Heimilistíminn - 06.06.1974, Page 24
Hakkað kjöt
Sósa með makkarónum, spaghetti og
hrisgrjónum. Hér er góð grunnsósa með
mismunandi bragðbaeti. Steikið hakkað
kjöt á heitri pönnu og hrærið i þvi allan
timann. Gjarnan má hafa smátt saxaðan
lauk með. Setjið slatta af tómatsósu i,
einn súputening og ca 1 dl. vatn. Látið
þetta malla i 10 minútur og kryddið eftir
smekk. Rifinn ostur og hrá eggjarauða
eru góð með.
ÞRJÚ TILBRIGÐI: Nokkrar baconsn-
eiðar, skinka eða áleggspylsa má sjóða
með i litlum bitum. Þá má setja sveppi úr
dós saman við, eða grænar baunir
KRAFTAVERKAFARS: Steikið hakkið i
gegn og hrærið i eins og áður. Blandið þá
salti, pipar og söxuðum lauk saman við.
Þeytið saman eitt egg og 1/2 tesk sinnep á
mann og jafnið saman við hakkið
RÚSSNESKUR BIXIMATUR: Sjóðið
hrisgrjón i kjötseyði á meðan farsið er að
steikjast. Kraumið paprikuduft i smjör-
liki og setjið i hakkið ásamt söxuðum
lauk, söxuðum rauðbeðum, súrri gúrku og
kapers. Bragðbætið með salti pipar og
setið allt saman við hrisgrjónin.
CHILI CON CARNE: Steikið hakkið á
sama hátt og áður, bætið i það salti,
pipar, papriku og hvitlauk. Hellið siðan
einni dós af bökuðum baunum i tómatsósu
saman við og látið allt malla i 5 minútur.
■
24