Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 30
LANDIÐ
30 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fagridalur | Tekin var nýlega fyrsta
skóflustungan að nýrri sundlaug
við íþróttahúsið í Vík í Mýrdal.
Börn úr leikskólanum sáu um verk-
ið og var það gert af miklum krafti.
Að sögn Bryndísar Harð-
ardóttur, formanns bygging-
arnefndar sundlaugar, verður laug-
in átta metrar á breidd og sextán
metra löng en hún er hönnuð af AL-
ARK arkitektastofu. Hún verður
uppsteypt með plastdúk frá Segla-
gerðinni Ægi og við laugina verða
heitur pottur og vaðlaug. Ekki er
ennþá ljóst hvenær sundlaugin
verður opnuð en búið er að ráða
starfsfólk frá byrjun júlí í sumar.
Kostnaðaráætlun er á bilinu 17 til
20 milljónir og það er bygging-
arfélagið Klakkur í Vík sem sér um
alla steypuvinnu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Skóflustungur með tilþrifum
Hólmavík | Það er ekki í frásögur
færandi þó að skólastjóri Grunn-
skólans á Hólmavík hringi skóla-
bjöllunni. Síðastliðinn þriðjudag var
tilefnið sérstakt þar sem hann
ákvað að „hringja út“ Sólveigu Hall-
dórsdóttur, sem var að ljúka sjúkra-
liðanámi í fjarnámi.
Sólveig hóf sjúkraliðanám í ár-
daga fjarmenntunar og hefur tekið
öll sín próf innan veggja Grunnskól-
ans. „Ég byrjaði 1994 og tók lítið í
einu til að byrja með, en ég hef alltaf
tekið einhver fög og aldrei hætt í
neinum áfanga,“ sagði Sólveig.
Námið hefur Sólveig stundað
gegnum Verkmenntaskólann á Ak-
ureyri og er afar ánægð með þetta
fyrirkomulag. Hún segir kennsluna
afar góða, þrátt fyrir að hafa aldrei
hitt kennarana, en samskiptin fara
að mestu fram gegnum tölvupóst.
Kennararnir líkt og nemendurnir
eru staddir víða um land og eru
fljótir að bregðast við ef nemendur
þurfa frekari útskýringar á náms-
efninu.
Að líkindum er Sólveig fyrsti
nemandinn á Hólmavík sem stundar
framhaldsnám sitt alfarið með fjar-
námi, en a.m.k. tveir kennarar hafa
lokið háskólanámi, kennara- eða
kennsluréttindanámi í fjarnámi og
fleiri eru væntanlegir á næstu miss-
erum. Sólveig segir að launin hækki
töluvert að náminu loknu, auk þess
sem það veiti starfsréttindi og
vinnuöryggi.
Þá má ætla að nám sem gerir
fólki kleift að afla sér fagþekkingar
án þess að flytjast burt af svæðinu
komi fyrirtækjum og stofnunum til
góða. Svo dæmi sé tekið starfa þrír
sjúkraliðar við Heilbrigðisstofn-
unina í dag, og meirihluti starfs-
fólks er því ófagmenntaður.
Þegar Sólveig hóf námið hafði
hún aðeins grunnskólapróf og við-
urkennir hún að það þurfi töluverð-
an sjálfsaga til að stunda þetta nám,
enda sé algengara að þeir sem byrja
á byrjunarreit í fjarnáminu heltist
úr lestinni. Hún hefur alltaf unnið
með náminu, var við hótelrekstur
og hefur unnið við Heilbrigðisstofn-
unina á Hólmavík síðastliðin fimm
ár.
„Vetrarfrín hafa farið í lestur og
ég hef tekið þau í desember og
maí,“ sagði Sólveig og bætti því við
að hún vissi eiginlega ekki alveg
hvað hún ætti að gera þegar þetta
væri að baki. Náminu er þó ekki al-
veg lokið, því í júlí og ágúst mun
hún taka sér launalaust leyfi og
halda suður á bóginn í starfsnám á
Reykjalundi.
„Ég var svo heppin að komast í
starfsnám á Reykjalundi, það var al-
gjör gullmoli,“ sagði Sólveig að lok-
um.
Lýkur námi án þess
að hitta kennarana
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Fjarnám: Sólveig Halldórsdóttir,
rétt áður en hún skilaði síðasta
prófinu í sjúkraliðanáminu.
Dalvík | Það var mikið um dýrðir á
Dalvík þegar Sparisjóður Svarfdæla
hélt upp á 120 ára afmæli sitt nýlega.
Sjóðurinn er einn elsti starfandi
sparisjóður landsins, stofnaður í
Svarfaðardal í maí 1884 og hét þá
reyndar Sparisjóður Svarfdælinga.
Fyrsti „gjaldkeri“ sjóðsins eins og
það hét þá var Jóhann Jónsson á
Ytra-Hvarfi. Núverandi sparisjóðs-
stjóri er Friðrik Friðriksson.
Heiðursgestur hátíðahaldanna var
forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson.
Hann var einn frummælenda á
málþingi í Dalvíkurskóla um stöðu
sparisjóðanna á Íslandi. Þá flutti for-
setinn einnig ávarp í fjölmennu kaffi-
samsæti sem bæjarbúum var boðið
til í Víkurröst. Nemendur Tónlistar-
skólans spiluðu á hljóðfæri og barna-
kórinn Góðir hálsar söng. Hápunkt-
ur hátíðarhaldanna var svo
hátíðartónleikar í Dalvíkurkirkju.
Þar komu fram hinir svarfdælskætt-
uðu frændur Vovka Stefán Asken-
azy, píanóleikari og Ólafur Kjartan
Sigurðarson, óperusöngvari. Báðir
eru afkomendur Jóhanns, fyrsta
sparisjóðsstjórans.
Á efnisskrá þeirra var meðal ann-
ars frumflutningur á verkum eftir
Jóhann Tryggvason frá Ytra-Hvarfi,
afa Vovka Stefáns, auk laga eftir
bræður Jóhanns, þá Ólaf og Jakob
Tryggvasyni, sem og erlend og inn-
lend sönglög.
Í kaffisamsætinu í Víkurröst af-
henti Friðrik Friðriksson sparisjóðs-
stóri þremur aðilum gjafir að and-
virði um 3,5 milljónir króna.
Hríseyingar fengu endurlífgunar-
tæki, Heilsugæslustöðin á Dalvík
fékk rannsóknartæki og Dalvíkur-
kirkja gler í nýja glugga o. fl.
Ljósmynd/Guðmundur Ingi
Margt var um manninn á afmælishátíðinni og heiðursgestur var forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson.
Mikið um dýrðir á 120 ára
afmæli Sparisjóðs Svarfdæla
Borgarfjörður | Veiði í ám og vötn-
um á Íslandi er nú stunduð af fjölda
fólks, bæði Íslendingum og erlend-
um gestum. Mikilvægt er að fólk
upplifi veiðina og umhverfi veiði-
staðarins sem hluta af héraðinu og
finni að íbúar þess hafi forystu um
varðveislu þessarar auðlindar.
Námskeið í leiðsögn við veiðiár
verður haldið í Veiðihúsinu við
Grímsá (Fossási) dagana 21.–22.
maí nk.
Það er Endurmenntun Landbún-
aðarháskólans á Hvanneyri sem
gengst fyrir þessu nýja námskeiði í
samvinnu við Veiðifélag Borg-
arfjarðar. Markmiðið með nám-
skeiðinu er að þjálfa fólk í leiðsögn
við veiðiár, m.a. með því að auka
þekkingu þeirra á þáttum sem snúa
að veiði og veiðiám, umhverfi veiði-
ánna og þjónustu sem hægt er að
veita veiðimönnum. Þar verður
byggt ofan á þekkingu sem fyrir er.
Meðal annars efnis sem tekið verð-
ur fyrir eru veiðifélög og starfsemi
þeirra, ræktun áa og fiska og um-
hverfi ánna s.s. veiðistaðir og lands-
lag. Einnig verður fjallað um veiði-
tæki, listina að veiða, þekkingu á
flugum, fluguhnýtingu, að kasta í
fluguveiði, meðferð afla og veiði-
dagbók o.sv.frv. Leiðbeinendur á
námskeiðinu eru frá Landbún-
aðarháskólanum, Landssambandi
veiðifélaga, Veiðimálastofnun o.fl.
Þjálfun í leiðsögn við
borgfirskar veiðiár
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Stjórnarformaður MasterCard,
Baldomero Falcones, ásamt leið-
sögumanni við veiðar í Kjarrá.
Hveragerði | 17 nemendur á fyrsta
ári í umhverfisskipulagi Landbún-
aðarháskólans á Hvanneyri hafa ver-
ið síðustu daga í sérstöku verknámi í
Garðyrkjuskólanum að Reykjum.
Þeir störfuðu í þemagörðum skólans
undir leiðsögn Baldurs Gunnlaugs-
sonar, garðyrkjustjóra útisvæða, og
starfsmönnum hans. Starfsnámið er
alls 5 vikur þar af 2 vikur hjá skrúð-
garðyrkjumeisturum. Fyrsta vikan
byrjaði á Hvanneyri og þar voru
landmælingar aðalatriðið.
Í Garðyrkjuskólanum unnu nem-
endurnir að mælingum og hellulögn-
um ásamt fleiru í svokölluðum
„gráum“ hluta starfsnámsins. Í
ágúst koma þeir svo aftur og fást við
gróður og umhirðu í „græna“ hlut-
anum.
Hvanneyringar í verknámi í Garðyrkjuskólanum
Mývatnssveit | Söngfélagið Sálubót
úr Þingeyjarsveit yljaði Mývetn-
ingum um hjartarætur með ljúfum
en jafnframt frísklegum söng í
Skjólbrekku. Það var norðangarður
í Norðursýslu dagana í kringum tón-
leikana og ekki í nokkrum takti við
tíðina í vetur og vor. Farfuglarnir,
sem voru flestir nýkomnir, norpuðu
daprir og hljóðir í skafrennings-
kalsaveðri. En í Skjólbrekku var
fjölmenni og hin besta skemmtun.
Kórinn var að kynna nýjan geisla-
disk.
Á efnisskránni voru 20 lög víðs-
vegar að. Stjórnandinn er Jaan Ala-
vere og einsöngvarar þau Dagný
Pétursdóttir og Karl Ingólfsson.
Undirtektir áheyrenda voru frábær-
ar enda flutti kórinn fjölmörg auka-
númer. Segja má að kórinn hafi hrif-
ið áheyrendur sem risu úr sætum
allir sem einn í lokin og þökkuðu fyr-
ir ánægjulega heimsókn sem sann-
arlega var kærkomin „sálubót fyrir
þig og mig,“ eins og segir í texta
kynningarlags kórsins..
Morgunblaðið/BFH
Sálubót í norðangarra