Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ● LÍF hf. var rekið með 36 milljóna króna tapi á fyrsta fjórðungi ársins. Í fyrra var hagnaðurinn 42 milljónir. Neikvæð þróun fjármagnsliða réð mestu um umskiptin, en 59 milljóna fjármagnstekjur í fyrra snerust yfir í 46 milljóna fjármagnsgjöld í ár. Velta félagsins jókst um 6% milli ára og nam 2,1 milljarði. Handbært fé frá rekstri jókst mikið og nam 207 milljónum. Í afkomutilkynningu félagsins seg- ir að niðurfærsla skammtímakrafna hafi verið aukin um 41 milljón króna milli ára vegna matsbreytinga. Nið- urfærslan sé byggð á mati á taps- áhættu einstakra krafna. Líf rekið með tapi SIGURÐUR Skagfjörð Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Hertz á Íslandi, bílaleigu Flug- leiða. Hann hefur tekið við af Hjálmari Péturs- syni. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morg- unblaðsins komu þessi skipti til með snöggum hætti. Samkvæmt til- kynningu frá Flugleiðum hefur Sigurður starfað hjá félaginu frá árinu 1985, fyrst sem sölustjóri í Kaupmannahöfn og síð- ast sem svæðisstjóri félagsins á Ís- landi og í Bretlandi. Undanfarin ár hefur hann verið forstöðumaður far- þegaþjónustu Icelandair. Framkvæmda- stjóraskipti hjá Hertz Sigurður Skag- fjörð Sigurðsson MEDCARE Flaga og Hagvangur voru valin Fyrirtæki ársins 2004 í könnun sem VR stóð fyrir. Medcare Flaga vann í hópi stærri fyrirtækja, þar sem starfa 50 eða fleiri, en var í þriðja sæti í fyrra. Sorpa var í öðru sæti stærri fyr- irtækja og Línuhönnun í því þriðja. Hagvangur vann í hópi minni fyr- irtækja með færri starfsmenn en 50 en fyrirtækið var í þriðja sætinu í fyrra eins og Medcare Flaga. Fyr- irtækið Árdegi sem rekur versl- anirnar Noa Noa og Next var í öðru sæti í hópi minni fyrirtækja og í þriðja sæti var fyrirtækið Heilsa, sem var í öðru sæti í fyrra. Í tilkynningu frá VR segir að há- stökkvarinn í könnuninni á þessu ári í hópi minni fyrirtækja, þ.e. fyr- irtæki sem bættu sig mest á milli ára, sé Merkúr, sem hafði í fyrra 1% fyrirtækja fyrir neðan sig en hefur í dag 82% fyrirtækja fyrir neðan sig. Í hópi stærri fyrirtækja er Hekla hástökkvarinn, hafði 24% fyrirtækja fyrir aftan sig í fyrra en 56% nú. VR hefur undanfarin átta ár val- ið Fyrirtæki ársins. Valið byggist á könnun meðal starfsmanna en þeir gefa fyrirtækjum sínum einkunnir fyrir átta þætti í starfsumhverfi sínu; trúverðugleika stjórnenda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigj- anleika vinnu, sjálfstæði í starfi, álag og kröfur, stolt af fyrirtæki og starfsanda. Alls voru 15.334 manns í úrtak- inu. Svör bárust frá 6.430 starfs- mönnum 1.119 fyrirtækja og var svarhlutfall 42%. Medcare Flaga og Hagvangur eru fremst Fyrirtæki ársins 2004 ● HAGNAÐUR Síldarvinnslunnar dróst saman um 38% milli ára og nam 360 milljónum króna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Rekstrartekjur drógust saman um 7% milli ára en hagnaður fyrir afskriftir og fjármagns- liði, EBITDA, jókst um 44% og nam 949 milljónum króna. Fjármagnsliðir versnuðu verulega, fóru úr 329 milljóna fjármagnstekjum í 175 milljóna fjármagnsgjöld, og réðu því mestu um að hagnaður dróst saman milli ára þrátt fyrir aukinn hagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Síldarvinnslan var færð á athug- unarlista Kauphallarinnar í byrjun mánaðarins en hluthafasamkomulag stærstu hluthafanna leiddi til yfirtöku- skyldu gagnvart öðrum hluthöfum. Minni hagnaður hjá Síldarvinnslunni ÞETTA HELST … VIÐSKIPTI HAGNAÐUR samstæðu Trygginga- miðstöðvarinnar hf. (TM) á fyrstu þremur mánuðum þessa árs nam 1.093 milljónum króna eftir skatta, en var 160 milljónir á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu frá félaginu segir að meginskýringin á auknum hagn- aði sé óvenjumikill hagnaður af sölu hlutabréfa á tímabilinu, eða 1.468 milljónir samanborið við 20 milljónir fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður af fjármálarekstri er 640 milljónir í ár en var 107 milljónir árið áður. Þá er hagnaður af vátrygg- ingarekstri á tímabilinu 739 milljónir en var 120 milljónir á fyrsta fjórð- ungi ársins 2003. Segir í tilkynningu TM að meginástæðan fyrir góðum hagnaði af vátryggingarekstri séu miklar reiknaðar fjárfestingartekjur sem megi rekja til óvenjumikils sölu- hagnaðar af hlutabréfum í eigu fé- lagsins. Stór hluti þess söluhagnaðar reiknist sem tekjur í vátrygginga- rekstrinum. Fram kemur í tilkynn- ingunni að það sé mat stjórnenda TM að hagnaður ársins 2004 eftir skatt verði á bilinu 1.400 til 1.500 milljónir króna. TM hagnast um 1.093 milljónir                    !"   "# $ # % & #  '##%  (  HAGNAÐUR Opinna kerfa Group á fyrsta fjórðungi ársins 2004 nam 58 milljónum króna eftir skatta. Á sama tímabili á síðasta ári var tap félags- ins 39 milljónir. Heildarvelta félagsins var 3.675 milljónir króna á tímabilinu, sem er 62% aukning frá sama tímabili í fyrra. Aukningin er tilkomin bæði vegna innri vaxtar og breytinga á samsetningu samstæðunnar. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 161 milljón króna á þessu ári samanborið við 115 millj- ónir króna í fyrra og batnaði því um 40% milli ára. Í tilkynningu frá Opnum kerfum Group segir að hagræðing af samein- ingu félaganna í Svíþjóð sé ekki að fullu komin fram en gert sé ráð fyrir að hún muni skila sér á síðasta árs- fjórðungi þessa árs. Betri afkoma hjá Opnum kerfum )     & *    $  +$  ,-.$- !"   "# $ # % /' /  &/ # #&' (  ● KB BANKI hefur gefið út 600 millj- óna evra skuldabréf, jafnvirði um 53 milljarða króna. Skuldabréfin eru til 5 ára og er þetta stærsta og lengsta skuldabréfaútgáfa bankans til þessa. Kristín Péturs- dóttir, fram- kvæmdastjóri fjárstýringar hjá KB banka, segir útgáfuna hafa gengið mjög vel og að vaxtakjör séu góð. Hún segir megintilgang útgáfunnar að lengja í fjármögnun bankans. Þetta sé fyrsta 5 ára útgáfa hans og verði hún m.a. notuð til að endurfjármagna skemmri lán en einnig til að stækka og víkka fjárfestahópinn og það hafi tekist. Kaupendur skuldabréfanna séu 55 frá 19 löndum. Skuldabréfin eru gefin út undir EMTN-lánaramma bankans og skráð í kauphöllinni í Lúxemborg. Stærsta og lengsta útgáfa KB banka dótturfélögum samstæðunnar og í millilandaflugi Icelandair, þar sem meðalfargjöld lækki umtalsvert milli ára líkt og hjá flestum alþjóðlegum flugfélögum. Félagið hafi náð að vinna þetta upp með auknum flutn- ingum og bættri sætanýtingu. Á kynningarfundi vegna uppgjörs- ins sagði Sigurður að gert væri ráð fyrir að öll dótturfélög Flugleiða yrðu rekin með hagnaði í ár og að gert væri ráð fyrir þokkalegri afkomu samstæðunnar á árinu. Tekjur hækkuðu um 14% Á kynningarfundinum kom fram í máli Sigurðar að horfur í áætlunar- flugi Icelandair hafi versnað vegna mikillar hækkunar olíuverðs undan- farið því að hækkunin hafi aukið kostnað verulega. Varnir gegn elds- neytishækkunum séu tiltölulega litl- ar hjá félaginu, en það sé ágætlega varið gagnvart vaxta- og gjaldeyris- áhættu. Sigurður sagði einhver flug- félög farin að leggja sérstakt elds- neytisgjald á farmiðana og hann TAP Flugleiða dróst saman um þriðj- ung og nam 893 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins. Tap fyrir skatta dróst saman um svipað hlutfall og nam 1.086 milljónum króna. Á þessum árstíma er jafnan tap af rekstri félagsins, en í afkomutilkynn- ingu þess segir að afkoman fyrir skatta hafi ekki verið betri í fimm ár. Þar segir einnig að af 559 milljóna króna rekstrarbata fyrir skatta séu 260 milljónir króna raktar til hagn- aðar af kaupum og sölu á hlutabréf- um í Eimskipafélaginu. Um 160 millj- óna króna söluhagnaður vegna sömu hlutabréfa verði færður til tekna á öðrum fjórðungi. Mega mjög vel við una Í tilkynningunni er haft eftir Sig- urði Helgasyni, forstjóra Flugleiða, að hann teldi félagið mega mjög vel við una. Reksturinn hafi styrkst milli ára og félagið njóti þess nú augljós- lega að vera í fjölþættri starfsemi. Tekist hafi að ná góðum tökum á flestum rekstrarþáttum í þrettán sagði að það gæti verið að til þess kæmi að Flugleiðir legðu á slíkt gjald. Steinn Logi Björnsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, bætti því við að viðbrögð- in við olíuverðshækkuninni réðust meðal annars af því hvað aðrir á markaðnum gerðu. Rekstrartekjur Flugleiða voru 7,2 milljarðar króna á fyrsta fjórðungi ársins og hækkuðu um 14% milli ára. Gjöldin hækkuðu um 11% og tap fyrir fjármagnsliði dróst saman um 4% og nam rúmum 1,2 milljörðum króna. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 156 milljónir króna en í fyrra voru þeir neikvæðir um 345 milljónir króna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Olíugjald Hugsanlegt er að félagið bregðist við hækkuðu olíuverði með því að leggja sérstakt olíugjald á farmiða. Tap Flugleiða minnkar 0    * %/       !   !"   "# $ # % * &%/  # & % * '& *' (  Besta afkoma félagsins í fimm ár CO-OPERATIVE Group (Co-op) er að hugleiða að bjóða 66 milljónir punda (8,5 milljarða króna) í mat- vöruverslanakeðjuna Londis, að því er segir í The Times, og yfirbjóða þannig írska keppinautinn Musgrave, sem hefur boðið 60 milljónir punda í Londis. Þetta mun hafa komið fram í bréfi sem Londis sendi til hluthafa sinna þar sem sagði að félagið hefði skilað tapi á síðasta ári vegna 8 milljóna punda (1 milljarðs króna) kostnaðar af sölumeðferð félagsins og starfs- lokagreiðslum fyrrum stjórnenda. Sjö af þessum átta milljónum punda voru vegna samninganna við stjórnendur. Vörusala Londis jókst um 1% frá fyrra ári en tap af rekstrinum nam 3,9 milljónum punda (500 milljónum króna) en árið áður varð 3,8 milljóna punda hagnaður. Stjórnin mælti með Musgrave Í sl. mánuði mælti stjórn Londis með tilboði Musgrave í keðjuna við eigendur hennar. Viðurkenndi stjórn- in að ekki væri um besta verðtilboðið að ræða en að miklu máli skipti hversu líkur bakgrunnur Musgrave og Londis er, þ.e. fjölskyldufyrirtæki í grunninn með sjálfstæða smásala undir sínum merkjum. Big Food Group, sem er að fimmt- ungi í eigu Baugs Group, hefur líka verið á höttunum eftir Londis-keðj- unni og segist munu nálgast hluthafa Londis beint með tilboði, þrátt fyrir að stjórn Londis hafi þegar mælt með tilboði Musgrave. En venjan er sú í Bretlandi að leggja tilboð til kaupa á fyrirtæki fyrir stjórn þess og stjórnin mælir með tilboðunum við hluthafa eða mælir á móti þeim. Co-op íhugar að bjóða betur í Londis Eftirsótt Enn er bitist á um yfirráð yfir Londis-keðjunni. Ætlar að yfir- bjóða Musgrave ● MISMUNANDI mat á aukningu í fjár- festingu hér á landi er meginskýringin á þeim mismun sem er á nýlegum þjóðhagsspám fjármálaráðuneytisins annars vegar og OECD hins vegar. Þetta kemur fram í Vefriti fjár- málaráðuneytisins. Segir í Vefritinu að spá OECD sé nokkuð eldri en spá ráðuneytisins þótt hún hafi borist seinna. Gerð slíkra spáa byggi á þeim upplýsingum sem aðgengilegar séu á hverjum tíma, sem breytist frá degi til dags. Á grundvelli slíkra upplýsinga og með aðstoð reiknilíkana fari síðan fram faglegt mat á líklegustu framvindu helstu efnahagsstærða. Í þjóðhagsspá OECD er 3,8% hag- vexti hér á landi á þessu ári og 4,8% á því næsta. Fjármálaráðuneytið gerir hins vegar ráð fyrir því að hagvöxt- urinn verði 4½% á þessu ári og 5% á árinu 2005. Þá spáir OECD því að verðbólga hér á landi á næsta ári verði 3,5% en fjármálaráðuneytið ger- ir hins vegar ráð fyrir 3% verðbólgu. Mismunandi mat á fjárfestingu ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.