Morgunblaðið - 15.05.2004, Síða 29
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 29
Húsbréf
Fertugasti og sjöundi útdráttur
í 3. flokki húsbréfa 1991
Innlausnardagur 15. júlí 2004
1.000.000 kr. bréf
500.000 kr. bréf
100.000 kr. bréf
10.000 kr. bréf
(3. útdráttur, 15/07 1993)
10.000 kr. Innlausnarverð 11.379,- 91376753
(4. útdráttur, 15/10 1993)
10.000 kr. Innlausnarverð 11.746,- 91376747
10.000 kr. Innlausnarverð 12.341,-
(8. útdráttur, 15/10 1994)
10.000 kr. Innlausnarverð 12.596,- 91376754
91376755
(7. útdráttur, 15/07 1994)
10.000 kr. Innlausnarverð 14.101,- 91377390
(14. útdráttur, 15/04 1996)
91310006
91310100
91310229
91310286
91310420
91310503
91310707
91310911
91310982
91311014
91311061
91311496
91311562
91311583
91311641
91311796
91311852
91311930
91311946
91312031
91320004
91320030
91320031
91320091
91320166
91320518
91320532
91320828
91320878
91321040
91370085
91370185
91370218
91370294
91370608
91370609
91370686
91370699
91370810
91371144
91371171
91371222
91371464
91371468
91371565
91371819
91371993
91372188
91372207
91372297
91372484
91372502
91372540
91372902
91373049
91373057
91373070
91373085
91373183
91373526
91373985
91374160
91374315
91374425
91374496
91374887
91375538
91375678
91375683
91375870
91376208
91376236
91377281
91377322
91377323
91377464
91377480
91377749
91377832
91378034
91378226
91378293
91378447
91378582
91378798
91340023
91340025
91340174
91340317
91340758
91340865
91341247
91341257
91341273
91341303
91341345
91341381
91341398
91341510
91341691
91341777
91341813
91341901
91341907
91342088
91342160
91342439
91342480
91342776
91342823
91343078
91343118
91343262
91343329
91343392
91343520
91343631
91343650
10.000 kr. Innlausnarverð 14.761,-
91370582
91376751
(16. útdráttur, 15/10 1996)
10.000 kr. Innlausnarverð 15.197,- 91370581
(18. útdráttur, 15/04 1997)
10.000 kr. Innlausnarverð 15.899,-
(20. útdráttur, 15/10 1997)
Y f i r l i t y f i r ó i n n l e y s t h ú s b r é f :
(29. útdráttur, 15/01 2000)
10.000 kr. Innlausnarverð 19.398,- 91376748
10.000 kr. Innlausnarverð 20.492,- 91374996
(31. útdráttur, 15/07 2000)
10.000 kr.
100.000 kr.
91342362
Innlausnarverð 208.355,-
Innlausnarverð 20.835,-
91371242 91371586 91373292
(32. útdráttur, 15/10 2000)
1.000.000 kr.
91311418
Innlausnarverð 2.083.550,-
100.000 kr. 91340894Innlausnarverð 214.150,-
(33. útdráttur, 15/01 2001)
10.000 kr. Innlausnarverð 16.493,-
(22. útdráttur, 15/04 1998)
91376750
(24. útdráttur, 15/10 1998)
10.000 kr.
91370580 91376749 91377389
Innlausnarverð 16.990,-
91379038
10.000 kr. Innlausnarverð 24.657,- 91379037
(37. útdráttur, 15/01 2002)
Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexti né verðbætur
frá innlausnardegi. Því er áríðandi fyrir eigendur þeirra að
innleysa þau nú þegar og koma andvirði þeirra í arðbæra
ávöxtun. Húsbréf eru innleyst í öllum bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
10.000 kr. Innlausnarverð 25.767,- 91370287
(39. útdráttur, 15/07 2002)
10.000 kr. 91374500Innlausnarverð 26.157,-
(40. útdráttur, 15/10 2002)
10.000 kr.
100.000 kr. 91343024Innlausnarverð 266.610,-
Innlausnarverð 26.661,- 91371637
(41. útdráttur, 15/01 2003)
Borgatúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800
10.000 kr. Innlausnarverð 27.389,-
91371507 91374269
(42. útdráttur, 15/04 2003)
100.000 kr. Innlausnarverð 273.888,-
91342097 91343191
(43. útdráttur, 15/07 2003)
10.000 kr. Innlausnarverð 21.936,- 91370060
(34. útdráttur, 15/04 2001)
10.000 kr. Innlausnarverð 23.197,- 91370319
(35. útdráttur, 15/07 2001)
100.000 kr. Innlausnarverð 278.031,-
91343001
(44. útdráttur, 15/10 2003)
1.00.000 kr. Innlausnarverð 2.834.967,-
91310628
100.000 kr. Innlausnarverð 283.497,-
91342098
10.000 kr. Innlausnarverð 28.350,-
91374487 91374994
(45. útdráttur, 15/01 2004)
100.000 kr. Innlausnarverð 290.278-
91343624
10.000 kr. Innlausnarverð 29.028,-
91370288
Selfoss | Sigurlín Grímsdóttir lista-
kona sýnir um þessar mundir vatns-
litamyndir í Galleríi Österby í rak-
arastofunni hjá Leif Österby á
Austurvegi 21 á Selfossi. Sýningin
hefur þegar vakið mikla athygli og
hafa margir komið gagngert til að
sjá hana. Hver listamaður sem sýnir
hjá Leif velur næsta listamann. Ólaf-
ur Th. Ólafsson valdi Sigurlín.
Sigurlín býr nú á Votumýri 1 í
Skeiðahreppi og rekur þar kúabú
ásamt eiginmanni sínum. Á milli
mjalta hefur hún þó gefið sér tíma til
að sækja listnám. Hún hefur tekið
þátt í árlegum samsýningum Mynd-
listarfélags Árnessýslu og haldið
fjölda einkasýninga. Aðallega notast
hún við vatnsliti og myndefni hennar
er yfirleitt sótt í náttúru Íslands.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sigurlín Grímsdóttir, listakona
og bóndi á Skeiðunum.
Sýnir í Galleríi Österby
Selfoss | Landsbankinn á Selfossi
tók nýlega formlega í notkun endur-
hannað og verulega breytt útibú
bankans á Austurvegi 20, sniðið að
þörfum fjármálamarkaðarins. Starf-
semi bankans á Selfossi er nú á ein-
um stað en starfsemi afgreiðslu við
Tryggvatorg hefur verið hætt.
Í máli Friðgeirs Baldurssonar úti-
bússtjóra við opnunina kom fram að
útibú bankans á Selfossi var stofnað
4. október 1918. Fyrsti útibússtjóri
var Eiríkur Einarsson frá Hæli en
auk hans störfuðu þá tveir menn við
bankann sem var starfræktur í
Tryggvaskála. Árið 1919 fluttist
starfsemin í Gamla bankann við
Austurveg en það hús var flutt frá
Búðardal. Það var svo 8. ágúst 1953
sem starfsemin var flutt í núverandi
hús á Austurvegi 20 sem teiknað var
af Guðjóni Samúelssyni húsameist-
ara ríkisins og reist af Kristni Vigfús-
syni byggingameistara. Anddyri
hússins hefur frá upphafi staðið
óbreytt en það prýða sandblásnar
myndir eftir Sigurjón Ólafsson
myndhöggvara.
Halldór J. Kristjánsson banka-
stjóri sagði í ávarpi að útibúið á Sel-
fossi væri með allra þýðingarmestu
útibúum bankans. Það væri stefna
kjölfestufjárfesta bankans að efla
útibúanet hans. Hann sagði breyt-
ingarnar á Selfossi miðast að bættri
þjónustu með því að styrkja þá heild-
arþjónustu sem viðskiptavinum byð-
ist. Hann benti á að nú hefðu 45 þús-
und viðskiptavinir samband við
bankann um tölvur en fyrir fimm ár-
um hefðu þeir verið 10 þúsund. Fjöldi
aðgerða í þeim samskiptum hefði far-
ið úr 500 þúsund í 3 milljónir á þess-
um árum. Heimsóknir viðskiptavina í
bankann væru nú færri og snerust
um stærri viðskiptaákvarðanir og
þess vegna væri meiri áhersla lögð á
aðstæður sem löguðu sig að slíku
starfsumhverfi.
Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri
sagði bankann hafa tekið upp kjar-
naútibúastefnu og útibússtjórinn á
Selfossi heyrði þannig beint undir
bankastjóra en fyrirtækjasvið og ein-
staklingssvið bankans styddu útibúin
sem kjarna í starfseminni. Þetta fyr-
irkomulag gæfi möguleika á hraðari
ákvarðanatöku í viðskiptum.
Fjöldi fólks heimsótti útibúið á
Selfossi opnunardaginn.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stjórnendur Landsbankans og útibúsins á Selfossi. Friðgeir Baldursson
útibússtjóri, Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri, Jón Ólafsson, fyrrverandi af-
greiðslustjóri við Tryggvatorg, Halldór J. Kristjánsson bankastjóri, Svan-
hvít Hermannsdóttir, einn stjórnenda útibúsins, Björgúlfur Guðmundsson,
stjórnarformaður Landsbankans, og Garðar Eiríksson, fyrrverandi af-
greiðslustjóri við Tryggvatorg.
Endurhannað og
breytt útibú Lands-
bankans á Selfossi
Hávaði og skemmdir | Íbúar við
Heiðarveg og Eyraveg hafa krafist
úrbóta vegna hávaða og skemmda
frá gestum HM kaffis. Erindið var
lagt fram á bæjarráðsfundi 13. maí.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að leita
ráðgjafar hjá lögmanni sveitarfé-
lagsins varðandi mögulegar að-
gerðir af hálfu sveitarfélagsins.
Styrkbeiðni | Bæjarráð sendir er-
indi frá Berglindi Maríu Tóm-
asdóttur áfram til menningar-
nefndar en Berglind óskað eftir
styrk vegna Sumartónleika í Skál-
holti.
Garðyrkja | Erindi frá Garðyrkju-
félagi Árnesinga hefur fengið
heimild bæjarráðs Árborgar til af-
nota af hluta gömlu skólagarðanna
á Selfossi til ræktunar á fjölærum
plöntum. Leyfið er veitt til tveggja
ára.
Samið um kjallara | Samþykkt
hefur verið að ganga til samninga
um erindi frá Gunnari B. Guðmunds-
syni sem óskað hefur eftir kaupum á
kjallara undir veitingastaðnum
Pakkhúsinu, Austurvegi 2b.
Kennslukvóti skólanna | Bæj-
arráð samþykkti kennslukvóta
grunnskólanna í Árborg með þeirri
breytingu að stöðugildi við Valla-
skóla verði 65 (eins og fjárhags-
áætlun ársins 2004 gerði ráð fyrir),
en það veitir svigrúm til skiptingar
tveggja bekkjardeilda. Einnig var
samþykkt viðbót við fjárhags-
áætlun grunnskólans í Suðurbyggð
að fjárhæð 12.606.000, krónur
6.483.000 er leiðrétting á fjárhags-
áætlun ársins og kr. 6.123.000 er
vegna fjölgunar nemenda. Kostn-
aðarauka ætlar bæjarráð að mæta
við endurskoðun fjárhagsáætlunar.
Skólamáltíðir | Frá og með skóla-
árinu 2004–2005 verður öllum börn-
um á grunnskólaaldri í Árborg boðið
upp á heitan mat í hádeginu, notað
verði fyrirkomulag mánaðaráskrift-
ar sem greidd er fyrirfram. Öllum
starfsmönnum grunnskólanna verði
einnig boðinn heitur matur í hádeg-
inu, greiðslufyrirkomulag þeirra
verði í höndum yfirmanna á hverjum
stað. Öll börn og starfsmenn greiði
sama gjald kr. 200 fyrir hverja mál-
tíð, lögð verður áhersla á hollan og
góðan mat og einungis boðið upp á
mjólk og vatn að drekka með matn-
um. Þetta var samþykkt í skólanefnd
Árborgar 11. maí.
Fjárhagsaðstoð | Fjárhagsaðstoð
fyrstu fjóra mánuði ársins hjá
Sveitarfélaginu Árborg nemur kr
10.480.859. Þetta kemur fram í
fundargerð félagsmálanefndar frá
10. maí.
Bæjarmál í Árborg