Heimilistíminn - 20.02.1975, Blaðsíða 7
Húfa með trefli
Höfuðstærð 47—50cm. I húfuna er notaðar
tvær hnotur af Fleur-garni frá Hjartagarn
°g prjónar nr. 3 1/2. Festan er þannig að
22 1 sléttar eru 10 cm.
Fitjið 32 1 upp og prjónið 40 cm snúning, 1
sl, 1 sn. Geymið það stykki og prjónið ann-
að eins. Þetta eru endarnir á treflinum.
Þá eru fitjaðar upp 42 1 og slitið frá. Nú
eru allir þrir hlutarnir prjónaðir saman,
fyrst annar endinn, þá nýju lykkjurnar og
siöast hinn endinn. Þá eru alls 106 1 á.
Ptjónaðir eru 5 cm af snúningi, en siðan
skift yfir i slett prjón. Byrjið og endið alla
prjóna með 1 sl. Þegar sykkið er 9 cm
mælt frá miðstykkinu, er tekið úr á rétt-
unni, þannig: 1 sl, + 11 sl, 2 sl saman +
Endurtakið frá + til + og endið á 1 sl.
Prjóniðsiöan einn prjón og á næsta prjóni
eru 10 1 milli úrtaka. Þannig er haldið
áfram að taka úr á öðrum hvorum prjóni
þar til 261 eru eftir. Þá er slitið frá og end-
inn dreginn gegn um lykkjurnar. Húfan er
saumuð saman að aftan. Gerið dúsk úr
garninu og saumið i toppinn og gerið kög-
ur á enda trefilsins, i.þ.b. 6 cm langt.
7