Heimilistíminn - 14.03.1974, Qupperneq 15
salti og pipar. t
þaö eru settir bitar af salatgúrku og klippt
steinselja.
Lifrin á að vera i þunnum sneiðum, sem
settar eru á heita pönnu ásamt olifuoli-
unni og smjörlikinu. Sneiðarnar eiga að
brúnast fljótt, svo að maður þarf að vera
snöggur að bæði snúa þeim og krydda
með pipar, salti og merian eða oregano.
Áður en þær eru teknar af pönnunni, er
gott að dreypa á þær sitrónusafanum.
Hvitlauksyoghurtin er búin til áður. Að-
eins þarf að blanda hráefninu saman og
krydda eftir smekk. Soðnar kartöflur eru
góðar með þessu, en einnig gróft fransk-
brauð.
Indversk lifur Kabab
Indverskur matur er oft kryddaður með
sérstöku kryddi, sem heitir Masala og er
eiginlega sambland af ýmsu kryddi. Mas-
ala er i þessum rétti.
400—500 gr. kálfalifur
safi úr 1/2—1 sitrónu
1 tesk. korianderduft
1/2 tesk. pipar
1 tesk. kúmenfræ
1/2 tesk. kardimommur
1/4 tesk. negull
smávegis heill kanell
1 1/2 tesk. salt
og 1/4 tesk. chiliduft
Lifrin er skorin i teninga, sem vættir eru i
sitrónusafanum og siðan látið biða i 20-30
min. Siðan er þeim difið i kryddblönduna,
þeir settir upp á spjót og grillaðir i 8-10
min og penslaðir með smjöri öðru hverju.
Áður en bornir fram, er sitrónusafa
dreypt á. Ef spjót er ekki fyrir hendi, má
steikja teningana á pönnu. Með eru borin
hrisgrjón og sitrónusneiðar.
Sherrymarineruð lifur
Ca. 1 kg. lifur
1 stórt glas þurrt sherry
1—1 1/2 tesk. salt
1/2 tesk. pipar
1 tesk. paprika
smjörliki og
olifuolia til steikingar
100 gr. bacon
1/4 kg. sveppir
sitrónusneiðar
Hægt er að blanda saman fleiri en einni
tegund af lifur i þennan rétt. Hún er skor-
in I þunnar sneiðar og hellt yfir þær
sherrýinu, sem kryddið hefur verið hrært
út i. Látið standa i hálftima og lifrinni
snúið við öðru hverju. Siðan er sherrýið
látið renna af henni og hún steikt i oliunni
og smjörlikinu, tekin upp og haldið heitri.
Baconsneiðarnar eru steiktar og lagðar
yfir lifrina og sömuleiðis sveppirnir.
Pannan soðin upp með vatni og afgangin-
um af sherryleginuln, sem að öllum lik-
indum er litill, þvi lifrin drekkur mikið i
sig. Soðinu er hellt yfir og sitrónusneiðar
lagðar ofan á. Grænt salat, kartöflur og
brauð er borið meö.
15