Heimilistíminn - 14.03.1974, Blaðsíða 22
POI
SUZI QUATRO
Hún kom eins og elding inn i pop-
heiminn. „Can the can” kom á mark-
aðinn 5. mai 1973 og tveimur vikum
siðar var platan komin á toppinn á
ensku vinsældalistunum. Skömmu sið-
ar var „Can the Can” lagið sem ungl-
ingar um allan heim vildu fá að dansa
eftir á diskótekum.
Suzi Quatro var harla ánægð með
þetta. Hún hafði þurft að biða lengi
eftir að fá að gera sina fyrstu plötu, en
að sú yrði svona feikivinsæl, nei, það
hafði hana aldrei dreymt um.
Hún átti þetta skilið og það sannaði
hún með næstu plötu, „48 Crash”, sem
einnig fór beint inn á vinsældalista og
hækkaði sig þar. „Allt er þá þrennt er”
segir ágætt máltæki svo Suzi reyndi
enn með „Daytona Demon” og ekki
gekk það verr. Sú plata fór einnig á
vinsældalista á mettima, sú þriðja i
röðinni.
Suzi Quatro er bandarisk, fædd i De-
troit 3. júni 1950. Faðir hennar er tón-
listarmaður og Suzi var meðlimur i
hljómsveit hans strax átta ára. En 15
ára var hún búin að fá nóg af jazz og
bongótrommum, en á þær spilaði hún.
Þá hætti hún i hljómsv. föður sins og
myndaði „grúppu” með systrum sinum
þremur, Nancy, Patty og Arlene. Þær
kölluðu sig „Suzi Soul & The Pleasure
Seekers” Systurnar fjórar urðu afar vin-
sælar i Detroit og höfðu meira en nóg að
gera. Brezki framleiðandinn Mickie Most
var af tilviljun staddur á næturklúbb ein-
um, þar sem Suzi og systurnar skemmtu
og hann varð þegar yfir sig hrifinn af Suzi.
Hann taldi hana á að koma með sér til
Englands og reyna sig þar.
Suzi lét slag standa, en hún sá ótal sinn-
um eftir „flóttanum” frá Detroit og góðu
dögunum þar. Það gekk sem sé ekki eins
vel i Englandi og hún hafði búizt við. Most
hélt aftur af henni. Suzi var óþolinmóð og
vildi strax syngja inn á plötu, en Most
sagði, að bezt væri að biða, þar til rétta
lagið kæmi. Hann hafði á réttu að standa.
Can the Can kom og hver getur óskað sér
nokkurs betra til að byrjameð? Nú er Suzi
þakklát Most fyrir að haf hamið sig.
Þegar Suzi er á sviðinu, er hún alltaf
klædd þröngum svörtum leðurfötum. Hún
spilar á bassagitar, sem er allóvenjulegt
af stúlku. Röddin er skörp og knýjandi,
það er eins og ómögulegt sé að sitja kyrr,
þegar plötur hennar eru á fóninum.
22