Morgunblaðið - 15.05.2004, Qupperneq 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Gjafadagar
13. - 23. maí
Opið til 18.00 í dag
„ÉG viðurkenni það fúslega að
mér var heitt í hamsi, ég tók
djúpt í árinni og notaði stór orð,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs, við Morgun-
blaðið, aðspurður um ummælin
sem hann lét falla um Davíð
Oddsson forsætisráðherra í um-
ræðum á Alþingi í gær um fjöl-
miðlafrumvarpið.
Óskaði eftir ráðherra
Þar kallaði Steingrímur for-
sætisráðherra „gungu og
druslu“, eftir að að hafa ítrekað
óskað eftir því við forseta Alþing-
is að forsætisráðherra kæmi í
þingsal og svaraði spurningum
sem tengdust frumvarpinu. Fékk
hann þau svör hjá forseta Alþing-
is að ráðherrann kæmist ekki á
þingfund. „Ég hlýt að líta svo á,
herra forseti, af því að hæstvirtur
forsætisráðherra getur ekki haft
nein lögmæt forföll – bráðfrískur
maðurinn á vappi hérna kringum
salinn áðan – hann getur ekki
haft nein önnur forföll, nein lög-
mæt forföll. Ég hlýt að líta svo á
að hann þori ekki að koma hér og
eiga orðastað við mig.
Ég hlýt að líta svo, og það skal
þá standa, að Davíð Oddsson sé
slík gunga og drusla að hann þori
ekki að koma hér og eiga orða-
stað við mig,“ sagði Steingrímur
og í kjölfarið bað forseti Alþingis
þingmenn að gæta orða sinna.
Steingrímur sagðist við Morg-
unblaðið hafa haft ástæðu fyrir
þessum orðum. „Sumum finnst
þetta sjálfsagt vera óþarflega
stór orð en ég hafði þær ástæður
að mér var verulega misboðið.
Ég tel að mér og þinginu hafi
verið sýnd lítilsvirðing þegar for-
sætisráðherra hundsaði algjör-
lega ítrekaðar og rökstuddar
óskir um að hann kæmi og svar-
aði fyrir um mál sem hann ber
hér fram. Ég tel að það sé brot á
þeim hefðum sem hafa ríkt um
þessi samskipti, þ.e. að þingmenn
eigi rétt á því að fá ráðherra til
rökræðna og eftir atvikum til
þess að leggja fyrir þá spurning-
ar,“ sagði Steingrímur.
„Ég tók djúpt í árinni
og notaði stór orð“
Kallaði Davíð/10
VEGNA hækkunar olíuverðs að
undanförnu kann að fara svo að
Flugleiðir leggi sérstakt eldsneyt-
isgjald á farmiða félagsins. Þetta
kom fram hjá Sigurði Helgasyni,
forstjóra félagsins, á kynningar-
fundi vegna afkomu fyrsta árs-
fjórðungs sem haldinn var í gær,
og þar sagði hann ennfremur að fé-
lagið hefði litlar varnir gegn hækk-
un eldsneytisverðs. Sigurður sagði
að einhver erlend flugfélög væru
þegar farin að leggja sérstakt elds-
neytisgjald á farmiðana.
Bætt afkoma
Afkoma Flugleiða batnaði mikið
milli ára og hefur ekki verið betri á
fyrsta ársfjórðungi í fimm ár. Á
fyrsta fjórðungi ársins er félagið
jafnan rekið með tapi, en tap þess
dróst saman um 452 milljónir
króna milli ára og nam 893 millj-
ónum króna.
Farþegum hefur fjölgað mikið
milli ára og sætanýting aukist, sem
vegur upp lækkun meðalfargjalds.
Elds-
neytis-
gjald á
farmiða?
Tap/14
ÞÓNOKKUR hópur erlendra ferðamanna
kemur sérstaklega til landsins til þess að
skoða verk bandaríska listamannsins Rich-
ard Serra í Viðey, Áfanga. Að mati Ragnars
Sigurjónssonar, ráðsmanns í Viðey, koma
hingað um það bil fjörutíu til fimmtíu er-
lendir ferðamenn í þessum erindum á ári
hverju. Pétur Arason listaverkasafnari seg-
ir að það megi fullyrða að flugvélarfarmur
af erlendum ferðamönnum hafi komið til að
skoða verkið síðan það var vígt árið 1990.
„Einkum eru þetta Ameríkanar sem koma
en ég man til dæmis eftir því að fyrir nokkr-
um árum bauð bandarískur auðjöfur allri
stjórn Museum of Modern Art (MoMA) í
New York hingað að skoða verkið. Að
margra mati er þetta eitt besta verk Serra.“
Ragnar segir að áhugi Íslendinga sé allt-
af að aukast á verkinu en fleiri mættu þó
koma og skoða það.
Áfangar Serra
draga að er-
lenda ferðamenn
Steinsúlur/Lesbók
Morgunblaðið/Þorkell
ónir til fiskræktar, Stangaveiðifélag
Reykjavíkur 33,2 milljónir, Sporður
ehf. 32.915 milljónir og 1.200 milljónir
til fiskræktar, Tinna sf. 32,5 milljónir,
Brynjólfur Markússon 32 milljónir og
400 þúsund til fiskræktar, Svarti-
stokkur ehf. 31,2 milljónir, Strengur
ehf. 28.165 milljónir og Sportmenn Ís-
lands 27.710 milljónir og 401 þúsund
til fiskræktar.
Bændur leggjast nú undir feld og
ráða ráðum sínum, en áður hafði for-
maður Veiðifélags Grímsár, Þor-
steinn Þorsteinsson, greint frá því að
þá aðeins myndu bændur taka tilboði
í ána að þeir fengju verulegan ávinn-
ing umfram það sem ríkjandi fyrir-
komulag við veiðileyfasölu hefur skil-
að þeim.
Það vakti mikla athygli þegar
ákveðið var að setja Borgarfjarðar-
árnar Grímsá og Norðurá í útboð,
ekki síst vegna þess að verðhækkanir
á veiðileyfamarkaðinum hafa hin
seinni misseri verið langt umfram
verðbólgu í landinu.
FYRIRTÆKIÐ Hreggnasi ehf. var
með hæsta tilboð í laxveiðina í Grímsá
er tilboð voru opnuð í gærdag. Alls
hljóðaði tilboðið upp á 38,5 milljónir á
ári auk tveggja milljóna króna til fisk-
ræktar. Alls bárust ellefu tilboð í ána.
Færi ehf. var með næsthæsta boð,
38.110 milljónir og 850 þúsund til fisk-
ræktar og í þriðja sæti var Lax-á ehf.
með boð upp á 36.020 milljónir auk
750 þúsund króna til fiskræktar. Síð-
an komu tilboðin hvert af öðru, Raflax
ehf. með 34.703 milljónir og 1,2 millj-
38,5 milljónir í Grímsá
FULLTRÚI Íslands í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
í Tyrklandi í kvöld, Jónsi, er tilbú-
inn í slaginn. Hann er hér á sviðinu
í Istanbúl á sinni lokaæfingu í gær,
sem þótti takast mjög vel. Að æf-
ingu lokinni sagði Jónsi, Jón Jósep
Snæbjörnsson, við blaðamann
Morgunblaðsins á vettvangi að sér
liði mjög vel. „Æfingin fór nokk-
urn veginn eins og ég ætlaði mér
að láta hana fara.“
Jónsi tilbúinn
Morgunblaðið/Sverrir
Söngvakeppnin/56,73–74
„LISTAHÁTÍÐ er að verða að sígildum þætti í ís-
lensku listalífi. Hins vegar má hún aldrei verða sígild
í þeim skilningi að hún sé fyrirsjáanleg og stöðnuð.
Þvert á móti verður hún ávallt að vera hólmganga
við tilfinningar okkar og storka hinu viðtekna sam-
hliða því að kitla fegurðarskyn okkar og leyfa okkur
að njóta þess sem staðist hefur tímans tönn,“ sagði
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra á setningarhátíð Listahátíðar 2004 sem fór
fram í Listasafni Íslands í gær að viðstöddu fjöl-
menni.
Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi
Listahátíðar, sagði í setningarræðu sinni: „Tímarnir
sem við lifum eru ótryggir og listin speglar þann
veruleika. Listamenn Listahátíðar koma margir um
langan veg og eiga brýnt erindi og íslensku lista-
mennirnir ekki síður. Við erum hluti af þessum
heimi, hann færist æ nær okkur. Listamenn Listahá-
tíðar eru bæði ungir og djarfir, reyndir og virtir. Og
erindi þeirra er skýrt, þeir freista þess að segja okk-
ur hver á sinn hátt hver við erum, hvar við erum og
hvert við stefnum.“
Sýningin Í nærmynd var síðan opnuð af Ólafi
Kvaran safnstjóra. „Allir listamennirnir á sýning-
unni fjalla um mikilvægar og áleitnar spurningar
sem varða tengslin milli listar og veruleika og mætti
kalla fagurfræði hversdagsins,“ sagði Ólafur. „Verk-
in vísa til, umbreyta eða sviðsetja upp á nýtt þann
veruleika sem birtist í hlutum og táknum samfélags-
ins eða í listasögunni.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Gestir á opnun Listahátíðar fylgjast með frumsýningu á verki Íslenska dansflokksins eftir Katrínu Hall.
Listahátíð kitlar fegurðarskynið
„LISTAMAÐURINN vill taka utan um
áhorfandann og verk hans eru þeirra sam-
eiginleg ákvörðun. Ég klára aldrei verk
nema að hugsa um hvað áhorfandanum
finnist,“ segir listarmað-
urinn Jeff Koons en hann
er á landinu vegna opnun-
ar sýningarinnar Í nær-
mynd, í Listasafni Íslands.
Koons, sem er meðal
kunnustu myndlistar-
manna samtímans, á verk
á sýningunni, þar á meðal
postulínsstyttu af Michael
Jackson.
Jeff Koons öðlaðist
heimsfrægð fyrir hjónaband þeirra Cicciol-
inu, sem er klámmyndaleikkona og fyrrver-
andi þingmaður á Ítalíu. Þau eignuðust
saman son, sem Koons fékk forræði yfir.
Syninum var rænt af heimili feðganna í New
York árið 1994 og fluttur til móður sinnar á
Ítalíu. Þeir hafa ekki sést síðan.
„Það var mjög átakanlegt,“ segir Koons.
„Það eina sem ég hafði að halla mér að eftir
þetta var myndlistin. Ég reyndi að búa til
listaverk sem væru þess eðlis að sonur minn
gæti komið til baka, séð þau og sagt „Vá,
pabbi hætti aldrei að hugsa til mín.“
Vill taka
utan um
áhorfandann
Jeff Koons
Þú ert fullkominn/38