Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 67
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert listræn/n og hug-
myndarík/ur og átt auðvelt
með mannleg samskipti.
Komandi ár verður
sennilega besta árið þitt á
þessum áratug.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að einbeita þér að því
sem skiptir þig mestu máli í
lífinu. Þú ættir því kannski að
byrja á því að endurskoða lífs-
viðhorf þitt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér leiðist og þig langar í til-
breytingu. Þetta er því hent-
ugur tími til að fara í ferðalag.
Hvers konar samninga-
viðræður ættu að ganga vel
næstu vikurnar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur þörf fyrir að halda
hlutunum út af fyrir þig þessa
dagana. Þú óttast að aðrir
muni nota það gegn þér ef þú
segir of mikið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ræddu vandamálin við vini
þína til að fá annað sjónarhorn
á hlutina. Þú munt að öllum
líkindum umgangast þér
yngra fólk á næstunni og það
mun veita þér nýja innsýn í
hlutina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður tími til að gera
áætlanir varðandi starfsframa
þinn. Spurðu sjálfa/n þig að
því hvort þér finnist hlutirnir
vera að þróast í rétta átt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þig þyrstir í nýjan fróðleik og
því er þetta góður tími til að
hefja nám eða vinnu við verk-
efni sem mun víkka sjóndeild-
arhring þinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt að öllum líkindum
lenda í samningaviðræðum
um sameiginlegar eignir og
ábyrgð í dag. Reyndu að sýna
sanngirni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur mikla þörf fyrir örv-
andi samræður. Þig langar til
að tala um áhugaverða hluti
við áhugavert fólk.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Fólk tekur eftir því að þú
leggur þig fram um að inna
starf þitt vel af hendi. Haltu
áfram á sömu braut því það
mun bæði færa þér viðurkenn-
ingu og fullnægju í starfi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur þörf fyrir að reyna á
huga þinn í dag. Þú munt
njóta þess að spreyta þig við
hvers konar þrautir og leiki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú munt sennilega eiga mik-
ilvægar samæður við foreldra
þína í dag. Þú munt hugs-
anlega komast að einhverju
óþægilegu eða rifja upp eitt-
hvað óþægilegt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Næstu vikurnar eru ekki rétti
tíminn fyrir þig til að taka það
rólega. Þú ættir þvert á móti
að vera sem mest á ferðinni og
njóta þess að vera innan um
annað fólk.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MIG LANGAR
Þegar morgunsins ljósgeislar ljóma,
þegar leiftrar á árroðans bál,
heyri ég raddir í eyrum mér óma,
koma innst mér frá hjarta og sál:
– Hér er kalt, hér er erfitt að anda,
hér er allt það, sem hrærist, með bönd!
Ó, mig langar til fjarlægra landa,
ó, mig langar að árroðans strönd!
Ég vil bálið, sem hitnar og brennur,
en ég bölva þér, nákaldi ís.
Ég vil aflþunga elfu, sem rennur,
ekki óhreina pollinn, sem frýs.
Ég vil ástblómið rauða, sem angar,
ekki arfa eða þurrkaðan vönd.
Ó, svo langt héðan burtu mig langar,
ó, mig langar að árroðans strönd!
Jónas Guðlaugsson
LJÓÐABROT
85 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 16. maí, verður 85 ára
Guðrún Gísladóttir, Nóa-
túni 29, Reykjavík. Í tilefni
þess tekur hún á móti ætt-
ingjum og vinum á afmæl-
isdaginn í Perlunni kl.14 -17.
60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 15.
maí, er sextug Ella Sjöfn
Ellertsdóttir. Hún og eig-
inmaður hennar, Ólafur
Björgvinsson, munu bjóða
ættingjum og vinum til
veislu á heimili sínu kl. 18 í
dag.
EDDIE Kantar er brids-
kennari og tekur stundum að
sér einkakennslu – spilar við
nemendur sína í keppni.
Kantar er líka mikilvirkur
bridsblaðamaður og kunnur
fyrir þætti sína í The Bridge
World, Kantar for the De-
fence. Allir vita að vörnin er
erfið, en þegar makker er
byrjandi fer fyrst að reyna
verulega á. Kantar var með
spil vesturs í vörn gegn fjór-
um hjörtum, en í aust-
urstæðinu var „þriðji and-
stæðingurinn“ – nemandi
Kantars.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠10742
♥KD83
♦Á5
♣1065
Vestur
♠ÁG86
♥7
♦D864
♣KG43
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 hjarta
Dobl 2 grönd * Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* Góð hækkun í þrjú
hjörtu.
Kantar trompaði út í upp-
hafi. Sagnhafi tók slaginn
heima með ás og spilaði aftur
trompi á kóng. Tók næst tíg-
ulás, spilaði tígli á kóng
heima og stakk tígul hátt.
Spilaði svo laufi á níuna
heima og Kantar átti slaginn
á gosann.
Stóra stundin. Hvað
myndi lesandinn gera í spor-
um Kantars?
Kantar sundurgreindi
stöðuna og vonir varn-
arinnar:
„Sagnhafi má ekki eiga
sexlit í trompi, því þá á hann
tíu örugga slagi. Og ef hann á
fimmlit getur hann varla átt
fleiri tígla, því þá hefði hann
ekki spilað trompi strax aft-
ur í öðrum slag. Líklegasta
skiptingin er því 2-5-3-3.
Ennfremur er spilið unnið
ef suður er með Kx í spaða
og ÁD9 í laufi. Málið snýst
því um það hvort suður sé
líklegri til að eiga Dx í spaða
og ÁD9 í laufi, eða Kx í spaða
og Á9x í laufi.“
Norður
♠10742
♥KD83
♦Á5
♣1065
Vestur Austur
♠ÁG86 ♠D95
♥7 ♥652
♦D864 ♦G1097
♣KG43 ♣D72
Suður
♠K3
♥ÁG1094
♦K32
♣Á98
Þannig hugsaði Kantar og
komst að þeirri niðurstöðu
að suður ætti tæplega ÁD9 í
laufi, því þá væri ótímabært
að spila litnum. Rökrétt væri
að reyna fyrst að gera sér
mat úr spaðanum, eða
hreinsa upp litinn og und-
irbúa innkast.
Kantar ákvað því að spila
makker upp á laufdrottningu
og húrraði út laufkóng. Lítið
lauf dugir ekki, því þá verður
vestur strax sendur inn á
lauf aftur með alvarlegum af-
leiðingum.
Samkvæmt líkindafræði
Kantars er þetta 80% vörn.
Þegar austur lendir inni á
laufdrottningu er hann með
fimm spil: þrjá spaða (sem
hann má spila), eitt tromp
(sem hann má líka spila) og
einn tígul (sem ekki má spila
út í tvöfalda eyðu). „Fjögur
örugg spil af fimm mögu-
legum er nokkuð gott,“ hugs-
aði Kantar.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu 13.361
kr. til styrktar Kópavogsdeild Rauða krossins og rennur
ágóðinn til hjálpar börnum í stríði. Þau eru Hjalti Freyr
Óskarsson, Sigurrós Halldórsdóttir og Anna Margrét
Benediktsdóttir.
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e4 Rf6
4. e5 Rd5 5. Bxc4 Rb6 6.
Bd3 Rc6 7. Re2 Be6 8. Rbc3
Bd5 9. O-O e6 10. a3 Dd7 11.
Be3 O-O-O 12. b4 f6 13. b5
Ra5 14. Rxd5 Dxd5 15. Rf4
Dd7 16. Dc2 fxe5
Staðan kom upp á pólska
meistaramótinu sem lauk
fyrir skömmu í Varsjá. Pav-
el Jaracz (2539) hafði hvítt
gegn Aleksander Mista
(2517). 17. Rxe6!
He8 17... Dxe6 hefði
verið slæmt vegna
18. Bf5 og svarta
drottningin fellur.
18. Rxf8 Hhxf8 19.
Bd2! Riddari svarts
út á kanti getur sér
nú enga björg veitt.
19...e4 20. Be2 Rd5
21. Bxa5 Rf4 22.
Bg4 og svartur gafst
upp. Lokastaða
mótsins varð þessi:
1. Bartlomiej Mac-
ieja (2633) 9 vinn-
inga af 13 mögu-
legum. 2.–4. Mikhail
Krasenkov (2609), Robert
Kempinski (2586) og Jacek
Gdanski (2529) 8½ v. 5.–7.
Kamil Miton (2563), Artur
Jakubiec (2532) og Lukasz
Cyborowski (2565) 8 v. 8.
Tomasz Markowski 6½ v.
(2605) 9. Pavel Jaracz (2539)
6 v. 10.–11. Bartosz Socko
(2579) og Krzysztof Jakub-
owski (2492) 5½ v. 12. Piotr
Murdzia (2455) 4½ v. 13.
Patryk Lagowski (2425) 3 v.
14. Aleksander Mista (2517)
1½ v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
ÁRNAÐ HEILLA
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru
númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt hér
í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin húsbréf má finna
á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júlí 2004.
1. flokki 1991 – 50. útdráttur
3. flokki 1991 – 47. útdráttur
1. flokki 1992 – 46. útdráttur
2. flokki 1992 – 45. útdráttur
1. flokki 1993 – 41. útdráttur
3. flokki 1993 – 39. útdráttur
1. flokki 1994 – 38. útdráttur
1. flokki 1995 – 35. útdráttur
1. flokki 1996 – 32. útdráttur
3. flokki 1996 – 32. útdráttur
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Höfum kaupanda að góðu einbýli eða raðhúsi, 140 fm eða
stærra, auk bílskúrs. Í húsinu þufa að vera a.m.k. 3 svefn-
herbergi. Afhendingartími er samkomulag og gæti verið
rúmur. Upplýsingar veitir Snorri.
GARÐABÆR – KÓPAVOGUR
EINBÝLISHÚS - RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ ÓSKAST
Höfum kaupanda að byggingarlóð eða eldra húsnæði mið-
svæðis í Reykjavík. Einnig kemur til greina atvinnuhúsnæði
sem hægt væri að breyta í íbúðarhúsnæði.
MIÐSVÆÐIS Í REYKJAVÍK ÓSKAST
GÓÐ JÖRÐ Á SUÐURLANDI
Til sölu jörð sem er ca 150 hektarar
Á jörðinni er gott 125 fm íbúðarhús,
fjós, hlaða, vélageymsla, hesthús o.fl.
Jörðin er mjög grasgefin
og girðingar eru góðar.
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060.
NÝLEGA stóð Osta- og smjörsalan
fyrir samkeppni sem fólst í að semja
íslenskan texta við lagið „Tintarella di
luna“ og var yrkisefnið frjálst. Lagið
hefur verið notað í sjónvarpsauglýs-
ingu Létt og Laggott með ólífuolíu.
Þátttaka í leiknum var mjög góð þar
sem tæplega 150 textar bárust víðs-
vegar af landinu. Dómnefnd komst að
niðurstöðu eftir vandlega íhugun og
varð texti Bryndísar Sunnu Valdi-
marsdóttur, „Dönsum inn í sólina“ fyr-
ir valinu. Þótti dómnefnd textinn ein-
staklega fjörmikill og jákvæður og féll
hann auk þess vel að laginu.
Verðlaunin eru ekki af verra taginu
því Bryndís hlýtur glæsilega ferð fyrir
tvo til Ítalíu með Heimsferðum að
launum.
Góð þátttaka í textasamkeppni
Bryndís Sunna Valdimarsdóttir
(t.h.) tekur hér við verðlaunum
af Guðbjörgu Helgu Jóhann-
esdóttur, markaðsfulltrúa Osta-
og smjörsölunnar sf.
FRÉTTIR