Heimilistíminn - 06.06.1974, Side 30
Stjörnukapall
Vi& lagningu þessa kapals eru notuö ein
venjuleg spil. Sextán spil eru lögð þannig,
að þau mynda stjörnu með átta geislum,
sem myndast af tveim spilum hver geisli
(sjá mynd).
Það skiptir ekki máli, hvernig þessi
stjarna er lögð, en venjan er að byrja að
leggja inni stjörnuna fyrst þannig, að
efsta spilið er fyrst lagt, siðan það neðsta,
þá spilið til hægri og svo spilið til vinstri
og siðast ská-spilin. Spilin i ytri stjörn-
unni eru siðan lögð i sömu röð og þau i
innri stjörnunni.
Afgangur spilanna er lagöur i miðju
stjörnunnar þannig, að bakhliðin snýr upp
á öilum spilunum, nema þvi efsta.Ef ann-
að spil sama gildist og efsta spil bunkans
fyrirfinnast i stjörnunni, má taka þessi
tvö spil og leggja til hliðar.
Ef spilið, sem tekið var burtu úr stjörn-
unni, hefur verið i innri stjörnunni, er spii
það, sem liggur fyrir þvi i ytri stjörnunni,
fært inn, en spil úr stokknum sett i stað-
inn, þannig að bakhliðin snýr upp. Þegar
annað spil hefur verið fjarlægt úr stjörn-
unni.má snúa þvi við og nota þaö. Hefði
spilið sem i fyrstu var lagt til hliðar
(ásamt með efsta spili bunkans, sbr. áð-
ur), verið úr ytri stjörnunni, er spil úr
stokknum lagt i stað þess með bakhliðina
upp. Gilda að öðru ieyti sömu reglur um
það og áður er greint frá.
Siðan er efsta spili stokksins i miðju
stjörnannar snúið við og leitað eftir spili i
stjörnunni með sama gildi, og þau tekin
frá. Og siðan koll af kolli.
Kapallinn gengur upp, ef hægt cr að
para öll spilin. Ef þetta er ekki hægt,
gengur kapallinn ekki upp. Sé stokkurinn
búinn, og telst þá kapallinn hafa gengið
upp engu að siður.
Hægt er að gera kapal þennan erfiðari
með þvi að snúa ekki spilinu, sem ávallt
er lagt i ytri stjörnuna við, fyrr en sam-
lægt spil i innri stjörnunni er lagt til hlið-
ar.
Þó að þessi aðferð sé notuð, er kapall
þessi bæði skemmtilegur og gengur hæfi-
lega oft upp. Gjörið þið svo vel.