Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 48
MINNINGAR
48 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ingibjörg Svein-björnsdóttir,
Inga á Eyri eins og
hún var oftast köll-
uð, var fædd á Vest-
dalseyri í Seyðisfirði
10. nóvember 1917.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnuninni á
Siglufirði 7. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Oddfríður Ottadóttir
húsmóðir og verka-
kona, f. 27. júlí 1882
á Kúludalsá í Innri-
Akraneshreppi, d.
30. september 1961, og Sveinbjörn
Árni Ingimundarson sjó- og verka-
maður, f. 26. desember 1878 á
Tungubakka í A-Húnavatnssýslu,
d. 4. ágúst 1956. Systkini Ingi-
bjargar eru: Hallfríður Jóna
Lindhart, hálfsystir, f. 8. desem-
ber, bjó í Danmörku, látin; Svava,
f. 25. október 1908, d. 15. desem-
ber 1983, var búsett á Seyðisfirði;
Sveinn Jóhann, f. 22. september
1910, drukknaði við heyflutninga í
Seyðisfirði 23. september 1930;
Guðrún Ásta, f. 31. október 1911,
d. 9. júní 2002, var búsett á Seyð-
isfirði; Ingi Vilberg, f. 29. apríl
1913, d. 12. júlí sama ár. Daníel f.
15. júlí 1914, d. 5. október sama ár;
Ingvi Hrafn, f. 1. júlí 1915, drukkn-
aði með bræðrum sínum 23. sept-
18. nóvember 1953, kvæntur Álf-
heiði Heiðar Sigurjónsdóttur, f.
1952, börn þeirra eru Ólafur
Smári, f. 1970, Jón Ingi, f. 1974,
Ægir Kristinn, f. 1979. 5) Oddfríð-
ur, f. 27. júlí 1955, gift Sigfúsi
Tómassyni, f. 1950, börn þeirra
eru Sigríður Gréta, f. 1978, Aðal-
heiður, f. 1984, og Herbert Ingi, f.
1990. Langömmubörnin eru 17
talsins.
Ingibjörg ólst upp á Vestdals-
eyrinni, og fluttist með fjölskyld-
unni inn í kaupstaðinn skömmu
eftir að bræður hennar drukkn-
uðu. Er hún var nokkurra ára var
hún smátíma í fóstri hjá þeim hjón-
um Láru Bjarnadóttur frá Hvann-
eyri í Siglufirði og Gísla Lárus-
syni, en fór svo aftur til foreldra
sinna.
Ung að árum fór hún til Reykja-
víkur og starfaði þar á Hótel
Heklu og einnig aðstoðaði hún
móðursystur sína Pálínu Ottadótt-
ur við verslun þá er hún rak á
Baldursgötu 36 í Reykjavík og eins
við heimilisstörf.
Fyrir sunnan kynntist hún eig-
inmanni sínum og fluttust þau til
Siglufjarðar, festu þar kaup á hús-
eigninni við Hvanneyrarbraut 28b
og bjuggu þar allan sinn búskap.
Ingibjörg vann við ýmis störf
með húsmóðurstarfinu, við síldar-
söltun og fiskvinnslu. Ingibjörg
tók virkan þátt í félagslífi á Siglu-
firði. Hún var félagi í Slysavarna-
félaginu Vörn á Siglufirði og var
kjörin heiðursfélagi 1992.
Útför Ingibjargar verður gerð
frá Siglufjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
ember 1930, Ingi-
mundur, f. 4. nóvem-
ber 1916, drukknaði
með bræðrum sínum
23. september 1930;
Otti Vilbergur, f. 20.
júlí 1920, búsettur á
Seyðisfirði.
Ingibjörg eignaðist
soninn Ingva Jóhann
Svavarsson, f. 26. jan-
úar 1934, kvæntur
Huldu Halldóru Gunn-
þórsdóttur, f. 1935,
börn þeirra eru Katr-
ín Dagmar, f. 1958,
Oddfríður Lára, f.
1961, Hjördís Hrund, f. 1965,
Gunnþór Björn, f. 1968.
Hinn 6. desember 1942 kvæntist
Ingibjörg Jóni Sigurðssyni frá
Eyri á Siglufirði, f. 17. júní 1914, d.
12. janúar 1982. Ingibjörg og Jón
eignuðust fimm börn. Þau eru: 1)
Sigurður, f. 17. ágúst 1946, kvænt-
ur Sigrúnu Ólafsdóttur, f. 1942, og
á hann eina fósturdóttur, Ólöfu
Ingimundardóttur, f. 1964. 2)
Sveinbjörn, f. 14. maí 1948, kvænt-
ur Björgu Hjartardóttur, börn
þeirra eru Ingibjörg, f. 1971, Jón
Hjörtur, f. 1972, og Unnþór, f.
1974. 3) Skúli, f. 11. janúar 1951,
kvæntur Þórunni Kristinsdóttur, f.
1960, börn þeirra eru Bára Krist-
ín, f. 1980, Sigurður Davíð, f. 1990,
og Eyrún Sif, f. 1991. 4) Sævar, f.
Elsku amma. Það kemur svo
margt upp í hugann þegar við eigum
að skrifa um þig. Elsku amma, þú
varst í alla staði svo frábær, alltaf
svo hress, skemmtileg. Þér fannst
svo gaman þegar við systurnar kom-
um í heimsókn til þín og okkur leidd-
ist aldrei hjá þér. Þú sparaðir ekkert
og dekraðir við okkur alveg upp fyrir
haus. Eins og hún mamma sagði allt-
af, að Sirra kæmi hálf vaggandi heim
eftir að hafa fengið vel að borða hjá
ömmu sinni.
Eitt það minnisstæðasta úr heim-
sóknum okkar til þín var að við feng-
um alltaf að draga spil með númer-
um á til þess að velja lottótölurnar á
laugardögum og það fannst okkur al-
veg svakalega spennandi. Alltaf þeg-
ar við komum til þín þá beiðst þú allt-
af fyrir utan húsið og tókst á móti
okkur brosandi og veifandi.
En svo varðst þú svo veik og búin
að vera á spítala svo lengi og synd að
Herbert fékk ekki að kynnast þér
meðan þú varst hress. Þú sem varst
alltaf svo hress og dugleg að þetta
var ekki sanngjarnt. En þú hefur alla
tíð verið dugleg og harkað allt af þér
en núna varstu orðin þreytt og loks-
ins fékkstu að hvíla þig. Eins sárt og
þetta er þá erum við innst inni fegin
að núna hefur þú loksins fengið þína
hvíld. Við trúum því að þér líði mjög
vel þar sem þú ert núna og afi hefur
tekið fagnandi á móti þér.
Sigríður Gréta,
Aðalheiður og Herbert.
Mig langar með þessum fátæklegu
orðum að minnast móðursystur
minnar Ingibjargar Sveinbjörns-
dóttur, sem lést á Heilbrigðis-
stofnuninni á Siglufirði 7. maí s.l. Við
frændfólkið hennar hér á Seyðisfirði
minnumst hennar ætíð sem ,,Böggu
frænku“. Þótt hún flyttist ung að ár-
um úr heimahögunum hafði hún allt-
af mikið samband við ættingjana og
kom oft í heimsókn á æskuslóðirnar
og eins var farið í heimsókn til henn-
ar á Siglufjörð. Eftir að Bögga hitti
eiginmann sinn, Jón Sigurðsson,
sem var frá Siglufirði, fluttist hún
þangað með honum.
Hún var kraftmikil kona og mesti
dugnaðarforkur og lá ekki á liði sínu,
að hvaða starfi sem hún gekk, enda
eftirsótt til vinnu og ótrúlega af-
kastamikil.
Þau hjónin eignuðust myndarleg-
an barnahóp sem allur er hið mesta
dugnaðarfólk. Það var oft í mörg
horn að líta þegar eiginmaðurinn var
á sjónum, nóg var að starfa með stórt
heimili sem hún annaðist af mikilli
natni og myndarskap. Það var ætíð
mikill gestagangur á heimilinu, enda
glaðværð og gestrisni í fyrirrúmi hjá
þeim hjónum. Það var gott að koma á
Hvanneyrarbraut 28 b til Ingu og
Jóns á Eyri, eins og þau voru kölluð
á Siglufirði. Þar var alltaf nóg pláss
fyrir gesti og gangandi, því þótt ekki
væri húsrýmið mikið var nóg af
hjartarúmi.
Það var mikið áfall þegar frænka
mín veiktist fyrir 11 árum og þurfti
aðstoðar annarra, hún sem ávallt var
til taks að hjálpa öðrum ef á þurfti að
halda.
Nú hefur hún fengið líkn frá
þrautum og stefnt á æðri leiðir.
Ég bið börnum hennar og fjöl-
skyldum blessunar Guðs og kveð
kæra frænku mína með þakklæti og
söknuði í huga, bið henni góðrar
heimkomu á eilífðarströnd.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald,
hinum megin birtan er.
Höndin sem þig hingað leiddi
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(S. Kr. Pétursson.)
Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir.
INGIBJÖRG SVEIN-
BJÖRNSDÓTTIR
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGA HELMA ÞORGRÍMSDÓTTIR
(Elba),
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 8. maí.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey föstudaginn
14. maí að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi og deild A-7 á Landspítalanum Fossvogi.
Olga Ellen Einarsdóttir, Þorleifur Jóhannsson,
Ólafur Einarsson, Kaarina Rossi Einarsson,
Jóhanna Stefanía Einarsdóttir, Guðfinnur Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir okkar og mágkona,
STEFANÍA UNA PÉTURSDÓTTIR,
Austurbrún 6,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans fimmtu-
daginn 6. maí.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mánu-
daginn 17. maí kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Blindrafélagið.
Bogi Pétursson, Margrét Magnúsdóttir,
Jóna Vilborg Pétursdóttir,
Guðlaug Pétursdóttir,
Stefán Pétursson, Kristbjörg Magnúsdóttir,
Jón Pétur Pétursson,
Sigurlína Pétursdóttir, Eyvindur Pétursson,
Halldór Pétursson, Bryndís Björnsdóttir,
Ingi Kristján Pétursson,
Þorsteinn Pétursson, Snjólaug Aðalsteinsdóttir.
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
Veljið fallegan legstein
Vönduð vinna og frágangur
Sendum myndalista
Legsteinar
Systir okkar,
INGIBJÖRG M. ÞÓRHALLSDÓTTIR,
Garðsenda 12,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi fimmtudaginn 13. maí.
Ólafur Þórhallsson,
Eggert Þórhallsson,
Jakob Þórhallsson,
Stefán Þórhallsson,
Björn Þórhallsson
og aðrir vandamenn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BERNÓDUS HALLDÓRSSON,
lést á Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur
fimmtudaginn 13. maí.
Erla Bernódusdóttir, Ágúst Sigurðsson,
Halldór Bernódusson, Kristín Gissurardóttir,
Guðmundur Bernódusson, Sigríður Halldóra Hannibalsdóttir,
Halldóra H. Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar hjartkæra,
SVEINBORG J. KRISTJÁNSDÓTTIR
(Bogga),
Hringbraut 50,
Reykjavík,
lést á elliheimilinu Grund miðvikudaginn
12. maí sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 24. maí kl. 13.30.
Rafn Kristjánsson, Guðríður Gísladóttir,
Ingibjörg Rafnsdóttir,
Magnús Rafnsson, Arnlín Óladóttir,
Sigríður Rafnsdóttir, Rafn Jónsson,
Auður Rafnsdóttir, James Bett,
Hjördís Rafnsdóttir
og fjölskyldur.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minningar-
greina