Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 66

Morgunblaðið - 15.05.2004, Side 66
DAGBÓK 66 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Hafnarfjarðarhöfn: Hanseatic Scout og Arklow Wind koma í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Viðeyjarferð 26. maí. Skráning er hafin. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Heilsa og hamingja á efri árum í dag laugardaginn 15. maí. Kynnisferð um svæði garðyrkjudeildar Reykjavíkurborgar í Laugardal m.a. í Grasagarðinn, undir leiðsögn Þórðar Jóns- sonar, deildarstjóra, og fl. Lagt af stað frá Ásgarði kl. 14 og ferð- in tekur u.þ.b. 1½ klukkustund og lýkur í garðskálanum Kaffi Flóru, þar sem þátt- takendur geta keypt sér kaffisopa. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Vorsýn- ingin í dag kl. 13–17, Gerðuberg, fé- lagsstarf. Föstudaginn 21. maí verður farið í heimsókn á hand- verkssýningu eldri borgara á Selfssi, lagt af stað kl. 13.30. Kaffi- hlaðborð í Hafinu bláa, skráning hafin s. 575 7720. Gjábakki., Fannborg 8. Handverksmark- aður verður í Gjá- bakka miðvikudaginn 19. maí frá kl. 13. Þar verða til sölu hand- unnir nytja- og skraut- munir. Hægt er að panta söluborð í síma 554 3400. Kl. 14–18 vorsýning smiðjur í gangi. Vöfflukaffi. Seljahlíð heimili aldr- aðra. Sýning á hand- verki heimilismanna í dag. Vesturgat 7. Skraut- skriftarnámskeið hefst mánudaginn 7. júní. Kennt verður á mánu- dögum og fimmtudög- um kl. 9.30–11.30. Kennari Freyja Berg- sveinsdóttir. Upplýsingar og skrán- ing í síma 535 2740. Allir velkomnir óháð aldri. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Sunnuhlíð Kópavogi. Söngur með sínu nefi á laugardögum kl. 15.30. Íbúar, aðstandendur og gestir velkomnir. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, Fundarskrá: Þriðjud: Kl.18.15, Sel- tjarnarneskirkja, Sel- tjarnarnes. Miðvikud: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogur og Eg- ilsstaðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud: Kl. 20, Víðistaðakirkja, Hafnarfjörður. Laug- ard: Kl.10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík og Glerárkirkja, Ak- ureyri. Kl.19.15 Selja- vegur 2, Reykjavík. Neyðarsími: 698 3888 Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa-samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Fífan Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar al- mennu göngufólki og gönguhópum frá kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabílinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blod- bankinn.is Orlofsnefnd hús- mæðra í Kópaogi. Vegna forfalla eru örfá sæti laus í tveggja nátta ferð um Snæ- fellsnes 4.–6. júní Upplýsingar hjá Ólöfu s. 554 0388 eða Birnu 554-2199 og 847-7061. Félag breiðfirskra kvenna. Hin árlega vorferð verður farin fimmtudaginn 20. maí (uppstigningardag). Farið frá BSÍ kl. 10 vestur í Dali. Vinsam- lega tilkynnið þátttöku í síma fyrir mánudag- inn 17. maí Gunnhildur 564 5365, Sólveig 567 2456, Ella 566 6447. Siglfirðingafélagið í Reykjavík og ná- grenni, heldur sitt ár- lega fjölskyldukaffi í Kirkjulundi, Garðabæ, á mörgun sunnudaginn 16. maí kl. 15. Gestir Kvennakór Siglu- fjarðar. Félag kennara á eft- irlaunum. Fundur á Fiðlaranum við Skipa- götu á Akureyri í dag kl. 14. Í dag er laugardagur 15. maí, 136. dagur ársins 2004, Hallvarðs- messa. Orð dagsins: Fyrir trú skiljum vér, að heimarnir eru gjörðir með orði Guðs og að hið sýnilega hefur ekki orðið til af því, er séð varð. (Hebr. 11, 3.)     Jakob F. Ásgeirssonskrifar í Við- skiptablaðið um Baug og nefnir í upphafi þá „óháðu“ erlendu lögfræð- inga sem fengnir hafi verið til landsins á vegum Baugs. „Í hverjum fréttatím- anum af öðrum er haft eftir þessum mönnum at- hugasemdarlaust að í ís- lenska fjölmiðla- frumvarpinu séu ákvæði sem hvergi sé að finna í löggjöf annarra landa,“ skrifar Jakob. „En er til í nokkru landi fyrirtæki eins og Baugur sem er með 50% markaðs- hlutdeild í matvöruversl- un og ráðandi hlutdeild í flestri annarri verslun og þjónustu, frá lyfjaverslun til flugsamgangna – og ætlar sér þar að auki að eiga 2⁄3 af öllum dag- blöðum landsins og meira en helming af öllum sjón- varps- og útvarps- stöðvum lands?     Væri nú ekki líklegt aðsvipuð ákvæði og eru í fjölmiðlafrumvarpinu væru í löggjöf annarra landa ef þar væru líka risavaxnir auðhringir sem stefndu að því að drottna yfir allri lýðræð- islegri umræðu? Hvað yrði sagt í Banda- ríkjunum ef lagagloppur gerðu Bill Gates kleift að kaupa í einu vetfangi 2⁄3 af dagblöðum landsins og hann dreifði einu þeirra í krafti auðs síns ókeypis inn á hvert heimili í land- inu og keypti í leiðinni helminginn af öllum sjón- varps- og útvarps- stöðvum landsins? Auðvitað yrði sam- stundis gripið í taumana. Og skipti þá engu hvort fjölmiðlar hans ástund- uðu heiðarlega blaða- mennsku eða færu að dæmi Baugsmiðlanna og stæðu fyrir linnulausri herferð til að sverta rétt- kjörin stjórnvöld í land- inu.     Það er með nokkrumólíkindum hvað landsmenn eru almennt andvaralausir gagnvart þeim tökum sem Baugs- veldið hefur náð í land- inu. Það er alrangt sem stundum heyrist að Baug- ur hafi komist í sína markaðsráðandi stöðu vegna þess að fólk vilji versla hjá fyrirtækinu. Baugur hefur skipulega keypt upp samkeppn- isaðila til að geta deilt og drottnað. Þegar Bónus var orðið allsráðandi á sínu sviði var Haugkaupsveldið keypt og svo 10/11- búðirnar þegar þær urðu vinsælar. Þar með náðu Baugsmenn yfir 60% hlutdeild á matvörumark- aði á höfuðborgarsvæð- inu. Í kjölfarið hefur síð- an fylgt skipuleg útrás – Húsasmiðjan, BT, Baby- Sam, o.s.frv., o.s.frv. – sem hefur leitt til þess að hver landsmaður getur nú fullnægt nær öllum sínum daglegu þörfum í verslun og þjónustu með því að skipta við fyr- irtæki sem tengjast Baugsveldinu,“ skrifar Jakob F. Ásgeirsson. STAKSTEINAR Lífið með Baugi Víkverji skrifar... Jamm. Í kvöld er það víst Evró-visjón, einn kostulegasti menn- ingarviðburður ársins. Viðburður sem er þeirri furðu gæddur að flestir þeir sem fylgjast með fara leynt með það, þora ekki að við- urkenna það, en sannir aðdáendur eru svo gott sem búnir að helga líf sitt keppninni og geta sungið tutt- ugu ára gömul lög frá Sviss utan- bókar. Víkverji er beggja blands í þessum efnum. Keppnin er skemmtileg en allt síðan „Gleði- bankinn“ vann ekki hefur hann verið varfærinn í þessum efnum. En hann fagnar því að keppnina skuli bera upp á opnunardag Listahátíðar, hún er kærkomin viðbót við þá grautfúlu dagskrá sem er þar í boði. Hvar eru „hinar“ list- irnar? Poppið, rokkið, bíóið! Hneisa, segir Víkverji. Alltént er Evróvisjón hin besta skemmtan eins og áður segir. Laga- smíðarnar sem þar gefur að heyra virðast fastar í einhverju holrúmi og miða – að því er virðist – að því einu að vinna keppnina og því er form- úlan á hreinu. Einstaka smíðar bregða sér reyndar í labbitúr utan við rammann (þið munið t.d. Botn- leðju) en flest eru þau „alveg týpísk júróvisjónlög“. x x x Sem er auðvitað fínt. Tískan á há-tíðinni er líka afar skemmtileg. Víkverji varð þeirrar gæfu aðnjót- andi fyrir stuttu að vera boðið að horfa á myndbandsupptöku frá Evróvisjón 1982. Kjólarnir, förðunin og fötin sem almennt tíðkuðust þá urðu uppskrift að mikilli gleðistund þar semVík- verji var með krampakast af hlátri svo gott sem allan tím- ann. En Víkverji hefur borið ein- læga ósk í brjósti, allt síðan „Gleðibankinn“ lenti í sextánda sæti sem er í dag eins og þá, al- gerlega óskiljanlegt. Sendum „Gleðibankann“ aftur í keppn- ina. Já, tökum þá áhættu. Ein- hverjir heitir Evróvisjónaðdá- endur eiga eftir að rísa upp og þekkja lagið en hvaða máli skiptir það? Aldrei er góð vísa of oft kveðin. Og Víkverji vill að upprunalega útgáfan verði send út, ekki þessi breytta með hæga millikaflanum. Svo þegar við erum búin að vinna troðum við bara öllu heila gillinu inn í Borgarleikhúsið. Og vinnum aftur og aftur eins og Ír- arnir. Víkverji óskar landsmönnum öll- um gleðilegs Evróvisjónkvölds. Og munið…„Þú gætir jafnvel unnið Júróvisión!“ Icy hópurinn bregður á leik á æfingu. Vík- verji vill „Gleðibankann“ aftur í Evróvisjón. Tilgangslaust kjaftæði VEGNA væntanlegrar Evróvisjón-útsendingar er daglega útvarpað á rás 2 viðtali við Guðrúnu Gunn- arsdóttur sem er í Tyrk- landi. Finnst mér þetta til- gangslaust kjaftæði, en það kostar 59 kr. mínútan að tala til Tyrklands. Það er alltaf verið að tala um að spara og mætti gera það þarna. Eins langar mig að vita hvor hún Eva María Jóns- dóttir komi ekki aftur í Kastljósið. Finnst þáttinn hafa sett niður eftir að hún hætti. Hlustandi. Bankarnir styðji Landspítalann ÞAR sem Landspítalinn virðast vera að fara á haus- inn, endalausar uppsagnir og lokanir deilda, langar mig að koma þeirri uppá- stungu á framfæri að bank- arnir þrír sem eru að græða marga milljarða láti eitthvað af hendi rakna til Landspítalans. Þ.H. Það stingur mig ÞAÐ stingur mig hvað Ingibjörg Sólrún er stór- yrt. Hún er búin að koma tvisvar inn sem varamaður og í bæði skiptin fór hún fram á afsagnir. Ég var að velta því fyrir mér hvort þetta væri ekki eins og úlf- ur úlfur og þegar virkilega þarf að segja af sér þá sé ekkert tekið mark á henni. Lesandi. Dýrahald Kettlingar fást gefins 3 ÁTTA vikna gullfallegir kettlingar fást gefins. Þeir eru kattþrifnir og kassa- vanir, kelnir og kátir. Fást gefins á góð heimili. Upp- lýsingar í síma 898 2659. Kisustelpu vantar heimili LITLA og sæta 8 vikna stelpukisu langar að kom- ast sem fyrst á sitt framtíð- arheimili. Uppl. í síma 699 1954. Kettlingar fást gefins FJÓRIR sprækir, kassa- vanir og klárir kettlingar á besta aldri fást gefins á góð heimili. Þrjár læður, einn högni, öll ljúflynd, mann- elsk og heilbrigð. Mamman skógarköttur, kettlingarnir hálfloðnir, 3 svartir, einn svarthvítur. Sími 551 9761 eða 694 1974. Kettlingur fæst gefins SVÖRT og hvít, 8 vikna læða, kassavön, fæst gefins á gott heimili. Uppl. í síma 692 7487. Kettlingar fást gefins ÞRJÁ kettlinga, 8 vikna, vantar heimili. Upplýsing- ar í síma 848 6209. Tapað/fundið Eyrnalokkar týndust GULLEYRNALOKKUR eins og á myndinni tapaðist laugardaginn 8. maí á gönguleiðinni frá Geitlandi í Fossvogi vestur á Kársnes í Kópavogi. Finnandi er beðinn að hringja í síma 564 1171 eða 895 7808. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 rakka, 4 kletts, 7 dáin, 8 hegna, 9 óhróður, 11 skylda, 13 ímyndun, 14 svínakjöt, 15 legu- bekkur, 17 ótta, 20 hvíldi, 22 bárur, 23 borga, 24 konungborinn maður, 25 nes. LÓÐRÉTT 1 falin, 2 veiðarfærið, 3 bráðum, 4 húsgagn, 5 skott, 6 stólpi, 10 kýli, 12 skyldmenni, 13 keyrðu, 15 greind, 16 ól, 18 ekki djúp, 19 vitri, 20 atlaga, 21 vont. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 renningur, 8 eyjan, 9 yndis, 10 náð, 11 nýrna, 13 annar, 15 hatts, 18 öflug, 21 tin, 22 fiska, 23 unnur, 24 saklausar. Lóðrétt: 2 erjur, 3 nunna, 4 neyða, 5 undin, 6 senn, 7 ás- ar, 12 net, 14 nef, 15 hafs, 16 tuska, 17 stagl, 18 önuðu, 19 lunga, 20 garð. Krossgáta   Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.