Heimilistíminn - 06.06.1974, Blaðsíða 3
Alvitur vill að marggefnu tilefni taka það
fram, að til þess að bréfunum sé svarað,
þarf að fylgja þeim fullt nafn, sem að
sjálfsögðu er ekki birt, ef þess er óskað.
Og þá eru það bréfin:
Heimilis-Tíminn.
Ég vil i upphafi þakka, hversu myndar-
lega þetta heimilisblað fer af stað. Það
eina, sem skortir á, að ég sé ánægður, er
hversu pappirinn er lélegur og vildi ég
gjarnan greiða hærra verð fyrir betri
pappir og þar með meiri varanleika.
Sunnudagsblað Timans og tslendinga-
þættina á ég frá upphafi i tilheyrandi
öskjum. Slikar öskjur þarf Heimilis-Tim-
inn að tryggja kaupendum á hagstæðu
verði.
Ein nóg um það. Tilefni bréfsins var að
spyrja Alvitra blaðsins og vænti ég þess,
aö hann svari i fullri alvöru. Spurningin er
ósköp sakleysisleg, en af gefnu tilefni:
Geta pósthús, eða póstafgreiðslur neitað
að taka á móti ófrimerktum bréfum, ef
tilskilið gjald fylgir?
Spurull.
Svar: Alvitur hringdi i yfirvöld á pósthús-
inu i Reykjavik og fékk þær upplýsingar,
að ekki væri leyfilegt að setja ófrimerkt
bréf i póstkassa, þó gjald fylgdi, en slikt
r ........
Meðal efnis
í þessu blaði
kæmi stundum fyrir. Slik bréf eru send til
viðtakanda, en þá verður hann að borga
tvöfalt burðargjald. Að sjálfsögðu er
þetta vandamál ekki fyrir hendi, ef farið
er með ófrimerkt bréf á póstafgreiðslu,
þar er keypt frímerki á það.
Varðandi fyrri hluta bréfsins er sjálf-
sagt að þakka hlýleg orð, en betri pappir
og öskjur hefur verið til umræðu og svo er
bara að vona hið besta.
Alvitur.
Elsku Alvitur!
E'yrst þú veizt allt, þá eru hérna fjórar
spurningar: Hvað eru margar hitaeining-
ar i einu epli? Hvað á ég að vera þung,
þegar ég er 170 sm? Er það rétt, að Willy
Brandt hafi einhvern tima heitið eitthvað
annað og hvað var þaö þá? Hvað er
„vendetta”?
Þorstlát.
Svar: Samkvæmt beztu heimildum eru
um 100 hitaeiningar i stóru epli. Það fer
nokkuð eftir beinabyggingu, hvað þú átt
að vera þung, en ágætis regla er að taka
töluna 1 framan af hæðinni og draga 10%
frá afganginum, þannig að þú ættir að
vera um 63 kiló. Willy Brandt hét Herbert
Ernst Karl Frahm. Vendetta er blóð-
hefnd, þ.e.a.s. einhver úr fjölskyldu hins
myrta myrðir einhvern úr fjölskyldu
morðingjans. Þetta tiðkast enn til dæmis
á Sikiley.
Alvitur.
Kæri Alvitur!
Ég er i stamlandi vandræðum með
sjálfan mig. Ég get nefnilega aldrei mun-
að nöfn á fólki, sem ég er kynntur fyrir og
þegar ég svo ætla að tala við það á cftir,
verð ég að spyrja það að nafni. Þetta er ó-
þolandi, hvað gct ég gert?
Minnislaus.
Svar: Ég er alls ekki viss um að þú sért
svona minnislaus, þetta er fremur vani.
En þú ért alls ekki einn um þetta. Ef þú
reyndir að kynna sjálfan þig sem Napó-
leon eða Grim Thomsen, er hreint ekki
vist að margir tækju eftir þvi. Eina ráðið,
sem ég get gefið þér, er að reyna að ein-
beita þér að þvi að taka eftir nafni við-'
komandi og hugsa þá ekki um neitt annað
á meðan.
Alvitur.
Alvitur svarar bréfum..........■.................. bls 3
Enginnhryllingur viðtal viö frú Hitchccock........ bls 4
Barnasagan........................................ bls 8
Blómunum finnstgott............................... bls 10
• Börnin teikna og pennavinir...................... bls 12
Brúður i þjóöbúningum............................. bls 13
Pop-Three dog night............................... bls 14
Þjáist þið af vorþreytu?.......................... bls 15
Herbergi fullt af minningum, smásaga.............. bls 16
Þjóðhátiðarljóö.................................. bls 19
Hafa elztu börn forréttindi?...................... bls 20
Tilbóta .......................................... bls 21
Er eggjasjampó blekking?........................ bls 22
íleiðinni......................................... bls 23
Matur á minutunni .................................bls 24
Þóra i Gvendareyjum, saga......................... bls 28
Stjörnukapall .................................... bls 30
Ryðið, óvinurinn stórhættulegi.................... bls 31
Svartidauði....................................... bls 33
Fyrirbrigðiöfrá Astraliu, Rolf Harris............. bls 35
Piparávextir og vitamin........................... bls 37
Að prjóna hæl .................................... bls 37
Ósýnilega vera ræðst á stúlku..................... bls 38
Framhaldssögurnar................................. bls 41
Ennfremur skrýtlur, húsráð, þrautir o.fl. . ........
Forsiðumyndin er frá Sundlaug Akureyrar. Ljósm. Hall-
grfmur Tryggvason.