Heimilistíminn - 06.06.1974, Side 14
POI
Three dog night
t THREE Dog Night eru eiginlega sjö
manns, en söngvararnir þrir eru mið-
depillinn. Cory Wells, Danny Hutton
og Chuck Negron eru ákaflega ólikir.
Þó er það einmitt sérkenni hvers og
eins þeirra, sem þakka ber frægðina.
Þeir lofa hæfileikum sinum að njóta
sin, hver og einn, og hafa fundið stil,
sem allir eru ánægðir með.
Cory varð þegar i bernsku fyrir
áhrifum af gospel-tónlist negranna og
það varð til þess að hann fékk áhuga á
tónlist yfirleitt. Meðan flestir ungling-
ar voru á kafi i rokki, var Cory niður-
sokkinn i framúrstefnuna. Hann hefur
stofnað margar hljómsveitir, en aldrei
verið ánægður fyrr en Three Dog
Night komu til sögunnar.
— Three Dog Night er einmitt það,
sem ég hef alltaf veriö að leita að,
segirhann. — lfér vinn ég með tveim-
ur góðum söngvurum og undirleikar-
arnir fjórir eru einmitt við hæfi okkar.
Danny er irskur að uppruna og irsk
tónlist er rik i honum. Þegar um 12 ára
aldurinn tók rokktónlist hann föstum
tökum og hann kynntist popp-iðnaðin-
um fyrst sem hljómplötuframleiðandi.
Siðar fór hann að semja lög og söng
þau inn á plötur, sem hann gaf sjálfur
út. Aður en hann kom i Three Dog
Night, urðu tvö laga hans vinsæl:
,,Roses and RainbowsV og „Funny
How Love Can Be”. /
Chuck stofnaði hljómsveit, strax
þegar hann var 14 ára, en siðar fór
hann að koma fram einn á báti. Hann
hefði getað náð langt einn, en entist
ekki við það nema tvö ár. Hann kynnt-
ist Three Dog Night, likaði vel og fast-
réð sig þar. Chuck er einnig ákaflega
hrifinn af negratónlist og hann er einn
fárra hvitra söngvara, sem haldið
hafa hljómleika i Apolloleikhúsinu i
negrahverfinu Harlem i New York.
Undirleikararnir fjórir i hljómsveit-
inni eru: Mike Allsup, sem spilar á
sólógitar, trommur og pianó, Joe
Schermie, sem spilar á bassa, en
ræður einnig vel við gitar og trommur,
Jim Greenspoon leikur á orgel, pianó
og pianettu, og svo er það Floyd Sneed,
sem kom siðastur og spilar á trommur
og sér um allt, sem heyrir undir takt-
inn.
Fyrsta stóra plata þeirra félaga hét
,,Three Dog Night” og var árangur
margra mánaða erfiðisvinnu. Laun
erfiðisins við hana voru hvorki meira
né minna en gullplata, en það þýðir
milljón eintök seld. Þrjár þær næstu
seldust einnig i milljónaupplagi:
„Suitable for Framing”, „Captured
Life at the Forum” og „It Ain't Easy”
siðustu plötur þeirra eru „Naturally”,
„Golden Bisquits” og „Cyan” en á
henni er lagið „Shambala”.
14
V
i
1