Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hafnarfjörður | Í gær var haldið
unglingaþing í íþróttahúsinu Álfa-
felli í Hafnarfirði undir heitinu
„Unglingabylting 2004“. Á þingið
komu hundrað og tíu „þingmenn“
úr öllum skólum bæjarins og var
þar rætt um málefni sem brenna á
hafnfirskum unglingum. Unga fólk-
ið setti á þinginu fram fjölda til-
lagna til að bæta það starf sem unn-
ið er fyrir það, en þingið fór fram
undir handleiðslu starfsmanna fé-
lagsmiðstöðva og lýðræðis og jafn-
réttisfulltrúa, sem leiðbeindu unga
fólkinu í umræðum og starfi, en
leyfðu þó hugmyndum unga fólksins
að njóta sín að fullu.
Í upphafi unglingaþingsins ávarp-
aði Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
unglingana og sló ábyrgan tón þeg-
ar hann hóf ræðu sína á „Ágætu
þingmenn“. Sagði hann bæjarstjórn
bíða í ofvæni niðurstaðna þingsins,
til að skilja betur hvernig hægt
væri að bæta þjónustu við þessa oft
misskildu þjóðfélagsþegna. Ung-
lingarnir kunnu vel að meta þessa
virðulegu byrjun, tóku Lúðvík á
orðinu og hófu strax öfluga vinnu.
Ungmennaráð í haust
Þingmönnum var skipt upp í átta
vinnuhópa sem tóku á hinum ýmsu
málum, allt frá skipulags- og um-
hverfismálum í félagsmál, nám, fé-
lagsmiðstöðvar, menningarmál,
íþróttir og tómstundir, vinnuskól-
ann og forvarnastarf. Eftir öflugt
starf komu fram mjög margar hug-
myndir til úrbóta í öllum flokkum.
Til dæmis vildu unglingar fjölga
ruslatunnum til að minnka líkur á
því að fólk hendi rusli á götuna,
lækka strætógjöld, fleiri skóla-
ferðalög, meiri samskipti milli
ólíkra skóla og ólíkra félagsmið-
stöðva, sameiginlega félagsmiðstöð,
aukna tónlistarkennslu, aðstöðu fyr-
ir hljómsveitir, betri fótboltavelli,
ódýrari strætisvagna, meiri vinnu
og betri laun í sumarvinnunni og
námskeið um fjármál. Þá voru ung-
lingarnir áhugasamir um að fé-
lagsmiðstöðvar væru opnar á sumr-
in og seint á kvöldin, því þá væri
einmitt þörfin mikil fyrir traustan
stað til að koma á. Sumaropnun fé-
lagsmiðstöðva þýddi þannig öflugra
forvarnastarf.
Jóhanna Fleckenstein, einn af
skipuleggjendum unglingaþingsins,
var himinlifandi með frammistöðu
unga fólksins. „Það komu tveir
fulltrúar frá hverri bekkjardeild og
þeir voru kosnir með lýðræðislegum
hætti. Það var í rauninni frábær
mæting, bara örfáir sem forföll-
uðust,“ segir Jóhanna, sem starfar í
félagsmiðstöðinni Hrauni í Víð-
istaðaskóla. Undir þetta tekur Elfa
Stefánsdóttir, starfsmaður fé-
lagsmiðstöðvarinnar Öldunnar sem
starfrækt er í Öldutúnsskóla.
„Krakkarnir skildu vel að þetta var
gott tækifæri fyrir þau og þau nýttu
sér það vel.“
Unglingaþingið er búið að vera í
undirbúningi í þrjár vikur. „Þetta er
búið að vera draumur síðan við
heyrðum af ungmennaráðinu í
Reykjavík,“ segir Jóhanna. „Nú í
haust tekur svo til starfa ungmenn-
aráð Hafnarfjarðar, sem skipað er
tveimur fulltrúum úr hverjum
grunnskóla hér í Hafnarfirði.“
Læst inni í listaverkum
Jóhanna segir unga fólkið hafa
sýnt mikinn kjark og þroska og
ólíklegustu fulltrúar komið í pontu
og kynnt tillögur. Þá segir hún flór-
una af krökkum hafa verið afar fjöl-
breytta. „Þetta voru ekki bara ein-
hverjir stjörnukrakkar með háar
einkunnir, þarna komu krakkar úr
öllum áttum og starfið einkenndist
af virkni og jákvæðni,“ segir Jó-
hanna. Hún segir ekki flókið að
uppfylla margar þarfir unga fólks-
ins. „Það þarf oft ekki mikla pen-
inga og viljinn er líka fyrir hendi
hjá öllu starfsfólki félagsmiðstöðv-
anna.“
Jóhanna og Elfa segja eitt atriði
hafa staðið upp úr hjá unga fólkinu,
en margir þingmenn kvörtuðu yfir
því að vera „fastir í listaverkum“.
Þannig væri allt of mikið lagt upp
úr flottum arkitektúr sem ekkert
mætti gera við og hefði ekkert nota-
gildi. „Krakkarnir mega ekki einu
sinni færa billjardborð eða hengja
upp myndir án þess að biðja um
leyfi frá arkitektum eða afkom-
endum þeirra, það samræmist ekki
hugmyndinni um rými fyrir ungt
fólk að vinna í. Þau sögðu að það
þyrfti að eyða minni pening í steypu
og listaverk, allt of mikill peningur
færi í útlit bygginga.“
Ódýrara í strætó
og styttra skólaár
Þær Erna Oddný Gísladóttir og
Guðrún Emilsdóttir, í 8. bekk Set-
bergsskóla, voru afar ánægðar með
unglingaþingið. „Þetta heppnaðist
ofsalega vel, miklu betur en við átt-
um von á,“ segir Erna Oddný og
Guðrún tekur undir orð hennar.
„Þetta verður sent í nefndir og bæj-
arstjórn og við eigum líka að kynna
þetta fyrir bekkjum okkar og ræða
þetta.“ Stúlkunum þótti afar snið-
ugt að fá tækifæri til að tjá sig um
málefni unga fólksins. „Svo kom
fólk frá Kvennó, MH og ungmenn-
aráði Reykjavíkur og talaði við okk-
ur og vann með okkur.“ Stúlkurnar
eru sammála því sem fram kom að
ódýrara þyrfti að vera í strætó og
að lengt skólaár í grunnskólanum
væri ekki það sem koma skyldi.
„Okkur finnst allt of dýrt í strætó,
ef við erum fjórar á leiðinni í sund
er í raun ódýrara að taka leigubíl í
sundlaugina.
Svo er ekkert að gera eftir prófin,
bara einhverjir þemadagar þegar
krakkarnir gera ekki neitt. Það er
sóun á sumrinu. Við höngum bara
inni þegar við gætum verið í sundi,“
segir Guðrún og bætir við að krakk-
ar hafi samið ljóð á þemadögunum
sem fjallaði um vorið. „Á vorin þeg-
ar blómin blómstra og fuglarnir
syngja, hvar eru unglingarnir? Þeir
eru bara súrir inni í kennslustofum
á þemadögum.“
Í gærkvöld þustu síðan ungling-
arnir á ball með hljómsveitunum
Brain Police og Skítamóral til að
fagna próflokum og halda upp á
fyrsta unglingaþingið. Það var, að
sögn aðstandenda, sannkölluð
uppskeruhátíð „Unglingabylting-
arinnar 2004“.
110 unglingar þinga um málefni ungu kynslóðarinnar í Hafnarfirði á „Unglingabyltingu 2004“
Morgunblaðið/Ásdís
Ungir þingmenn: Unglingarnir hafnfirsku nutu þess vel að geta sett fram sínar eigin hugmyndir.
Hlustað á
unga fólkið
Mosfellsbær | Nemendur í sjötta
bekk Varmárskóla áttu á dögunum
fjarfund við nemendur í fimmta bekk
í grunnskóla í borginni Brugge í
Belgíu. Samræðurnar fóru fram með
aðstoð spjallforritsins MSN Mess-
enger, en báðir bekkirnir voru með
vefmyndavél, þar sem börnin gátu
fylgst með hvort öðru og séð síðan
spjallið á skjávarpa. Að sögn Guð-
rúnar Markúsdóttur, kennara við
skólann, var þessi uppákoma stór-
kostleg og tæknin frábær, en belg-
íski skólastjórinn færði Viktori Guð-
laugssyni, skólastjóra Varmárskóla,
vefmyndavélina að gjöf þegar kenn-
arar frá Brugge heimsóttu Varmárs-
kóla vorið 2003.
„Þau voru að spjalla um áhuga-
málin, veðrið, skólann, ferðalög og
fleira. Allir höfðu mjög gaman af
þessari uppákomu,“ segir Guðrún.
Krakkar í þremur bekkjum í
Varmárskóla taka nú þátt í Comení-
usarsamstarfi sem kallast „Byggjum
brýr“ ásamt nemendum frá Belgíu,
Ítalíu og Portúgal. „Í vetur höfum
við sem vinnum að þessu evrópska
samstarfsverkefni verið að kynna
listamenn frá löndunum fjórum“
segir Guðrún. „Við kynntumst
James Ensor frá Belgíu, Louísu
Matthíasdóttur frá Íslandi, Julio
Resende frá Portúgal og núna er að
fara af stað kynning á ítölskum lista-
manni sem hét Gino Severini.“
Alls taka 68 nemendur þátt í verk-
efninu.
Fjarfundur í Varmárskóla
Áhuginn skein úr augum nemendanna.
Byggja saman brýr
milli ólíkra landa
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111