Morgunblaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 74
74 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 10. B.i. 16.Sýnd kl. 8 og10.
HP
Kvikmyndir.com
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
Skonrokk
Blóðbaðið nær hámarki.
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali
„Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 8. B.i. 16. Sýnd kl. 5.40. B.i. 14.
Eftir metsölubók John Grisham
Með stórleikurunum John Cusack,
Gene Hackman, Dustin Hoffman
og Rachel Weisz
Kvikmyndir.is
SV MBL
Sýnd kl. 4.
FRUMSÝNING
Ó.H.T Rás2
Frá meistara spennunnar
Luc Besson kemur
Taxi 3.
Meiri hraði. Meiri spenna.
Bílahasarinn nær hámarki.
Sú æsilegasta til þessa.
i i i. i i .
íl i i.
il il .
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.00
„Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16.
kl. 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16.
Sýnd kl. 2 og 4.30. Með íslensku tali
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
FRUMSÝNING
Þvílíka eins djöflasnilld hef ég
sjaldan séð!
Tvímælalaust fyndnasta mynd
ársins.
Ó.Ö.H. DV
Fór beint á toppinn í USA!
R&B tónlist og
ótrúleg dansatriði!
Blóðbaðið nær hámarki.
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
„Öllum líkindum besta
skemmtun ársins“
HL MBL
„Algjört Kill Brill“
ÓÖH DV
HP
Kvikmyndir.com
Skonrokk
Frá meistara spennunnar Luc Besson
kemur Taxi 3.
Meiri hraði. Meiri spenna.
Bílahasarinn nær hámarki.
Sú æsilegasta til þessa.
i i i. i i .
íl i i.
il il .
Það er skrýtið að hugsa tilþess að Evróvisjónkeppninsnúist um að velja bestadægurlagið þegar tekið er
tillit til þess að söngvararnir fá nær
alla athyglina hér en höfundarnir litla
sem enga. Á sameiginlegum blaða-
mannafundi Norðurlandaþjóðanna í
vikunni mátti sjá Svein Rúnar Sig-
urðsson, höfund íslenska lagsins,
koma sér í makindum fyrir á sólbaðs-
bekk ásamt vini sínum, Magnúsi Har-
aldssyni, og fá sér í svanginn. Þeir
sátu handan sundlaugarinnar með
strönd Marmarahafsins og Asíuhluta
stórborgarinnar í baksýn – eins langt
frá blaðamanna- og ljósmynd-
arahringiðunni og mögulegt var.
Á frábærum stað
Aðspurður segir Sveinn Rúnar að
keppnin leggist ágætlega í sig.
„Ég er ekki mikið fyrir það að láta
mikið á mér bera, eins og þú sérð. Ég
hef hvorki sérstaklega gaman af lög-
um eins og eru algengust í keppninni
né mannmörgum veislum með há-
vaða og látum. Þá kem ég mér frekar
fyrir á afviknum stað, sleiki sólina og
sem ný lög í huganum. Hreinskiln-
islega er ég mest spenntur fyrir
staðnum og er heillaður bæði af landi
og þjóð. Eins og margir fleiri hafði ég
fullt af ranghugmyndum um landið.
Svo kemur á daginn að hér er fólk
vinalegt og hreinskilið – stolt og in-
dælt. En núna líður að því að maður
þurfi að einbeita sér að keppninni í
kvöld. Það þarf að reyna að vekja at-
hygli á laginu og ég hef tekið þátt í
nokkrum blaðamannafundum. Ég
var meira að segja plataður til að
syngja opinberlega í fyrsta skipti á
ævinni á einum þeirra. Ég var beðinn
um að syngja „Hubba hulle hulle
hulle“ af því að ég hafði sagt í hálf-
gerðum hroka að það væri uppá-
haldslagið mitt í keppninni. Ég var
með þessu að gefa vísbendingu um
hvað mér finnst um allan pakkann.
En þetta tókst ágætlega og við þykj-
um nokkuð góðir á þessum fundum,
sem er mjög mikilvægt, skilst mér,
þar sem áttatíu prósent af pakkanum
sé bara markaðsherferð. Einhver
sagði mér að þetta væri að einum
þriðja hluta spurning um hvernig
Jónsa tekst upp á sviðinu, þriðji part-
ur spurning um kynþokka og útgeisl-
un hans og að síðustu þriðjungur
spurning um lagið. Mitt er bara að
skila síðasta hlutanum.“
Hefur flutningurinn hjá Jónsa orð-
ið öðruvísi eftir því sem nær hefur
dregið?
„Hann hefur verið að leika sér svo-
lítið, líka á sviðinu, með „fraseringar“.
Hann hefur auðvitað fullt leyfi hjá
mér til að gera það. Það er líka um að
gera þegar við komum inn á svið að
við séum með nýja og ferska fram-
leiðsluvöru, ný föt, nýjar „fraser-
ingar“, nýjar áherslur og að sjálf-
sögðu sviðshreyfingar sem koma á
óvart. Þetta verður allt frumsýnt á
úrslitakvöldinu. Selma Björnsdóttir
sá um að hanna hreyfingarnar og
tekst einstaklega vel upp. Svo er
Haukur Hauksson búinn að standa
sig frábærlega í að sjá um að þegar
Jónsi líti í myndavélina líti hann alltaf
í rétta átt, horfi til áhorfandans, því
við erum að selja fólki heima í stofu
atriðið en ekki áhorfendum úti í sal.
En þetta lítur allt vel út, við erum
þarna á frábærum stað, númer 17, í
boði Sautján. Það er styrktaraðilinn.“
Verður það að koma fram?
„Nei, ég er að stríða þér. En þetta
lítur allt ágætlega út. Ef ég á að vera
hreinskilinn þá finnst mér við ein-
hvern veginn standa okkur best af
Norðurlandaþjóðunum. Ég er líka
þeirrar skoðunar að Kýpverjar séu
með miklu betra lag en okkar og að
Serbar og Svartfellingar séu með
langbesta lagið.“
Lagið þitt gefur flytjandanum
möguleika á vissri breidd í túlkun.
„Já, mér finnst takast þarna að
fullnýta formið og Jónsi fer allan
skalann. Annars ber ég mesta virð-
ingu fyrir þeim sem tekst að láta viss
þjóðareinkenni koma fram í tónlist-
inni, rétt eins og Tyrkir gerðu í fyrra
og einmitt Serbar og Svartfellingar
gera í ár. Við þurfum svo sem ekkert
að skammast okkar þar sem við erum
bara með svona venjulega ballöðu.
Það er annað með Danina og latino-
poppið. Eins og Tómas Þórðarson
hefur sjálfur bent á eru harla lítil
tengsl á milli salsa-tónlistar og
danskrar tónlistarhefðar.
Ofboðslegur fagurkeri
Finnst þér ekki hálfóraunverulegt
að vera hérna á fimm stjörnu hóteli
við strönd Marmarahafsins?
„Ég er reyndar ofboðslegur fag-
urkeri og hef oft upplifað svipað áður
en þetta er vissulega ákveðinn gervi-
heimur sem varir í viku – hann tekur
enda þegar klukkan slær tólf á mið-
nætti aðfaranótt sunnudagsins að
tyrkneskum tíma. Það eru níutíu og
níu prósent líkur á að við höldum ekki
heim sigurvegarar. Þetta öskubusku-
ævintýri verður einfaldlega búið. Það
verður ekki einu sinni spurning um
neina öryggisgæslu meir, það virðist
ekki skipta máli ef við verðum skotin
á götum úti, svo fremi sem það sé eftir
keppnina.
Þegar þessu er lokið er bara að
takast á við það. Sem betur fer hefur
maður nóg að gera í framhaldinu, en
tónlistin hjá mér er bara aukageta.“
Ýmislegt úr viðtalinu við Svein
Rúnar rifjaðist svo upp á fimmtu-
dagskvöldið þegar fulltrúar Morgun-
blaðsins rákust á hann við innganginn
á Holiday Inn City hótelinu. Við vor-
um allir á leið inn í vináttusamkvæmi
sem fulltrúar Úkraínu og Serbíu og
Svartfjallalands efndu til – af nokkr-
um vanefnum, eins og átti eftir að
koma í ljós. Hvorir tveggja þessara
keppenda eru taldir eiga góða mögu-
leika á að vinna en Sveinn Rúnar var
þarna á ferð með nokkrum úr finnsku
sendinefndinni, sem hann kvað hafa
verið ótrúlega fljóta að ná sér eftir að
hafa verið slegnir út úr keppninni
kvöldið áður. Vináttuboðið reyndist
mesta martröð, haldið í kjallaraholu
þar sem hvorki var hátt til lofts né vítt
til veggja, maturinn kláraðist á auga-
bragði og langar biðraðir mynduðust
við barinn. Hvorki var hægt að koma
auga á Ruslönu hina fögru né Serb-
ann vin hennar þar sem sviðið var
eins og frímerki að stærð og lítt upp-
hækkað. Múr ljósmynda- og sjón-
varpsvéla girti það líka gersamlega af
og í hljóðkerfinu heyrðist einungis í
brasilískum kynni sem hvatti fólk til
samkvæmisleikja. Enginn hinna tvö
þúsund gesta, sem voru þarna eins og
sardínur í dós, virtist líklegur til að
geta tekið þátt enda útlimirnir límdir
niður með síðunum í troðningnum.
Það síðasta sem sást til Sveins Rún-
ars, þegar Morgunblaðsmenn flýðu
staðinn, var að hann stóð heldur stúr-
inn á svipinn í þvögunni við barinn, án
efa farið að dreyma um að komast
heim aftur til að geta tekið upp þráð-
inn í tannlæknanáminu.
Rætt við Svein Rúnar Sigurðsson, höfund Heaven
Gerviheimur
sem varir í viku
Sveinn Rúnar: Við þurfum svo sem ekkert að skammast okkar þar sem
við erum bara með svona venjulega ballöðu.
Evróvisjónkeppnin fer fram í kvöld.
Jón Jósep Snæbjörnsson keppir þar fyrir
Íslands hönd og syngur lag Sveins Rúnars
Sigurðssonar, Heaven. Sveinn Haraldsson
ræddi við nafna sinn úti í Istanbúl.
Atkvæðaseðill/56
Útkoman/56
Víða/73