Heimilistíminn - 06.06.1974, Síða 6
minu. Hann hafði keypt það i laumi, þegar
hann gerði sér grein fyrir, að ég var svo
hrifin af þvi. Þannig er Hitch.
Fullkominn eiginmaður
Alma og Alfred hafa nú verið gift i nær
hálfa öld og má telja það einstakt i kvik-
myndaheiminum, þar sem skilnaðir eru
daglegt brauð. Hjónabandið hefur verið
mjög hamingjusamt. Hitch, konungur
konunganna, hvað varðar morð og óhugn-
að i kvikmyndum er heima fyrir eitt það
þezta og bliðasta, sem hugsazt getur.
Hann hefur unnið með fegurstu konum
heims, allt frá Ingrid Bergman til Grace
Kelly — en, segir Alma, — hann er hinn
fullkomni eiginmaður. Ekki i eitt einasta
skipti hefur hann gefið mér minnstu
ástæðu til afbrýðisemi.
Engir vinir i Hollywood
Þegar Hitch er ekki að vinna, er hann
heima. Hann er ekki i neinum klúbbi,
stundar engar iþróttir af neinu tagi og vill
helst eyða leyfunum heima lika. Hann
segir: — Ég fer i stúdióið og þegar vinn-
unni er lokið, fer ég heim. Við höfum
aldrei tekið þátt i skemmtanalifinu i
Hollywood af þeirri einföldu ástæðu, að
við kærum okkur ekki um þá tegund
skemmtana. Við eigum enga vini i Holly-
wood aðeins kunningja gegnum viðskipti.
Alma og Alfred Hitchcock fara oft að
hátta klukkan hálf tiu. Alma segir að þau
eigi risastórt hjónarúm og kunni vel að
meta að liggja þar og horfa á sjónvarp.
Alfa alltaf með
Alma segir, að Alfred sýni henni alltaf
handritið, áður en hann byrji á kvikmynd
og hún er einnig fyrsta manneskjan sem
sér myndina fullgerða.
— Ef mér likar ekki myndin, segi ég
honum bara meiningu mina. Hann virðir
álit mitt, vegna þess að hann veit, að ég
mundi aldrei segja, að mynd væri góð, án
þess að meina það.
Ef Hitch þarf aðferðast til að taka kvik-
mynd, fer Alma alltaf með til að halda
honum félagsskap. — Aðeins einu sinni,
fyrir mörgum árum, gat ég ekki farið og
honum fannst það leiðinlegt og siðan seg-
ist hann ekki fara, ef ég komi ekki með.
Vaskar upp
Geta þau bæði sagt, hvað er
leyndarmálið bak við hið hamingjusama
hjónaband þeirra?
Alfred svarar strax: — Það eru tveir
hlutir sem eru mikilvægari en allt annað:
Maður á alltaf að muna að segja konunni
sinni, að hún sé dásamleg og bezti kokkur
i heimi. Auk þess má eiginmaður aldrei
biða eftir tækifæri til að kyssa hana og
gefa henni smágjafir. Og, heldur hann
áfram, — þó ég eigi á hættu óvild eigin-
manna, þá er alveg sjálfsagt að eigin-
maðurinn vinni eitthvað af heimilisverk-
unum og hann má ekki vera skapstirður á
morgnana.
— Er hann ekki dásamlegur? segir
Alma. — Allt þetta hefur hann alltaf gert.
Ég held, að hann hafi enga galla. Hann
hefur ekki farið I taugarnar á mér i eitt
skipti á þessum 48 árum. Ég er hamingju-
söm — og mjög heppin.
— Mér er sagt, að hún Gunna sé ekki sér-
staklega greind.
— Nei, það er vist ekki mikið þar á efstu
hæðinni, en þvílikur stigi.
— Ég hef heyrt að vinnukonan okkar sé ó-
frisk.
— Það er hennar mál.
— Já, cn það er sagt, að þú eigir það.
— Það er mitt mál.
— Þú heldur þó ckki, að ég sætti mig við
það?
— Það er þitt mál.
Tveir gamlir vinir hittust á götu og annar
leiddi undurfagra ljósku.
— Má ég kynna þig fyrir kærustunni. Hún
heitir Anna og er dóttir Kalla klæðskera.
Þetta er i fyrsta skipti sem hann hefur bú-
ið til citthvað sem passar mér alveg.
— Það hlýtur að vera erfitt að fá lúðra
núna. Aliir i nágrenninu vilja kaupa
þennan af mér.
— Halló, er þetta hattabúðin? Ilvað
ineinið þið með þvi að gera konuna
mina að athlægi um allan bæinn?
— Þú segist vera grænmetisæta og svo
siturðu hér og hámar i þig nautabuff.
— Já, það kalla ég forboðna ávexti.
— Maðurinn, sem ég giftist á að vera
músikalskur, geta sagt skemmtilega frá,
verið kyrr heima og hvorki að reykja né
drekka.
— Það er ekki maður, það er sjónvarps-
tæki.
6