Morgunblaðið - 15.05.2004, Síða 36
DAGLEGT LÍF
36 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ný
sending
af Mac
gallabuxum
Fást í 5 lengdum
Kringlunni
Seltjarnarnesi
Ég hef alltaf haft gaman af því að baka,“segir Birna. „Þegar ég var kominmeð tvö börn og var heimavinnandihúsmóðir og þriðja barnið bættist
fljótlega við, bakaði ég allt til heimilisins, brauð,
bollur og kökur rétt eins og húsmæðurnar í
gamla daga en ég var heima í ein átta ár. Ég held
að þetta að baka sé svolítið í manni. Við erum
fimm systurnar og erum allar taldar mjög dug-
legar húsmæður í eldhúsinu og bökum ekki ein-
göngu sætabrauð heldur brauð til heimilisins.“
Skinkuhornin eru vinsæl
Birna segist gera mikið af því að baka um
helgar bæði morgunbollur, skonsur og snúða og
af og til bakar hún rúgbrauð. „Ég baka líka fínni
bakstur eins og skinkuhorn,“ segir hún. „Þau
eru mjög vinsæl hjá krökkunum í barna-
afmælum. Eins hef ég bakað fyrir vini og kunn-
ingja þegar efnt er til samskots og allir koma
með eitthvað á hlaðborðið eða þá fyrir krakkana
að taka með í skólann þegar eitthvað stendur til.
Þá baka ég mjög mikið og það er alltaf mjög vin-
sælt.“
Sparar í heimilishaldi
Birna segist spara verulega í heimilishaldi
með bakstrinum en viðurkennir að stundum
sæki hún eitt og annað í bakaríum en þegar te-
bollan kostar 140–150 krónur baki hún þær frek-
ar heima.
„Ég á strák sem er að verða 15 ára og hann
hefur verið mjög duglegur við baksturinn frá því
hann var 11 ára enda verið mikið með mér í eld-
húsinu,“ segir hún. „Hann er orðinn leiður á
skúffukökunni gömlu góðu og er farinn að baka
sjónvarpsköku, hjónabandssælu og annað sem
hann langar í.“
Birna bjó í Danmörku í þrjú ár og þar segist
hún hafa keypt pressuger í kjörbúðinni en bak-
arinn selji henni pressuger hér heima.
Gerbakstur er vinna
„Brauðið verður betra þegar notað er pressu-
ger,“ segir hún en mörgum „bakaranum“ hefur
reynst erfitt að ná góðum árangri í gerbakstri og
fá brauðið til að hefast.
„Þetta er ekki erfitt en maður verður að hafa
gaman af því að baka. Það er aðalatriði en auð-
vitað er gerbakstur vinna. Það tekur tíma að
setja í deigið og svo þarf að láta það hefast á
meðan maður gengur frá.
Um helgar þegar ég baka bollur fer ég fram
og hendi í deig en legg mig á meðan deigið er að
hefast. Það passar að setja bollurnar í ofninn
þegar ég kem fram. Þetta kemst upp í vana,“
segir Birna.
„Ég fékk mér brauðvél þegar ég var í Dan-
mörku en ég læt hana ekki baka heldur vinna
fyrir mig deigið og um helgar þegar ég nenni
ekki að rífa mig upp þá get ég stilli hana þannig
að deigið er tilbúið fyrir ofninn að morgni.“
Rúgbrauð
3 bollar hveiti
5 bollar heilhveiti
5 bollar rúgmjöl
5 tsk lyftiduft
5 tsk salt
5 tsk matarsódi
700 g sýrop
2 ½ lítri súrmjólk
Öllum þurrefnum blandað saman. Velgið sý-
rópsdósina í heitu vatni, hellið út í þurrefnin
ásamt súrmjólkinni. Öllu er síðan hrært vel sam-
an. Uppskriftin passar í miðstærð steikar potts
– (Sporöskjulagaðir með loki). Klætt að innan
með bökunar pappír. Lokið sett á bakast við
120° við undir- og yfirhita í 9 tíma. Tekið út og
látið kólna áður en það er skorið. Bakist yfir
nótt.
Skinku- og ostahorn
50 g pressuger
100 g smjörlíki
½ lítri mjólk
1 dl sykur
½ tsk salt
14 dl hveiti
Pressuger leyst upp í ylvolgri mjólk. Öllum
þurrefnum blandað saman í hrærivélarskál.
Brætt smjörlíkið og mjólkin þurfa að vera yl-
volg, hrært saman við þurrefnin. Hrært með
hnoðara í hrærivél. Deigið látið hvíla á volgum
stað með klút yfir í 40 til 60 min. Þá hnoðað aftur
saman, deiginu skipt í 5 hluta. Hver hluti er
flattur út í kringlótta köku sem er síðan skipt í 8
sneiðar. Ostur og skinka sett á breiðari hlutann
og rúllað upp. Látið hefast í u.þ.b. 10 mín. Einn-
ig er gott að nota beikon smurost, í stað osts og
skinku. Bakað við 180° til 200° í um 8–10 mín.
Snúðar
50 gr pressuger
200 g smjörlíki
½ lítri mjólk
1 dl sykur
2 tsk kardemommur
14 dl hveiti
Sterk kanelsykurblanda og smjör.
Undirbúningur sama og horn. Deigið er flatt
út í lengju u.þ.b. 30 x 70 cm. Lengjan smurð með
mjúku smjöri og stráð vel yfir með sterkri
blöndu af kanelsykri rúllað upp og skorið niður.
Raðað á bökunarplötur látið hefast aftur í um 10
mín. áður en bakað er. Bakast við 180°–200° í um
10 mín. Súkkulaðiglassúr smurt yfir heita snúð-
ana.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bakar: Birna Bjarnadóttir hefur gaman af
bakstri og bakar bæði brauð og tertur.
Birna Bjarnadóttir er ein
fimm systra sem þekktar
eru að myndarskap og þá
sérstaklega við bakstur og
segist hún baka nánast allt til
heimilisins, bæði kökur og brauðmeti.
Finnst
gaman
að baka
MATARKISTAN |Rúgbrauð, brauð og bollur
Það getur verið snúið að verameð ofnæmi fyrir algengumfæðutegundum eins og sysk-
inin þau Erla María og Sindri Sig-
urþórsbörn. Hún var innan við eins
árs þegar í ljós kom að hún var
með ofnæmi fyrir ýmsum fæðuteg-
undum og í dag er hún með ofnæmi
fyrir eggjum, hnetum, kiwi og gul-
um og grænum baunum. Sindri var
fjögurra mánaða þegar ljóst var að
hann er með ofnæmi fyrir mjólk,
hveiti, fiski, eggjum, hnetum og
baunum.
„Erla María var í fyrstu með of-
næmi fyrir fleiri fæðutegundum,
þannig að ofnæmið er að eldast af
henni,“ segir Sigríður Aðalsteins-
dóttir móðir systkinanna þegar hún
er beðin um góð ráð og uppskriftir.
„Við erum bara vongóð en ofnæmið
hjá Sindra hefur nær ekkert
breyst. Reyndar var hann líka með
ofnæmi fyrir höfrum en við erum
að prófa núna hvort hann geti borð-
að hafragraut og það gengur nokk-
uð vel.“
Almennur heimilismatur hentar
systkinunum vel en þá verður að
sýna fyrirhyggju við matseldina. Í
staðinn fyrir mjólk er notuð kók-
osmjólk, sojamjólk og sojarjómi
þegar við á svo dæmi sé tekið.
„Við kaupum aldrei brauð úr búð
fyrir þau eða tilbúinn mat nema þá
helst grillaðan kjúkling, sem Sindri
er svo hrifinn af,“ segir Sigríður.
„Hann er reyndar ekkert fyrir
brauð þannig að ég er hætt að baka
brauð. Í staðinn fyrir brauðið baka
ég vöfflur fyrir hann úr sérstakri
hveitiblöndu. Sindri tekur vöffl-
urnar með sér í skólanestið með
kæfu sem álegg eða sultu sem
kaffibrauð. Vöfflurnar hafa alveg
bjargað okkur. Ég baka þær og
frysti og tek þær úr frysti eftir
hendinni og set þær í brauðristina
og þá verða þær eins og nýbak-
aðar.“
Eggja-, hveiti- og
mjólkurlausar vöfflur
4 dl hveitilaus mjölblanda t.d.
bland an í mosagrænu pökkunum
frá Semper (FIN MIX, Naturligt fri
från gluten)
1msk vínsteins lyftiduft (hveitil-
aust)
125 gr brætt smjörlíki
2 dl sojamjólk
2 dl kalt vatn
vanilludropar
Öllu blandað saman. Þetta verða
7–8 vöfflur.
Kaka eftir tíu mínútur
Þegar Erla María fer í afmæli
eða önnur boð, þar sem veitingar
eru í boði, bakar Sigríður eggja-
lausa súkkulaðiköku í örbylgjuofn-
inum.
„Kökuna get ég bakað á 10 mín-
útum,“ segir hún. „Ég er í sömu að-
stöðu og margar aðrar húsmæður
að geta ekki alltaf sýnt fyrirhyggju,
sem er það eina sem gildir við mat-
reiðslu á sérfæði en það má bjarga
ýmsu með súkkulaðikökunni. Kakan
þolir illa geymslu en er mjög góð
nýbökuð. Erla María er ánægð með
þessa köku, sem má skreyta eins og
aðrar afmæliskökur. Og svo er það
eggjalausa súkkulaðitertan, sem er
boðleg á veisluborð fyrir alla.“
Eggjalaus súkkulaðikaka
fyrir örbylgjuofn
1 bolli hveiti
2⁄3 bolli sykur
½ tsk matarsódi
1 msk kakó
2 msk matarolía eða 25 g bráðið
smjörlíki
1 bolli mjólk
Allt hrært létt saman.
Hellt í „pæform“ sem búið er að
smyrja. Það er handhægt að nota
olíuúða til að smyrja formið. Bakað
í örbylgjuofni í 9 mínútur á styrk 6.
(Ofninn minn er 850 w
og fullur strykur er 9).
Fljótlegt er að setja
súkkulaðidropa
(Odense) ofan á heita
kökuna og strá síðan
kókosmjöli ofan á
bráðið súkkulaðið.
Tilbúið á borðið.
Eggjalaus
súkkulaðiterta
2 bollar sykur
2 bollar súrmjólk
Þeytt saman
3 ½ bolli hveit
2⁄3 bolli kakó
1 tsk salt
2 tsk matarsódi
150 g brætt smjörlíki
Þessu öllu hrært létt saman
Baka í 175 °C í 25 mín í 2 form-
um.
Krem til að setja á milli botna.
2 dl flórsykur
50 g smjörlíki
3 msk kakó
1 tappi vanilludropar
rjómi eftir þörfum.
Jákvætt viðmót
„Við höfum alstaðar fengið já-
kvætt viðmót og skilning,“ segir
Sigríður. „Það hefur gengið vel að
senda þau með nesti með sér þegar
þeim er boðið í afmæli og eins hefur
gengið vel að senda Sindra með
vöfflurnar. Það skilja allir bæði for-
eldrar barnanna í skólanum, kenn-
arar, vinir og öll fjöskyldan að einn
biti er ekki í lagi ef barnið er með
ofnæmi. Það eiga allir hrós skilið
fyrir að sýna þennan skilning.“
Bakar vöfflur í
staðinn fyrir brauð
OFNÆMI
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sigríður Aðalsteinsdóttir: Með börnum sínum,
þeim Erlu Maríu og Sindra.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111