Doug Schoen, sem annast skoðanakannanir fyrir demó- krata. Fylgi Bush minnkar í hvert skipti sem Bandaríkjaher verður fyrir miklu áfalli í Írak. Ekkert hefur þó breytt megineinkenni kosningabar- áttunnar: hún er hnífjöfn. Djúpstæður klofningur „Menn geta rétt ímyndað sér hversu mikið af upplýsingum þarf til að repúblikanar snúist gegn Bush,“ sagði Bill McInturff, sem annast skoðanakannanir fyrir repúblikana. „En jafnvel þótt Osama bin Laden verði handtekinn, sem myndi vissu- lega snarauka fylgi Bush í næstu könnunum, er alls ekki víst að demó- kratar snúist á sveif með honum. Það er erfitt að ímynda sér miklar breytingar á kosningabaráttunni þegar klofningurinn er svona mikill og djúpstæður.“ Í Gallup-könnun USA Today og CNN sögðust 46% aðspurðra vera ánægð með frammistöðu Bush en McInturff telur að þetta hlutfall hækki aftur „í 52% um leið og þessu hræðilega fangamáli lýkur“. Hann telur að ef deilurnar um Írak sjatna kunni kjósendurnir að veita því at- hygli að horfur séu á að störfunum í Bandaríkjunum fjölgi um nær 900.000 á árinu. Skoðanakönnunin bendir til þess að 54% kjósendanna telji að það hafi ekki verið þess virði að hefja stríðið í Írak og 44% séu nú þeirrar skoðunar að það hafi verið mistök að senda bandaríska hermenn þangað. Kerry tengi Írak baráttunni gegn hryðjuverkum Yfirgnæfandi meirihluti að- spurðra kvaðst hafa áhyggjur af fangamálinu í Írak en telja að það hafi ekki verið algengt að íraskir fangar hafi sætt misþyrmingum og niðurlægjandi meðferð. Þegar spurt var hverjum fanga- málið væri „að miklu leyti að kenna“ nefndu aðeins 22% aðspurðra Bush og 26% Donald Rumsfeld varn- armálaráðherra. Miklu fleiri nefndu herforingjana sem stjórnuðu fanga- vörðunum (60%) og fangaverðina sjálfa (65%). Fréttaskýrendur segja þó að fangamálið hafi haft mikil áhrif á bandarískan almenning sem hafi fengið það á tilfinninguna að allt sé að fara í handaskolum í Írak. Kerry sé því í góðri aðstöðu til að ná for- skoti á forsetann í skoðanakönn- unum á næstu vikum, að sögn Los Angeles Times. Demókratinn Joe Lockhart, blaðafulltrúi Hvíta hússins í forseta- tíð Bills Clintons, sagði að Kerry ætti að tengja Írak baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi í heiminum. Demókratar hafa lengi hafnað þeirri tengingu en Lockhart segir að hún sé nú þeim í hag þar sem allt hafi farið í handaskolum hjá stjórn Bush í Íraksmálunum. „Kerry er ekki besti frambjóðand- inn sem fyrirfinnst en ég tel ekki að fólk líti á hann og segi: hann skýtur mér skelk í bringu og hefur ekki það sem þarf,“ sagði Lockhart. „Ef þetta er rétt snúast kosningarnar ein- göngu um frammistöðu Bush og hún mun ráða úrslitum – ásamt því sem gerist í landinu.“ Lockhart sagði að núna benti flest til þess að Bush næði ekki endur- kjöri. „En margt getur gerst fyrir kosningarnar.“ Tekst Kerry að færa sér Íraks- málin í nyt? Framganga Bush Bandaríkjaforseta í stríð- inu gegn hryðjuverkastarfsemi var áður álitin stærsta tromp hans fyrir kosning- arnar í nóvember en Írak er nú orðið að Akkilesarhæl sem gæti orðið honum að falli. Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti.John Kerry, forsetaefni demókrata. Washington. AP, Los Angeles Times. ’Kjósendurnir segja:við höfum efasemdir um forsetann en við efumst líka um John Kerry.‘ REYKINGAR verða bannaðar á sænskum krám frá og með 1. júní á næsta ári. Frumvarp þessa efnis var samþykkt á sænska þinginu með 245 atkvæðum gegn 45 á miðvikudag. Bannið nær einnig til veitinga- húsa en gestum þeirra verður þó heimilt að reykja þar í sérstökum herbergjum þar sem veitingar verða bannaðar, að sögn sænska blaðsins Aftonbladet. Sænskir hótel- og veitingahúsa- eigendur höfðu mótmælt banninu en ríkisstjórnin sagði að það snerist ekki síst um hollustuhætti á vinnu- stöðum og hættuna sem starfsmönn- unum stafaði af óbeinum reyking- um. Sænskar krár reyk- lausar FANGAR sem látnir voru lausir úr Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad í gær sögðu ófagrar sögur af vistinni. Hefðu hendur þeirra verið festar við veggi og þeir látnir hanga þannig klukkustundum saman og glottandi bandarískir verðir hefðu niðurlægt þá. Einn fanginn greindi frá því að tveir bandarískir hermenn hefðu haft kynmök fyrir framan sig í sjúkrahússálmu fangelsisins og annar sagðist hafa séð víra tengda við tungu og kynfæri frænda síns sem einnig var fangi. Um 315 fangar voru látnir lausir úr fangelsinu í gær, en í fyrradag heimsótti Donald Rumsfeld, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, Abu Ghraib. Voru fangarnir fluttir í rút- um til ýmissa staða í Írak, en sumir látnir lausir í úthverfum Bagdad. Einn fanganna, Abu Mustafa, 24 ára, ræddi við fréttamenn eftir að hann var látinn laus, og sagði bandaríska hermenn hafa handtekið sig fyrir tíu mánuðum og sakað sig um að vera forsprakki hryðjuverka- samtaka. „Þeir höfðu mig í einangr- un í sex daga. Þeir festu hendurnar á mér við vegg og létu mig hanga þannig í fimm klukkustundir. Einn daginn, þegar ég var á sjúkradeild- inni, kom til mín hermaður og spurði hvort ég væri múslími. Svo hafði hann kynmök við annan her- mann, konu, fyrir framan mig.“ Mohammed Zadian, 45 ára, kvaðst hafa verið í haldi í fjóra mán- uði og hefði einnig verið látinn hanga á höndunum klukkustundum saman og krafinn um játningu á að hafa ráðist á bandaríska hermenn. „Þeir létu mig hafa kassa með mat og létu mig ganga um með hann í marga klukkutíma og ég mátti ekki leggja hann frá mér.“ Mohammed Khazal Al-Moussawi, 31 árs, sem var í haldi í átta mánuði, sagðist hafa verið 117 kíló þegar hann var settur inn, en nú væri hann rúmlega 30 kílóum léttari. „Einn hermaðurinn sagði við fangana að mætti hann ráða yrðu allir Írakar drepnir.“ Hæddust að ættarhöfðingjum Annar fangi, Muthani Mahmoud Salim, 25 ára Bagdadbúi, sagði að Bandaríkjamennirnir hefðu sér- staklega beint spjótum sínum að ættarhöfðingjum sem verið hefðu í haldi. „Þeir klæddu þá í kvenföt og leiddu þá um fangelsið og hermenn- irnir hlógu að þeim.“ Mark Kimmitt hershöfðingi og næstæðsti maður bandaríska her- aflans í Írak sagði að 315 fangar hefðu verið látnir lausir í gær, og eftir viku yrði öðrum hópi sleppt. Hefur hersetuliðið ákveðið að sleppa föngum í því augnamiði að fækka um helming þeim sem eru í haldi í Abu Ghraib, eða í tæplega tvö þúsund manns. Látnir hanga á höndunum klukkustundum saman Reuters Tveir fanganna sem látnir voru lausir í gær faðma ættingja sinn (í miðið) er þeir komu til borgarinnar Baquba. Íraskir fangar sem látnir voru lausir í gær hafa ófagrar sögur að segja Abu Ghraib. AFP. ’Einn hermaðurinnsagði við fangana að mætti hann ráða yrðu allir Írakar drepnir.‘ MAXINE Carr, 27 ára breskri konu sem dæmd var í fangelsi í tengslum við morð á tveimur 10 ára gömlum stúlkum árið 2002, var sleppt úr haldi í gær. Í fyrradag fengu lögmenn hennar sett lögbann á að fjölmiðlar birtu hvers konar upplýsingar um Carr eftir að hún hefur fengið frelsið, þar á meðal hvort hún skipti um nafn, gengist undir læknismeðferð og einnig var lagt bann við að teknar væru af henni myndir og birtar. Carr var sambýliskona Ians Huntleys. Hann var í fyrra fundinn sekur um að hafa myrt stúlkurnar tvær. Carr var hins vegar dæmd í 3½ árs fangelsi fyrir að hindra fram- gang réttvísinnar með því að segja lögreglu ósatt. Carr látin laus Lundúnum. AFP. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.